Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 1

Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 1
2001  MIÐVIKUDAGUR 21. MARS BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A HANDKNATTLEIKUR: KA TILKYNNTI EKKI ÞÁTTTÖKU / C4 KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Fylkir mun vænt- anlega skoða bandaríska leikmanninn Joey DiGiamarino í æfingaferð liðsins á Spáni í byrjun apríl. DiGiamarino er 23 ára og lék þrjú keppnistímabil með bandaríska atvinnu- mannaliðinu Colarado Rapids en samdi í janúar sl. við þýska liðið Bayer Leverkusen. DiGiamarino fór í uppskurð á fæti í lok síð- asta árs og hefur því ekkert leikið með þýska liðinu í vetur og verði af því að hann gangi til liðs við Árbæjarliðið væri um lánssamning að ræða. Að sögn Kjartans Daníelssonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Fylk- is, berast félaginu fjölmargar fyrirspurnir í hverri viku frá leikmönnum sem vilja reyna fyrir sér á Íslandi og á þessari stundu sé ekki ljóst hvort einhverjir nýir leikmenn verði fengnir til félagsins. Frá Leverkusen til Fylkis? DEILDARMEISTARAR Njarð-víkur í körfuknattleik karla taka á móti Íslandsmeistaliði KR í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum sem hefjast á sunnudag. Í hinni und- anúrslita viðureigninni er Tindastóll frá Sauðárkróki með heimaleikja- réttinn ef til oddaviðureignar kemur gegn Keflavík. Njarðvíkingar hafa ekki riðið feit- um hesti frá þremur viðureignum sínum gegn KR í vetur. KR sló Njarðvík út úr 16-liða úrslitum bik- arkeppninnar með sigri á heimavelli Njarðvíkinga. Í tveimur viðureign- um liðanna í Epson-deildinni í vetur sigraði KR í bæði skiptin, 113:94, á heimavelli og 93:103 á útivelli. Tindastóll hefur aldrei áður kom- ist í undanúrslit og erfitt verkefni bíður norðanmanna á sunnudag þeg- ar Keflvíkingar koma í heimsókn. Leikir liðanna í deildarkeppninni í vetur hafa verið jafnir en Keflvík- ingar höfðu betur á heimavelli 26. október sl., 81:78. Í seinni umferð- inni náðu Sauðkrækingar fram hefndum og sigruðu með sex stiga mun, 82:76. Tindastóll tapaði fyrir Njarðvík í tveimur viðureignum þeg- ar liðið komst í 8-liða úrslit í fyrsta sinn keppnistímabilið 1995-1996. Tindastóll datt út úr 8-liða úrslitum í tvígang gegn KR, 1998 og 2000. Ís- firðingar reyndust of stór biti fyrir „Stólana“ árið 1999. KR-ingar með yfirhöndina ENSKA knattspyrnuliðið Brent-ford leikur til úrslita gegn Port Vale í bikarkeppni neðrideildarliða en úrslitaleikurinn fer fram á Millenium- leikvanginum í Cardiff. Ívar Ingi- marsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Brentford á 13. mínútu en Southend jafnaði leikinn á 26. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Ólafur Gottskálksson þurfti að yfirgefa leik- völlinn á 57. mínútu eftir að hafa lent í samstuði við einn sóknarmanna Southend. „Ég steinrotaðist við högg- ið og man nú lítið hvað gerðist eftir það,“ sagði Ólafur í gærkvöld. „Markið hjá Ívari Ingimarssyni var gott og hann gerði vel að setja boltann í netið af stuttu en þröngu færi. Leik- urinn sjálfur var dæmigerður bikar- leikur og lítið um marktækifæri. Ég hefði varið aukaspyrnuna sem þeir skoruðu úr ef samherji hefði ekki rek- ið tána í boltann á síðustu stundu og breytt stefnu hans. Það verður rólegt hjá mér næstu dagana og kannski missi ég af leiknum um næstu helgi vegna höfuðhöggsins en við sjáum til hverni málin þróast. Úrslitaleikurinn er spennandi verkefni og við Íslend- ingarnir í Brentford tökum vonandi við bikarnum sem Stoke City vann í fyrra á Wembley,“ bætti Ólafur við. Ívar skoraði og Ólafur rotaðist Aðeins fyrirliði liðsins, EyjólfurSverrisson, kom til Frankfurt í gær af leikmönnum A-liðsins, en ár- degis í dag koma hinir landsliðsmenn- irnir til Frankfurt frá Englandi, Þýskalandi, Belgíu, Noregi og Austur- ríki. Eyjólfur var í leikbanni með Herthu Berlin um helgina og notaði tækifæri til að skreppa í smá frí til Íslands. Hann kom því til Þýska- lands í gær með þjálfurum landsliðs- ins og aðstoðarmönnum þess auk hluta af leikmönnum U-21 árs liðs- ins sem mætir Búlgörum á föstudag- inn. Sídegis í dag eru landsliðshóparn- ir væntanlegir til Sofiu en síðastur til að mæta þangað af landsliðs- mönnunum verður Helgi Sigurðs- son, leikmaður Panathinaikos. Hann kemur til móts við liðið á fimmtu- daginn en honum verður ekið til Sof- iu frá Aþenu í Grikklandi. Atli Eð- valdsson, landsliðsþjálfari, sagði við Morgunblaðið í gær að hann vissi ekki betur en að allir leikmenn landsliðsins væru heilir og tilbúnir í erfiðan leik gegn Búlgörum á laug- ardaginn. Fyrsta æfing liðsins fyrir leikinn á laugardaginn verður í kvöld en alls æfir liðið fimm sinnum fyrir átökin gegn Búlgörum. Sigurður Grétarsson þjálfari U-21 árs liðsins fór með tíu leikmenn sem mættir voru til Frankfurt í gær á stutta æfingu en þeir leikmenn sem leika með erlendum liðum koma til móts við hópinn árdegis í dag og í kvöld æfir liðið allt saman í Sofiu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Atli Eðvaldsson, þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, ræðir hér við fyrirliðann Eyjólf Sverrisson á Sheraton-hótelinu í Frank- furt í gær en Eyjólfur var eini leikmaður A-liðsins sem mættur var til leiks. Aðrir liðsmenn landsliðsins komu til Frankfurt í morgun. Landsliðið á leið til Búlgaríu ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu heldur í dag frá Frankfurt í Þýskalandi til Sofiu í Búlgaríu. Á laugardaginn mæta Íslendingar Búlgörum í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Það verður fjórði leikur Íslands í HM, en íslenska liðið hefur tapað fyrir Dönum og Tékkum, en lagt Norður-Íra. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Frankfurt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.