Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 2
KNATTSPYRNA
2 C FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Símadeild, efsta deild karla
Grindavík - Fylkir ................................... 0:4
Staðan:
Fylkir 10 6 3 1 18:5 21
ÍA 10 5 2 3 15:9 17
Valur 10 5 2 3 14:12 17
ÍBV 10 5 2 3 7:8 17
FH 9 4 3 2 9:7 15
Keflavík 10 4 2 4 14:15 14
Grindavík 8 4 0 4 11:13 12
KR 9 3 2 4 8:10 11
Breiðablik 10 2 1 7 8:17 7
Fram 10 1 1 8 10:18 4
1. deild karla
Víkingur - Þróttur R.............................. 0:2
Björgólfur Takefusa 66., Charlie McCorm-
ick 78.
KA - Dalvík.............................................. 3:1
Þorvaldur Örlygsson 27., Steingrímur Örn
Eiðsson 79., Þorvaldur Makan Sigbjörns-
son 83. - Þorleifur K. Árnason 18.
Stjarnan - Tindastóll.............................. 5:2
Garðar Jóhannsson 12., 29. (víti), Arnór
Guðjohnsen 31., Ragnar Árnason 53., Ás-
geir G. Ásgeirsson 70. - Kristmar Björns-
son 40. (víti), Þorsteinn Gestsson 49.
Staðan:
KA 10 7 2 1 26:9 23
Þór Ak. 9 6 1 2 24:10 19
Stjarnan 10 5 4 1 19:11 19
Þróttur 10 5 2 3 13:10 17
Víkingur 10 3 4 3 16:11 13
Tindastóll 10 3 3 4 18:25 12
Leiftur 9 3 1 5 12:15 10
ÍR 9 1 6 2 14:20 9
Dalvík 10 2 1 7 10:26 7
KS 9 0 2 7 5:20 2
2. deild karla
Víðir - Léttir............................................ 1:1
Ásgrímur S. Waltersson - Sigurjón Þór
Sigurjónsson.
Selfoss - Haukar ..................................... 1:1
Guðjón Þorvarðarson - Birgir Rafn Birg-
isson.
Afturelding - Skallagrímur................... 4:1
Ásgeir F. Ásgeirsson 2, Sigurður Karls-
son, Davíð H. Stefánsson - Auðunn Blön-
dal.
Staðan:
Haukar 11 8 3 0 32:7 27
Sindri 10 8 2 0 14:3 26
Aftureld. 11 6 3 2 25:13 21
Selfoss 11 4 4 3 23:17 16
Léttir 11 4 2 5 18:23 14
Skallagr. 11 3 2 6 17:27 11
Leiknir R. 10 2 4 4 12:14 10
KÍB 10 2 1 7 17:33 7
Víðir 10 1 3 6 10:20 6
Nökkvi 9 1 2 6 9:20 5
Fylkismenn sitja nú einir á toppideildarinnar með 21 stig og
fjögurra stiga forystu á næstu lið
fyrir neðan sem eru
ÍA, Valur og ÍBV
sem öll hafa 17 stig.
Þið trónið einir á
toppnum núna, er
forustan orðin örugg?
„Nei, langt í frá. Ég líki þess oft
við togaratúr og hann er langur.
Þótt að vel aflist núna er ekkert til
sem heitir aflaverðmæti fyrr en búið
er að landa,“ sagði Bjarni.
Þú ert með frækna framherja í
liðinu. Kom það þér á óvart að
miðjumaðurinn Ólafur Stígsson og
varnarmaðurinn Hrafnkell Helga-
son hafi skorað tvö fyrstu mörkin?
„Nei, því við höfum verið sterkir í
föstum leikatriðum og skoruðum
eitt flott mark upp úr því. Sóknar-
leikur okkar hefur ekki verið eins
kröftugur það sem af er sumars og
áður. Það var gaman að Ólafur næði
að skora en markaskorunin dreifist
á liðið.“
Lék Grindavík eins og þú áttir
von á?
„Ég held að lið Grindavíkur sýni
svolítinn keim af því að það er ný-
komið úr erfiðri Intertoto-keppni og
það er búið að vera mjög mikið álag
á strákunum. Þeir þurfa kannski
bara lengri tíma til að ná sér á strik
því það býr miklu meira í þessu liði
en það sýndi hér.“
Þessi lið mætast að nýju á mánu-
dag í bikarkeppninni. Munuð þið
græða eitthvað á því að hafa unnið
þennan leik?
„Ég veit það nú ekki. Menn gíra
sig öðruvísi inn í bikarkeppninni. Ef
ég þekki hugarfar Grindvíkinganna
rétt verða þeir ekki eins góðir við
okkur þá eins og nú í kvöld,“ sagði
Bjarni í gærkvöldi.
„Lélegasti leikur Grindavíkur
í langan tíma“
„Við bökkuðum of mikið í fyrri
hálfleik þannig að þeir náðu að
skora tvö mörk. Það var erfitt að
jafna eftir það. Svo kláruðu þeir
þetta með að bæta tveimur mörkum
við í síðari hálfleik,“ sagði Milan
Stefán Jankovic, þjálfari Grindavík-
ur, eftir leikinn.
„Þetta var okkar lélegasti leikur í
langan tíma. Þetta var sanngjarn
sigur Fylkis. Þeir voru betri í dag.
Þeir eru með eitt besta liðið á Ís-
landi í dag, það er alveg ljóst.“
Þið unnuð Keflvíkinga í síðasta
leik en samt gerðirðu töluverðar
breytingar á liðinu, hvers vegna?
„Kekic meiddist á æfingu svo
hann gat ekki verið með. Síðan
komu tveir leikmenn inn á á móti
Keflavík sem stóðu sig mjög vel svo
mér fannst sanngjarnt að gefa þeim
tækifæri.“
Var ætlunin að liggja aftarlega og
beita skyndisóknum?
„Já, við ætluðum að gera það á
móti vindinum í fyrri hálfleik. Það
var þó mjög erfitt þar sem þeir eru
með svo fljóta sóknarmenn og svo
skoruðu þeir ódýrt mark.“
Þið eruð í sjöunda sæti núna með
tólf stig eftir átta leiki. Stefnið þið
enn á toppbaráttuna?
„Já, við stefnum á að vera í einu af
þremur efstu sætunum. Við verðum
að reyna að halda áfram og standa
saman. Þetta var bara okkar slæmi
dagur vona ég,“ sagði Milan Stefán.
Er mjög
stoltur af
strákunum
„Þessi sigur í dag var frábær og ég er mjög stoltur af drengjunum.
Þeir komu hingað með réttu hugarfari og spiluðu alveg glimrandi
fyrri hálfleik og lögðu þar grunninn að þessum sigri. Vindurinn
hjálpaði töluvert því liði sem hafði hann í bakið. Við vissum að þeir
kæmu grimmir í síðari hálfleikinn og við spiluðum bara þétta vörn
og beittum hættulegum skyndisóknum,“ sagði Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Fylkis, kampakátur eftir 4:0 sigur Fylkis á Grindavík í gær-
kvöldi.
Eftir
Írisi Björk
Eysteinsdóttur
Gylfi Orrason dómari fylgist vel með þeim Vigni Helgasyni, Grind
Grindvíkingar ætluðu sér að verjastgegn strekkingsvindi í fyrri hálf-
leik – með hörmulegum árangri. Fylk-
ismenn tóku öll völd á
vellinum frá byrjun.
Fyrstu fimmtán mínút-
urnar voru reyndar tíð-
indalitlar en síðan kom
Albert Sævarsson markvörður Grind-
víkingum til bjargar í tvígang þegar
hann varði skot frá Sverri Sverrissyni og
Pétri Birni Jónssyni úr dauðafærum.
Eftir skot Péturs fékk Fylkir horn-
spyrnu og upp úr henni skoraði Hrafn-
kell Helgason, 1:0.
Grindvíkingar sýndu lífsmark í fyrsta
skipti næstu mínútur á eftir og fengu eitt
færi til að jafna. Kjartan Sturluson,
markvörður Fylkis, þurfti þá í eina
skiptið í leiknum að taka á við að verja,
sló boltann yfir markið eftir skot Ró-
berts Sigurðssonar. Það hentaði Fylk-
ismönnum vel að fá Grindvíkinga framar
á völlinn og þeir voru fljótir að nýta sér
það, náðu góðri sókn og Ólafur Stígsson
skoraði, 2:0. Sævar Þór Gíslason og
Steingrímur Jóhannesson fengu færi til
að bæta við mörkum áður en hálfleik-
urinn var úti en nýttu þau ekki.
Grindvíkingar hófu seinni hálfleikinn
með Scott Ramsey innanborðs en hann
og Paul McShane voru settir á vara-
mannabekkinn eftir sigurinn í Keflavík á
dögunum þar sem Róbert og Sverrir Þór
komu inn og stóðu sig vel. Um leið
breyttu þeir leikaðferð sinni úr 4/5/1 í 4/
4/2 og settu Sverri Þór fram við hliðina á
Grétari Hjartarsyni. Með vindinn í bakið
færðu þeir sig framar á völlinn en sóknir
þeirra voru alltof hægar og fyrirsjáan-
legar til að vel skipulögðum Fylkismönn-
um stafaði veruleg ógnun af þeim. Árbæ-
ingar voru komnir í sína uppáhalds
stöðu, biðu átekta, leyfðu Grindvíkingum
að hnoðast með boltann úti á vellinum,
og beittu síðan sínum skæðu skyndi-
sóknum með Sævar í aðalhlutverki. Eftir
árangurslaust puð heimamanna skoraði
Steingrímur, 3:0, eftir hárbeitta sky
sókn, úr fyrsta markskoti Fylkis í h
leiknum. Þar með voru úrslitin rá
heimamenn voru aldrei líklegir til
skora, hvað þá til að vinna upp þrig
marka forystu gestanna. Sævar n
ekki tvö dauðafæri, hann slapp tvis
innfyrir vörn Grindavíkur en náði e
skoti í fyrra skiptið og skaut í hliðarn
í síðara skiptið, eftir að hafa kom
framhjá Alberti markverði. En þó
ætti ekki fyrir Sævari að liggja að sko
leiknum lagði hann upp mark í þr
skipti undir lok leiksins; fyrir varama
inn Theódór Óskarsson. Tvö af þrem
markskotum Fylkis í seinni hálfleik
uðu í netmöskvana og það var n
Grindvíkingar reyndu talsvert af la
skotum en aðeins eitt, frá Scott Ram
var nálægt því að koma þeim á blað.
Fylkisliðið var heilsteypt og sannf
andi með Sævar og Ólaf Stígsson
bestu menn. Sannkallaður meista
bragur yfir Árbæingum, sem leika
þeim eldmóði og með það sjálfstra
sem þarf til að ná árangri. Á meðan
varla heil brú í leik Grindvíkinga, rey
ar vantaði þá Sinisa Kekic en
frammistaða verður ekki útskýrð m
fjarveru eins manns. Stuðningsm
þeirra hljóta að óska þess að hér m
hafi liðið spilað sinn slakasta leik á tí
bilinu. Að öðrum kosti eru erfiðir tím
framundan í Grindavík.
Fylkismenn
á fleygiferð
ÞAÐ er kannski fullsnemmt að byrja að tala um meistaraefni þegar tæpar
tíu umferðir hafa verið leiknar af úrvalsdeildinni en ef Fylkismenn halda
áfram á sömu braut og í Grindavík í gærkvöld verður erfitt að stöðva þá
það sem eftir lifir sumars. Þeir gjörsigruðu heimamenn suður með sjó,
4:0, léku sinn tíunda leik í röð í deild og bikar án taps og eru komnir með
fjögurra stiga forskot í deildinni. Grindvíkingar voru með fæst töpuð stig
fyrir leikinn og sigur hefði komið þeim í ákjósanlega stöðu, en nú geta þeir
líklega gleymt því í bili að blanda sér í toppbaráttuna. Enda eiga þeir ekk-
ert erindi þangað miðað við frammistöðu þeirra í gærkvöld.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
ÚRSLIT
3. deild karla B
Njarðvík – Ægir..................................... 4:3
Frakkland
Meistarabikarinn:
Nantes – Strasbourg ............................. 4:1
Ameríkubikarinn
B-RIÐILL:
Brasilía – Paraguay ..............................3:1
Alex 60., Belleti 89., Denilson 90. – Alvar-
enga 9.
Perú – Mexíkó ...................................... 1:0
Holsen 47.
Brasilía 3 2 0 1 5:2 6
Mexíkó 3 1 1 1 1:1 4
Perú 3 1 1 1 4:5 4
Paraguay 3 0 2 1 4:6 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
Mót unglingalandsliðs stúlkna á Kýpur:
Ísland – Malta .................................... 63:41
Erna Magnúsdóttir 14, Svava Stefáns-
dóttir 11, Lára Gunnarsdóttir 11, María
Anna Gunnarsdóttir 7, Jovana Stefáns-
dóttir 6, Ólöf Pálsdóttir 4, Fjóla Eiríks-
dóttir 4, Birna Ýr Skúladóttir 2, Ragn-
heiður Magnúsdóttir 2, Guðrún Ósk
Guðmundsdóttir 2.
GOLF
Staða efstu manna eftir fyrsta keppnisdag
á Opna breska meistaramótinu:
65 Colin Montgomerie, Bretlandi.
68 Brad Faxon, Chris Di Marco, Mikko
Ilonen.
69 Justin Rose, Miguel Angel Jimenez,
Paul McGinley, J.P. Hayes, David Duv-
al, Jose Maria Olazabal, Stuart App-
elby, Pierre Fulke, Billy Andrade,
Alexandre Balicki, Niclas Fasth, Alex
Cejka, Jesper Parnevik, Billy Mayfair,
Greg Owen, Joe Ogilvie.
KNATTSPYRNA
Símadeild, efsta deild kvenna:
Hásteinsv.: ÍBV - Valur ............................20
KR-völlur: KR - Breiðablik ......................20
Grindavík: Grindavík - FH.......................20
1. deild karla:
Ólafsfjörður: Leiftur - Þór .......................20
3. deild karla:
Blönduós: Hvöt - Völsungur.....................20
Ásvellir: ÍH - Árborg ................................20
Grenivík: Magni - Neisti H.......................20
1. deild kvenna:
Sandgerði: RKV - Haukar........................20
Valbjarnarv.: Þróttur - Fjölnir ................20
Í KVÖLD
Gunnar til
Framara
GUNNAR Sigurðsson,
knattspyrnumarkvörður
frá Vestmannaeyjum,
gekk í gær til liðs við úr-
valsdeildarlið Fram.
Gunnar, sem er 26 ára og
var aðalmarkvörður ÍBV
1996 til 1998, hefur leikið
með Brage í sænsku 1.
deildinni undanfarin tvö
ár en hætti þar síðasta
haust. Á þessu tímabili
hefur hann aðeins komið
við sögu hjá 3. deildarliði
KFS en að öðru leyti verið
í fríi frá knattspyrnunni.