Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 1
 Slóðin á vefsetur Scan+ er: www.scanplus.no og hjá Fosshótelunum: www.- fosshotel.is FOSSHÓTELIN hafa hlotið aðild að Scan+-keðjunni sem er sam- heiti fyrir samstarf rúmlega 200 hótela á Norðurlöndum, Belgíu, Hollandi og Þýskalandi. Hægt er að kaupa Scan-kort sem síðan veit- ir allt að 50% afslátt af gistingu á þeim hótelum sem eru í keðjunni hér á landi og erlendis. Fimmta nóttin sem notuð er af kortinu er frí. Auk Fosshótela eiga aðild að Scan+- keðjunni 47 Norlandia-hót- el í Noregi, 15 Rainbow-hótel í borgum í Noregi, Sweden-hótelin, með yfir 100 hótel í Svíþjóð, og Tulip Inns og Golden Tulips sem eru stórar hótelkeðjur í Dan- mörku, Belgíu, Hollandi og Þýska- landi. Fastur afsláttur af gistingu Handhafar kortsins fá fastan af- slátt af gistingu á Fosshótelum, 25% frá september og fram í maí og 10% frá júní og fram í ágúst á Fosshótel Lind í Reykjavík. Á landsbyggðinni er gefinn 40% frá september og fram í maí og 25% í júni og 10% júli og ágúst. Renato Gruenenfelder, fram- kvæmdastjóri Fosshótela, segir að Fosshótelin séu stolt af því að geta boðið íslenskum viðskiptavinum sínum sambönd og afslætti í ýms- um löndum, sérstaklega í Skandin- avíu. Hann segir það einnig skipta máli fyrir íslenska hótelkeðju að vera aðili að keðju sem þessari. Scan+-kortið er til sölu á skrif- stofu Fosshótela í Skipholti 50c og á öllum Fosshótelum og kostar 1000 krónur. Hvert kort gildir fyrir 2 full- orðna og 2 börn. Fosshótelin eru tíu talsins hér á landi. Morgunblaðið/Jim Smart Fosshótelin fá aðild að Scan+-keðjunni SUNNUDAGUR 11. MARS BLAÐ C TERRA Nova kynnti nýlega nýtt vefsetur á slóðinni www.- terranova.is en þar er hægt að nálgast upplýs- ingar um flug á vegum ferðaskrif- stofunnar, verð og brottfar- artíma. Á vefnum verða reglulega ferðatilboð og að sögn Guðbjörns Guðbjörnssonar, markaðsstjóra Terra Nova, munu þeir sem að- stöðu hafa til að skella sér til út- landa með stuttum fyrirvara geta gert hagstæð kaup þegar af- gangssæti í vélum verða seld á lágu verði. Guðbjörn segir að ýmsar upp- lýsingar um áfangastaði verði hægt að nálgast á vefnum en þessa dagana er verið að setja þar inn fróðleik um borgir, bæi og héruð í Evrópu. Þá eru líka krækjur inn á önnur vefsetur, t.d. flugfélaga, flugvalla, bílaleiga og gististaða í Evrópu. Á vefnum getur fólk aflað sér vitneskju um sumarhúsaleigu í ýmsum Evrópulöndum, skoðað myndir af húsunum og fengið uppgefið verð. Þá er einnig vakin athygli á fyrirtækjaþjónustu Terra Nova en ferðaskrifstofan skipuleggur helgarferðir og lengri ferðir fyrir hópa og fyrirtæki. Nýtt vefsetur hjá Terra Nova Ferðatilboð og sumarhús í Evrópu  Slóð vefseturs Terra Nova er www.terranova.is FERÐALÖGUM fjölgaði um 7,4% á heimsvísu á liðnu ári, að mati Al- þjóðlegu ferðamálastofnunarinnar (WTO). Greint var frá þessu á Al- þjóðlegu ferðasýningunni í Berlín, ITB, sem lauk síðastliðinn fimmtu- dag. Helstu ástæður aukningarinnar eru sagðar blómlegt efnahagslíf á heimsvísu og sérstakir viðburðir vegna ársins 2000. Umrædd aukning er jafnframt tvöföld í samanburði við árið 1999 og sú mesta í áratug. Ferðaþjónustan óx að vöxtum í öll- um heimshlutum þótt aukningin væri sýnu mest í Kyrrahafshluta Austur-Asíu, 14,5%, þar sem heima- menn tóku á móti 14 milljónum fleiri ferðamönnum í fyrra, en árið 1999. Fjölgaði ferðamönnum talsvert mik- ið til Kína og áhrifasvæða þess Hong Kong og Macao, sem og til Suð- austur-Asíu, einkum og sér í lagi Tai- lands, Malasíu, Kambódíu og Víet- nam, sem eru jafnframt að verða vinsælustu áfangastaðir heimsins. Njóta þeir raunar slíkrar hylli, að ferðalangar hafa vaxið ferðaþjón- ustunni á umræddum svæðum yfir höfuð, samkvæmt upplýsingum frá WTO. Evrópa á um 58% skerf þegar mat er lagt á komu erlendra ferðamanna til tiltekinna landsvæða og er aukn- ing heimsókna þangað sögð 6,2%, eða 403 milljónir, sem er 25 milljón- um fleira en árið 1999. Meðal vinsæl- ustu áfangastaða Evrópu eru Ísland, þar sem aukningin varð 19%, Finn- land, 10%, og Eistland, 15,%. Þótt ferðalögum hafi fjölgað varð sama og engin aukning á ferðum til Afríku, eða 1,5%, sem kvað vera minnsti vöxtur frá upphafi. Að vísu fjölgaði gestum í Keníu, Zambíu, Máritíus, Marokkó, Túnis og Alsír, en fækkaði að sama skapi annars staðar, svo sem í Zimbabve þar sem samdrátturinn varð 60%. Heimsóknum fjölgaði hins vegar um 8,8% til Mið-Ameríku og rúm 7% til Norður-Ameríku og Karíbahafs- ins. Ferðalög jukust ennfremur til Miðausturlanda, einkum áfanga- staða tengdra kristni vegna ársins 2000. Fyrstu níu mánuði ársins fjölg- aði heimsóknum til Miðausturlanda um 20% en fækkaði aftur undir árs- lok vegna ófriðar. Ferðalög jukust ennfremur til ýmissa landa Suður- Asíu, svo sem um 9% til Írans og Ind- lands, en drógust á hinn bóginn veru- lega saman til Nepal og Sri Lanka vegna óspekta meðal innfæddra. Alþjóðlega ferðamálastofnunin býst ekki við samskonar aukningu á þessu ári, þar sem mönnum telst til að ferðalögum muni ekki fjölga meira en um 4,1% á alþjóðavísu. Vinsælustu áfangastað- irnir í Suðaustur-Asíu Reuters Í fyrra varð á heimsvísu mesta aukning á ferðalögum í áratug Zimbabve var kynnt sem para- dís Afríku á sýningunni í Berlín. Ekki eru allir á einu máli um það enda fækkaði ferðamönnum þangað um 60% árið 2000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.