Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 3
á að
ein-
num
agði
andi
rður
beita
aldur
síð-
umar
a sér
hug-
liks-
i því
ðeins
son
gn
ð
æti í
m,
a
di
sér
l
któ-
avík,
nan.
n
k
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 C 3
Golfklúbbur Suðurnesja auglýsir:
0pið haustmót
í Leirunni
Sunnudaginn 30. september verður keppt í flokkum karla og
kvenna á Hólmsvelli í Leiru. Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur
með og án forgjafar.
Hámarksforgjöf: karlar 24 – konur 28.
Rástímar frá kl. 09:00 – 13:30
Ýmis verðlaun verða í boði, m.a. bikarar fyrir fyrstu sætin,
golfvörur o.fl.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.
Mótsgjald er kr. 2.000. Skráning á www.golf.is
Upplýsingar á www.golf.is/gs og í síma 421 4100 milli kl. 13 og
18 í dag og á morgun.
Látið sjá ykkur! Mótanefnd GS
BIRGIR Leifur Hafþórsson lék á
pari, 71 höggi, á fyrsta keppnisdegi
austurríska meistaramótsins í golfi
sem hófst í Eichenheim í gær en
mótið er liður í áskorendaröðinni í
Evrópu. Hann er í 61.-83. sæti af 142
keppendum og þarf að líkindum að
leika undir pari í dag til að komast
áfram eftir niðurskurðinn.
GRANT Hamerton frá Englandi
lék best í Eichenheim í gær, á 63
höggum, átta undir pari. Næstir eru
Marcel Siem frá Þýskalandi og
Frankie D. Young frá Englandi á 65
höggum.
SEX knattspyrnumenn úr úrvals-
deildinni voru úrskurðaðir í eins
leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í
vikunni. Leikmennirnir sem um
ræðir eru: Gunnlaugur Jónsson, ÍA,
Ray A. Jónsson, Grindavík, Bjarn-
ólfur Lárusson, ÍBV, Þorsteinn
Jónsson, KR, Gunnar Oddsson,
Keflavík, og Sigurbjörn Hreiðars-
son, Val. Leikbönnin taka leikmenn-
irnir út í fyrsta leik á Íslandsmótinu
á næsta ári.
GUNNAR Oddsson lýkur löngum
og farsælum ferli í leikbanni því eins
og áður hefur komið fram hefur
hann ákveðið að leggja skóna á hill-
una.
TÓMAS Ingi Tómasson leikur
áfram með knattspyrnuliði ÍBV á
næsta tímabili, svo framarlega sem
hann verður laus við meiðsli. Þetta
kemur fram á heimasíðu ÍBV. Hann
hefur afþakkað boð frá Silkeborg í
Danmörku.
ALEKSANDAR Ilic er hinsvegar
á förum frá ÍBV, þrátt fyrir að hann
gerði þriggja ára samning við félagið
fyrir tímabilið. Hann stóð ekki undir
væntingum og hefur fengið frjálsa
sölu frá félaginu.
HLYNUR Stefánsson var kjörinn
leikmaður ársins hjá ÍBV í lokahófi
félagsins á sunnudagskvöldið. Atli
Jóhannsson var valinn efnilegasti
leikmaður liðsins.
NJARÐVÍK tapaði óvænt fyrir
Breiðabliki, 70:67, í Reykjanes-
mótinu í körfuknattleik í gærkvöld
og missti þar með af því að leika til
úrslita. Keflavík vann Grindavík,
116:102, og Haukar unnu Stjörnuna,
69:64. Haukar og Keflavík fengu 8
stig hvort og mætast í úrslitaleikn-
um. Njarðvík fékk 6 stig, Breiðablik
4, Grindavík 4 en Stjarnan fékk ekk-
ert stig.
UEFA úrskurðaði í gær að Paris
SG frá Frakklandi teldist sigurveg-
ari í leiknum við Rapid Búkarest í
UEFA-bikarnum í Rúmeníu en hon-
um var hætt í miðri framlengingu á
þriðjudagskvöld þegar rafmagnið
fór af leikvanginum. Parísarliðið var
þá nýbúið að ná forystunni, 1:0, og
þau úrslit standa, en fyrri leikurinn
endaði 0:0. Paris SG var sektað fyrir
að yfirgefa Rúmeníu áður en úr-
skurður UEFA lá fyrir.
FÓLK
ina og þá líka mótlætið. Ég er viss
um það að mitt lið mætir til leiks
með réttu hugarfari og menn hafa
látið í veðri vaka að þessi úrslita-
leikur hafi truflað einbeitinguna á
undanförnum vikum – nú er tæki-
færið til að sýna hvað menn voru að
hugsa um í þeim leikjum,“ sagði
Bjarni.
Menn gættu að sér
„Því er ekki að leyna að við höfum
verið með hugann við úrslitaleikinn
nokkuð lengi og það hefur haft áhrif
á okkur. Menn gættu að sér að meið-
ast ekki og spáðu einnig í að fá ekki
gul spjöld til að sleppa við leikbönn,“
sagði Finnur Kolbeinsson, fyrirliði
Fylkis. „Við tókum eitt skref í rétta
átt gegn Roda á þriðjudaginn, enda
ætluðum við okkur að ná upp góðum
anda í hópnum í þeim leik sem við
gætum byggt á gegn KA á laug-
ardaginn – það er leikurinn sem við
höfum allir beðið eftir. Markmiðið
hjá okkur í sumar var að ná einum
titli og komast í Evrópukeppni, gera
betur en í fyrra, og við eigum mögu-
leika á því,“ sagði Finnur.
Sjálfsagt er meira í húfi, og þarmeð meiri pressa á okkur í
þessum úrslitaleik,“ sagði Bjarni. „Í
ljósi þess að við náðum ekki okkar
markmiðum í deildarkeppninni þá
er eini möguleiki okkar á Evrópu-
sæti fólginn í því að við vinnum leik-
inn á laugardag. Við höfum unnið
mikið með það á sl. tveimur árum
hvernig liðið á að höndla velgengn-
Morgunblaðið/RAX
Leikmenn Fylkis fagna sigrinum á bikarmeisturum ÍA á Akranesi í undanúrslitum.
Bjarni Jóhannesson, þjálfari Fylkismanna
Meiri pressa á okkur
BJARNI Jóhannesson, þjálfari
Fylkis, var sammála því að
meira væri í húfi fyrir Árbæj-
arliðið í úrslitaleik bikarkeppn-
innar en lið KA þar sem mark-
mið Fylkis á Íslandsmótinu
hefðu ekki náðst – og ekki
skemmdi fyrir að Fylkir væri í
fyrsta sinn í sögunni í þessum
sporum.
GYLFI Orrason, Fram, mun
dæma leikinn en honum til aðstoðar
verða þeir Ólafur Ragnarsson og
Eyjólfur Finnsson. Varadómari
verður Egill Már Markússon en
Magnús Jónatansson verður eftir-
litsmaður KSÍ.
AÐEINS tveir leikmenn í liði KA
hafa leikið bikarúrslitaleik áður en
það eru þeir Ívar Bjarklind sem lék
þá með ÍBV og Steinn Viðar Gunn-
arsson lék með Leiftri frá Ólafsfirði
árið 1998.
FJÓRIR leikmenn Fylkis auk
þjálfarans, Bjarna Jóhannssonar,
hafa leikið til úrslita áður. Alexand-
er Högnason í tvígang með ÍA.
Steingrímur Jóhannesson lék þrisv-
ar til úrslita með ÍBV og þá einu
sinni með Sverri Sverrissyni. Pétur
Björn Jónsson lék með Leiftri.
FYLKISMENN ætla að byrja dag-
inn kl. 9 á veitingahúsinu Blásteini í
Árbænum. Í félagsmiðstöðinni Ár-
seli, handan götunnar, verður boðið
upp á andslitsmálningu og ýmislegt
annað fyrir börin. Fríar rútuferðir
verða í boði Helga Péturssonar frá
Blásteini að Laugardalsvelli.
AKUREYRINGAR ætla að fjöl-
menna með rútum og með flugi en
hópurinn mun hitta fyrir Reykjavík-
urdeild stuðningsmannafélags KA á
veitingahúsinu Ölveri í Glæsibæ.
Þaðan mun hópurinn halda á Laug-
ardalsvöll.
STUÐNINGSMENN KA verða
suðurhluta eldri stúku Laugardals-
vallar og í norðurhluta í þeim nýrri.
Fylkismenn verða þá í norðurhluta
eldri hlutans og í suðurhluta á nýju
áhorfendasvæðunum.
ÚTVARPSSTÖÐIN FM 95,7
verður með útsendingu frá Laugar-
dalsvelli fyrir leik og í leikhléi, en
Fylkismenn hafa fengið „lánaða“
tíðni KR-útvarpsins (98,3) og munu
verða með beina útsendingu.
SIGURVEGARI bikarkeppninnar
fær farandbikar til varðveislu í eitt
ár og að auki fær sigurliðið hálfa
milljón króna í sinn hlut. Tapliðið
fær helming þeirrar upphæðar sem
sigurliðið fær.
EF jafnt verður eftir venjulegan
leiktíma verður framlengt. Verði enn
jafnt að því loknu verður gripið til
vítaspyrnukeppni.
BÚNINGAR liðanna eru nokkuð
líkir og því var kastað upp á það
hvort liðið fengi að leika í sínum að-
albúningi. Það kom í hlut Fylkis að
leika í varabúningi, svartar treyjur,
appelsínugular buxur og sokkar í
sama lit. KA leikur í gulum treyjum,
bláum buxum og bláum sokkum.
BIKAR-
PUNKTAR
Orri Freyr fær ekki tilboð
ORRI Freyr Hjaltalín, knattspyrnumaður hjá Þór á Akureyri, fær
ekkert tilboð frá norska félaginu Tromsö, en hann var við æfingar
á dögunum. Liðið stendur höllum fæti í norsku úrvalsdeildinni, er í
næstneðsta sæti þegar fjórar umferðir eru eftir, en tvö neðstu liðin
falla. Af þeim sökum og eins vegna þess að fjárhagsstaða félagsins
er ekki sem best hefur verið ákveðið slá öllum nýjum samningum á
frest. Meðal þeirra sem verða fyrir barðinu á því er Orri Freyr, eft-
ir því sem netmiðillinn Nettavisen sagði frá í gær.
!"#$%&
'"!("
)*+
, -".. "
. / "00
/
"
1 2!00
1 2!00
1 2!00
%"#
,3'!2
"
,.
145