Morgunblaðið - 21.03.2001, Síða 4
JOHN Petersen og Sámal Jo-
ensen, færeysku landsliðs-
mennirnir í knattspyrnu sem
léku með Leiftri í fyrra, eru
gengnir til liðs við sín gömlu
félög í heimalandi sínu. Pet-
ersen er kominn aftur í raðir
B36 og Joensen til GÍ frá Götu.
Áður hafði Jens Martin Knud-
sen gengið til liðs við NSÍ frá
Runavík. Fjórði Færeying-
urinn sem lék með Leiftri í
fyrra, Jens Erik Rasmussen,
verður hinsvegar um kyrrt í
herbúðum Ólafsfirðinga.
Petersen
og Joen-
sen aftur
til Færeyja
FORRÁÐAMENN Charlton hafa
sent skýr skilaboð til Tottenham
um að láta knattspyrnustjórann
sinn, Alan Curbishley, í friði. Hann
hefur verið orðaður við lausu stöð-
una hjá Tottenham, enda náð frá-
bærum árangri með Charlton, sem
er lítið félag en vel stjórnað.
BOLTON hefur fengið tvo mark-
verði lánaða út tímabilið en félagið
hefur verið í miklum vandræðum
eftir að Jussi Jaaskelainen, finnski
landsliðsmarkvörðurinn, meiddist
illa. Þeir Matt Clarke frá Bradford
og Tommy Wright frá Manchester
City verða hjá félaginu til vorsins.
JIMMY Floyd Hasselbaink,
sóknarmaður Chelsea, hefur gagn-
rýnt félagið mjög eftir ósigurinn
gegn Sunderland um síðustu helgi.
Hann segir að Chelsea sé á villigöt-
um og titlar langt frá því að vera í
sjónmáli. Liðið sé alltof gamalt og
það sé ekki eðlilegt að hann, 28 ára
að aldri, sé í hópi yngstu leikmann-
anna. Forráðamönnum Chelsea
væri nær að taka sitt gamla félag,
Leeds, sér til fyrirmyndar hvað
uppbyggingu varðaði.
KEVIN Phillips, sóknarmaður
Sunderland, segist geta sjálfum
sér um kennt að hafa dottið út úr
enska landsliðshópnum. Phillips
missti úr leiki með Sunderland
vegna leikbanns í kjölfarið á síð-
asta landsleik Englands, gegn
Spáni. „Eriksson velur ekki leik-
menn sem hann sér ekki spila,“
sagði Phillips.
ERIKSSON hefur hins vegar
hvatt Phillips til að bregðast á rétt-
an hátt við því að vera settur út úr
hópnum. „Ég vona að hann taki við
sér, skori fullt af mörkum og eigi
þar með möguleika á að vera valinn
næst,“ sagði landsliðsþjálfari Eng-
lands.
ERIKSSON segir að David Beck-
ham verði áfram fyrirliði Eng-
lands, svo framarlega sem hann
verði í liðinu gegn Finnum. Beck-
ham hefur ekki náð sér á strik með
Manchester United að undanförnu
og Eriksson segist ekki hika við að
setja hann út úr liðinu ef það komi í
ljós á æfingum enska liðsins í vik-
unni að hann sé ekki tilbúinn í leik-
inn.
ERIKSSON hefur hins vegar
beðið stuðningsmenn Liverpool um
að standa við bakið á Beckham og
öðrum leikmönnum Manchester
United sem kunna að leika fyrir
Englands hönd á laugardaginn.
Leikurinn við Finna fer fram á An-
field Road, heimavelli Liverpool,
en þar á bæ er mönnum ekki eins
illa við neitt og Manchester United.
FÓLK
METKOVIC Jambo, mótherji
Hauka í undanúrslitum EHF-
keppninnar í handknattleik, hitaði
upp fyrir fyrri viðureign félaganna
með yfirburðasigri í króatísku 1.
deildinni um síðustu helgi. Metkov-
ic vann þá Ekol Ivanica, 36:22, og
er áfram með fullt hús stiga í deild-
inni, hefur unnið alla 18 leiki sína í
vetur. Mótherjarnir frá Ivanica eru
í 7. sæti af 12 liðum.
Metkovic er með fimm stiga for-
skot á meistarana, Badel Zagreb,
sem eiga einn leik til góða. Liðin
áttu að mætast í Zagreb á laug-
ardaginn kemur en þeim leik hefur
verið frestað vegna Evrópuleiks-
ins.
Fyrri leikur Hauka og Metkovic
verður á Ásvöllum á sunnudaginn
kemur og hefst kl. 14 en sá seinni
verður í Metkovic viku síðar.
KA-maður sem Morgunblaðiðræddi við í gær sagði að þar
sem útlit væri fyrir að ferðum liðs-
ins í útileiki fjölgaði með breyttu
keppnisfyrirkomulagi í deildinni
væru fjárhagslegar forsendur fyrir
þátttöku félagsins í deildakeppninni
brostnar.
„Á formannafundi félaganna fyrir
þingið leit út fyrir að tillagan um
jöfnunarsjóðinn yrði samþykkt og
KA lagðist því ekki gegn breyttu
fyrirkomulagi á deildakeppninni. Á
þinginu var síðan annað uppi á ten-
ingnum og við teljum okkur hafa
verið svikna,“ sagði viðmælandi
blaðsins.
Árni Þór Freysteinsson, formað-
ur handknattleiksdeildar KA, vildi
ekki ræða málið þegar Morgunblað-
ið hafði samband við hann í gær.
Þórsarar frá Akureyri tilkynntu
þátttöku en eru afar óhressir með
vinnubrögðin á ársþinginu.
Óeðlileg afgreiðsla,
segja Þórsarar
„Menn, sem hvöttu okkur til sam-
stöðu við samþykkt á breyttu
keppnisfyrirkomulagi og lofuðu að
samþykkja jöfnunarsjóðinn í stað-
inn, gengu á bak orða sinna í at-
kvæðagreiðslunni um sjóðinn. Ann-
ars var afgreiðslan á þessum
tveimur málum mjög óeðlileg því
keppnisfyrirkomulagið fór til um-
fjöllunar hjá framkvæmda- og
mótsnefnd en jöfnunarsjóðurinn var
inni á borði hjá fjárhagsnefnd. Það
runnu á okkur tvær grímur þegar
við sáum að tillögurnar voru ekki
tengdar saman,“ sagði Helgi Indr-
iðason, formaður handknattleiks-
deildar Þórs, við Morgunblaðið.
Þrýst á um sameiginlegt
lið Þórs og KA
Helgi sagði að Þór hefði þó til-
kynnt þátttöku með fyrirvara um að
möguleiki væri á að Þór og KA
sendu sameiginlegt lið næsta vetur.
„Félögin hafa ekki mikinn áhuga
á þessu og fyrir handknattleiksdeild
Þórs sem ekki er rekin með tapi
yrði ávinningur af sameiningu ekki
mikill. Ég á hinsvegar von á því að
Akureyrarbær setji mikla pressu á
félögin um að senda sameiginlegt
lið til keppni,“ sagði Helgi Indriða-
son.
Morgunblaðið/Kristján
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður úr KA, í leik gegn Val.
KA tilkynnti
ekki þátttöku
KA-MENN hafa tilkynnt HSÍ að þeir sjái sér ekki fært að taka þátt í
1. deildarkeppni karla í handknattleik næsta vetur. Ástæðan er sú
að tillaga um að tekinn yrði upp jöfnunarsjóður til að jafna ferða-
kostnað félaganna í deildinni var felld með einu atkvæði á ársþingi
HSÍ um síðustu helgi. KA lagði ekki inn þátttökutilkynningu fyrir
næsta tímabil á þinginu eins og önnur félög.
Stórsigur Metkovic
Heilbrigðisráð Íþrótta- og ól-
ympíusambands Íslands hef-
ur tekið tæplega 400 lyfjapróf
á síðastliðnum fimm árum á
íslensku- og erlendu íþrótta-
fólki sem stundar æfingar eða
keppni hér á landi. Á síðast-
liðnu ári voru tekin 120 lyfja-
próf og er það tæplega 40%
aukning frá árinu 1999 þegar
75 lyfjapróf voru tekin.
Heilbrigðisráð ÍSÍ hefur
haft um 1,5 milljónir króna til
umráða á hverju ári til lyfja-
eftirlits en á síðastliðnu ári
kom til aukafjárveiting frá ís-
lenska ríkinu sem skýrir að
hluta aukið lyfjaeftirlit hjá
heilbrigðisnefnd ÍSÍ.
Á síðastliðnum fimm árum
hafa fimm íslenskir íþrótta-
menn fallið á lyfjaprófi. Tveir
íþróttamenn reyndust hafa
notað ólögleg lyf árið 1996 og
það sama var uppi á teningn-
um ári síðar. Ekkert jákvætt
sýni fannst árið 1998, einn féll
á lyfjaprófi árið1999, og þrátt
fyrir aukin fjölda lyfjaprófa
árið 2000 var ekkert af þeim
120 sýnum sem tekin voru já-
kvætt.
Kostnaður við hvert lyfja-
próf nemur um 25 til 30 þús-
und krónum og heildar-
kostnaður við lyfjaeftirlit
síðustu fimm ára nemur því
um 11,5 milljónum króna. Sé
miðað við reynslu síðastliðna
fimm ára er fórnarkostnaður
íþróttahreyfingarinnar á bak
við hvert jákvætt sýni sem
fundist hefur rúmlega 2,3
milljónir króna.
Til samanburðar má nefna
að Norðmenn tóku um 2.500
lyfjapróf á síðastliðnu ári og
ef höfðatölunni margfrægu er
beitt eru um 30% fleiri lyfja-
próf tekin í Noregi en á Ís-
landi.
Samkvæmt heimildum frá
heilbrigðisnefd ÍSÍ er almenn
regla að um 1–2% þeirra sýna
sem tekin eru á heimsvísu séu
jákvæð og samkvæmt því er
Ísland innan tölfræðilegra
skekkjumarka.
Aukning
lyfja-
prófa