Morgunblaðið - 16.03.2001, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 C 7
BÍÓBLAÐIÐ
SPIELBERG kemur
víða við og veldur
breyttum högum, ef
maður má gerast
svo djarfur. Hann
sat eitt kvöldið, þessi mesti kvik-
myndamógúll samtímans, og horfði á
sjónvarpið. Á dagskrá var fjögurra
tíma smáþáttaröð CBS-stöðvarinnar
sem bar heitið Titanic og greindi frá
hinu hörmulegasta af öllum sjóslys-
um og mógúlnum varð starsýnt á
eina leikkonu þáttaraðarinnar, sem
hann hafði hvergi séð áður. Hann
kynnti sér málið í framhaldi af því og
Catherine Zeta-Jones varð fljótlega
heimsfræg stórstjarna.
Spielberg var um þessar mundir að
framleiða bíómynd sem byggði á vin-
sælli bíóhetju að nafni Zorro og hann
bjó svo um hnútana að glæsimeyjan
úr sjónvarpinu fékk að reyna sig í
hlutverki kærustu söguhetjunnar.
Leikstjórinn, Martin Campell, féll í
stafi (svo sem eins og margir aðrir)
þegar hann leit leikkonuna augum og
hún fékk hlutverkið. Mótleikararnir
voru ekki af verri endanum: Antonio
Banderas og Anthony Hopkins.
Síðan þetta var hefur Zeta-Jones
ekki aðeins orðið ein af skærustu
stjörnum kvikmyndanna heldur hef-
ur um fátt annað verið fjallað í slúð-
urfréttum veraldar svo mánuðum ef
ekki árum skiptir en samband henn-
ar og Michaels Douglas en þau giftu
sig fyrir skemmstu. Þannig hefur
Zetu, ungri stúlku frá Wales (Rich-
ard Burton og Anthony Hopkins eru
þaðan einnig), verið kastað inn í kast-
ljós hinnar heimskulegu slúður-
pressu – og hún notið þess í botn.
Hún var löngum staðráðin í því að
gerast leikkona og eitt af fyrstu hlut-
verkum hennar á leiksviði í West
End í London var í 42nd Street. Hún
fékk áberandi hlutverk í vinsælum
sjónvarpsþáttum Yorkshire Tele-
vision, The Darling Buds of May, sem
byggði á verkum H.E. Bates og þess
var ekki langt að bíða að hún færi út í
kvikmyndaleik. Frami hennar var
skjótari en margra. Hún var fljótlega
farin að fá hlutverk í stórmyndum á
borð við The Haunting, þar sem hún
var á móti Liam Neeson og Lili Taylor,
og við sáum hana heilla Sean Conn-
ery upp úr skónum í Entrapment.
Hún fer með eitt aðalhlutverkanna
í nýjustu mynd Steven Soderberghs,
Traffic, sem frumsýnd er núna um
helgina hér á landi en það er fyrsta
myndin sem hún og maðurinn henn-
ar, Douglas, leika í saman. Zeta fer
með hlutverk samkvæmisljóns og
milljónerafrúar í S-Kalíforníu sem
kemst að því þegar eiginmaður henn-
ar er handtekinn að fína lífernið er
borgað með fíkniefnagróða. Hún tek-
ur að berjast fyrir þeim lífsgæðum
sem hún hefur vanist en það er á
brattan að sækja.
Zeta var sýnilega ólétt meðan á
tökunum stóð og Soderbergh fannst
það ekki til trafala nema síður væri; í
hans huga jók það aðeins á dýpt per-
sónunnar. Hann sá enga aðra fyrir
sér í hlutverki eiginkonunnar. „Hún
er auðvitað nógu glæsileg,“ er haft
eftir honum, „en ég vissi að það bjó
meira að baki, að hún væri virkilega
góð leikkona.“
Það sem Zetu fannst mest varið í
varðandi Traffic var að hún mátti
vera sú sem hún vildi helst vera, ekki
aðeins ólétt heldur frá Wales. Hún
hefur í myndum sínum þurft að kæfa
velska hreiminn en Soderbergh
hvatti hana til þess að tala eins og
henni er eðlilegt og henni létti mikið.
„Mér fannst frábært að Steven
skyldi vilja fá mig í myndina sína,“
segir hún. „Það hefði ekki getað gerst
á betri tíma fyrir mig.“
Ljóst er að Zeta er ekki aðeins
glæsileg leikkona heldur einnig hæfi-
leikum gædd og hefur þegar veitt
stórstjörnum eins og Julia Roberts
og Demi Moore harða samkeppni og
mun gera það um ókomna tíð.
er gift leikaranum og framleiðandanum Michael Douglas eins og varla
hefur farið fram hjá nokkrum manni á byggðu bóli. Hún á blómstrandi
kvikmyndaferil sinn að nokkru
leyti Steven Spielberg að þakka sem
sá hana leika í sjónvarpsseríu og
fékk henni hlutverk í Zorro.
Zeta er Walesbúi en að minnsta
kosti tveir ágætis leikarar eru
landar hennar, nefnilega
Richard Burton og Anthony
Hopkins. Hún var ólétt á
meðan á tökum Traffic stóð
og er nú móðir ungs drengs
að nafni Dylan.
Catherine Zeta-Jones
Zeta
– Ástarsaga
Svipmynd
Eftir Arnald
Indriðason
Bíóin í borginni
SANNFÆRANDI TÚLKUN MICH-
AELS DOUGLAS Á SJÚSKUÐUM
HÁSKÓLAPRÓFESSOR OG RIT-
HÖFUNDI, SEM ER BÆÐI Í MIÐ-
ALDRAKREPPU OG RITKREPPU, Í
NÝJUSTU MYND CURTIS HAN-
SONS (LA CONFIDENTIAL), THE
WONDER BOYS. LEIKUR TOBEY
MAGUIRES ER EKKI SÍÐRI EN
HANN ER NEMANDI Í UNGLINGA-
KREPPU, SEM VIRÐIST HAFA ÞAÐ
UMFRAM PRÓFESSORINN AÐ GETA HLEYPT RITFÁKNUM Á SKEIÐ.
ÞETTA ER SKONDIN OG Á KÖFLUM NÆMLEG MYND SEM NÝTUR EKKI
AÐEINS FYRRNEFNDRA LEIKAFREKA HELDUR EINNIG FRANCES
MCDORMAND OG ROBERTS DOWNEY JR. Í AUKAHLUTVERKUM.
VÖNDUÐ OG GREINDARLEG AFÞREYING.
Ekki missa af...NÝJAR MYNDIRCHOCOLAT
Regnboginn: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýning
um helgina kl. 3.
GIFT
Laugarásbíó: kl. Föstudag/mánudag : 5:30 – 8 –
10:30. Um helgina kl. 3 – 5:45 – 8 – 10:30
Háskólabíó: kl. 5:45 – 8 – 10:15. Aukasýning um
helgina kl. 3.
TRAFFIC
Bíóhöllin: kl. 4 – 8 – 10:45.
Bíóborgin: kl. 5 – 8 – 10:45
Kringlubíó: kl. 5:15 – 8 – 10:45
KIRIKOU OG GALDRAKERLINGIN
Kringlubíó: kl. 3:45. Aukasýning um helgina kl. 2.
Háskólabíó: Föstudag/mánudag kl. 6. Laugar-
dag kl. 2 – 4 – 6. Sunnudag kl. 4 – 6.
CAST AWAY ½ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Robert Zemeckis.
Handrit: William Broyles. Aðalleikendur: Tom
Hanks, Helen Hunt.
Hanks fer á kostum í frábærri mynd
Zemeckis um mann sem verður skip-
reka á eyðieyju.
Kringlubíó: kl. 8.
Háskólabíó: kl. 8 – 10. Aukasýn. föstudag kl. 12.
FJÖÐURSTAFIR – QUILLS DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Philip Kaufman.
Handrit: Doug Wright. Aðalleikendur: Geoffrey
Rush, Kate Winslet, Joaquin Phoenix, Michael
Caine.
Kaufman er aftur kominn á beinu
brautina með eftirminnilega mynd
um markgreifann sem enn hneykslar
fólk eftir tæpar tvær aldir. Kolsvört
gamanmynd og ádeila sem vekur
áleitnar spurningar. Rush fer fyrir úr-
vals leikhóp.
Stjörnubíó: Föstudag og e. helgi kl. 5:45 – 8 –
10:15. Um helgina kl. 8 – 10:20.
WONDER BOYS ½ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Curtis Hanson.
Handrit: Steve Kloves. Aðalleikendur: Michael
Douglas, Toby Maguire, Frances McDormand.
Svört og húmorísk mynd um há-
skólaprófessor og nemanda hans
sem læra ýmislegt hvor af öðrum um
skáldskap og lífið. Einstaklega svöl
og smekkleg mynd með frábærum
leikurum.
Bíóhöllin: kl. 10.
Bíóborgin: kl. 8 – 10:10.
Kringlubíó: kl. 10.
ALMOST FAMOUS GAMAN
Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjórn: Cameron
Crowe. Aðalleikendur: Patrick Fugit, Billy Crudup,
Kate Hudson, Frances McDormand.
Endurminningar höfundar af tónlist-
argerjun áttunda áratugarins eru
sagðar á óvenju trúverðugan og
skemmtilegan hátt í mynd sem hefur
fjölmargt til síns ágætis. Ekki síst vel
skrifaðar og ekki síður leiknar, per-
sónur.
Stjörnubíó: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýn. um
helgina kl. 3.
BILLY ELLIOT DRAMA
Bresk. 2000. Leikstjórn: Stephen Baldry. Hand-
rit: Lee Hall. Aðalleikendur: Jamie Bell, Julie Walt-
ers, Gary Lewis.
Einföld, falleg og fyndin mynd um bar-
áttu 11 ára drengs að fá að vera
hann sjálfur, og pabba hans við að
finna einhverja von.
Háskólabíó: kl. 5:45 – 8 – 10:15. Aukasýn. u. h.
kl. 3.
KRJÚPANDI TÍGUR – CROUCHING
TIGER, HIDDEN DRAGON DRAMA
Bandaríkin. 2000. Handrit og leikstjórn: Ang Lee
Mögnuð ástarsaga frá Ang Lee úr
gamla Kína, sem yfirvinnur þyngdar-
lögmálið í glæsilegum bardagaatrið-
um.
Regnboginn: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýning
um helgina kl. 3.
O BROTHER, WHERE ART THOU
GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Joel Coen. Handrit:
Joel og Ethan Coen. Aðalleikendur: George Cloon-
ey, John Turturro, Holly Hunter, John Goodman.
Coenbræður endursegja lauslega
Odysseifskviðu í gegnum þrjá stroku-
fanga á þriðja áratugnum. Myndin er
býsna góð á köflum, ekkert meira
eða dýpra en það.
Laugarásbíó: kl. 8 –10:15.
Háskólabíó: kl. 8 – 10:15. Aukasýn. um helgina
kl. 5:45.
HANNIBAL ½ HROLLUR
Bandarísk. 2000 Leikstjóri Ridley Scott. Handrit:
Steve Zaillian, David Mamet. Aðalleikendur: Anth-
ony Hopkins, Julianne Moore, Ray Liotta.
Mannætan snýr aftur í rétt þokka-
legri hrollvekju.
Háskólabíó: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukas. fö. kl.
12:30. Um helgina kl. 3
Laugarásbíó: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukas. um
helgina kl. 3.
Bíóhöllin: kl. 8 – 10:30.
102 DALMATIANS (ísl. tal) FJÖLSK.
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Kevin Lama. Hand-
rit: Dodie Smith. Aðalleikendur: Glenn Close,
Alice Evans, Gerard Depardieu.
Það stormar af Close sem leikur Krú-
ellu hina ægilegu af sannfærandi fít-
onskrafti og hundarnir eru afbragð.
Gott fjölskyldugrín.
Bíóhöllin: kl: 3:50 – 5:55. Aukasýn. um helgina
kl. 1:40.
Stjörnubíó: Um helgina kl. 2 – 4 – 6.
Kringlubíó: kl. 3:50 – 5:55.. Aukasýn u. h. kl.
1:40.
102 DALMATIANS (enskt tal)
Bíóborgin: 6. Aukasýn. um h. kl. 4.
IKINGUT ½ BARNAMYND
Íslensk. 2000. Leikstjóri: Gísli Snær Erlingsson.
Handrit: Jón Steinar Ragnarsson. Aðalleikendur:
Hjalti Rúnar Jónsson, Hans Tittus Nakinge, Pálmi
Gestsson.
Hugljúf, átakalítil barnamynd um for-
heimsku og fordóma, fyrr á öldum í
vestfirsku sjávarþorpi.
Háskólabíó: Laugardag kl. 2 – 4. Sunnudag kl. 4.
LEIÐIN TIL EL DORADO FJÖLSK. (Íslenskt tal)
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Bergeron.
Handrit: Don Paul. Teiknimynd.
Segir frá tveimur svindlurum sem
finna gulllandið El Dorado, Útlitið full-
komið, eins og vænta má, hið sama
er ekki hægt að segja um söguna
eða tónlistina.
Bíóhöllin: kl. 3:45. Aukasýn um helgina kl. 1:50.
Bíóborgin: Um helgina kl. 4.
Háskólabíó: Laugardag kl. 2 – 4. Sunnudag kl. 4.
VERTICAL LIMIT ½ SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Martin
Campbell. Aðalleikendur: Chris O’Donnell, Bill
Paxton, Scott Glenn.
Háskasenurnar eru með albesta
móti í mynd um björgunarleiðangur á
K2. Að öðru leyti frekar klént.
Bíóhöllin: kl. 8 – 10:20.
Regnboginn: kl. 10.
Laugarásbíó: kl. 45:45 – 8 – 10:15. Aukasýning
um helgina kl. 3:30.
DUDE, WHERE IS MY CAR? GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Danny Lerner. Hand-
rit: Philip Stark. Aðalleikendur: Ashton Kutcher,
Sean William Scott, Jennifer Garner.
Heimskugamanmynd um tvo vitleys-
inga sem lenda í geimveruhasar.
Della fyrir unglinga.
Regnboginn: kl. 6 – 8. Aukasýning um helgina kl.
2 – 4.
Bíóhöllin: kl. 4 – 6 – 8 – 10. Aukasýn. fö. kl. 12.
Um helgina kl. 2.
THE LITTLE VAMPIRE HROLLUR
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Uli Edel. Handrit:
Angela Sommer-Brodenburg. Aðalleikendur: Jon-
athan Lipnicki, Richerd E. Grant, Alice Krige.
Bíóhöllin: kl. 4–6. Aukas. um helgina kl. 2.
Kringlubíó: kl. 4. Aukas. um helgina kl. 2.
REMEMBER THE TITANS DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Boaz Yakin. Handrit:
Gregory Allen Howard. Aðalleikendur: Denzel
Washington, Will Patton, Wood Harris.
Merkileg saga um kynþáttaósætti
færð í formúlubúninginn gamal-
kunna, toppuð með þjóðernisrembu.
Bíóhöllin: kl. 8 – 10:15.
Bíóborgin: kl. 5:45 – 8 – 10:15.
Kringlubíó: kl. 10.
WHAT WOMEN WANT GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Nancy
Meuers. Aðalleikendur: Mel Gibson, Helen Hunt,
Marisa Tomei
Að mestu ófyndin langloka um mann
sem heyrir hvað konur hugsa.
Laugarásbíó: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukas. Um
helgina kl. 3.
Regnboginn: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukas. u.h. kl.
3.
POKEMON 2000 ½
TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Gail Tilden. Handrit:
Norman Grossfeld. Aðalraddir: Grímur Gíslason,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Óskiljanleg, súr stuttmynd um Poke-
mon, er fylgt eftir með ofbeldisfullri
mynd um sömu persónur.
Kringlubíó: Um helgina kl. 1:50.
DOUBLE TAKE
SPENNA
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit George
Gallo. Aðalleikendur Orlando Jones, Eddie Griff-
in.
Enn eitt þrástaglið um ofurfyndna og
færa blökkumenn í óskiljanlegum
slag við umhverfið. Ekki einu sinni
broslegir leikarar til að hressa upp á
jukkið.
Bíóhöllin: kl. 4 – 6 – 8 – 10.
PROOF OF LIFE SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Taylor Hackford.
Tony Gilroy. Aðalleikendur: Meg Ryan Russell
Crowe, David Morse.
Stjörnurnar Ryan og Croe hefðu bet-
ur sleppt að leika í þessari gjörsam-
lega gjörsneyddu kvikmynd.
Bíóhöllin: kl. 5:30 – 8 – 10:30
Kringlubíó: kl. 6 – 8 – 10:30.
Háskólabíó: kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýn. um
helgina kl. 3.
ROCKY AND BULLWINKLE
TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Des McAnuff. Hand-
rit: Jay Ward. Aðalraddir: Robert De Niro, Rene
Russo, Jason Alexander.
Teiknimyndasería gerð að bruðlmynd
í Hollywood. De Niro í hlutverki ein-
ræðisherra sem ráða vill heiminum.
Bíóhöllin: kl. 4 – 6 – 8 – 10. Aukasýning um
helgina. kl. 2.
DR. T AND THE WOMEN ½
GAMANMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Robert Altman.
Handrit: Anne Rapp. Aðalleikendur: Richard Gere,
Helen Hunt, Farrah Fawcett, Kate Hudson.
Robert Altman gerir góðar myndir og
vondar. Þessi er vond. Svona gera
menn ekki.
Háskólabíó: kl. 5:45.
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir