Vísir - 30.07.1979, Síða 4
VÍSIR
Mánudagur 30. júH 1979.
16
Eyjaskeggjar fðru
létt með Þróttara
„Við eigum að mæta Þrótturum
aftur hér i Vestmannaeyjum á
mánudagskvöldið, þá i Bikar-
keppni KSÍ og ég er illa svikinn,
ef bæði liðin sýna þá ekki eitthvað
betra en i þessum leik þvi að þar
var ósköp lltið að sjá til þeirra
sem vert er að tala um”.
Þetta sagði Viktor Helgason,
þjálfari Vestmannaeyinga, er viö
náðum I hann eftir leik IBV og
Þróttar i 1. deildinni i knatt-
spyrnu á Eyjum á laugar-
daginn. Þar sigruðu Eyja-
skeggar 3:1 i heldur þófkenndum
og daufum leik þar sem tauga-
spenna setti mikinn svip á allar
gerðir leikmanna.
Það var Tómas Pálsson, sem
kom heimamönnum á sporið i
leiknum með góöu marki- stöng
og inn- eftir að hann hafði vaðið i
gegnum vörn Þróttara. Ekki
voru Þróttararar alveg ánægðir
með þaö, og settu á fulla ferð og -
sem endaði með þvi að Baldur
Hannesson jafnaði eftir að hafa
fengið knöttinn frá varnarmanni
ÍBV.
Jóhann Georgsson, sem er ný-
liði i liði ÍBV, kom sinu félagi yfir
með góðu marki eftir laglegan
Lelfur vann
samleik. Þriðja mark IBV kom
svo undir lok leiksins. Tómas
átti þá skot i þverslá- og inn i
markið að sögn margra. en
knötturinn þaut út aftur og barst
þaðan til ómars Jóhannssonar
sem sendi hann i netið með
þrumuskoti.
Eyjamenn léku ágæta knatts-
pyrnu á köflum i þessum
leik. Valþór var einna jafnbestur
i liðinu og Tómas átti góða
spretti. I liði Þróttar bar enginn
af öðrum. Liðið er jafnt og friskt
en vantar meiri útsjónar-
semi. Eru kantarnir illa nýttir
hjá þvi en aftur á móti hrúgast
menn á miðjuna og þar eiga
Þróttarar oftast mest i leiknum,
en skapa sér i staðinn sárasjaldan
góð marktækifæri. . .
Ómar Jóhannsson skoraöi þriðja og slðasta mark IBV gegn Þrótti á
iaugardaginn. Hvað gerir hann i leiknum gegn Þrótti I Bikarkeppni
KSÍ i Eyjum i kvöld?... Visismynd G.S. Vestmannaeyjum.
kapplflauplð .kiislliarðaljMn.
eru að spjara sig
FH-ingar náðu fyrsta sætinu i 2.
deild tslandsmótsins i knatt- -
spyrnu á laugardaginn, er þeir
sigruðu helstu keppinauta sina i
deildinni, Breiðablik, á heima-
velli Blikanna i Kópavogi 1:0.
Með þeim sigri komst FH tveim
stigum fyfir Breiðablik i deild-
inni, en þessi tvö félög eru lik-
legust af öllum þar til að komast
upp i 1. deild og leika þar næsta
ár.
Leikur liðanna var hinn
skemmtilegasti á að
horfa. Sérstaklega þó fyrri hálf-
leikurinn, en þá sást oft mjög
góður samleikur og góð mark-
STftBAU
Staðan i 2. deild Islandsmóts-
ins i knattspyrnu eftir leikina um
helgina:
Þróttur-N-Reynir ..............1:0
Breiðablik-FH .................0:1
Magni-Isafjörður...............2:3
Austri-Selfoss..................2:0
Fylkir-Þór AK..................1:0
FH............. 12 9 2 1 33:12 20
Breiðabl....... 12 8 2 2 26: 8 18
Fylkir ........ 12 6 2 4 23:15 14
Þróttur N ..... 11 5 2 4 11:10 12
Selfoss........ 12 4 3 5 16:13 11
Þór AK .........12 5 1 6 13:16 11
tsafj.......... 10 3 4 3 17:17 10
Austri......... 12 3 3 6 11:20 9
Reynir......... 12 2 4 6 8:23 8
Magni ......... 12 2 1 9 11:30 5
Markhæstu menn:
Sigurður Grétarss. Brbl..........10
Andrés Kristjánss. IBI ....... 9
Hilmar Sighvatss. Fylki.......... 8
Pálmi Jónsson, FH................ 7
Sumarliði Guðbjartss, Self....... 7
Guðm. Ska rphéðinss. Þór..........7
tækifæri hjá báðum liðum. Hvor-
ugu þeirra tókst þó að skora
mark. Blikarnir voru öllu nær
þvi, en Friðrik Jónsson i marki
FH kom i veg fyrir það með til-
þrifamikilli markvörslu hvað eft-
ir annað.
1 siðari hálfleik voru sóknirnar
ekki eins beittar, en FH-ingar
voru þá oft ærið aðgangs-
harðir. Uppskeran hjá þeim varð
þó engin fyrr en rétt þegar fimm
minútur voru til leiksloka. Þá
var mikið kapphlaup á vallar-
helmingi Blikanna sem endaði
með þvi að Leifur Helgason FH-
ingur náði að komast fram úr
varnarmanni Breiðabliks og
senda knöttinn i markið fram hjá
úthlaupandi markverðinum.
Fögnuður FH-inga var mikill
með þetta mark, enda nægði þaö
þeim til sigurs i leiknum. Blik-
arnir gerðu allt hvað þeir gátu til
að jafn siðustu minúturnar, en
tókst aldri að skapa sér umtals-
verð tækifæri og máttu þeir þvi
sætta sig við að tapa á heimavelli
gegn erkifjendum úr Hafnar-
firði... — klp—
Það var viðar fjör a
vigstöðvunum i 2. deild
íslandsmótsins i knatt-
spyrnu um helgina en i
leik efstu liðanna,
Breiðabliks og FH i
Kópavogi. Fylkir náði
sér i dýrmæt stig i leikn-
um gegn Þór og sama
má segja um Aust-
fjarðaliðin Þrótt og
Austra i sinum leikjum,
en þau sækja nú bæði á i
deildinni.
Fylkir fékk Þór i heimsókn i
Laugardalinn og sigraði 1:0 með
marki Óskars Guðmundssonar —
(Óskarssonar fyrrum miðherja
Fram). Skoraði hann markið
undir lok leiksins eftir að Baldur
Rafnsson hafði átt skot i stöng en
þaðan hrökk knötturinn til
Óskars.
Tréverkið var einnig fyrir
Fylkismönnum rétt á eftir, er
þeim var dæmd vítaspyrna.
ögmundur markvörður Fylkis
tók spyrnuna, en skaut i stöng.
Þaðan hrökk knötturinn út til
Þórsara og hófst þá æðisgengið
spretthlaup á milli þeirra og
ögmundar i átt að markinu
hinum megin. ögmundi tókst að
vera aðeins á undan og bjarga en
spretthlaup þetta vakti mikla
kátinu viðstaddra.
Leikur liðanna var fjörugur og
opinn og gat sigurinn alveg eins
lent hjá Þór, en Fylkir hafði
heppnina með sér i þetta sinn.
Sama má segja um ísfirðinga
sem sóttu Magna á Grenivik
heim. Þeir fóru þaðan með 2 stig
eftir 3:2 sigur, sem alveg eins gat
verið Magna megin.
SLAGUR I KOPAVOGI
Valsmenn og KR-ingar eru
staðráðnir I þvi að leika leik
sinn í l.deildinni i kvöld á vell-
inum i Kópavogi, þar sem þeir
fengu ekki i tæka tið svar um
hvort þeir fengju aðalleik-
vanginn i Laugardal til afnota.
Var frá þvi gengið á föstu-
dagskvöldið, eða skömmu áður
en lþróttabandalag
Reykjavikur ákvað að hér eftir
myndu allir leikir i 1. deildinni i
knattspyrnu fara fram til skipt-
is á aðalleikvanginum og hinum
nýja grasvelli á frjálsiþrótta-
vellinum i Laugardal.
Beðið hefur verið eftir þvi aö
þessi nýi völlur yrði tilbúinn til
að leika á honum knattspyrnu,
en þar er fyrir áhorfendastæði
handa 5000 til 6000 manns.
I Kópavogi er einnig
áhorfendastæði- og sæti fyrir
um 6000 manns, en þar getur
I
I
I
aftur á móti komið upp vanda-
mál með biiastæði, ef margir I
mætaikvöld. Við þvi má búast, —
enda koma þarna til með að
eigast við tvö af efstu liðunum i
1. deildinni og verður áreiðan-
lega ekkert gefið eftir hjá leik-
mönnunum frekar en forráða-
mönnum þessara tveggja fé-
laga, þegar eitthvaðer I húfi hjá
þeim. . .
—klp—
Þar var staðan i hálfleik 2:2.
Haraldur Leifsson skoraöi fyrst
fyrir ÍBt , en Hringur Hreinsson
jafnaði skömmu siðar. Andreá
Kristjánsson kom IB aftur yfir,
en Sigurður Illugason jafnaði 2:2
með gullfallegu marki.
Ekki voru liðnar nema 20
sekúndur af siðari hálfleik þegar
IBI skoraði i þriðja sinn. Þar var
Haraldur aftur að verki eftir að
knötturinn hafði hrokkið til hans
þegar samherji hans skallaði
hann úr höndum markvarðarins
án þess að dtfmarinn sæi það.
Þetta mark reyndist verða
sigurmark ísfirðinga i leiknum.
Þeir áttu i vök að verjast lengst af
i siðari hálfleik en náðu að halda
hreinu' og halda heim með bæði
stigin.
Reynir frá Sandgerði sótti ekki
gull i greipar Þróttar á Neskaup-
stað á laugardaginn. Sand-
gerðingarnir voru mun ákveðnari
en heimamenn i þeim leik og áttu
ekki að þurfa að tapa honum. Þeir
geröu það samt, en úrslit leiksins
urðu 1:0 fyrir Þrótt.
Magnús Magnússon skoraði
sigurmarkið eftir langt innkast og
mikla þvögu við mark Reynis-
manna strax á 8 minútu leiksins,
og var það i eina skiptið sem
heimamenn höfðu einhverju að
fagna i leiknum, þvi að hann þótti
afar slakur.
Austri náði i tvö góð stig á
föstudaginn er Selfoss kom i
heimsókn á Eskifjörð. Úrslitin
urðu 2:0 og skoruðu þeir Bjarni
Kristjánsson og Þorgils Arason
mörkin fyrir Austra sem nú kepp-
ist við að bjarga sér frá fallhættu
eins og mörg önnur lið i 2. deild-
inni.. -klp-
KOPAVOGSVOLLUR
VALUR - KR
Komið og sjóið
skemmtilegan leik
íslandsmótíð 1. deild i kvöld kl. 20,
ATH. Á KÓPAVOGSVELLI