Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 9
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 B 9
Leikmannaskóli
þjóðkirkjunnar
L
minnir á næstu námskeið
Að lifa með fjölmiðlum.
Umsjón: Sr. Bernharður Guðmundsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 3 fimmtudagar 8/2, 15/2, 22/2 kl. 18-20
Trúarleg stef í kvikmyndum.
Kennarar: Bjarni Randver Sigurvinsson og Þorkell Á. Óttarsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 4 fimmtudagar 8/2, 15/2, 22/2, 1/3 kl. 20-22
Leyndardómur trúarinnar.
Kennari: Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 4 mánudagar 12/2, 19/2, 26/2, 5/3 kl. 20-22
Hjálparstarf og kristniboð.
Kennarar: Sr. Kjartan Jónsson og Jónas Þórisson
Staður: Háskóli Íslands.
Tími: 4 þriðjudagar 13/2, 20/2, 27/2, 6/3
Líf Krists og lærisveina hans.
Kennari: Sr. Ólafur Jóhannsson.
Staður: Háskóli Íslands.
Tími 4 miðvikudagar 14/2, 21/2, 28/2, 7/2 kl. 20-22
Pantaðu bækling!
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Nánari upplýsingar eru veittar á:
Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar,
Biskupsstofu, Laugavegi 31,
150 Reykjavík, sími 535 1500,
bréfsími 551 3284
Netfang: frd@kirkjan.is
Skólavörðustíg 21, sími 552 2419
Opið virka daga frá kl. 12-18, laugard. 12-16.
Höfum til sölu sérstaklega falleg „Renesans“
borðstofuhúsgögn frá 1920, stakan sófa o.fl.
Leitið upplýsinga í síma 552 2419
Tvöfalt sterkara
Glucosamine
G
æ
ð
as
ti
m
p
ill
Félag harmonikuunnenda
í Reykjavík heldur skemmtifund
kl. 15 í dag í Hreyfilshúsinu.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Grettir Björnsson og Jakob Ingi Jakobsson
ásamt fleirum.
Allir eru velkomnir. Takið með ykkur gesti.
Félag
harmonikuunnendaJAPANIR hafa í tilraunaskyni
smíðað flugvöll með eins kílómetra
langri flugbraut, sem flýtur. Farið
var út í þetta tilraunaverkefni, sem
ber heitið „Mega-Float“, með það í
huga að sannreyna hvort fram-
kvæmanlegt sé að byggja nýjan al-
þjóðaflugvöll fyrir Tókýó – þar sem
landrými er mjög af skornum
skammti – úti í sjó.
Eftir því sem sagt er frá í þýzka
blaðinu Welt am Sonntag er nú þeg-
ar búið að gera nokkur hundruð til-
raunalendingar á flugvellinum fljót-
andi og þegar búið að ákveða að
ráðast í að smíða mun stærri flot-
flugbraut, þar sem flugvélar allt upp
í Boeing 747-risaþotur eiga að geta
lent.
Þó hefur sú eins kílómetra langa,
milli 60 og 100 m breiða og þriggja
metra „djúpa“ flotbraut, sem búið er
að smíða, verið skráð í heimsmeta-
bók Guinness sem stærsta mann-
gerða „eyjan“. Hún er 8,4 hektarar
að flatarmáli og um 37.000 tonn að
þyngd.
Lendingarbrautin sjálf er borin
uppi af þremur lögum vatnsheldra
holrúma, en þau eiga að gera mann-
virkið „ósökkvanlegt“. Það er fest
við hafsbotninn með stálbitum og
aukalega með voldugum akkerum,
sem á að gera það svo til ónæmt fyr-
ir náttúruöflunum. Hlífðarveggur
gegn hafáttinni á að hlífa brautinni
við brimi. Enn einn kostinn við flot-
flugbraut telja Japanir einnig felast
í því að henni á að vera mun minna
hætt við að verða fyrir skemmdum í
jarðskjálfta en venjulegri landflug-
braut.
Til kosta flotflugbrautarinnar má
líka telja, að í nágrenni hennar eru
engar hindranir á borð við háhýsi og
þetta hindranaleysi fækkar líka
þáttum sem truflað geta fjarskipti
milli flugturns og flugvélastjórn-
enda. Þá telst það að sjálfsögðu
einnig kostur, að hægt skuli vera að
flytja brautina eins og hvern annan
pramma.
Enn einn kosturinn er sá, að
brautin er smíðuð úr efnum – burð-
arvirkið úr sérstökum stál- og tít-
ansamböndum – sem eiga að gera
hana mjög endingargóða, þrátt fyrir
tærandi saltrokið af hafinu. Að-
standendur „Mega-Float“ vonast til
að eftir 100 ár verði brautin enn jafn
nothæf. Hin fjaðrandi áhrif legunnar
á sjónum eiga líka að mýkja lend-
ingar og gera þar með yfirborðsefn-
in á flugbrautinni endingarbetri.
Dýrt
Sautján fyrirtæki í stál- og skipa-
smíðaiðnaði standa að „Mega-
Float“-verkefninu auk japanskra
samgönguyfirvalda. Fyrst var til
þess stofnað árið 1995, en þegar loks
var hafizt handa árið 1999 við að
smíða brautina tók ekki nema þrjá
mánuði að ljúka verkinu. Engu að
síður hefur kostnaðurinn verið gríð-
arlegur; um fjórtán milljarðar króna
hafa farið bara í smíði tilraunaflug-
brautarinnar. Að smíða heilan flug-
völl, sem þjónað gæti alþjóðaflugi í
samkeppni við aðra flugvelli við
milljónaborg eins og Tókýó, myndi
samkvæmt útreikingum japanska
samgönguráðuneytisins kosta um
9,6 milljarða bandaríkjadollara, eða
um 816 milljarða króna. Til saman-
burðar má geta að Kansai-alþjóða-
flugvöllurinn, sem byggður var með
landfyllingu úti í sjó – og hefur því
þann kost fram yfir „Mega-Float“ að
hafa beina vegtengingu við land –
kostaði um 13,5 milljarða dollara,
andvirði um 1.148 milljarða króna.
Þó er að því stefnt, að innan 10–15
ára verði kominn í gagnið í Japan
flotflugvöllur, sem geti tekið við um-
ferð risaþotna.
„Flot-Las Vegas“?
Aðrar iðn- og þjónustugreinar
hafa líka sýnt „Mega-Float“ athygli.
Hugmyndir hafa heyrzt nefndar um
að koma fyrir á floti undan landi t.d.
vörulagerum, sorpeyðingarstöðvum
og gámahöfnum, svo ekki sé minnzt
á möguleikann að byggja heilu af-
þreyingarheimana úti á sjó, með
hótelum, spilavítum og skemmti-
stöðum.
Flugvöllur sem flýtur
Associated Press
Hér sést er síðustu einingunni af
sex var bætt við „Mega float“-
flotflugbrautina á Tókýóflóa,
undan bænum Yokosuka, hinn 4.
ágúst 1999.