Morgunblaðið - 23.09.2001, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2001 B 5
„Faðmaðu múslima í dag“
„Guð blessi alla lögreglu- og slökkviliðsmenn“
„Guðs nýjustu englar “
Morgunblaðið/Einar Falur
n Square, skoðar minningabrot sem skilin hafa verið eftir og tendrar að nýju ljós á kertum.
Frelsisgyðjan segir fólki frá hörmungunum sem yfir hafa dunið.
Á gangstéttinni við litla slökkvi-stöð í Litlu Ítalíu er mikið afblómum, logandi kerti, skrifuð
skilaboð frá fólki og myndir af
slökkviliðsmönnum. Ekki fer á milli
mála að þeir hafa farist. Tvær konur
halda utan um hvor aðra í rigning-
unni, horfa á blómin og myndirnar og
gráta.
Önnur þeirra, Irene McMann, seg-
ir mér grátklökk að fimm manna sé
saknað frá þessari stöð og einn þeirra
sé sonur hennar, Bobby. Hin konan,
Amy Poll, er mágkona hans.
„Bobby var búinn að vinna hér í níu
ár,“ segir Irene. „Hann var 35 ára
gamall. Hann átti tuttugu mánaða
gamlan son og konan hans á von á sér
í janúar.
Þegar þetta gerðist var ég að passa
strákinn hans, var að gefa honum
morgunmat og hafði sett á eitthvert
rokk í útvarpinu, honum finnst það
svo gaman. Svo leit ég á sjónvarpið og
sá eldinn. Fyrst í stað var ég ekkert
hrædd, þótt ég vissi að Bobby væri að
vinna. Svo helltist óttinn yfir…“
„Guð gefi okkur styrk,“ segir Amy.
Í þeim orðum sögðum kemur prest-
ur aðvífandi, faðmar konurnar að sér
og þær fara með honum inn á stöðina.
Svo helltist
óttinn yfir
MIÐAR Á VEGG