Morgunblaðið - 16.03.2001, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 C 3
BÍÓBLAÐIÐ
GEIMFARINN Leo Davidson
(Mark Wahlberg) sest upp í geim-
flaug sína dag einn árið 2029 og er
skotið frá geimstöð í ofurvenjulegan
könnunarleiðangur. Hann er einn af
geimförunum við Geimferðastofnun
Bandaríkjanna og á ekki von á neinu
sérstöku í leiðangrinum. Allt eins og
það á að vera.
Þangað til hann lendir í ormagöng-
um og tíminn gerir honum grikk og
hann hafnar á ókunnri plánetu þar
sem apar tala mannamál og ráða yfir
mannkyninu. Hlutirnir á þessum
leyndardómsfulla stað eru sannar-
lega öfugsnúnir miðað við það sem
Leo Davidson á að venjast og má
segja að hann veki mikla athygli íbúa
plánetunnar auk þess sem hann
myndar samband við unga konu,
Daenu að nafni, sem hatast út í hinn
ráðandi kynstofn.
Á meðal íbúanna eru apaynjan Ari
(Helena Bonham Carter) og lítill
flokkur uppreisnarapa, sem eru á
flótta undan Górilluhernum og for-
ingja hans, Thade hershöfðingja
(Tim Roth), og hægri hönd hans, Att-
ar hinum ógurlega (Michael Clarke
Duncan). Hefst nú kapphlaup mikið
þeirra á milli um að ná til heilags
musteris á hinu dularfulla Bann-
svæði þar sem liggur lykillinn að for-
tíð plánetunnar – og framtíð.
Lifir í minningunni
Þeir sem hrifust upp úr skónum af
Apalánetunni í Nýja bíói fyrir eins og
þremur áratugum kannast við sitt-
hvað úr þessum söguþræði en gamla
myndin sagði frá þremur geimförum
sem fóru í gegnum einhvers konar
tímagat og lentu á eyðilegri plánetu
þar sem apar fóru með völdin, töluðu
lýtalausa ensku og höfðu fyrir þræla
og tilraunadýr mállausa menn.
Charlton Heston fór fyrir geimför-
unum og komst að lokum að sannleik-
anum á bak við Apaplánetuna í ein-
hverju besta og fullkomnasta
lokaatriði kvikmyndanna.
Nema það var ekkert lokaatriði
auðvitað. Myndin náði slíkum vin-
sældum út á sinn forvitnilega vís-
indaskáldskap að fáu var við jafnað
og stutt var í mynd númer tvö og svo
þrjú og fjögur og fimm en um það
leyti var sagan orðin svo útvötnuð og
leiðinleg að áhrifin sem fyrsta mynd-
in hafði næstum hurfu.
Það gerðist þó aldrei alveg og
Apaplánetan lifði í minningunni sem
verulega góð afþreying. Því kom það
kannski ekki mjög á óvart þegar
framleiðandi hennar, 20th Century
Fox-kvikmyndaverið í Hollywood,
ákvað að heimsækja plánetuna enn á
ný og endurlífga vörumerkið fræga.
Víst er að nýja Apaplánetumyndin er
aðeins sú fyrsta af mörgum sem eiga
eftir að fylgja í kjölfarið en vonandi
er að þær útvatnist ekki líkt og fyrri
myndirnar.
Fox leitaði til eins frumlegasta og
sérstæðasta leikstjóra Bandaríkj-
anna til þess að endurvekja Apa-
plánetuna og Tim Burton stökk á
boðið. Hann gerði áður Batman-
myndir tvær og hóf hasarblaðamynd-
ir til vegs og virðingar með þeim og
áður en hann tók að sér Apaplánet-
una hafði hann reynt að fá gerða nýja
Superman-mynd með Nicolas Cage í
titilhlutverkinu. Það gekk ekki og
hann lenti á plánetu apanna.
Það sem blasti við honum var ann-
ars vegar að fyrri myndin er nær
heilög í hugum margra og þá mátti
hann alls ekki vanvirða með einhverri
skrípamynd og hins vegar að nýja
myndin þarf að ganga lengra, hafa
eitthvað sérstætt og nýtt við sig svo
hún teljist fullnægja nýjum tímum og
nýjum áhorfendum að Apaplánet-
unni. Hann fékk förðunarmeistarann
Rick Baker í lið með sér til þess að
hanna nýtt útlit apanna en Baker
vann síðast við The Grinch og áður
með Burton við gerð Ed Woods.
Burton fékk einnig gamlan sam-
starfsmann sinn, Danny Elfman, til
þess að semja tónlist við myndina en
Elfman samdi tónlistina við Batman
á árum áður.
Þá voru það leikararnir. Burton
kaus Mark Wahlberg til þess að fara
með gamla Heston-hlutverkið en
Wahlberg er einn af ungu og upp-
rennandi leikurunum vestra og vakti
fyrst athygli þegar hann lék klám-
stjörnu í Boogie Nights. Estella
Warren leikur Daena, sem geimfar-
inn Leo verður ástfanginn af, en hún
mun ekki segja margt í myndinni.
Hún er fyrsta manneskjan sem geim-
farinn hittir á hinni dularfullu plán-
etu, hatar apana og er með svona fyr-
irsætukropp sem kemst á baðfata-
forsíðu Sports Illustrated.
Persónur og leikendur
Hin fágaða breska leikkona Hel-
ena Bonham-Carter leikur Ari sem
vinnur að mannréttindamálum á
Apaplánetunni og er dóttir háttsetts
apaleiðtoga. Hún heldur því fram að
apar og menn geti lifað saman í sátt
og samlyndi og þegar hún heyrir að
Leo talar hennar mál sannfærist hún
enn frekar um réttmæti skoðana
sinna. Bonham-Carter hefur hingað
til helst verið kunn fyrir vandaðan
leik í kvikmyndum byggðum á bresk-
um bókmenntaverkum.
Landi hennar, Tim Roth, leikur
Thade sem fer fyrir Górilluhernum,
er hershöfðingi sem ræðst með of-
forsi á menn hvar sem þá er að finna.
Hann er hrokafullur og þolir ekki
undanlátssemi en eini veikleiki hans
er ást hans á Ari, sem kemur í veg
fyrir að hann þaggi niður í henni.
Roth hefur lengi verið einskonar jað-
armaður kvikmyndanna eftirminni-
legastur úr Tarantino-myndunum
Reservoir Dogs og Pulp Fiction.
Enn eru tveir leikarar ónefndir.
Svarti risinn úr Grænu mílunni,
Michael Clarke Duncan, leikur hægri
hönd Thades, Attar, og er honum lýst
sem hinum skelfilegasta stríðsapa.
Og loks leikur Paul Giamatti apann
Limbo sem er séður og vitur óran-
gútanapi sem selur menn í þrælahald
og sem gæludýr á mannamörkuðum.
Hann er trúr apasamfélaginu en
finnur að hann nýtur ekki virðingar
þess og svo fer að hann gerist liðs-
maður geimfarans.
Öpum þessum og mannfólki á
hinni dularfullu plánetu fáum við svo
að kynnast í sumar þegar myndin
verður sett í dreifingu um heims-
byggðina og má gera ráð fyrir tals-
verðri flugeldasýningu í kringum það
allt saman.
Helena Bonham-Carter: Ari mannréttindafrömuður. Tim Roth: Hershöfðinginn Thade. Michael Clarke Duncan: Stríðsapinn ógurlegi, Attar.
Estella Warren: Daena, ástkona Leos.
Aparnir
í öndvegi
Þeir sem upplifðu Apaplánetuna í Nýja
bíói í gamla daga sem einn besta vís-
indaskáldsagnatrylli allra tíma bíða ugg-
laust með mikilli eftirvæntingu eftir end-
urgerð Tim Burtons að sögn Arnaldar
Indriðasonar, sem styttir þeim biðina
með samantekt um eina af stóru sum-
armyndum ársins.
Á plánetunni dularfullu: Vígalegur api í fullum herklæðum.
Mark Wahlberg: Geimfarinn Leo.
PARÍS
Oddný Sen
Nýbylgju-
tvíeykið
Cassel og
Kassovitz
Mikið er rætt og ritað um nýja
franska nýbylgju um þessar
mundir enda tímabært eftir
kreppuna miklu sem franskur
kvikmyndaiðnaður lenti í á ní-
unda áratugnum. Eitt af því
sem einkenndi frönsku ný-
bylgjuna var að kvikmynda-
leikstjórarnir notuðu gjarnan
sömu leikarana í verkum sín-
um og skapaðist við það ekki
aðeins sérstakt samband á
milli leikstjóra og leikara
heldur gaf túlkun leikarans
persónunni sérstakan blæ.
FRÆG dæmi af mörg-um er samstarfFrançois Truffaut ogJean-Paul Belmondo,
Claude Chabrol og Stéph-
ane Audran.
Mathieu Kassovitz, sem
af mörgum er talinn einn af
upphafs-
mönnum
nýrrar ný-
bylgju í
Frakk-
landi, not-
ar svipað
fordæmi
með leik-
aranum
Vincent
Cassel.
Cassel
vakti fyrst
athygli fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Métisse sem
Kassovitz gerði árið 1993 og
sló síðan eftirminnilega í
gegn fyrir leik sinn í La Haine
(Hatrið). Það varð til þess að
Cassel fóru að bjóðast hlut-
verk frá erlendum kvik-
myndaleikstjórum og í mynd
Shekhar Kapur, Elizabeth,
lék hann spilltan, franskan
hertoga sem m.a. nýtur þess
að skrýðast kvenmanns-
klæðum. Reiði Frakka yfir
þessu hlutverki Cassels var
nær áþreifanleg í kvikmynda-
húsum og lá við að textinn
drukknaði í hnussi áhorf-
enda þegar Cassel opnaði
munninn. Gagnrýnendur létu
hafa eftir sér að Cassel
mætti skammast sín fyrir að
leika hlutverk sem „sýnir
Frakka á afkáralegasta
hátt.“ Cassel náði sér á strik
aftur með ágætis leik í
Jeanne D’Arc eftir Luc
Besson og síðan í Rivieres
pourpres (Fjólublá fljót) eftir
Kassovitz en síðarnefnda
myndin hefur slegið öll að-
sóknarmet og halað inn yfir
þrjár milljónir áhorfenda.
„Myndin er fyrst og fremst
gerð til að skemmta áhorf-
endum,“ segir Cassel um
Fjólublá fljót en hann á því
ekki að venjast að áhorf-
endur flykkist á myndir
Kassovitz. „Eftir La Haine og
Assassin’s (Morðingjar),
sem eru afar þungar myndir,
var kominn tími til að ná bet-
ur til áhorfenda.“ Þeir félagar
hyggjast halda áfram sam-
starfinu í nýrri mynd eftir
Kassovitz en það verður að
bíða um sinn. Þegar þeir voru
við tökur í Bandaríkjunum
leist Nicole Kidman svo vel á
þá að hún bað þá að leika
frændur sína í áströlsku
myndinni Birthday Girl sem
verður frumsýnd bráðlega.
Kassovitz og
Cassel: Sam-
starfið heldur
áfram.