Vísir - 13.03.1979, Blaðsíða 16
16
Þriðjudagur 13. mars 1979
VÍSIR
LÍFOGLIST LÍFOGUST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST
HVAÐ FANNST ÞEIAI UM ÓPERUNA?
íslenska óperan frumflutti á sunnudag-
inn óperuna Pagliacci. Háskólabíó var
þéttsetið á sýningunni og var henni mjög
vel tekið. Næsta sýning á óperunni verður
i kvöld.
Hér að neðan getur að lita álit nokkurra
áhorfenda á frumsýningunni.
Guðrún Á Simonar:
,Alveg stórkostlegt'
..Mér fannst þetta alveg
slorkostlegt miöaö við þær
aöstæöur, sem þetta (ólk
byr viö,” sagði Guörún A.
Simonar, söngkona.
,.Það stóðu sig allir mjög
vel. Halldór Vilhelmsson
fannst mér koma á óvart.
Hann var sérlga góður sem
Tonio og Magnús Jónsson
stóð sig vel eins og venju-
lega. Ólöf K. Harðardóttir
er eins og fædd Nedda frá
öllum sjónarhornum og
Friðbjörn G. Jónsson og
Hákon Oddgeirsson skiluðu
sinu vel lika. Og kórinn
söng vel.
Leikstjórn Þuriðar Páls-
dóttur var með afbrigðum
góð. Þetta var hennar
frumraun á þessu sviöi, en
hún þekkir þarna vel til.
Ég skemmti mér mjög
vel og fannst þetta góð
byrjun. Það er bara synd
að forráðamenn söngmála
hér á landi skuli ekki hafa
iagt meira hönd á plóginn.
Ópera á rétt á sér hér alveg
eins og annars staðar. Það
hefur margoft sýnt sig.”
—SJ
Jón Þórarinsson:
„Að mörgu leyti
ágœt sýning"
„Þetta var að mörgu
leyti ágæt sýning og miklu
betri en mátti búast viö,
miöaö viö þær lélegu aö-
stæöur, sem hópurinn á viö
aö búa,” sagöi Jón Þórar-
insson, deildarstjóri hjá
Sjónvarpinu.
Kristinn Hallsson:
,Kom ó óvart'
„Mér fannst hún alveg
ljómandi,” sagöi Kristinn
Hallsson, söngvari.
„Það kom mér mjög á
óvart hve vel tókst til i jafn
slæmu sönghúsi og Há-
skólabió er. Eins kom mér
á óvart hvað tókst að ná
upp stemmningu við þessar
aðstæður, sem eru vægast
sagt hræðilegar. Sérstak-
lega var eftirtektavert
hvað hljómsveitin var
hreint ágæt miðað við að
meðlimir hennar eru allir
amatörar.
Þetta sýnir og sannar að
það er hægt að gera ýmis-
legt þegar fólk reynir að
brjótast áfram og leggur
mikið á sig, eins og þetta
fólk gerði með þvi að æfa
oft fram á nætur. Þetta
sýnir lika að það er allt of
litið gert fyrir söngvara
miðað við aðrar stéttir
listamanna, sem þó er sist
of mikið gert fyrir” —SJ
Gylfi Þ. Gislason:
,Vona að verði óframhald'
„Mér fannst hún alveg
ágæt,” sagöi dr. Gylfi Þ.
Gislason.
„Ég skemmti mér reglu-
lega vel. Magnús og Ólöf
voru mjög góð og mér kom
á óvart hvað hljómsveitin
var góð. Það er alveg
makalaust að hægt skuli
vera að ná saman góðri 45
manna hljómsveit með litl-
um fyrirvara.
Ég varð siður en svo fyrir
vonbrigðum og vona bara
að það verði áframhald á
þessu.” —SJ
MED GESTSAUGUM
Teiknari: Kris Jackson
Kirkjuvika
ó Akureyri
Kirkjuvika er
haldin á Akureyri
um þessar mundir
og stendur hún fram
til næstu helgi.
Fjölbreytt dagskrá
veröur alla þessa viku og
mun Steingrimur Her-
mannsson kirkjumála-
ráðherra t.d. flytja ræðu
kvöldsins á föstudag. Þá
syngja sex kórar, spurn-
ing dagsins verður tekin
fyrir með málefnum ofar-
lega á baugi og einnig
verður boðið upp á
kirkjukaffi á eftir dag-
skrá kvöldsins.
Þessar kirkjuvikur
hafa verið haldnar annað
hvert ár frá þvi 1959 og
jafnan við góðar undir-
tektir bæjarbúa. Að
kirkjuvikunni nú standa
þrjú félög innan safnaö-
anna á Akureyri, kvenfé-
lagið, bræðrafélagiö og
æskulýðsfélagið. —HR
Sýna Hart
í bak
Leiklúbbur Skaga-
strandar frumsýndi i fé-
lagsheimilinu Fellsborg
um helgina leikritiö Hart
I bak eftir Jökul Jakobs-
son. A næstunni fer
klúbburinn um nærsveitir
meö leikritiö og byrjar
um næstu helgi meö sýn-
ingu á Hvammstanga.
Þetta er fjórða leikritiö
sem Leikklúbbur Skaga-
strandar tekur til sýn-
inga, en klúbburinn var
stofnaður árið 1974. Fyrri
verkefni Leikklúbbsins
eru Tobacco Road, Allra
meina bót og Skjald-
hamrar.
Aðsókn hefur verið
mjög góð að þessum sýn-
ingumrað sögn Ólafs
Bernódussonar, for-
manns klúbbsins hafa
um 80% íbúa Skaga-
strandar séð þær. Leik-
klúbburinn þarf þvi ekki
Hallbjörn
Magnús
að kvarta yfir áhugaleysi.
Leikstjóri Hart i bak er
Ragnheildur Steingrims-
dóttir og i aðalhlutverk-
um eru Hallbjörn Hjart-
Birna
Bjarnhildur
arson Birna Blöndal,
Magnús Jónsson og
Bjarnhildur Sigurðar-
dóttir.
—SJ
HMJ ÍSLEM3K/ CKCMAfXlB
i ÖRGERp'iéW?
IflRGERÐ IffllTÍ
MVTTHEV
2SZ
Inrfonríh‘7? I
LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LIF OG LIST LÍF OG LIST