Morgunblaðið - 18.04.2001, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 B 5
KNATTSPYRNA
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke City, var harð-
orður í garð fyrrverandi fyrirliða
liðsins, Nickys Mohans, í blaðinu
The Sentinel á mánudaginn. Mohan
rauk út af æfingu liðsins á föstudag
og blaðið segir að eftir hana hafi
hann og Guðjón átt hörð orðaskipti
sín á milli. Mohan var ekki í leik-
mannahópi Stoke um helgina og
tvísýnt er talið um framtíð hans hjá
félaginu.
„Hann gekk burt á miðri æfingu
og það sýnir ekki rétt hugarfar.
Þetta var félögum hans lítill stuðn-
ingur fyrir mikilvægan leik. Mohan
er á algjörum villigötum og ég mun
leysa það mál á einn eða annan hátt.
Hann fær laun fyrir að æfa og spila,
ekki fyrir að yfirgefa æfingasvæð-
ið,“ sagði Guðjón við The Sentinel.
Guðjón sagði að ástæðan fyrir
framkomu Mohans hefði ekki verið
sú að hann hefði verið settur út úr
liðinu. „Við vorum að skoða ýmsa
möguleika á æfingunni og ég var
ekki búinn að tilkynna hvernig liðið
yrði skipað,“ sagði Guðjón, sem
svipti Mohan fyrirliðastöðunni fyrir
tímabilið í kjölfar þess að Mohan
var rekinn af velli í leik gegn ÍA á
Akranesi.
Guðjón harðorð-
ur í garð Mohans
sku knatt-
nn. Róm-
g við jafn-
velli gegn
n á meðan
3:1. Roma
forskot en
greinilega
að halda vel á spilunum á loka-
sprettinum.
Reyndar voru Rómverjar
heppnir að ná jafntefli því gest-
irnir skoruðu sjálfsmark á síðustu
mínútunni, í kjölfar þess að Vinc-
enzo Montella, sóknarmaður
Roma, virtist handleika knöttinn.
Juventus skoraði þrjú mörk á
13 mínútna kafla snemma í síðari
hálfleik og tryggði sér með því
sigurinn á Inter.
Lazio vann Reggina, 2:0, á úti-
velli og hefur ekki gefið upp alla
von; er sex stigum á eftir Juv-
entus en á leik til góða.
kot Roma minnkar enn
a byrjuðu
ftir aðeins
n Jancker
möskvana á
ði ekki náð
chen síðan
. Gestirnir
tlætið og
nd búinn að
r þröngri
frá Emile
an aftur við
allaði Sand
ndingu frá
kahæstur í
mörk, gull-
n., eftir að
ur Bayern,
skoti frá
a sig sigr-
gurra lyk-
banni og
berg, Bix-
Linke og
„Leikmenn Schalke léku mjög
vel gegn okkur. Varnarmenn okk-
ar voru of spenntir í viðureign
sinni við þá,“ sagði Ottmar Hitz-
feld, þjálfari Bayern og bætti við:
„Þessi ósigur er slæmur fyrir okk-
ur í meistarabaráttunni. Leik-
menn Schalke eru nú fullir sjálfs-
trausts, sem hefur mikið að segja í
lokabaráttunni. Þeir standa með
pálmann í höndunum og eru sig-
urstranglegastir.“
Hollendingurinn Huub Stevens,
þjálfari Schalke, var ákveðinn í að
halda sínum mönnum niðri á jörð-
inni. „Að sjálfsögðu getur maður
ekki annað en verið ánægður með
sigur á Ólympíuleikvanginum í
München, 3:1,“ sagði hann, en hélt
síðan áfram: „Ég er ekki fullkom-
lega ánægður með leik minna
manna og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik, er þeir léku ekki vel.“
„Við gátum hæglega skorað sex
mörk. Það kom okkur á óvart hvað
við fengum að leika lausum hala,“
sagði Sand.
Bæjarar hafa nú tapað níu deild-
arleikjum – fjórum fleiri en þeir
töpuðu í fyrra er þeir urðu meist-
arar. Það voru fleiri en Bæjarar
sem töpuðu óvænt heima, leik-
menn Bayer Leverkusen, sem eru
með í meistarabaráttunni, töpuðu
heima fyrir Freiburg, 3:1. Það
voru Zoubaier Baya og Vladimir
But sem skoruðu tvö síðustu mörk
Freiburg rétt fyrir leikslok.
„Ég er vonsvikinn. Áætlun okk-
ar var að setja strax pressu á gest-
ina, en okkur tókst það ekki,“ sagði
Berti Vogts, þjálfari Leverkusen,
sem er í þriðja sæti með 49 stig,
eins og þrjú önnur lið – Dortmund,
Hertha Berlin og Kaiserslautern.
Schalke er með 52 stig, Bayern 50.
Keppnin um Þýskalandsmeistara-
titilinn er æsispennandi.
Eyjólfur Sverrisson átti mjög
góðan leik með Herthu, sem vann
Dortmund, 1:0. Hann átti góðan
skalla að marki Dortmund, en
hafði ekki heppnina með sér –
knötturinn hafnaði á þverslá.
Marko Rehmer skoraði sigur-
markið með skalla á 65. mín.
Hertha mætir Schalke um næstu
helgi.
Tékkinn Vratislav Lokvenc
skoraði tvö mörk fyrir Kais-
erslautern, sem vann Frankfurt,
4:2.
aninn Sand
eð þrjú mörk
maðurinn Ebbe Sand var heldur betur á
mpíuleikvanginum í München, þar sem leik-
uðu sigri á meisturum Bæjara, 3:1. Sand
rk Schalke, sem er nú með tveggja stiga for-
r fimm umferðir eru eftir í Þýskalandi.
náð að hampa meistaratitli í Þýskalandi
sti sigur Schalke í München í átján ár
AP
enza, höfðu ástæðu til að fagna á Ólympíuleikvanginum í München, þar
yrir Schalke gegn Bayern, 3:1.
Nicholas skoraði 48 mörk fyrirCeltic leiktíðina 1982-1983,
en Larsson er nú búinn að skora
49 mörk fyrir liðið. „Að skora svo
mörg mörk er hreint frábært. Ég
er viss um að Charlie Nicholas
hefði talið að met hans myndi
standa óhaggað um komandi fram-
tíð – yrði aldrei slegið,“ sagði
Martin O’Neill, knattspyrnustjóri
Celtic, sem mætir Hibs í úrslitum
bikarkeppninnar. Celtic hefur þeg-
ar tryggt sér Skotlandsmeistara-
titilinn og sigur í deildarbikar-
keppninni.
Larsson, sem var keyptur frá
Feyenoord á 650 þús. pund í ágúst
1997, fótbrotnaði illa í UEFA-leik
með Celtic gegn Lyon 1999 og
reiknuðu þá margir með að knatt-
spyrnuferli hans væri lokið. Hann
gafst ekki upp, heldur lagði mjög
hart að sér við æfingar og náði
upp sínum fyrri styrk og gott bet-
ur. Hann hefur hreinlega farið á
kostum í vetur og stóran þátt í því
á enski landsliðsmaðurinn Chris
Sutton. Þeir hafa náð mjög vel
saman og hefur Larsson fengið að
leika lausum hala – nýtt sér aukið
athafnasvæði sem hann hefur
fengið við komu Sutton.
Það eru margir þeirra skoðunar
að Larsson sé hættulegasti mið-
herji heims – miklu betri en Arg-
entínumaðurinn Gabriel Batistuta.
Menn segja að Batistuta sjáist
ekki heilu lekina, nema þegar
hann skorar. Það er annað með
Larsson, sem er geysilega vinnu-
samur og er á ferðinni út um allan
völl að vinna knöttinn og byggja
upp sóknarlotur. Larsson vill lítið
gera úr afrekum sínum, segist að-
eins vera einn hlekkur í sterkri
keðju Celtic. O’Neill segir að Lars-
son sé frábær félagi, afar hæfi-
leikaríkur knattspyrnumaður sem
nái að laða fram það besta hjá
samherjum sínum.
Larsson er lykillinn að því að
Celtic er búið að skjóta Glasgow
Rangers ref fyrir rass.
Á sama tíma nær norski lands-
liðsmaðurinn Tore Andre Flo sér
ekki á strik hjá Glasgow Rangers,
sem keypti hann á 12 millj. punda
í vetur frá Chelsea. Hann hefur
skorað 10 mörk í 17 leikjum. „Það
eru gerðar miklar kröfur til mín.
Það er ætlast til að ég skori þrjú
mörk í hverjum leik,“ sagði Flo,
sem vill komast burt frá Rangers.
Vitað er að Tottenham og
Deportivo La Coruna hafa áhuga á
að fá Flo til sín.
Fáir geta
stöðvað
Larsson
SÆNSKI landsliðsmaðurinn Henrik Larsson hefur heldur betur
slegið í gegn með skoska liðinu Celtic í vetur. Larsson skoraði tvö
mörk fyrir liðið í undanúrslitaleik gegn Dundee United, 3:1. Þar með
bætti hann 18 ára gamalt markamet Charlie Nicholas, eða Kampa-
víns-Kalla, sem þessi fyrrverandi leikmaður Celtic og Arsenal var
oft kallaður vegna hins ljúfa lífs sem hann lifði og þá sérstaklega í
stórborginni London.
Reuters
Chris Sutton og Henrik
Larsson fagna marki.
Derhúfa
aðeins 800 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is