Morgunblaðið - 07.09.2001, Page 1
2001 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VIÐTAL VIÐ MICHEL ZEN RUFFINEN FRAMKVÆMDASTJÓRA FIFA /C4
SKOSKA knattspyrnufélagið Glasgow Rangers
mætir rússneska liðinu Anzji Makhatsjkala í
UEFA-bikarkeppninni í næstu viku. For-
ráðamenn Rangers óskuðu eftir því að leikurinn
færi ekki fram í Makhatsjkala eftir að utanrík-
isráðuneyti Breta varaði við ferðalögum til svæð-
isins sem er aðeins um 100 km frá átakasvæðum í
Tsjetsjníu. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA,
tók hinsvegar þá ákvörðun að leikurinn skyldi
fara fram í Makhatsjkala og nú er svo komið að
tryggingarfélög hafa farið fram á rúmlega 1,5
milljarða krónur í iðgjald frá Rangers fyrir að
tryggja leikmenn liðsins og aðra þá sem fylgja
þeim til Makhatsjkala. Þetta tilboð þykir for-
ráðamönnum afar hátt og leita þeir allra leiða til
að leysa þetta vandamál sem upp er komið.
UEFA situr hins vegar við sinn keip, leikurinn
skal fara fram.
Há trygging
fyrir Rangers
Þórður segir ennfremur að liðiðhafi skilað þeim leikmönnum
til sem það keypti í fyrra og
ástandið í félaginu sé vægast sagt
mjög slæmt.
„Ég veit að Las Palmas hafði
samband við Genk og spurði hvort
það vildi taka mig aftur. Það var
einfaldlega ekki inni í myndinni hjá
mér að fara til baka,“ segir Þórður.
Las Palmas keypti Þórð frá
belgíska liðinu Genk í júní á síð-
asta ári fyrir um 200 milljónir ís-
lenskra króna og skrifaði hann
undir þriggja ára samning við Kan-
aríeyjaliðið. Þórður fékk lítið að
spreyta sig á síðasta tímabili og í
byrjun mars á þessu ári var hann
leigður til Derby á Englandi þar
sem hann lék nokkra leiki. Derby
átti forkaupsrétt að Þórði en nýtti
sér hann ekki og því fór hann aftur
til Kanaríeyja strax eftir að leigu-
samningum lauk þann 1. júlí.
„Til marks um hversu mikil fjár-
hagsvandræði eru hjá Las Palmas
þá hefur liðið ekki greitt Genk
krónu fyrir mig og málið liggur hjá
Alþjóða knattspyrnusambandinu,
FIFA. Mér skilst að Las Palmas
hafi fengið frest fram í miðjan
þennan mánuð til þess að gera upp
reikninginn við Genk. Ef það gerist
ekki þarf spænska knattspyrnu-
sambandið að ganga í ábyrgð.
Ég æfi á fullu með Las Palmas
en það er alveg á hreinu að ég kem
ekki til með að spila því þjálfarinn
sagði við mig að fyrst félagið þyrfti
að selja mig þá gæti hann ekki not-
að mig. Það liggur því fyrir hjá
mér að komast sem fyrst í burtu og
ég ætla að vona að eitthvað fari að
gerast. Núverandi staða er með
öllu óviðunandi. Las Palmas fór í
fyrstu fram á að fá hærri upphæð
fyrir mig heldur en það keypti mig
á frá Genk en núna hefur félagið
loksins sætt sig við að vera opið
fyrir öllum tilboðum. Ég vona að
það verði til þess að einhver skrið-
ur komist á,“ sagði Þórður.
Þórður hugðist fara í aðgerð í
sumar vegna meiðsla í ökkla sem
hafa verið að hrjá hann síðustu tvö
árin en hann ákvað að fresta að-
gerðinni fram til næsta sumars.
Mál Þórðar er
komið til FIFA
„Það má segja að ástandið sé mjög skrýtið hjá mér. Ég er frystur hjá
Las Palmas og vinn að því hörðum höndum að finna mér nýtt félag
til þess að leika með,“ sagði Þórður Guðjónsson, knattspyrnumað-
ur hjá spænska liðinu Las Palmas, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Þórður segir að Las Palmas þurfi að selja hann þar sem fjárhags-
staða félagsins sé mjög slæm. Það hafi enn ekki greitt belgíska
félaginu Genk kaupverðið og nú sé það atriði komið inn á borð FIFA,
Knattspyrnusambands Evrópu.
Aðalstjórn Fjölnis í Grafarvogistaðfesti í gær með skeyti til
Handknattleikssambands Íslands
að félagið yrði eitt þeirra 15 liða
sem taka þátt í Íslandsmóti karla í
handknattleik. Þar með er það
ljóst að Íslandsmótið verður leikið
í tveimur riðlum, norður - og suð-
urriðli, eins og samþykkt var á árs-
þingi HSÍ í vor en deildarkeppnin
hefst þriðjudaginn 25. september
nk.
Nokkur óvissa hefur verið um
þátttöku Fjölnis að undanförnu en
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Snorri Hjaltason, formaður
aðalstjórnar Fjölnis, að góð lend-
ing hefði náðst í málinu. „Aðal-
stjórn félagsins og fulltrúi fyrrum
stjórnar handknattleiksdeildar
Fjölnis komust að samkomulagi
um að stofnað yrði rekstrarfélag
um meistaraflokk karla. Með því er
tryggt að rekstur handknattleiks-
deildarinnar er óháður öðrum
rekstri Fjölnis.
Það sem vakir fyrir okkur í þeim
efnum er að koma í veg fyrir að
börn og unglingar í félaginu taki
þátt í rekstri meistaraflokksins,
með greiðslu æfingagjalda. Þess
ber að geta að allt er óbreytt hjá
yngri flokkum Fjölnis í handknatt-
leik, en þar er rekið blómlegt starf,
og við vonum að þessi umræða sem
hefur skapast um meistaraflokk
félagsins bitni ekki á grasrótinni.
Við erum ánægð með að fyrrum
stjórn handknattleiksdeildarinnar
ætlar að taka ábyrga stefnu og
eyða ekki um efni fram og það sýn-
ir að fólk er tilbúið að leggja mikið
á sig fyrir félagið. Þeir aðilar sem
taka að sér formennsku í nýja
rekstrarfélaginu taka á sig alla
fjárhagslega ábyrgð sem þeim
rekstri fylgir og vonandi tekst vel
til með reksturinn,“ sagði Snorri
en hann gegnir formennsku í hand-
knattleiksdeildinni þar til nýr aðal-
fundur hefur farið fram hjá félag-
inu þar sem ný stjórn verður kosin.
Fjölnismenn
verða með
BJÖRGVIN Sigurbergsson,
GK, lék vel á fyrsta keppn-
isdegi Västerås-golfmótsins
sem er hluti af sænsku at-
vinnumannamótaröðinni.
Björgvin lék í gær á tveimur
höggum undir pari, fékk 14
pör, þrjá fugla og einn skolla,
og er í 10.–17. sæti af 144
keppendum – fjórum höggum
á eftir fyrsta manni. Þetta er
annað atvinnumannamótið
sem Björgvin tekur þátt í, en
mótinu lýkur á laugardag.
Birgir Leifur Hafþórsson
lék illa á fyrsta keppnisdegi
á áskorendamótaröðinni í
Hollandi og kom inn á 74
höggum – fjórum yfir pari. Í
gær var keppni frestað vegna
veðurs, og hafði Birgir Leif-
ur leikið 7 holur á einu höggi
yfir pari og á því litla mögu-
leika á að komast í gegnum
niðurskurðinn.
Björg-
vin byrj-
aði vel
Reuters
Pete Sampras er kominn í undanúrslit á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis eftir þriggja og hálfs tíma viðureign við landa
sinn, Andre Agassi. Viðureign þeirra þótti hreint stórkostleg og var þungu fargi létt af Sampras þegar sigurinn var í höfn.