Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 1
2001 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KÖRFUKNATTLEIKUR: BREYTINGAR HJÁ ÞÓR A. OG KFÍ / C3
fjögurra þjóða riðlum eins og vant
væri og yrði riðlakeppninni skipt nið-
ur á Danmörku, Noreg, Svíþjóð og
Finnland. Ráðgert væri að fyrsti leik-
ur keppninnar færi fram á Parken í
Danmörku, en auk þess kæmi til
greina að leika á leikvangi Bröndby
og jafnvel á nýjum velli á Jótlandi
sem væri á teikniborðinu.
Í Noregi væri gert ráð fyrir að spil-
að yrði á Ullevaal í Ósló og á Lerke-
dal, heimavelli Rosenborg í Þránd-
heimi. Þá kæmi Bergen til álita en þá
væri nauðsynlegt að stækka völlinn
nokkuð. Gert er ráð fyrir að Gauta-
borg og Stokkhólmi verða vettvangur
keppninnar í Svíþjóð og leikið verði á
ólympíuleikvanginum í Helsinki og á
nýjum leikvangi í sömu borg sem
kenndur er við Finnair.
Eggert sagði ennfremur að gengið
væri út frá því að leikir í undanúslit-
um færu fram á völlum sem taka
a.m.k. 40.000 áhorfendur í sæti og úr-
slitaleikurinn á velli sem taki a.m.k.
50.000 áhorfendur.
„Undirbúningurinn er kominn á
fulla ferð og við að afla umsókn okkar
fylgis á meðal aðildarþjóða UEFA,“
segir Eggert.
Á undirbúningsfundi EM sem
haldin var í Helsinki var jafnframt
samþykkt að Norðurlöndin styðji um-
sókn KSÍ um að þing formanna og
framkvæmdastjóra aðildarlanda
UEFA árið 2007 verði haldið á Ís-
landi. Eggert sagði að sá fundur væri
stórmál og spennandi verkefni. „Til
Íslands kæmu um 500 manns til fund-
arins sem stæði í vikutíma.“
Eggert er varaformaður undirbún-ingsnefndarinnar ásamt for-
manni finnska knattspyrnusam-
bandsins, formaðurinn er hins vegar
formaður danska knattspyrnusam-
bandsins. Sem stendur er umsókn
Norðurlandanna sú eina sem komin
er fram, en líkur eru á að Rússar sæki
einnig um svo og sameiginleg umsókn
Austurríkismanna og Svisslendinga.
„Við höfum svo gott sem lokið við
að kortleggja okkar hluti er varðar
keppnina og umsóknina, en það er
enn óvíst hverjar kröfur UEFA verða
til mótshaldara,“ sagði Eggert Magn-
ússon í gær. Hann sagði þó ljóst að
gengið væri út frá því að leikið væri í
riðlakeppninni á völlum sem taka
a.m.k. 30.000 áhorfendur í sæti.
Keppnin myndi fara fram í fjórum
Eggert í norrænni
nefnd um EM 2008
EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands,
hefur verið skipaður varaformaður undirbúningsnefndar Norður-
landanna að umsókn um að halda Evrópukeppnina í knattspyrnu
árið 2008. Ráðgert er að mótið verði haldið í Danmörku, Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi, hljóti umsóknin náð fyrir augum fulltrúa
Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, en öll Norðurlöndin standa
að henni og taka Íslendingar og Færeyingar þátt í undirbúningi
keppninnar, verði af henni. Það skýrist í lok næsta árs hvar keppnin
verður haldin.
ARSENAL og Tottenham, liðin sem
hafa herbúðir í Norður-London,
mætast á Old Trafford í Manchester
í undanúrslitaleik ensku bikar-
keppninnar sunnudaginn 8. apríl.
Liðin hafa leitt saman hesta sína á
Wembley í undanúrslitum á síðustu
árum en þar sem búið er að leggja
Wembley niður er ekki nægilega
stór leikvangur í London til að taka
við stórleik eins og Arsenal og Tott-
enham. Leikvellir Chelsea og West
Ham taka ekki nægilega marga
áhorfendur. Stuðningsmenn Arsenal
og Tottenham eru afar ánægðir með
að leikurinn fari fram á Old Trafford
sem tekur 70 þús. áhorfendur.
Liverpool og Wycombe Wander-
ers mætast í hinum undanúrslita-
leiknum á Villa Park í Birmingham.
Lundúna-
slagur
á Old
Trafford
SELFYSSINGURINN Þórir Her-
geirsson hefur verið ráðinn aðstoð-
arþjálfari norska kvennalandsliðs-
ins í handknattleik og mun hann
taka við starfi Arne Högdahl sem
hefur gegnt þessari stöðu und-
anfarin fimm ár.
Þórir verður því aðstoðarmaður
Marit Breiviks en hún hefur stýrt
norska kvennalandsliðinu síðustu
sjö árin. Breivik gerði ekki alls fyr-
ir löngu nýjan fjögurra ára samn-
ing við norska handknattleiks-
sambandið en um tíma var óvíst
hvort hún mundi endurnýja samn-
inginn. Áður en Breivik tók þá
ákvörðun að halda starfi sínu áfram
var Þórir orðaður við þjálfarastöð-
una í norskum fjölmiðlum. Það var
ekki að ástæðulausu þar sem Brei-
vik sagðist vel geta hugsað að Þórir
yrði hennar eftirmaður.
Þórir er ekki alveg ókunnugur A-
landsliðinu. Hann hefur verið í
hlutastarfi sem einn af aðstoð-
arþjálfurum liðsins auk þess sem
hann hefur þjálfað yngri kvenna-
landsliðin í Noregi með góðum ár-
angri.
Þórir
aðstoðar-
landsliðs-
þjálfari
Reuters
Deportivo La Coruna frá Spáni komst í átta liða úrslit meistaradeildar Evrópu í gærkvöld með jafntefli, 1:1, gegn AC Milan, sem þar
með er úr leik. Hér er Capdevila, leikmaður Deportivo, felldur af þeim Thomas Helveg og Ibrahim Ba og dæmd var vítaspyrna sem
spænska liðið skoraði úr seint í leiknum. Sjá nánar /C2
Konurnar fá
lítið í sinn hlut
MIKILL munur er á því sem karlar og konur fá
út úr samningi 1. deildarfélaga í handknattleik
við Ríkisútvarpið vegna útsendinga frá leikjum
á þessu keppnistímabili. Af 7,3 milljónum króna
sem RÚV greiðir fyrir Íslandsmótið og bik-
arkeppnina fá lið 1. deildar karla samtals tæp-
ar 6,6 milljónir í sinn hlut, lið 1. deildar kvenna
fá samtals tæplega 500 þúsund og HSÍ fær um
225 þúsund í sinn hlut. Þetta kemur fram í
gögnum sem bárust Morgunblaðinu í gær. Öll
12 félög 1. deildar karla fá sneið af kökunni,
minnst tæpar 250 þúsund krónur, og síðan stig-
hækkandi eftir því hve langt liðin komast í úr-
slitakeppninni, auk þess sem liðin sem komast í
úrslitaleik bikarkeppni karla skipta tæpum 500
þúsundum á milli sín. Hlutur kvenna skiptist í
tvennt, helminginn fá liðin tvö sem leika til úr-
slita í bikarkeppninni og hinn helminginn liðin
tvö sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratit-
ilinn. Aðeins fjögur lið af tíu í 1. deild kvenna,
jafnvel einungis tvö, fá greiðslu í sinn hlut
vegna samningsins við RÚV.