Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 1

Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 1
2001  MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A RAGNHEIÐUR STEPHENSEN ER HÆTT MEÐ LANDSLIÐINU / B4 SVO kann að fara að Jón Arnar Magnússon keppi í sjöþraut á sænska meistaramótinu í fjölþrautum sem fram fer um aðra helgi. „Ef ljóst verður að árangur minn í sjöþrautinni í Tallin á dögunum nægir mér ekki til þess að tryggja mér farseðilinn á HM í næsta mánuði þá ætla ég á sænska meistaramótið og reyna að gera betur en í Tallin,“ sagði Jón í sam- tali við Morgunblaðið. Jón sagði enn fremur að svo liti út fyrir að hann væri alveg við mörkin að komast inn á HM. Til þess að vera öruggur um keppnisrétt í sjöþrautinni á HM innanhúss þurfi að vera með árangur upp á 6.100 stig. Hann náði 6.056 stigum í Tallin á dögunum. „Ef þarf að fara til Svíþjóðar, þá fer ég,“ sagði Jón Arnar, sem nú keppir fyrir Breiðablik. Hann taldi það verða ljóst strax upp úr helginni hvort af Svíþjóðarferðinni verður. Jón Arnar á sænska meistaramótið? Formannafundur Ungmenna-sambands Kjalarnessþings (UMSK) samþykkti í gærkvöldi að lýsa vantrausti á stjórn Ungmenna- félags Íslands (UMFÍ) vegna ákvörðunar hennar að ganga ekki til viðræðna við Íþróttasamband Ís- lands (ÍSÍ) um sameiningu. Fundurinn var mjög fjölmennur og var vantraustið samþykkt sam- hljóða ásamt því að fela stjórn að skipa þriggja manna nefnd til að „undirbúa frekari viðbrögð“, eins og segir í fréttatilkynningu frá UMSK. Birgir Ari Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri UMSK, sagði í sam- tali við Morgunblaðið eftir fundinn að ekkert hefði verið ákveðið hvað fælist í „frekari viðbrögðum“. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins munu einhverjir innan UMSK telja að í því felist nánari skoðun á aðild UMSK að UMFÍ með úrsögn í huga verði ekki orðið við kröfum stórs hluta hreyfingarinnar um hugsan- lega sameiningu við ÍSÍ. Í fréttatilkynningu frá UMSK í gærkvöldi segir meðal annars: „Formannafundur UMSK haldinn 13. febrúar 2001 lýsir yfir vantrausti á stjórn UMFÍ vegna ákvörðunar stjórnarfundar 9.-10. febrúar sl. um að ganga ekki til viðræðna við ÍSÍ um mögulega sameiningu, þrátt fyr- ir að vilji stórs hluta hreyfingarinn- ar hafi ítrekað komið fram.“ Vantraust á stjórn UMFÍ EKKERT verður af því að Þórður Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Las Palmas á Kanaríeyjum, verði lán- aður til enska úrvalsdeildarliðsins Derby County. Í gær slitnaði upp úr samninga- viðræðum á milli félaganna en Derby vildi fá Þórð að láni í þrjá mánuði með hugsanleg kaup í huga. Las Palmas vildi fá 35 milljónir króna fyrir leigusamn- inginn og var ekki tilbúið að draga þá upphæð frá ef Derby hefði viljað kaupa leikmanninn. „Félögin voru að þrátta um þetta fram og til baka. Derby var ekki tilbúið að borga svona háa upphæð fyrir leiguna og þar með varð ekkert úr þessu. Derby benti á félagið hefði ekki þurft að greiða AC Milan neitt fyrir leig- una á Taribo West, aðeins greiða honum laun, og þannig skilst mér að þetta sé hjá flestum liðum en Las Palmas var ekki tilbúið að ganga að þessum skilyrðum,“ sagði Þórður í gær. Þórður verður því áfram í her- búðum Kanaríeyjaliðsins, sem keypti hann frá Genk í Belgíu síðasta sumar. Hann hefur fengið fá tækifæri með liðinu til þessa og yfirleitt þurft að verma vara- mannabekkinn í vetur. Þórður fer ekki til Derby Schubert bauð þeim piltum fjög-urra til fimm ára samning sem þeir eru að fara yfir nú. Í samningnum er boðin skólavist við háskólann þeim að kostnaðarlausu, en í staðinn verða þeir að keppa fyrir skólaliðið. Hvert ár við skól- ann kostar rúmlega 3 milljónir króna. Samkvæmt reglum háskól- anna ytra þá má þjálfarinn ekki hitta þá Jakob og Örn á ný í heim- sókn sinn að þessu sinni. Reiknað er með að þeir verði í síma- og tölvupóstsambandi við Schubert á næstunni til þess að fá svör við ýmsum þeim spurningum sem kunna að vakna. Þá kemur til greina að Jakob og Örn haldi utan til þess að skoða aðstæður, en of snemmt er enn að fullyrða hvort eða hvenær af þeirri ferð verður. Einnig er ljóst að þeir verða að fara í stöðupróf áður en formlega verður gengið frá hugsanlegri inn- göngu þeirra í skólann. Schubert er einn virtasti sund- þjálfari Bandaríkjanna og er m.a. þjálfari Lenny Krayzelburg, heimsmethafa og ólympíumeistara í baksundi. Hann hefur nú lokið námi við skólann og er Schubert að leita að eftirmanni hans í skóla- liðið. Þar er Örn efstur á óskalist- anum. Krayzelburg ætlar áfram að æfa undir stjórn Schuberts þrátt fyrir að mega ekki lengur keppa fyrir hönd skólans. Schubert vill fá Örn og Jakob út í sumar MARK Schubert, sundþjálfari háskólans USC í Los Angeles og landsliðsþjálfari bandaríska sundlandsliðsins á síðustu Ólymp- íuleikum, fundaði með sundmanninum Jakobi Jóhanni Sveinssyni og foreldrum og þjálfara í fyrradag og með Erni Arnarsyni og hans fólki í gær. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Schubert mikinn áhuga á að fá báða sundmennina í sveit sína og það ekki síðar en síðsumars þegar skólar hefjast í Bandaríkjunum. Reuters Harry Kewell fagnar sigurmarki Lee Bowyers fyrir Leeds gegn Anderlecht í meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld. Leeds sigraði, 2:1, og stendur vel að vígi í sínum riðli. Sjá nánar á B2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.