Morgunblaðið - 18.08.2001, Side 1
2001 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍSLAND OG RÚSSLAND MÆTAST Í KVENNALANDSLEIK / B2
EVA S. Guðbjörnsdóttir, Breiðabliki, heldur upp á
tvítugsafmæli sitt í dag með því að leika sinn fyrsta
landsleik er Íslendingar mæta Rússum í und-
ankeppni HM á KR-velli kl. 14 í dag. Eva er eini ný-
liðinn í byrjunarliðinu í leiknum en Jörundur Áki
Sveinsson tilkynnti byrjunarlið sitt í gær.
Markvörður er Þóra Helgadóttir. Hægri bak-
vörður verður Rósa Júlía Steinþórsdóttir og
vinstra megin leikur Ásdís Þorgilsdóttir. Ásamt
þeim verða Eva og Íris Sæmundsdóttir í vörninni.
Þar fyrir framan leikur Edda Garðarsdóttir. Guð-
laug Jónsdóttir leikur á hægri kantinum og Erla
Hendriksdóttir á þeim vinstri. Katrín Jónsdóttir
og Magrét Ólafsdóttir fyrirliði verða á miðjunni.
Olga Færseth verður ein frammi, a.m.k. til að byrj-
að með. Ef aukinn kraftur verður lagður í sóknina
má reikna með að Katrín fari framar og Edda færi
sig meira inn á miðjuna í staðinn.
Landsleikur á
afmælisdaginn
REYKJAVÍKURMARAÞON verð-
ur haldið í 15. sinn í dag og fer fram
um götur borgarinnar. Í gærkvöldi
höfðu 2.500 hlauparar skráð sig til
leiks þegar ljúka átti skráningu en
haldið var áfram að skrá fram eftir
kvöldi svo að allir kæmust að. Í þetta
sinn eru tæpleg fimm hundruð er-
lendir hlauparar mættir til leiks sem
er talsverð aukning frá í fyrra.
Boðið er upp á maraþon og hálf-
maraþon ásamt 10, 7 og 3 kílómetra
leiðum og auk þess 10 km línu-
skautahlaup.
Ræst verður í maraþonið klukkan
11 og liggur leið hlauparanna fyrst
um Suðurgötu út á Ægisíðu en síðan
í kringum Seltjarnarnesið, meðfram
norðurströnd Reykjavíkur þar til
kemur að Kringlumýrarbraut. Þá er
hlaupið upp á Suðurlandsbraut,
austur að Elliðaám og síðan í gegn-
um Fossvogsdalinn og vestur Naut-
hólsvík.
Hálfmaraþonið hefst klukkan
12.10 á sömu leið út Ægisíðu og Sel-
tjarnarnes en síðan meðfram norð-
urströndinni að Sæbraut á móts við
Skeiðarvog þar sem snúið er við til
að taka lokasprett inn Lækjargötu.
Einnig verður ræst í styttri leið-
irnar klukkan 12 og 12.10 og eru
hlaupaleiðirnar meðfram Ægisíðu í
kringum Seltjarnarnesið þar til
beygt er inn Lækjargötu í markið.
Rétt er að benda þeim sem vilja
fylgjast með maraþoninu og öðrum
sem leið eiga um borgina að ýmsum
götum verður lokað á meðan á
keppninni stendur.
Líflegt Reykja-
víkurmaraþon
Það mátti ekki miklu muna aðTiger Woods, meistari tveggja
síðustu ára á PGA-meistaramótinu,
kæmist ekki áfram eftir tvo daga.
Fyrsta daginn lék meistarinn á
þremur yfir pari vallarins en í gær
tók hann sig á og lék á þremur undir,
fékk fjóra fugla og einn skolla, og
dugði parið honum í heildina til að
komast áfram en 78 efstu komust
áfram að þessu sinni.
Mark O’Meara, besti vinur
Woods, stal senunni í gær en hann
lék fyrsta daginn á 72 höggum,
tveimur yfir pari. Í gær gerði hann
sér lítið fyrir og lék á 7 undir pari og
setti vallarmet. Árangur hans er
einnig jöfnun við það sem best hefur
verið gert áður á PGA-meistaramót-
unum en þetta er það 83. í röðinni.
Japaninn Shingo Kalayama lék
einnig mjög vel í gær, kom inn á 64
höggum og er með forystu ásamt
David Toms en þeir hafa báðir leikið
á níu undir pari. Japaninn fékk sjö
fugla í gær og einn skolla en Mark
O’Meara lét sér nægja að fá sjö fugla
og sleppti skollum og skrömbum í
gær.
Meðal þeirra sem sitja eftir er
Spánverjinn Sergio Garcia sem lék
fyrri daginn á 68 höggum en í gær
var hann á 75 og féll út.
Reuters
Vinirnir Mark O’Meara og Tiger Woods ræða hvernig best sé að leika 16. brautina. O’Meara setti
vallarmet í gær, lék á 63 höggum eða 7 undir pari, og Woods bjargaði sér fyrir horn með því að
leika á þremur höggum undir pari í gær og er því á pari samanlagt eftir tvo daga og komast áfram.
Woods
áfram
Birgir Leif-
ur áfram
BIRGIR Leifur Hafþórsson,
kylfingur frá Akranesi, held-
ur sig við parið í áskor-
endamóti á Írlandi. Parið
dugði honum til að komast
áfram en hann er í 67. sæti
ásamt 19 öðrum kylfingum
að loknum öðrum keppn-
isdegi.
Leikur hans í gær var mun
jafnari en fyrsta daginn, nú
fékk hann þrjá fugla og þrjá
skolla. Ekki náðist í Birgi
Leif í gær en samkvæmt töl-
fræði frá mótshöldurum virð-
ist sem púttin hafi ekki geng-
ið sem best því að hann hitti
allar flatir vallarins á réttum
höggafjölda.
Þjóðverjinn Tobias Dier er
með forystu, er á tíu höggum
undir pari.
KEILIR og Golfklúbbur Akureyrar
standa vel eftir fyrstu tvær umferð-
irnar í 1. deild karla í Sveitakeppni
GSÍ sem hófst á Akranesi í gær.
Í A-riðli vann Keilir, sem á titil að
verja, báða leiki sína, við GSE og
GKG og í B-riðli lagði GA lið GKj og
GL, báðir leikirnir enduðu 3:2.
Keilir leikur við Nesklúbbinn í
dag og GA mætir GR sem tapaði 4:1
fyrir Leyni í gær og vann síðan GKj
með sama mun.
Hjá konunum er allt í járnum því
GR og GA unnu báða leiki sína, við
NK og GH, í A-riðli og GK og GKj í
B-riðli, gegn GO og GKG, þannig að
það verða hreinir úrslitaleikir um
öll sæti í riðlinum í dag.
Guðmundur Sveinbjörnsson var
svo sannarlega hetja Keilismanna
er þeir léku við nágranna sína í
Golfklúbbi Setbergs í gær. Guð-
mundur lék á móti Tryggva
Traustasyni og átti fjórar holur eft-
ir tólf fyrstu holurnar. Tryggvi náði
að minnka muninn í eina eftir
fimmtándu holu.
Þeir slógu báðir ágætlega af teig
á 16. holunni, sem er par fimm og
Tryggvi sló inn á flöt í öðru höggi.
Guðmundur týndi hins vegar bolt-
anum eftir annað högg, gekk til
baka og sló sitt fjórða högg. Hann
gerði sér lítið fyrir og setti það í
holu og fékk fugl en Tryggvi þrí-
púttaði og fékk par. Guðmundur átti
því tvær holur og sigraði í einvíginu
og Keilir vann 3:2.
GK og GA
standa vel