Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 4
ÍÞRÓTTA- og Ólympíu- samband Noregs, NIF, hefur gert frumathugun á því hvort íþróttaáhugafólk í landinu sé tilbúið að skipta um farsímafyrirtæki og taka upp viðskipti við nýtt síma- fyrirtæki og hluti af hagnaði þess rynni til íþróttafélaga sem eru innan vébanda NIF. Ivar Egeberg, forseti NIF, segir í viðtali við Aften- posten að samkvæmt fyrstu athugun megi áætla að um 10% meðlima NIF séu tilbúin að eiga viðskipti við My- Sport-símafyrirtækið en það eru rúmlega 30.000 far- símanotendur. Egeberg tel- ur að íþróttahreyfingin verði að bregðast við nýjum áherslum í daglegu lífi al- mennings, en illa gengur að fá fólk til starfa í grasrót íþróttahreyfingarinnar. Skýringin er m.a. talin vera að bróðurpartur af sjálf- boðavinnu íþróttafélaga snú- ist um „betl“ og fjáraflanir. Takist samstarfsverkefnið um farsímafyrirtækið vel má gera ráð fyrir að NIF fái rúmlega milljarð króna í tekjur á ári frá farsímanot- endum. Egeberg telur enn fremur að hagnaðurinn geti breytt starfi íþróttahreyf- ingarinnar til hins betra og íþróttastarfið sjálft verði aft- ur aðalmarkmið hjá þeim sem starfa við barna- og unglingstarf. Íþróttahreyf- ingin í far- símaslaginn?  HELGI Jónas Guðfinnsson og félagar úr Ieper töpuðu naumlega, 78:80, gegn toppliði Oostende í belgísku fyrstu deildinni í körfu- knattleik. Helgi lék í 17 mínútur, skoraði fimm stig, átti tvær stoð- sendingar og tók eitt frákast. Leik- urinn var hörkuspennandi en Oost- ende hafði jafnan fárra stiga forystu. Ieper hefði þó getað jafn- að leikinn á lokasekúndunum en Michael Huger brást bogalistin úr langskoti. Liðið situr nú í 6. sæti deildarinnar en átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina í lok tímabilsins.  FORSVARSMENN NBA-deildar- innar hittust á fundum í Wash- ington þar sem stjörnuleikur NBA fór fram um helgina. Þar var m.a. rætt um styttri skotklukku, 20 sek- úndur í stað 24 og einnig var rætt um að leyfa liðum að leika svæð- isvörn, sem er bannað í NBA-deild- inni.  NBA liðunum hefur gengið illa að skemmta fólki á undanförnum árum. Leikur liðanna snýst að stórum hluta um að tveir leikmenn spili saman á meðan hinir þrír sem í liðinu eru standa álengdar og draga til sín varnarmenn. Á síðasta áratug hefur fjöldi skoraðra stiga í hverjum leik farið niður á við og skottilraunum hefur einnig fækkað. Þrátt fyrir að reglum deildarinnar hafi verið breytt fyrir fjórum árum hefur stigaskorið farið niður á við.  NÆSTI stjörnuleikur NBA- deildarinnar fer fram í Phila- delphia. Forráðamenn liðsins hafa undirbúið sig fyrir leikinn í rúm- lega tvö ár þar sem leikurinn átti að fara fram í borginni árið 1999 en ekkert varð af vegna verkfalls NBA-leikmanna. FÓLK Ég hef verið að velta þessu fyrirmér síðan eftir undankeppni HM vorið ’99. Sú keppni og undir- búningurinn fyrir hana var mjög erfið andlega, a.m.k. fyrir mig. Það sem gerst hefur síðan í lands- liðsmálum hefur ekki orðið til þess að auka áhuga minn á þessari baráttu,“ sagði Ragnheiður í samtali við Morg- unblaðið þegar hún var spurð út í ástæðu þess að segja skilið við lands- liðið. „Eftir að hafa náð góðum árangri á æfingamóti á Spáni sumarið ’98 var haldið á annað sterkara mót í Tyrk- landi um haustið. Þar náðust nokkur hagstæð úrslit en einn lélegur leikur olli því að neðsta sætið varð okkar hlutskipti. Í kjölfarið þurfti leik- mannahópurinn að hlusta á óverð- skuldaðar svívirðingar í sinn garð um tryggð sína við verkefnið og ým- islegt fleira. Með þetta á bakinu hélt hópurinn áfram sínum undirbúningi fyrir HM. Auk þess höfðu tveir af lykilleikmönnum liðsins dottið úr hópnum vegna meiðsla og einn til viðbótar var tæpur. Við þetta minnk- aði leikreynsla liðsins mikið og með- alaldur lækkaði,“ segir Ragnheiður. „Mótherjarnir sem við fengum voru svo ekki af verri endanum, Rússar og Króatar. Í leikjunum á móti Rússum misstum við svo á eft- irminnilegan hátt einn máttarstólp- ann í viðbót. Það atvik átti eftir að draga dilk á eftir sér og vekja upp spurningar um tryggingar leik- manna. Þeirri sögu er enn ekki lokið. Það var ekki nóg heldur gátu þjálf- arar deildarinnar ekki setið á sér og hófu upp gagnrýnisraddir og þurftu leikmenn aftur að hlusta á að þeir æfðu ekki nóg og væru ekki með hugann við verkið. Á þessari stundu var ekki margt sem benti til að bjart væri framundan í kvennaboltanum. Það voru líka góðar fréttir þetta ár þegar 20 ára liðinu tókst að tryggja sér sæti í lokakeppni HM, sem er stærsta verkefni sem íslenskt kvennalandslið hefur fengið. En hvernig HSÍ tókst að klúðra því verkefni með ófaglegum undirbún- ingi er eitthvað sem ég mun aldrei skilja. Það sem hefði getað orðið lyftistöng fyrir íslenskan kvenna- handknattleik urðu bara tóm von- brigði,“ segir Ragnheiður. „Núna nýlega var svo landsliðið vakið upp að nýju með nýjum styrkt- araðilum og verkefnum. Það var ráð- inn nýr, mjög ungur, reynslulaus þjálfari. Hinn nýi leikmannahópur var einnig mjög ungur og reynslulít- ill en eins og áður voru allir tilbúnir til að leggja sig fullkomlega fram við verkefnið. Þótt ég hafi eins og marg- ir aðrir ekki verið allt of ánægð með að fela svona ungum og reynslulaus- um þjálfara jafn mikla ábyrgð ákvað ég að gefa þessu tækifæri. Ég hef alltaf lagt mikinn metnað í að leika með landsliðinu og vildi ekki dæma neitt fyrr en ég væri búin að prófa. Eftir síðasta verkefni komst ég hins vegar að þeirri niðurstöðu að eins og staðan er í dag væri ég einfaldlega vaxin upp úr landsliðinu. Mér finnst það leiðinlegt en ég er bara búin að fá nóg og nenni ekki lengur að hlusta á skítkast, hvorki frá nefndarmönnum HSÍ eða inni á æfingum. Við erum alltaf að reyna að finna upp hjólið. Í staðinn fyrir að félögin vinni saman að uppbyggingu kvennahandboltans er hver að pukrast í sínu horni og lit- ið er á landsliðið sem einhverskonar óvin. Ég óska landsliðinu alls hins besta í komandi verkefnum og vona að uppbygging á nýju liði eigi eftir að ganga vel,“ sagði Ragnheiður. Ragnheiður ákvað í sumar að söðla um og halda til Noregs. Hún hafði leikið allan sinn feril með Stjörnunni en fékk tilboð frá Bryne og ákvað að slá til. En hvernig hefur henni geng- ið að fóta sig í Noregi þar sem deilda- keppnin er talin með þeim betri í heiminum? ,,Mér hefur gengið ágætlega. Ég vissi að okkar hlutskipti yrði að berj- ast fyrir sæti í deildinni. Við byrj- uðum illa en baráttan gengur vel eins og stendur og bendir allt til að mark- miðið náist. Liðið er mjög jafnt, eng- ar sérstakar stjörnur og er það bara gott. Hvað mig sjálfa varðar, hef ég spilað upp og ofan. Hér verð ég stöð- ugt að sýna mitt besta því meðal- mennska dugar ekki. Það koma því leikir þar sem ekkert gengur en sem betur fer hafa þeir ekkert verið allt of margir.“ Hefur eitthvað komið þér á óvart? „Það er margt sem hefur komið mér á óvart hérna. Ég vissi að þetta væri ekki atvinnumannalið sem ég var að fara í en ég hélt að lið sem væri komið upp í efstu deild væri með þokkalega faglega umgjörð. En það er ekki raunin. Sjúkraþjálfara- mál eru t.d. í algjörum lamasessi hérna. Ég hef líka verið að skoða yngriflokkaþjálfunina og verð ég að lýsa furðu minni yfir því hvernig staðið er að málum miðað við hvað Norðmenn standa framarlega í handknattleik á alþjóðamælikvarða. Liðin hér horfa síðan upp á sama vandamál og liðin heima. Yngri leik- menn eru ekki tilbúnir að fórna því sama fyrir handboltann og leikmenn gerðu hér áður fyrr. Þetta er greini- lega að verða alþjóðlegt vandamál. Skuldbindingin við liðið er ekki alltaf fyrst í forgangsröðinni. Auðvitað er þetta mismunandi eftir liðum alveg eins og heima. Ég hef eiginlega kom- ist að þeirri niðurstöðu að það sem gerir Norðmenn svona miklu sterk- ari en okkur er mikið til fólksfjöldinn en ekki betri uppbygging. Þeir hafa einfaldlega úr fleiri góðum einstak- lingum að velja. Samkeppnin er meiri og þar með verða góðir ein- staklingar betri.“ Letilíf á ekki við mig Hvað með áframhaldið. Verður þú áfram úti eða kemurðu heim eftir tímabilið? „Ég skrifaði undir eins árs samn- ing og hafði aldrei hugsað mér að vera neitt lengur en það. Mig langaði bara til að prófa að spila í sterkari deildakeppni og nú er ég búin að því. Ég hef aldrei haft þann draum að vera atvinnumaður í handbolta. Mér finnst bara ekkert heillandi að æfa tvisvar á dag og ekkert annað. Ég elska íþróttina en svona letilíf á ekki við mig. Ég er vön að vinna meira en fulla vinnu með handboltanum og sakna ég þess mikið að hafa ekki meira fyrir stafni. Ég samdi reyndar upp á að vinna eitthvað en það hefur bara ekki gengið upp. Ég fékk eins árs frí frá vinnu til að fara út og ég hlakka mikið til að komast aftur heim í kennsluna. Þannig að ég er örugglega á leiðinni heim í vor og mun mitt gengi eða gengi liðsins ekki breyta þeirri ákvörðun,“ segir Ragn- heiður Stephensen, handknattleiks- kona í Noregi. Ragnheiður Stephensen handknattleikskona er hætt með landsliðinu Litið er á lands- liðið sem óvin Morgunblaðið/Jim Smart Ragnheiður Stephensen sækir að varnarmanni Slóvena í landsleik skömmu fyrir áramót. Ef að líkum lætur var þetta síðasti landsleikur hennar, en Ragnheiður segist hafa fengið nóg. RAGNHEIÐUR Stephensen, handknattleikskona hjá norska úrvalsdeildarliðinu Bryne, ætlar ekki að gefa kost á sér framar í íslenska landsliðið. Hún er ósátt við margt sem tengist kvenna- handboltanum hér á landi og landsliðinu og í samtali við Morgunblaðið segist hún ein- faldlega vera búin að fá nóg. Ragnheiður er 30 ára gömul og hefur verið einn af máttarstólp- unum í íslenska landsliðinu hin síðari ár. Hún lék sinn fyrsta landsleik árið 1992 og hefur leikið 51 leik fyrir Íslands hönd. Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.