Vísir


Vísir - 11.01.1979, Qupperneq 16

Vísir - 11.01.1979, Qupperneq 16
16 Fimmtudagur 11. janúar 1979 VISIR LÍF OG LIST LlF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST iÍF OG LIST Nýja bíó: Silent Movie ★ ★ ★ Orðlaust grín Þögul mynd — Silent Movie Nýja bió. Bandarisk. Árgerð 1976. Aðal- hlutverk: Mel Brooks, Dom DeLouise, Marty Feldman. Handrit: Mel Brooks, Ron Clark, Rudy DeLuca, Barry Levin- son. Leikstjóri: Mel Brooks. Skopkóngar banda- riskra kvikmynda um þessar mundir eru óneitanlega Woody Allen og Mel Brooks. Sameigin- lega eiga þeir tilfinningu fyrir hinu fáránlega i mannlifinu en aö flestu ööru er kimnigáfa þeirra ólik. Allen er nær hinum tragikómiska trúö. tmynd hans er hinn ruglaöi firrti tauga- veiklaöi nútimamaöur, sem á sifellt undir högg aö sækja i flóknu þjóö- félagi. Aö sumu leyti er Allen kómiker af ætt Chaplins þótt enn hafi hann ekki fágaö og slipaö verk sitt til jafns viö meistarann gamla. Allen er jafnframt finlegri verkmaöur i meöferö oröa hnyttnari og menntaöri en Brooks. Mel Brooks grinast fyrst og fremst til aö grin- ast. Myndir hans eru geggjaöir farsar, sem ekki byggja á alvörugef- inni lifssýn eins og óneitanlega er 1 grunnin- um hjá Allen. Afturámóti leynist ádeilubroddur I einstökum atriöum mynda hans. Mel Brooks yrkir þó umfram allt kvikmyndaóö til lifs- gleöinnar. Bæöi Allen og Brooks hefur oröiö þaö á eftir þvi sem þeir gera fleiri myndir aö endurtaka sig. Þó viröist ljóst aö Allen ætlar aö taka út‘ meiri þroska sem kvikmynda- höfundur meö nýjustu myndum sfnum, Annie Hall og Interiors. Brooks er aö mestu viö þaö sama heygaröshorn sem hann var I upphafi ferils sins, The Producers, Twelve Chairs, Þar sem laus- beislaöur farsi situr i önd- vegi. 1 seinni tiö hefur Brooks beint athygli sinni aö þvi aö paródera og lof- syngja i leiöinni hefö- bundin kvikmyndaform vestrana i Blazing Saddles, hrollvekjurnar i Young Frankenstein, þöglu myndirnar i Silent Movie sakamálamyndir Alfred Hitchcocks I High Anxiety. Margt er sniöugt i þess- um myndum og enn sem komiö er hefur Brooks ekki tekist betur upp að minu mati en I Young Frankenstein. Eitt megineinkenni allra þessara mynda er aö þær hafa eiginlega enga hnit- miðaða stefnu, ekkert skýrt markmiö. Þær rúlla svona áfram I rykkjum virka sem safn af skiss- DeLouise, Feldman og Brooks i leit að stjörnum i þöglu myndina sina. um, sem ekki hafa rök- ræna framvindu. Af þessu leiðir vitanlega aö þær eru misjafnar aö gæöum, — sumt er sniöugt, annað máttlaust. Kvikmyndir 9Arni Þdr- arinsson skrifar. Silent Movie sem fjallar um upprisinn alkó- hólista úr leikstjórastétt Mel Funn aö nafni (Mel Brooks) sem hyggst gera þögla kvikmynd til aö bjarga ferli sinum og fjárhag kvikmyndavers- ins er um margt Brooks uppá sitt besta. Þaö er virkilega gaman aö fylgjast meö trióinu Brooks.Feldman (sem þó veröur furðu litiö úr) og Dom DeLouise (sem á mörg fyndnustu augna- blik myndarinnar) I leit að stjörnum til aö leika i myndinni. Atriðin meö Burt Reynolds og Paul Newman eru sérstaklega skemmtileg. Umgjöröin, — þögul mynd um gerö þögullar myndar — er út af fyrir sig glúrin en Brooks tekst hins vegar ekki aö færa hana sér i nyt aö ööru leyti en sem vettvang stælingar og skripaláta. Aö visu glyttir i ádeilu á hugmyndafá- tækt og auöhyggju ame- riska kvikmyndaiðnaöar- ins en hún er bitlaus og hittir kannski ekki siöur Brooks sjálfan. En engu aö siður: dá- góö skemmtan. —AÞ »*(** (gac MífíéW UMnt<u, (»tZ cold-comfor .—r I I spy finds ............. i’omðiiiv. ííiiillfttuimHrtnmxí, .. ■— w YJm'Wtto wcmtfU. to^iííj j——-------i ttSDfóTD I 1 iWa'WAaei »y tm cw#, STAND BV t $no»v tonifhi, BBC is 1 txi'iting in Ict-'ittttó, It w t.iWi Rum: * KWWM^rt tfxiL tss- sss : wbo bUskiiwltr axs a.á bo«i ítttö y Svona sögðu The Sun og Daily Mirror frá sýningu fyrsta þáttarins af út i óvissuna. „Eini dragbíturinn er nafnið hennar" — segir mótleikarinn um Ragnheiði Steindórsdóttur í viðtali við The Sun um sjónvarpsþœttina Út í óvissuna Bresku blööin veittu sýningu fyrsta þáttar framhaldsseriunnar út i óvissuna eöa Running Blind eftir skáldsögu Desmond Bagieys talsveröa athygii um slðustu helgi. Þættirnir sem kvikmyndaöir voru hérlendis siöastliöið sumar eru þrlr og var sá fyrsti á dagskrá BBC-1 á föstudagskvöld. Aðaihlutverkin leika Stuart Wil- son, George Seweli Vladek Sheybal og Ragnheiður Steindórsdóttir. „Stjörnurnar og kvik- myndatökuflokkurinn áttu ekki sjö dagana sæla við upptökuna á íslandi”, • segir á dagskrárkynningu Daily Mirror. Sewell,Wil- son og Sheybal nistu tönn- um, segir blaöið en einn leikendanna var þó ánægöur og leið vel. „Hún er fremsta leikkona ls- lendinga, Heida Stein- dórsdottir, sem kemur fyrst fyrir sjónir breskra áhorfenda I þessum þátt- um.” Daily Mirror birtir aöeins mynd af Ragn- heiði. „Stórkostleg stúlka’’ The Sun segir I upphafi kynningar sinnar: „Verið viöbúin meiri snjó I kvöld (skirskotun til snjó- komunnar á Bretlandi undanfariö og Imyndar tslands, væntanlega, þótt myndin sé tekin hér aö sumarlagi! innsk. VIsis)”. Um basl hópsins viö upptökurnar á tslandi eru höfð mörg orö I bresku blööunum. M.a. haföi hann þurft aö hýrast i tjöldum I afskekktum héruðum Noröur-Islands I lengri tima. „En sitthvaö bætti þetta upp”, segir The Sun. „1 sögunni veröur Wilson sem er 31 árs aö aldri ástfanginn afi 25 ára gamalli feguröar- dis, Heida Steindórsdótt- ir, fremstu leikkonu ts- lands. „Hún er stórkostleg stúlka”, segir Wilson. „Hennar eini dragbitur er nafnið hennar. Flest okk- ar geta ekki boriö þaö fram”, hefur The Sun eftir stjörnunni. Sagan út i óvissuna fjallar sem kunnugt er um fyrrum njósnara sem neyöist til aö taka aö sér eitt verkefni enn fyrir yfirboöara sinn og liggur leiöin til tslands þar sem aö sjálfsögöu biöa hans hættur og ástir. —AÞ Popppistill VIII Samsull og sullumbull t siðasta pistli var fjallaö um árið 1970 og ympraö á nokkrum plötum. Þær stóru voru þó óupptaldar. Fyrst skal fræga telja plötu óðmanna sem hefur veriö tii umf jöilunar I öðru samhengi. Hún sperrti eyru þeirra sem lengi höfðu beðið eftir gagnrýnum röddum úr börkum popparanna. t textunum var bent á ýmsar meinsemdir sem þjóðarsálirnar hrjá og tfmabærar spurningar settar fram. Flutningurinn var sá tilþrifamesti sem landinn hafði framið til þess tlma svo aðrar plötur sem út komu um svipaö lleyti féllu i skuggann Meðal þeirra var Trú- brotsplatan „Undir áhrif- um”. A plötuumslagi var firna langur listi yfir hina aöskiljanlegustu áhrifa- valda. Ekki reyndist sú blanda áhrifarlkari en svo aö útkoman varö aödáend- um hljómsveitarinnar meiriháttar áfall. Riótrió sem þá var aö nálgast hátind frægöar sinnar lagöi sitt af mörk- um I jólapakkana. Var þaö breiöskifa sem hljóörituö var á hljómleikum I Austurbæjarbiói viö mikla stemmningu. Þeim til aö- stoöar var Gunnar Þóröar- son en hann átti eftir aö veröa þeim áhrifavaldur og haukur i horni. 1971 Nú er ekkert aö van- búnaöi i könnun ársins 1971. I ársbyrjun gekkst nemendafélag tónlistar- skólans fyrir vlðáttumiklu tónaflóöi. _ .. , Ægöi þar saman klassik.nútlmatónlist, jassi og sláttutónlist. A vissan hátt markaði þessi kvöld- stund þáttaskil i íslenskri poppsögu, þvi hún opin- beraði þá staöreynd aö ekki yröi til lengdar gengiö óömenn — „plata þeirra sperrti eynTþeirra sem lengi höföu beðið eftir gagnrýnum röddum úr börkum popparanna" segir Halldór m.a. í pistli sínum. LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG .LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.