Morgunblaðið - 18.08.2001, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.08.2001, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001 B 3  ÁRIÐ 1981 var skipuð nefnd á veg- um KSÍ sem hafði það að leiðarljósi að vinna að framgangi kvennaknatt- spyrnunnar. Þessa nefnd skipuðu þau Gunnar Sigurðsson, sem jafnframt var formaður, Svanfríður Guðjóns- dóttir og Sigurður Hannesson.  NEFNDIN kom því m.a. til leiðar að fyrsti landsleikur kvennalandsliðs Íslands var háður 20. september 1981. Leikurinn var spilaður í Kilm- arnock í Skotlandi gegn Skotlandi og tapaði Ísland, 3:2.  FYRSTI landsleikurinn var að því leyti óvenjulegur fyrir íslensku stúlk- urnar að leikið var í 90 mínútur eins og tíðkast í dag. Á þeim tíma var leik- tíminn styttri hér á landi hjá kven- þjóðinni eða 80 mínútur.  FYRSTI opinberi kvennaleikurinn hér á landi var eins konar forleikur að landsleik Íslands og Noregs 20. júlí 1970. Þá áttust við Reykjavík og Keflavík og sigruðu Reykjavíkurs- túlkur, 1:0, frammi fyrir fjölda áhorf- enda á Laugardalsvellinum.  ÍRIS Staub og Stefanía Stefáns- dóttir eru Íslandsmeistarar í tvíliða- leik kvenna í tennis. Íris varð einnig Íslandsmeistari í tvenndarleik þar sem hún og Arnar Sigurðsson unnu Davíð Halldórsson og Stellu Rún Kristjánsdóttur, 7:5, 6:4, í úrslitaleik. Íris er í raun þrefaldur Íslandsmeist- ari því hún vann einnig í einliðaleik kvenna.  ARNAR Sigurðsson og Davíð Hall- dórsson unnu Íslandsmeistaratitilinn í tvíliðaleik. Þeir lögðu Einar Sigur- geirsson og Raj Bonmifacius, 4:6, 6:4, 6:3, í hörkuleik í úrslitum.  IGOR Stimac, varnarmaður Hadj- uk Split hefur verið úrskurðaður í sex leikja keppnisbann af Knattspyrnu- sambandi Evrópu, UEFA, fyrir ruddalega framkomu að loknum leik við Mallorca í Erópukeppni á dögun- um. Þá var Hadjuk einnig gert að greiða um 2 milljónir í sekt og Mall- orka tæplega 300.000 kr.  EMMANUEL Petit hefur greint frá því að hann átti í viðræðum við Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, áður en hann ákvað að gera samning við Chelsea fyrr í sumar. Petit lék með Arsenal áður en hann gekk til liðs við Barcelona fyrir rúmu ári, þar náði hann aldrei að festa sig í sessi.  WEST Ham hefur í hyggju að höfða skaðabótamál gegn enska knattspyrnusambandinu sökum meiðsla sem David James, markvörð- ur, hlaut í vináttulandsleik Englend- inga og Hollendinga á miðvikudag- inn. Ef af þessu verður þá er talið að West Ham krefjist um 140 milljóna króna.  JAMES sagði í gær að meiðsl sín væri sennilega ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. Enn er þó óljóst hve- nær hann getur leikið með West Ham í ensku úrvalsdeildinni, sem hefst sem kunnugt er í dag. Vegna meiðsla James hefur West Ham endurheimt Stephen Bywater úr láni hjá Wolves.  RETIEF Goosen, kylfingurinn sem kom hingað til lands á dögunum í boði Nýherja, var ekki í leiðinlegum rás- hóp í gær og fyrradag á PGA meist- aramótinu því þar lék hann með Dav- id Duval og Tiger Woods.  GERARD Houllier knattspyrnu- stjóri Liverpool hefur sett Robbie Fowler úrslitakosti, vegna þess ágreinings sem kom upp á milli Fowl- ers og Phil Thompson, aðstoðar- manns Houlliers. Houllier hefur nú sent Fowler þau skilaboð, að annað hvort sættist hann við Thompson eða detti út úr hópnum.  MARCELO Salas er á leið til Juv- entus frá Lazio. Félögin hafa náð samkomulagi í stórum dráttum og Salas er búinn að samþykkja félags- skiptin, aðeins á eftir að ganga frá ör- fáum lausum endum. Framherjinn Darko Kovacevic mun ganga að hluta upp í kaupin á Salas, en Juvent- us þarf líklega að greiða ríflega 1,2 milljarða króna til viðbótar. FÓLK lið og þó að gott starf sé víða unnið í félögunum þá þurfa fleiri félög að koma að, því oft og tíðum erum við að nota sömu stúlkurnar í kannski tvö landslið á sama tíma og gætum jafnvel notað þær í það þriðja. Það þarf því að auka þátttöku stúlkna í knattspyrnu þannig að það séu fleiri hæfileikaríkir einstak- lingar að koma fram,“ sagði Eggert og bætti því við að allt frá því að hann kom að starfi KSÍ sem formaður fyrir 12 ár- um hefði hann lagt á það kapp að auka veg og vanda kvennaknattspyrnunnar því þar teldi hann mörg sóknarfæri leynast á komandi árum. Mikilvægur leikur Hvað landsleik Íslands og Rússlands í undankeppni HM á KR-velli í dag- varðar var Eggert bjartsýnn á góð úr- slit en benti jafnframt á það að á bratt- ann yrði að sækja. „Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir þær sakir að hann er fyrsti leikur Íslands í riðlinum sem er virkilega erfiður. Í riðlinum eru m.a. þrjár af stærstu knattspyrnuþjóðum Evrópu, þ.e.a.s. Rússland, Spánn og Ítalía, og það er alveg ljóst að það verð- ur á brattann að sækja hjá okkur. Leik- urinn gegn Rússlandi er mjög mikil- vægur og að mínu mati væru draumaúrslit að ná jafntefli út úr þeirri viðureign,“ sagði Eggert Magnússon formaður KSÍ. g ú- ið m m ár ði g r- ót ar í m t- t- j- n ,“ fi þá ka g að g í í af ri ð- s- nattspyrnu kvenna att- pleið Morgunblaðið/Sigurður Jökull sins á Kópavogsvelli í gær. Að baki arsson. Gestirnir nutu gestrisni ÍR-ingaog fengu lánaða varabúninga þeirra þar sem röng búningataska var tekin með að norðan. Þeir þökk- uðu fyrir lánið með því að komast yfir á 13. mínútu. Viðar Guðmundsson, markvörður ÍR, varði ágætt skot frá vítateig, en hélt ekki boltanum, tveir Tindastólsmenn voru fyrstir í frákastið og Aleksandar Petrovic skoraði af miklu öryggi. Klaufalegt mark fyrir ÍR-inga sem hefðu mátt vera betur vakandi í vörn- inni. ÍR sótti meira og nokkrar hættu- legar sendingar komu fyrir markið af hægri kantinum og tvö mjög góð færi fóru forgörðum. Brynjólfur Bjarna- son skallaði yfir úr dauðafæri, Arnar Þór Valsson átti fínt skot af miðjum teig en Gísli Sveinsson markvörður varði meistaralega. Skömmu fyrir leikhlé skallaði síðan Björn Jakobs- son framhjá marki gestanna. Tindastólsmenn komu tvíefldir til síðari hálfleiks og Petrovic skallaði í slána eftir tveggja mínútna leik og skömmu síðar skoraði Hörður Guð- björnsson en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Mjög hæpinn dóm- ur. Heimamenn áttu næsta færi er Björn skaut ágætu skoti en Gísli markvörður sá enn og aftur við hon- um og skömmu síðar komst Jóhann Steinarsson í fínt færi fyrir gestina en Viðar varði ágætlega. Davíð Rúnarsson gulltryggði síðan sigur gestanna með fínu marki á 73. mínútu. Hann fékk mjög laglega sendingu inn á miðjan vítateiginn, sneri af sér varnarmann og skoraði með fínu skoti. Rétt undir lok leiksins lét Kristján Sigurðsson dómari heldur betur til sín taka og rak tvo Sauðkrækinga út- af og kunnu þeir honum að sjálfsögðu litlar þakkir fyrir. Kristjáni höfðu verið heldur mislagðar hendur í leiknum og fannst gestunum sem þetta væri kornið sem fyllti mælinn. Sögðu þeir að greinilegt væri að dóm- arinn væri að freista þess að laga stöðu Dalvíkinga en hann mun vera þaðan. Ekki skal lagður á það dómur hér, þótt þaðan sem blaðamaður fylgdist með leiknum virtist ekki mik- il ástæða til að reka Árna Vigfússon útaf, en dómarinn veitti honum annað gult spjald sitt fyrir smávægilegt brot. Trúlega hefur Gísli markvörður gert hressilega athugasemd við þennan dóm því hann fékk umsvifa- laust að líta rauða spjaldið. ÍR-liðið var sterkara að þessu sinni og liðið er of sterkt til að eiga að vera í botnbaráttunni, en jafnteflin eru dýr og liðið hefur gert átta slík þannig að stigin eru færri en efni standa til. Leikmenn Tindastóls voru slakir í fyrri hálfleik en í þeim síðari léku þeir ágætlega og mjög skynsamlega. Bestur þeirra var Petrovic, sem vann mjög vel á miðjunni, var oftar en ekki fremstur í sókn og aftastur í vörn skömmu síðar. Maður leiksins: Aleksandar Petro- vic, Tindastóli. ÍR-ingar í fallsæti ÍR-INGAR komu sér í gærkvöld í næstneðsta sæti 1. deildar þegar liðið tapaði 2:0 fyrir Tindastóli í Breiðholtinu. ÍR sótti mun meira í fyrri hálfleik og hefði hæglega getað skorað nokkur mörk en það tókst ekki og Tindastóll skaust stigi upp fyrir ÍR með sigrinum. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Víkingar pressuðu mun meira tilað byrja með og fengu fyrsta færið þegar Árni Kristinsson í marki KA varði skot Sváfn- is Gíslasonar í mark- teig. Norðanmenn hófu samt fljótlega að færa sig framar og Hreinn Hringsson átti gott skot á 15. mínútu en Ögmundur Rúnarsson í marki Víkinga varði og þrumaði boltanum fram. Þar barst hann til Daníels Hafliðasonar sem vippaði yf- ir Árna markvörð sem var kominn langt út úr marki sínu. Strax á eftir fengu Víkingar tvö ágæt færi en hægt og bítandi hófu KA-menn að fikra sig framar á völlinn. Hættan við mark Víkinga varð samt ekki mikil fyrr en á 44. mínútu þegar Þor- valdur Makan skaut í slá Víkinga. Fyrstu átta mínútur síðari hálf- leiks dundu sóknir KA á marki Vík- inga, eitthvað hlaut að gefa eftir og Hreinn skoraði með skalla eftir þunga sókn á 53. mínútu. Norðan- menn slógu hvergi af og níu mínút- um síðar var Hreinn aftur á ferðinni. Þá fékk hann góða sendingu inn fyrir vörn Víkinga og lék á Ögmund mark- vörð sem brá á það ráð að hindra Hrein sem fékk vítaspyrnu fyrir vik- ið og skoraði úr henni sjálfur. Eftir sem áður héldu gestirnir áfram að sækja og fengu nokkur ágæt færi og þó að Sverrir Jónsson varnarjaxl KA fengi gula spjaldið í annað sinn og yrði að yfirgefa völlinn bætti Þor- valdur Örlygsson við þriðja marki KA á 75. mínútu. Eftir markið drógu KA-menn sig aftar á völlinn og héldu sínu. „Við ætluðum að berjast eins og ljón og það gekk ágætlega í fyrri hálfleik en við færðum okkur of aft- arlega við að skora,“ sagði Sumarliði Árnason úr Víkingi eftir leikinn. „Við byrjuðum síðari hálfleik eins og kjánar – það var eins og við vær- um að bíða eftir marki frá gestunum sem við svo fengum framan í okkur og nú er stutt í botninn.“ Sumarliði missti af síðasta leik vegna meiðsla en spilaði nú allan leikinn. „Ég var orðinn þreyttur í lokin en meiðslin háðu mér ekki neitt.“ Markahrókurinn Hreinn Hrings- son var öllu hressari. „Við vorum þungir framan af en hættum samt aldrei og það er okkar styrkur, að halda áfram þar til eitthvað gefur sig,“ sagði Hreinn eftir leikinn en hann gerði tvö af mörkum KA. „Þetta var hreint út sagt frábært. Mér finnst að í fyrsta skipti í mörg ár séu menn samstíga. Við höfum verið gagnrýndir fyrir að vinna suma leiki með litlum mun en sigur skiptir öllu máli. Við ætlum nú að gleyma lið- unum sem eru fyrir aftan okkar og vinna okkar leiki. Þetta voru góð þrjú stig því Víkingar eiga eftir að bíta frá sér,“ bætti Hreinn við en hann er markahæstur í 1. deild með 14 mörk ásamt Orra Frey Óskars- syni í Þór frá Akureyri. „Ég er allra síst að hugsa um það – mestu skiptir að við komumst upp,“ sagði marka- skorarinn Hreinn Hringsson. Maður leiksins: Hreinn Hrings- son, KA. KA á siglingu SEIGLA og þolinmæði KA-manna kom sér vel í Fossvoginum í gær- kvöldi þegar þeir sóttu Víkinga heim því þrátt fyrir að heimamenn byrjuðu af krafti snerist taflið við og KA-menn komu sér þægilega fyrir í efsta sæti 1. deildar eftir 3:1 sigur. Víkingar verða aftur á móti að herða róðurinn því að þó að þeir séu í 6. sæti deildarinnar munar aðeins tveimur stigum á þeim og næstneðsta liðinu. Stefán Stefánsson skrifar Arnór Guðjohnsen, þjálfari og leik-maður Stjörnunnar, sagði í leikslok að hann hefði búist við erf- iðum leik í Ólafsfirði og sú hefði orðið raunin. Stjarnan hefði ekki náð að sýna sitt allra besta en Arnór sagði að það þýddi ekkert annað en að halda áfram baráttunni fyrir sæti í efstu deild. Leiftur var sterkara liðið í fyrri hálfleik. Alexandre Santos átti skot í slá, mark var dæmt af John McDon- ald vegna rangstöðu og Albert Ara- son átti skalla sem Arnór bægði frá á marklínu. Boltinn vildi ekki í netið og heimamenn voru farnir að óttast að sagan ætlaði enn að endurtaka sig, að Leiftur myndi leika betur en and- stæðingurinn en fá síðan á sig mark og tapa leiknum. Þetta virtist ætla að ganga eftir því fljótt í seinni hálfleik skoraði Rúnar Páll Sigmundsson fyr- ir Stjörnuna, beint úr aukaspyrnu. Leiftursmenn virtust ætla að brotna en á 56. mín. átti William Geir Þor- steinsson fína sendingu fram á Santos sem lék á markvörð Stjörnunnar og renndi knettinum í netið. Staðan 1:1. Eftir þetta var leikurinn ákaflega fjörugur og hart sótt á báða bóga. Bæði liðin léku vel á köflum og fengu ágætis færi en gamanið kárnaði hjá Leiftri þegar vítaspyrna var dæmd á liðið á 84. mín. Arnór tók spyrnuna en Chris Porter varði fast skot hans al- veg úti við stöng. Á 88. mín. sendi John McDonald knöttinn fyrir mark Leifturs og Hörður Már Magnússon tók hann á lofti og hamraði í netið með viðkomu í grasinu. Þarna var skammt stórra högga á milli og Leift- ur hefði síðan getað gulltryggt sig- urinn undir lokin þegar liðið fékk víta- spyrnu en McDonald skaut fram hjá. Í heild má telja sigur Leifturs sanngjarnan. Chris Porter færði lið- inu sannarlega gæfu með því að verja vítaspyrnuna. Sergio Barbosa var óstöðvandi á hægri væng og William og Baldvin Hallgrímsson voru traust- ir. Hjá Stjörnunni var Rúnar Páll bestur að þessu sinni og sóknarmenn liðsins voru skeinuhættir í seinni hálf- leik. Maður leiksins: Chris Porter, Leiftri. Stefán Þór Sæmundsson skrifar Loks vann Leiftur ÓLAFSFIRÐINGAR kættust mjög er Leiftur lagði Stjörnuna að velli í gærkvöld, 2:1. Við sig- urinn stökk Leiftur upp í 5. sæti og hristi falldrauginn af sér í bili en leiðin niður er þó enn stutt. Eflaust hafa Þórsarar einnig orðið kátir því með sigri hefði Stjarnan náð Akureyrarliðinu að stigum. Stjarnan situr í þriðja sæti deildarinnar, þremur stig- um á eftir Þór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.