Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 4

Morgunblaðið - 21.04.2001, Side 4
Leikmenn KA byrjuðu betur ogkom þar einkum til að 6/0 vörn Aftureldingar var gloppótt og sókn- arleikurinn var ráð- leysislegur. KA komst í 3:1 og síðan 5:4, þegar 9 mínútur voru liðnar af leikn- um. Þá gerði Afturelding sjö mörk í röð á tíu mínútna kafla án þess að svar kæmi úr herbúðum KA. Eftir það horfðu heimamenn aldrei um öxl. Sterk vörn og lipurlegur sókn- arleikur færðu liðinu þess forystu, en einnig var Reynir Þór Reynisson traustur í marki Mosfellinga. KA- menn reyndu hvað þeir gátu til að snúa leiknum sér í hag. Undir lok fyrri hálfleiks tóku þeir Bjarka Sig- urðsson og Gintaras Savukynas úr umferð og fóru þar með úr flatri 6/0 vörn sem leikin var til að byrja með. Þessi breyting skilaði litlum árangri þótt leikmönnum KA tækist að minnka muninn í þrjú mörk, 13:10, um tíma. Áður en flautað var til leiksloka var munurinn orðinn fimm mörk, 15:10. Í síðari hálfleik komu KA-menn framar í vörninni, léku sína velkunnu 3/3 vörn sem hefur reynst þeim betri en engin á leiktíðinni. Sú breyting skilaði litlu og Mosfellingar héldu sínu striki og unnu öruggan sigur. Í sjálfu sér má segja að breyttur varn- arleikur KA í síðari hálfleik hafi skil- að þokkalegum árangri en á móti kom að sóknarleikurinn var afar bit- lítill og klaufaskapur var algjör á köflum. Hafði það því lítið að segja að vinna boltann því hann tapaðist oft klaufalega jafnharðan á ný. Aftureldingarliðið komst vel frá leiknum lengst af. Það hefði auðveld- lega getað unnið stærri sigur ef meiri yfirvegun hefði náðst í sókn- arleikinn er á leið síðari hálfleik. Vörnin var hins vegar lítt árennileg, lokaði hún vel fyrir skyttur KA-liðs- ins og algjörlega fyrir línumanninn sterka, Andrius Stelmokas, en hann megnaði aðeins að skora eitt mark í leiknum og það úr hraðaupphlaupi. KA-liðið olli í heild nokkrum von- brigðum en víst er að það mun sýna á sér allt aðra og betri hlið á heimavelli í dag, einkum þarf sóknarleikurinn að verða heilsteyptari. Tölfræðin og sagan verða ekki með Mosfellingum í oddaleiknum því gleggstu menn þar á bæ muna að- eins eftir einum sigurleik í KA-heim- ilinu á síðustu árum. Víst er að hart verður barist og sennilegt má telja að leikurinn verði jafnari en tvær fyrstu viðureignirnar hafa verið. Hlutverkin sner- ust við á Varmá Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Halldór Sigfússon og Guðjón Valur Sigurðsson, KA-menn, í fyrsta leiknum gegn Aftureldingu á Akureyri. Svo virðist sem þeir félagar séu að skiptast á skoðunum við boltann og Guðjón Valur jafnvel að bjóða honum sopa úr ósýnilega glasinu sem hann virðist halda á í hendinni! ÞAÐ urðu hlutverkaskipti í öðr- um leik Aftureldingar og KA í undanúrslitum að Varmá á fimmtudaginn. Nú voru það leik- menn Aftureldingar sem höfðu töglin og hagldirnar lengst af en KA-menn reyndu hvað þeir gátu til að snúa leiknum sér í hag. Það tókst þeim aldrei og Aftur- elding vann verðskuldaðan og síst of stóran sigur, 27:21, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10. Liðin eigast því við í oddaleik nyrðra í dag. Ívar Benediktsson skrifar „OKKUR tókst að bæta það í þessum leik sem miður fór í þeim fyrsta, vörnin var mun grimmari og markvarslan ólíkt betri,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Aftureldingar, eftir að honum og hans mönnum tókst að knýja fram oddaleik gegn KA. „Sóknarleikurinn var líka mun beittari. Eftir þennan leik vitum við hvað til þarf. Sjálfsagt hefð- um við getað unnið stærri sigur, en ég var sáttur. Í úrslitakeppn- inni skiptir öllu máli að vinna, munurinn er aukaatriði. Næsta skref er að fara norður og vinna.“ Bjarki sagði sína menn hafa verið vel undir það búna að mæta fjölbreytilegum varnarleik KA, sem reyndi ekki færri en þrjú varnarafbrigði. „Við vorum búnir undir eitt og annað og í raun má segja að ekkert hafi komið okkur á óvart í leik KA að þessu sinni. Allir innan míns liðs skiluðu hlut- verkum sínum með sóma og léku af skynsemi þegar á reyndi. Það vegur þungt í úrslitakeppninni. Að þessu sinni var það liðsheildin sem fyrst og fremst tryggði okk- ur sigur,“ sagði Bjarki. Um oddaleikinn sagðist Bjarki eiga von á mun jafnari leik en áð- ur. „Stemmningin ræður ríkjum í oddaleiknum. Við erum grjót- harðir í þeirri ætlun okkar að sækja sigur norður yfir heiðar og tryggja þar með sæti í úrslita- leikjunum. Ég veit hvað í liðinu býr, en til þess að töfra það fram þarf hver einasti leikmaður að leggja sig fullkomlega fram. Ann- að þýðir ekki,“ sagði Bjarki Sig- urðsson, þjálfari Aftureldingar. Förum norður til að vinna FÓLK  JÓNATAN Magnússon, leikmaður KA, lék ekki með í Mosfellsbæ á fimmtudaginn. Hann er meiddur á öxl og óleikhæfur af þeim sökum.  FJÓRIR leikmenn Aftureldingar og KA fóru í lyfjapróf eftir leikinn að Varmá, Mosfellingarnir Alexei Trúfan og Ólafur Gíslason og norð- anmennirnir Andrius Stelmokas og Hreinn Hauksson.  AFTURELDING varð bikarmeist- ari í 4. flokki karla á fimmtudaginn er liðið vann Fram í úrslitaleik í Selja- skóla, 17:14. Var hinum ungu bikar- meisturum Aftureldingar vel fagnað er þeir gengu fram á leikvöllinn að Varmá í hálfleik í leik meistara- flokksliða Aftureldingar og KA sama dag.  BJARNI Viggósson og Valgeir Ómarsson dæma oddaleik KA og Aftureldingar í KA-heimilinu. Eftir- litsdómari verður Kjartan K. Stein- back, formaður dómaranefndar Al- þjóðahandknattleikssambandsins.  AFTURELDING hélt með lið sitt til Akureyrar síðdegis í gær, kvöldið fyrir oddaleikinn í KA-heimilinu, en hann hefst kl. 16. Atli sagði ennfremur að sóknar-leikur sinna manna hefði í heildina verið slakur og fyrir vikið hefðu Mosfellingar fengið boltann á auð- veldan hátt og náð auðveldum mörkum með hraðaupphlaup- um. „En sem betur fer eigum við oddaleikinn heima á laugardaginn til þess að rétta stöðu okkar. Þá verður mun betur tekið á hlutunum.“ Þið voruð að reyna ýmiskonar varnarleik. Fyrst lékuð þið flata vörn, fóruð síðan í að taka tvo úr um- ferð en endið síðan í framliggjandi 3/3 vörn. Ekkert af þessu tókst veru- lega vel, var það? „Rétt er það. Við vorum að reyna það sem við gátum til þess að snúa leiknum okkur í hag. Til þess þurfti að reyna það sem hægt var. Einnig hafði það sín áhrif á okkur að Jón- atan Magnússon gat ekki leikið með vegna meiðsla. Hann hefur verið einn okkar sterkasti leikmaður í þessari framliggjandi vörn. Á okkar heimavelli eigum við hins vegar eftir að bíta frá okkur í vörninni.“ Á þá að leika 3/3-vörnina? „Við skulum sjá til hvað gerist,“ sagði Atli og brosti. En hverju má búast við í odda- leiknum, að mati Atla? „Þreyta er vafalaust farin að segja til sín hjá báðum liðum. Í oddaleikn- um skiptir miklu máli að halda ró sinni og sýna skynsemi. Ég vænti þess að það verði þéttskipaður bekk- urinn á heimavelli okkar, enda treystum við verulega á okkar stuðn- ingsmenn eins og endranær. Ég vænti þess að leikurinn verði jafn og skemmtilegur enda á ferðinni tvö vel leikandi lið. Á þessari leiktíð höfum við aðeins tapað einum leik á heima- velli, gegn Fram í bráðabana, og við ætlum ekki að láta það endurtaka sig að þessu sinni. Um það hvernig leik- urinn mun þróast er erfitt að segja, fram til þessa hafa verið sveiflur í leik liðanna,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA. Ætlum ekki að tapa heima „VIÐ byrjuðum vel, komumst 3:1 yfir, en töpuðum síðan þræðinum fljótlega og misstum leikmenn Aftureldingar langt fram úr okkur, 11:5. Á þeim tíma misstum við menn út af og Mos- fellingar fengu mörk úr hraða- upphlaupum. Eftir þetta var ég ósáttur við leik okkar að þessu sinni,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir sex marka tap í Varmá á sumardaginn fyrsta. „Vörnin var ekki nægilega góð, við fórum illa að ráði okkar í dauðafærum og síðan gáfum við boltann alltof oft upp í hend- urnar á leikmönnum Aftureld- ingar. Það gengur einfaldlega ekki.“ Ívar Benediktsson skrifar                                !" #"     $ $ $ %  &                            Reynir Þór Reynisson, Aftureldingu, 19(3); 8 langskot, 1 eftir gegn- umbrot, 4 (1) eftir hraðaupphlaup, 4 (1) úr horni, 2 (1) af línu. Hörður Flóki Ólafsson, KA, 15 (4); 7 (1) langskot, 2 (2) eftir gegn- umbrot, 4(1) eftir hraðaupphlaup, 1 úr horni, 1 af línu. Þannig vörðu þeir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.