Morgunblaðið - 18.04.2001, Síða 4
KNATTSPYRNA
4 B MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FORSKOT Roma í ítöl
spyrnunni minnkar e
verjar máttu sætta sig
tefli, 2:2, á heimav
Perugia á laugardaginn
Juventus sigraði Inter,
er með fjögurra stiga f
leikmenn liðsins þurfa
Forsk
Meistararar Bæjaraleikinn vel og ef
þrjár mín. var Carsten
búinn að þenja út netm
marki Schalke, sem hafð
að fagna sigri í Münc
1983, að liðið vann 1:0.
gáfust ekki upp við mó
ellefu mín. síðan var San
skora sitt fyrsta mark ú
stöðu, eftir sendingu f
Mpenza. Þeir komu síða
sögu á 48. mín., en þá ska
knöttinn í netið eftir sen
Mpenza.
Sand, sem er nú mark
Þýskalandi með 20 m
tryggði sigurinn á 75 mí
Oliver Kahn, markvörðu
náði ekki að halda
Mpenza.
Bæjarar urðu að játa
aða, en þeir léku án fjög
ilmanna, sem voru í
meiddir – Stefan Effen
ente Lizerazu, Thomas
Giovane Elber.
Da
me
DANSKI landsliðsm
skotskónum á Ólym
menn Schalke fögn
skoraði öll þrjú mör
skot á Bayern þega
Schalke hefur ekki
síðan 1958.
Fyrs
Danski leikmaðurinn Ebbe Sand og hinn belgíski félagi hans, Emile Mpe
sem Sand skoraði þrjú mörk fy
RÚNAR Kristinsson skoraði fyrsta mark Loke-
ren í stórsigri á Lierse, 4:1, á útivelli í belgísku
knattspyrnunni á laugardaginn. Lokeren lyfti
sér upp í sjötta sæti með sigrinum og á nú ágæta
möguleika á að tryggja sér Evrópusæti.
Rúnar skoraði mark sitt á 19. mínútu, tók bolt-
ann niður og skoraði með hnitmiðuðu skoti eftir
að markvörður heimaliðsins hafði slegið boltann
frá marki sínu. Hann, Arnar Grétarsson og Arn-
ar Þór Viðarsson léku allir vel með Lokeren en
Auðun Helgason mátti verma varamannabekk-
inn að þessu sinni.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson lék ekki með Har-
elbeke, sem vann Gent, 2:1, og er hann á lista yfir
20 leikmenn sem mega yfirgefa Harelbeke í vor.
Langþráð
mark Andra
ANDRI Sigþórsson skoraði langþráð mark fyrir
Salzburg í austurrísku deildakeppninni á laug-
ardaginn, þegar lið hans sigraði LASK Linz, 3:1.
Þetta var fyrsta mark Andra í 12 deildaleikjum
frá því hann gekk til liðs við Salzburg en hann
hafði áður skorað í æfingaleikjum og tvö mörk í
bikarleik á dögunum. Markið gerði hann með
góðu skoti eftir fyrirgjöf og jafnaði þá metin, 1:1,
á 50. mínútu. Hann fór síðan af velli 20 mínútum
fyrir leikslok. Salzburg lyfti sér upp í 5. sætið
með sigrinum.
Rúnar skor-
aði í stórsigri
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Rúnar og Andri.
Þau félög sem hafa unnið þettaafrek áður eru Huddersfield
(1924–1926), Arsenal (1933–1935)
og Liverpool (1982–1984). Á mánu-
dag var síðan birt fyrsta spá veð-
banka um næsta tímabil, 2001–2002,
og þar er Manchester United talið
langlíklegast til sigurs, og að félagið
verði þar með það fyrsta til að vinna
þennan eftirsótta titil fjögur ár í
röð.
Alex Ferguson fagnaði á laugar-
dag sínum 14. titli frá því hann tók
við sem knattspyrnustjóri félagsins
árið 1986. Þar af hefur félagið sjö
sinnum orðið enskur meistari á síð-
ustu níu árum. Manchester United
hefur nú samtals 14 sinnum unnið
meistaratitilinn en á enn nokkuð í
land með að ná Liverpool sem 18
sinnum hefur orðið enskur meistari.
Ryan Giggs og Denis Irwin hafa
unnið alla sjö titlana sem Manchest-
er United hefur hreppt undir stjórn
Fergusons og þeir Roy Keane, Dav-
id Beckham, Andy Cole, Gary Nev-
ille, Phil Neville, Nicky Butt og
Paul Scholes hafa allir orðið meist-
arar sex sinnum.
Baráttan um annað og þriðja sæt-
ið sem gefa þátttökurétt í meist-
aradeild Evrópu harðnar stöðugt.
Hermann Hreiðarsson og félagar í
Ipswich nældu sér í sex stig um
páskana og eru aðeins stigi á eftir
Arsenal, sem heldur öðru sætinu
þrátt fyrir skellinn gegn Middl-
esbrough. Leeds, Liverpool og
Chelsea eru í næstu sætum og eiga
leiki til góða á Ipswich þannig að
gífurleg barátta er framundan í
lokaumferðunum. Liverpool vann
magnaðan sigur á Everton, 3:2, þar
sem Gary McAllister skoraði sig-
urmarkið úr aukaspyrnu á lokasek-
úndunum.
Leikmenn Arsenal gáfu leik-
mönnum Middlesbrough gjafir á
Highbury í London, þar sem Ars-
enal mátti þola sitt fyrsta tap í fjór-
tán mánuði, 0:3. Já, og fyrsta tap
fyrir Middlesbrough á Highbury frá
1939. Tvö fyrstu mörk „Boro“ voru
sjálfsmörk leikmanna Arsenal –
Edu á 34. mín. og Silvinho á 38. mín.
Þrátt fyrir nær látlausa sókn
heimamanna náðu þeir ekki að
skora.
Fyrsta mark Þórðar fyrir Derby
Þórður Guðjónsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Derby á laugar-
daginn en lið hans beið þá lægri
hlut, 3:1, fyrir West Ham. Þórður
skoraði fjórum mínútum eftir að
hann kom inn á sem varamaður,
með fallegu skoti rétt innan víta-
teigs. Derby vann Leicester, 2:0, á
annan í páskum og heldur sér fimm
stigum frá fallsæti.
Coventry er komið á sinn árlega
endasprett og gæti enn haldið sér í
deildinni, þá helst á kostnað Midd-
lesbrough, þó að Derby, West Ham
og Everton séu ekki sloppin enn.
Manchester City og Bradford virð-
ast dauðadæmd þrátt fyrir að bæði
hafi náð að vinna leik um páskana.
Fulham er hins vegar búið að
tryggja sér úrvalsdeildarsæti en
félagið lék síðast í efstu deild árið
1968.
Enn ein rósin í glæsilegan garð Manchester United
Fjórða liðið
sem vinnur
þrjú ár í röð
MANCHESTER United varð á laugardaginn fjórða félagið í 113 ára
sögu ensku knattspyrnunnar til að verða meistari þrjú ár í röð. Sú
niðurstaða lá endanlega fyrir síðdegis á laugardaginn þegar Ars-
enal fékk óvæntan skell á heimavelli gegn Middlesbrough, 3:0, en
um morguninn hafði Manchester United sigrað Coventry, 4:2, í fjör-
ugum leik á Old Trafford.
Real-menn höfðu meira fyrir sigr-inum en tölur gefa til kynna, því
að þeir voru heppnir að hafa ekki
þurft að ná í knöttinn tvisvar í netið
hjá sér áður en þeir skoruðu sitt
fyrsta mark. Það var snáðinn Guti,
sem vann hug og hjörtu áhorfenda
sem troðfylltu Bernabeu-leikvanginn
í Madrid – hann skoraði fyrsta mark
sitt af þremur á 21. mín., eftir send-
ingu frá Brasilíumanninum Roberto
Carlos.
Þar með náðu leikmenn Real yf-
irhöndinni, sem þeir gáfu ekki eftir.
Guti bætti við sínu öðru marki og því
ellefta á keppnistímabilinu fimm
mínútum eftir leikhlé, eftir undirbún-
ing Luis Figo og Steve McManaman.
Fjórum mín. síðar var Roberto Carl-
os á ferðinni, er hann skoraði beint úr
aukaspyrnu. Carlos sendi knöttinn
fram hjá varnarvegg Villarreal,
markvörður liðsins, Lopez Vallejo,
snerti knöttinn, en ekki nægilega til
að koma í veg fyrir að tuðran hafnaði
í netinu – hann sló knöttinn upp í
markhornið með hægri hendi. Vall-
ejo átti síðan ekki möguleika á að
koma í veg fyrir að Guti skoraði sitt
þriðja mark á 59. mín.
Leikmenn Villarreal fengu á sig
fjögur mörk í tveimur leikjum í röð,
en þeir náðu sjálfir að skora fjögur í
leik á undan – gegn Barcelona, 4:4.
Leikmenn Barcelona gerðu aftur á
móti sitt annað 4:4 jafntefli, er þeir
léku gegn Zaragoza á heimavelli sín-
um, Nou Camp. Það var Rivaldo sem
skoraði fjórða mark Barcelona á síð-
ustu mín. leiksins, beint úr auka-
spyrnu. Áður hafði Marc Overmars
skoraði eitt mark og landi hans, Pat-
rick Kluivert, tvö.
Reuters
Jose Maria Guti fagnar marki með því að stökkva upp á bakið á
félaga sínum, Claude Makelele.
LEIKMENN Real Madrid halda
sínu striki á Spáni, þar sem Guti
setti þrennu og Roberto Carlos
skoraði glæsimark beint úr
aukaspyrnu er þeir lögðu Vill-
arreal, 4:0. Real Madrid er með
átta stiga forskot á Deportivo La
Coruna í meistarabaráttunni.
Guti með
þrennu