Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 1
2001 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KA FAGNAÐI SIGRI Á AFTURELDINGU Á AKUREYRI / B8
ENSKA úrvalsdeildarliðið Arsenal hefur gert
Fylkismönnum tilboð í knattspyrnumanninn
efnilega, Ólaf Inga Skúlason. Ólafur, sem er 18
ára, æfði með unglinga- og varaliði Arsenal á
dögunum og lék með varaliði félagsins í leik á
móti Chelsea. David Dean, varaforseti Arsenal,
var einn þeirra sem fylgdist með Ólafi Inga í
leiknum og hreifst hann mjög af frammistöðu
hans. Í kjölfarið setti Dean sig í samband við
Fylkismenn og gerði þeim tilboð í Ólaf Inga
sem Fylkismenn eru þessa dagana að skoða
ásamt Ólafi Inga og umboðsmanni hans, Ólafi
Garðarssyni. „Það eina sem ég get sagt á þess-
ari stundu er að við erum komnir með tilboð í
hendurnar frá Arsenal og viðræður á milli
félaganna eru komnar í gang,“ sagði Kjartan
Daníelsson, framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Fylkis, í samtali við Morgunblaðið.
Arsenal vill
kaupa Ólaf Inga
SIGURBJÖRN Hreiðarsson
knattspyrnumaður mun sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um Morgunblaðsins skrifa und-
ir samning við Val í dag.
Sigurbjörn er nýkominn heim
frá Svíþjóð en eins og Morg-
unblaðið greindi frá á dögunum
fór hann fram á við sænska úr-
valsdeildarliðið Trelleborg að
verða leystur undan samningi.
Rúmenarnir koma
í næstu viku
Valsmenn eiga von á frekari
liðsstyrk fyrir átök sumarsins
en tveir rúmenskir leikmenn
eru á leiðinni til Vals.
Nokkur töf hefur orðið á
komu Rúmenana. Þurft hefur
að fylla út hina ýmsu pappíra
vegna Schengen-samningsins
og fleira því tengt en því er nú
öllu lokið og eru leikmennirnir
væntanlegir til landsins í næstu
viku.
Leikmennirnir sem um ræðir
eru Constantin Stanici, 31 árs
gamall miðvallarleikmaður sem
á að baki 8 A-landsleiki fyrir
Rúmeníu og Daniel Gidea, 21
árs gamall sóknarmaður sem
lék síðast í Svíþjóð.
Sigurbjörn
til Vals
Margrét er mjög hæfileikaríkurog fjölhæfur leikmaður,“ seg-
ir yfirþjálfari Charge, Mark Krik-
orian, á heimasíð-
unni. „Hún getur
leikið í hvaða stöðu
sem er og kemur
með mikla reynslu
og þekkingu af leikjum á alþjóðlegu
stigi til liðsins.“
Fyrsti leikur Philadelphia Charge
í mótinu er á sunnudag í San Diego.
Þangað fer 16 manna hópur frá
Philadelphia. Margrét sagði við
Morgunblaðið að hún hefði ekki hug-
mynd um hvaða leikmenn yrðu í
þessum 16 manna hópi en vonar að
sjálfsögðu að hún muni ekki þurfa að
sitja heima.
Sama hvaða stöðu
ég verð látin leika
„Þjálfarinn hefur látið mig leika á
hægri kanti og í framherjastöðu á
undanförnum æfingum. Mér er al-
veg sama hvaða stöðu ég þarf að
spila svo fremi sem ég fæ tækifæri
til að vera með,“ sagði Margrét og
hún ætti ekki að þurfa að kvíða því
að finna ekki stöðu við sitt hæfi enda
hefur hún leikið þær flestar ef mark-
ið er undanskilið.
„Ég geri mér ekki grein fyrir því
hvaða möguleika ég á á því að vera
með í leiknum á sunnudag og ég
hugsa í raun ekki svo mikið um það.
Fyrir mér er þetta stórkostlegt
tækifæri og ég er þakklát fyrir að
vera hér í dag. Í liðinu eru margir
frábærir leikmenn en þó eru engar
stórstjörnur og það held ég að muni
hjálpa okkur þegar fram í sækir. Ég
er fjórði erlendi leikmaðurinn sem
fær samning en aðrir eru Doris
Fitchen frá Þýskalandi, Liu Ailing
frá Kína og Kelly Smith frá Eng-
landi. Kelly er frábær örfættur leik-
maður og mjög fljót. Liu hefur ekki
sýnt sitt rétta andlit, hún er ekki
komin í sitt rétta form, en hefur
greinilega gott auga fyrir spili og sú
þýska er líka mjög góð. Ég tel að það
muni tvímælalaust hjálpa mér að ég
get spilað margar stöður. En eins og
staðan er í dag verð ég mjög ánægð
ef ég næ að komast í 16 manna hóp,
a.m.k. svona til að byrja með – svo
slæ ég í gegn,“ sagði Margrét sposk.
Var búin að afskrifa
þennan möguleika
„Þetta ferli allt hefur í raun verið
ótrúlegt ævintýri. Fyrir um mánuði
var ég búin að afskrifa það að ég ætti
nokkra möguleika. En þjálfari Rich-
mond-háskólans, sem hefur verið í
sambandi við mig frá því síðastliðið
sumar, var mjög ákveðinn í því að ég
ætti heima í deildinni hér og hann
náði að sannfæra þjálfara Phila-
delphia um að ég væri rétti kost-
urinn fyrir hann. Fyrir tveimur vik-
um fékk ég síðan staðfestingu á því
að Philadelphia vildi fá mig til skoð-
unar, ég kom hingað á þriðjudaginn
var og deildin byrjar á sunnudag.
Þetta er alveg ótrúlegt,“ sagði
Margrét Ólafsdóttir.
Margrét Ólafsdóttir samdi við Philadelphia Charge
Ótrúlegt ævintýri
PHILADELPHIA Charge skýrði frá því á heimasíðu sinni nú um
páskana að búið væri að semja við íslensku landsliðskonuna
Margréti Ólafsdóttur úr Breiðabliki um að hún léki með liðinu á
komandi keppnistímabili bandarísku atvinnumannadeildarinnar í
knattspyrnu. Á síðunni segir jafnframt að þar með hafi liðið lokið
við að skipa þann 20 leikmanna hóp sem það muni hafa í sumar og
að Margrét sé fjórði og síðasti erlendi leikmaðurinn sem liðið megi
hafa innan sinna raða.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
RÓBERT Julian Duranona, lands-
liðsmaður í handknattleik, leikur
ekki handknattleik næstu sex eða
jafnvel átta mánuði en önnur hásin
hans rifnaði afar illa í leik Nettel-
sted og Bayer Dormagen sl. laug-
ardag. Atvikið átti sér stað þegar
komið var fram í miðjan síðari hálf-
leik þegar Duranona var að stökkva
upp.
„Alvarleg meiðsli Duranona setja
óneitanlega stórt strik í reikninginn
hjá landsliðinu vegna landsleikjanna
við Hvít-Rússa,“ sagði Guðmundur
Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari í
samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég
talaði við Jörn-Uwe Lommel, þjálf-
ara Nettelstedt, í fyrradag og hann
sagði mér að önnur hásin Duranona
væri illa rifin og hann verði fjarri
handknattleiksvellinum í að minnsta
kosti hálft ár. Þetta er alvarlegt mál
fyrir landsliðið,“ sagði Guðmundur
enn fremur.
Meiðslin eru einnig áfall fyrir
Nettelstedt, lið Duranona, en það
berst nú fyrir lífi sínu í efstu deild
þýska handknattleiksins.
Morgunblaðið/Golli
Njarðvíkingar fögnuðu sínum ellefta Íslandsmeistaratitli á Sauðárkróki í gærkvöldi, með því að leggja Tindastól að velli. Logi Gunn-
arsson, Ragnar Ragnarsson og Halldór Karlsson fremstir í flokki. Allt um viðureignina á B2, B3.
Duranona
úr leik í sex
mánuði