Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 C 3
Vilja fleiri aðgöngu-
miða á Spáni
FORRÁÐAMENN ensku liðanna Leeds og Arsenal hafa skrifað
Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, bréf og óskað eftir að fá
fleiri miða á leiki liðanna gegn Deportivo La Coruna og Val-
encia í Meistaradeild Evrópu. Í reglum UEFA segir að að-
komulið eigi að fá minnst fimm prósent aðgöngumiða á Evrópu-
leiki.
Leeds stendur til boða að fá aðeins 850 miða á leikinn í La
Coruna, á leikvöllinn Estadio Riazor, sem tekur 35 þús. áhorf-
endur. Forráðamenn Leeds reikna með að vel yfir fjögur þús.
stuðningsmenn liðsins vilji fá miða á leikinn.
Arsenal hafa verið boðnir 1.200 miðar á Estadio Mestalla,
sem tekur um 49.000 áhorfendur.
Þess má geta að Liverpool fær þrjú þúsund miða á leik liðs-
ins við Barcelona í undanúrslitum UEFA-keppninnar á Nou
Camp sem tekur um 90 þúsund áhorfendur.
Manchester United fær fimm þúsund miða á Ólympíuleik-
vanginn í München þar sem liðið mætir Bayern. Völlurinn tekur
64 þúsund áhorfendur í sæti.
ÞORKELL Guðbrandsson, hand-
knattleiksmaður hjá Aftureldingu,
meiddist á hné undir lok leiksins
gegn Haukum í síðustu viku. Af þeim
sökum lék hann ekki með Mosfell-
ingum gegn ÍBV í Eyjum á sunnu-
daginn og verður fjarri góðu gamni
þegar Afturelding tekur á móti
Breiðabliki á Varmá í kvöld.
BJARKI Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Aftureldingar, sneri sig á
ökkla um miðjan síðari hálfleik gegn
ÍBV á sunnudag. Lék hann af þeim
sökum ekki meira með í leiknum.
Bjarki sagði við Morgunblaðið í gær
ekkert væri því til fyrirstöðu að hann
léki með lærisveinum sínum gegn
Breiðabliki.
CHRISTER Magnusson, lands-
liðsþjálfari Noregs í handknattleik,
og aðstoðarmaður hans, Leif Gaute-
stads, halda ekki áfram þjálfun
norska landsliðsins þegar samningur
þeirra við norska handknattleiks-
sambandið rennur út í vor. Ekki hef-
ur enn verið ráðið í starfið en einn
þeirra sem nefndur hefur verið er
Roger Kjendalen, þjálfari Amitica
frá Zurich, en með því leikur Gunn-
ar Andrésson.
KJENDALEN hættir hjá sviss-
neska félaginu í vor og hefur látið
hafa eftir sér að hann myndi velta
þjálfun norska landsliðsins fyrir sér,
verði honum boðin staðan. Enginn
Norðmaður hefur oftar leikið fyrir
landsliðið en Kjendalen, alls 254
sinnum.
ENSKA liðið Manchester United á
í nokkrum vanda nú um stundir því
markvörður liðsins, Frakkinn Fab-
ien Barthez er meiddur. Á nokkrum
knattspyrnuvefjum var sagt í gær að
United hefði haft samband við
norska markvörðinn Frode Olsen,
sem leikur með Sevilla á Spáni.
FORRÁÐAMENN þýska liðsins
Herthu Berlín, sem Eyjólfur Sverr-
isson leikur með, eru ekki ánægðir
með framkomu stuðningsmanna
félagsins um helgina en þá tapaði
Hertha fyrir Energie Cottbus.
Starfsmaður á vellinum var fluttur á
sjúkrahús eftir að hann fékk logandi
blys í andlitið.
„TIL að koma í veg fyrir frekari
ólæti stuðningsmanna okkar ætlum
við að finna sökudólginn eða dólg-
ana, birta nöfn þeirra opinberlega og
setja þá í langt bann frá leikjum
félagsins,“ sagði Hans-Georg Feld-
er, einn forráðamanna félagsins.
FÓLK
Þrír leikmenn sem léku gegnSpáni, fyrsta leikinn undir
stjórn Erikssons, eru ekki í hópn-
um. Nicky Barmby, Ugo Ehiogu og
Michael Ball, og Eriksson valdi
heldur ekki Kevin Phillips, Ray
Parlour og Kiernon Dyer, sem voru
í fyrsta hópi hans. Barmby og Dyer
eru meiddir og Ball leikur með 21-
árs liði Englands.
Eftirtaldir skipa enska landsliðs-
hópinn:
Markverðir: David Seaman
(Arsenal), David James (Liver-
pool), Richard Wright (Ipswich),
Nigel Martyn (Leeds).
Varnarmenn: Gary Neville (Man.
Utd), Phil Neville (Man.Utd), Ashl-
ey Cole (Arsenal), Rio Ferdinand
(Leeds), Chris Powell (Charlton),
Wes Brown (Man. Utd), Sol Camp-
bell (Tottenham), Jamie Carragher
(Liverpool).
Miðjumenn: Steven Gerrard
(Liverpool), David Beckham (Man.
Utd), Paul Scholes (Man. Utd),
Nicky Butt (Man. Utd), Joe Cole
(West Ham), Michael Carrick
(West Ham), Gavin McCann (Sund-
erland), Frank Lampard (West
Ham), Steve McManaman (Real
Madrid).
Sóknarmenn: Teddy Sheringham
(Man. Utd.), Andy Cole (Man.
Utd.), Robbie Fowler (Liverpool),
Emile Heskey (Liverpool), Michael
Owen (Liverpool).
Eriksson
kallar á
Gerrard
STEVEN Gerrard, miðjumaður
Liverpool, er eini leikmaðurinn
sem Sven Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands,
bætti í hóp sinn fyrir HM-leikina
gegn Finnum og Albönum
næsta laugardag og miðviku-
dag.
Á fundi tækninefndarinnar sam-hliða heimsmeistaramótinu í
Lissabon á dögunum var ákveðið að
gera tilraun með nokkrar breyting-
ar á keppnisreglum frjálsíþrótta á
B-stigamótum Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins í sumar. Falli
breytingar í frjóan jarðveg kemur
til greina að festa þær í sessi á
fundi tækninefndarinnar síðsum-
ars í Kanada en hann fer fram sam-
hliða heimsmeistaramótinu utan-
húss.
Breytingarnar eru m.a. þær að
þjófstarti hlaupari í keppni þar sem
vegalengd er skemmri en 400 m er
hann dæmdur úr leik þegar í mark
er komið, líkt og gert er í sundi.
Einnig á að gera tilraun með að
keppendur í hástökki og stangar-
stökki fái aðeins tvær tilraunir við
hverja hæð í stað þriggja nú í und-
ankeppni. Þá er stefnt að því að
átta bestu stökkvarar í undan-
keppni komist í úrslit, í stað tólf
núna, þar sem einnig verða aðeins
leyfð tvö stökk á hverja hæð. Svip-
að verður uppi á teningnum í und-
ankeppni í köstum, keppendur fá
aðeins að kasta tvisvar í stað þess
að reyna sig þrisvar sinnum eins og
nú leyfist. Einnig eiga átta kepp-
endur að komast í úrslit í stað tólf.
Þá er enn fremur gert ráð fyrir
að vinklarnir sem halda ránum upp
í stangarstökki verði styttir um
þriðjung, úr 75 sentímetrum í 50.
Þar af leiðir að stangarstökkvarar
mega minna koma við rána en nú
án þess að eiga á hættu að fella
hana.
Einnig er gerð tillaga um að
svæðið sem boðhlauparar hafa til
þess að rétta hver öðrum keflið
verði stytt úr 30 metrum í 20 metra.
Með þessum breytingum er ætl-
unin að flýta keppni í nokkrum
greinum og koma í veg fyrir að þær
dragist á langinn, eins og nú gerist
stundum á stórmótum. Fyrir vikið
ætti íþróttin að verða „sjónvarps-
vænni“.
Konur keppa í tugþraut
Tækninefndin lagði einnig til að
lögð yrði rík áhersla á að kynna
tugþraut fyrir kvenfólki með það að
markmiði að hún verði framtíðar-
keppnisgrein kvenna utanhúss í
stað sjöþrautar. Fyrst um sinn er
þó gert ráð fyrir að sjöþraut verði
keppnisgrein kvenna á stórmótum,
en í framtíðinni leysi tugþrautin
sjöþrautina af hólmi. Þar með félli
síðasta vígi karla á frjálsíþrótta-
vellinum, kynin stæðu jöfn að vígi
og kepptu í sömu greinum.
Engin grið gefin
vegna þjófstarts
SPRETTHLAUPARAR mega
eiga von á því að verða dæmd-
ir úr leik vegna þjófstarts ef
hugmyndir tækninefndar Al-
þjóðafrjálsíþróttasambands-
ins, IAAF, ná fram að ganga í
næstu framtíð.
fengu þannig tvö tækifæri til að skora í
nokkrum sóknum. Um miðjan leikhlut-
ann tóku Skallagrímsmenn leikhlé og
Evginij Tomilovski kom inn á og átti
fínan sprett, gerði fimm stig í röð og má
segja að lokakaflinn í leikhlutanum hafi
verið tvíleikur hans og Teits því hann
gerði átta stig á sama tíma.
Nokkur hiti hljóp í menn í þriðja leik-
hluta og talsverð harka þó svo menn
léku af prúðmennsku og án illinda. En
fast var tekið á því. Njarðvíkingar höfðu
leikið ágæta vörn í fyrri hálfleik en í
þeim síðari var hún hreint frábær enda
gerðu Skallagrímsmenn aðeins 10 stig í
þriðja leikhluta og náðu raunar 16 stig-
um í þeim síðasta enda munurinn orð-
inn það mikill að menn lögðu ekki eins
að sér.
Njarðvíkingar tóku leikhlé þegar
þriðji leikhluti hafði staðið í fimm mín-
útur og staðan var 43:37. Enn virkaði
leikhlé þeirra vel því það sem eftir var
leikhlutans gerðu þeir 20 stig gegn 4
stigum gestanna og gerðu þar með út
um leikinn. Warren Peebles, sem hafði
svo sem ekki átt neinn stórleik fyrir
Skallagrím, fékk sína fjórðu villu undir
lok leikhlutans og þá fimmtu snemma í
síðasta leikhluta. Þetta hafði auðvitað
ekki góð áhrif á leik liðsins en stór-
breyting varð þó ekki á.
Jafnræði var með liðunum í síðasta
leikhlutanum en Njarðvíkingar gerðu
síðustu fimm stigin og náðu þar með
þrjátíu stiga sigri og virðast til alls lík-
legir þegar þeir mæta KR-ingum í und-
anúrslitunum.
Njarðvíkurliðið lék allt vel í vörninni í
gær og sóknin var allt í lagi. „Mér er svo
sem sama þó sóknin sé ekkert sérstök
þegar vörnin smellur,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, annar þjálfari liðsins
ánægður eftir leikinn. Teitur var mjög
sterkur í gær og einnig Brenton Birm-
ingham sem gerði 20 stig, tók 11 fráköst
og átti 9 stoðsendingar. Logi Gunnars-
son átti fínan leik og þeir Friðrik Stef-
ánsson og Jes V. Hansen voru öflugir í
fráköstum. Þá er rétt að geta fram-
göngu Halldórs Karlssonar í síðasta
leikhluta en þá lék hann stórvel.
Hjá gestum var Alexander Ermolins-
kij bestur og geta yngir mennirnir lært
heilmikið af meistara sínum. Hafþór I.
Gunnarsson átti einnig ágætan leik.
Morgunblaðið/Þorkell
ðvík tryggði sér sæti í undanúrslitum í gærkvöldi. Hér verjast Skalla-
g Evgenij Tomilovski en Halldór Karlsson er tilbúinn að taka frákastið.
mall saman