Morgunblaðið - 03.10.2001, Síða 3
inu í
auka
bæra
ennu
aður
aun.
ggja
elix-
Þrátt
eftir
anna
gest-
svo
End-
nn á
kjall-
sjö
enn.
a hjá
andi
arnir
mám
ni og
fyrir
var
kall-
rnar
náðu
anna
auk-
róa
nná.
osta-
mín-
kum
nni í
og í
eitt
á að
varði
blá-
Hall-
u og
m og
rist-
menn
egur
ngin
oraði
Hjá
bar-
r við
hálf-
.
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 B 3
KR Reykjavíkurmeistari
KR-INGAR urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í körfuknatt-
leik karla er liðið lagði Þór frá Akureyri 118:84. KR var yfir allan
leikinn og sigurinn fremur auðveldur en Reykjavíkurmótið var op-
ið að þessu sinni. KR var 62:41 yfir í leikhléi en Stevie Johnson, er-
lendur leikmaður Þórs, meiddist snemma í síðari hálfleik og eft-
irleikurinn var KR-ingum auðveldur. Ólafur Jón Ormsson fyrirliði
var stigahæstur meistaranna með 21 stig í annars jöfnu liði KR.
GLENN Hoddle, knattspyrnustjóri
Tottenham, segir að Segei Rebrov sé
ekki á förum frá félaginu. Rebrov er
afar ósáttur við stöðu sína innan
Lundúnaliðsins og hefur lýst yfir
áhuga á að róa á önnur mið. Hefur því
m.a. verið haldið fram að AC Milan
hafi augastað á Úkraínumanninum.
Hoddle segir Rebrov eigi framtíð hjá
Tottenham, þeir hafi rætt saman og
Rebrov verði bara að sýna þolin-
mæði.
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spynrustjóri Stoke, hefur augastað á
Danny Cadamarteri, 21 árs fram-
herja hjá Everton. John Rudge, að-
stoðarmaður Guðjóns, fylgdist með
Cadamarteri í varaliðsleik á mánu-
daginn. Það var ekki í fyrsta sinn sem
forvígismenn Stoke fylgjast með
Cadamarteri sem er með lausan
samning við Everton og fæst því fyrir
lítið sem ekkert.
STOKE hefur nú boðið Milton Co-
imbra, landsliðsmanni Bólivíu, til fé-
lagsins til reynslu. Coimbra kom til
Englands um helgina og fór á sína
fyrstu æfingu í gær. Um er að ræða
26 ára gamlan leikmann sem leikið
hefur 36 landsleiki fyrir Bólivíu.
Reiknað er með að hann leiki fyrir
þjóð sína, þegar Bólivía mætir Bras-
ilíu í undankeppni HM. Áætlað er að
hann leiki æfingaleik gegn Crewe í
dag og verður leikið fyrir luktum dyr-
um.
JOE Royle, fyrrverandi knatt-
spyrnustjóri Manchester City, ætlar í
mál við félagið fyrir brot á starfsloka-
samningi. Royle segist eiga rétt á að
fá rúmlega 70 milljónir króna til við-
bótar við þær tæpu 30 milljónir sem
hann hefur þegar fengið greiddar.
Royle var sagt upp hjá City í vor og
ætlar nú að ná þessum 70 milljónum
með góðu eða illu.
NORSKA handknattleiksliðið Sta-
bæk/Haslum tapaði á sunnudag
þriðja leik sínum í röð í næstefstu
deild. Óskar Óskarsson er þjálfari
liðsins og að auki eru þrír íslenskir
leikmenn í liðinu. Daníel Ragnarsson
skoraði 5 af 21 marki liðsins, Theódór
Valsson skoraði 4 en Axel Stefánsson
markvörður kom ekki í veg fyrir að
leikmenn Oppsal skoruðu 25 mörk.
Þrátt fyrir að liðið sé án stiga er haft
eftir Óskari að Haslum stefni á úr-
valsdeildarsæti á næsta ári
FORRÁÐAMENN NFL-deildar-
innar í Bandaríkjunum íhuga nú
þann möguleika að láta úrslitaleik
ruðningsdeildarinnar, Superbowl,
fara fram í New York hinn 3. febrúar
á næsta ári. Skipulag deildarinnar
riðlaðist nokkuð í kjölfar hryðjuverk-
anna hinn 11. september sl. og ljóst er
að einn stærsti íþróttaviðburður
heims mun skyggja á árlega bílasýn-
ingu í New Orleans en upphaflega
átti leikurinn að fara fram 27. janúar.
PAUL Tagliabue, talsmaður NFL,
sagði í gær að hugsanlega færi leik-
urinn fram í New York og ætlunin
væri að gefa borgarbúum tækifæri til
að upplifa jákvæða hluti.
ARNE Sandstö, þjálfari norska úr-
valsdeildarliðsins Odd/Grenland,
segir í viðtali við Bergens Tidende að
skynsamlegt væri fyrir Brann að
semja við Íslendinginn Teit Þórðar-
son og halda honum hjá félaginu
næstu árin. Árangur Brann á þessari
leiktíð hefur valdið mörgum von-
brigðum eftir að liðið varð í 2. sæti á
sl. tímabili en Sandstö segir að for-
ráðamenn Brann eigi að gefa Íslend-
ingnum meiri tíma til að byggja upp
lið í Bergen. „Það verður ekki gert á
tveimur árum,“ sagði Sandstö.
ARNE Erlandsen, þjálfari norska
liðsins Lilleström, segir að brotthvarf
Rúnars Kristinssonar frá liðinu hafi
breytt miklu í leikstíl liðsins. Er-
landsen segir í viðtali við VG að fáir
hafi getað bætt upp útsjónarsemi og
tækni Rúnars og því hafi leikmönnum
liðsins verið ætlað að bæta það upp
með vinnusemi. Það virðist ætla að
skila sér því Lilleström á nú góða
möguleika á að sigra í úrvalsdeildinni.
FÓLK
Gunnar lék í fyrra með Fram ogvakti áhuga nokkurra liða fyrir
frammistöðu sína og ákvað í fram-
haldinu að reyna fyrir sér í atvinnu-
mennsku.
Hvernig finnst þér gæði franska
handboltans miðað við þess ís-
lenska? „Ég myndi segja að lið eins
og okkar væri svipað og Haukar
voru í fyrra, þegar þeir voru nátt-
úrlega með yfirburðalið,“ sagði
Gunnar. „Það er meiri breidd hér og
þeir eru með tvo góða leikmenn í öll-
um stöðum. Ef ég ætti að giska þá
myndi ég segja að leikurinn Haukar
– Paris Saint-Germain yrði jafn og
spennandi. Aftur á móti eru lið hér
eins og Montpellier og Chambery
sem eru með mjög góða menn.
Franska landsliðið er eiginlega al-
veg byggt upp á mönnum úr þessum
tveimur liðum. En bestu liðin detta
að sjálfsögðu niður af og til og við
eigum alveg möguleika á að vinna
þau.“
Að hvaða leyti er franski hand-
boltinn ólíkur hinum íslenska?
„Frakkarnir eru rosalega mikið í
snertingu. Þjálfarinn vill að við för-
um á fullum hraða, maður á móti
manni, og reynum svo að skila bolt-
anum. Þeir eru einnig rosalega lík-
amlega sterkir. Við Ragnar (Óskars-
son) erum bara písl miðað við þessa
karla. Ég myndi telja að íslenskir
leikmenn séu miklu betur að sér í
tækni og útsjónarsemi. Til dæmis ef
Ragnar er ekki inná hjá Dunkerque,
þá er ekkert spil í gangi. Hann er
höfuðið og herðarnar í þessu liði.
Franski boltinn veltur mikið á ein-
staklingsframtaki en á móti kemur
að þeir eru mjög góðir einstaklingar
– góðir einn á móti einum, bæði í
vörn og sókn. Ég verð bara að reyna
að ná þeim á hraðanum, því ég næ
þeim ekki á styrkleikanum.“
Hvernig æfið þið?
„Við æfum alla daga nema sunnu-
daga, þar af tvisvar á dag á mið-
vikudögum og fimmtudögum. Við
reynum einnig að lyfta tvisvar í viku
ef mögulegt er. Annars fer þetta
svolítið eftir því hvernig leikirnir
raðast niður.“
Hvernig finnst þér þú passa inn í
PSG-liðið?
„Ég myndi segja að ég væri alveg
á skjön við þá sem léku í þessari
stöðu í fyrra. Það voru menn sem
voru hundrað og tuttugu kíló og fóru
af kraftinum í þetta. Ég er mjög
sáttur við þjálfarann að því leyti að
hann höfðar svolítið til mín. Hann
vill að menn hugsi meira eins og ég.
Þeir horfa alltof mikið beint áfram,
en hann vill að þeir verði aðeins út-
sjónarsamari og þeir eru farnir að
vera það. En svo koma aftur á móti
kaflar inn á milli sem eru algjört
rugl. Þá gerast hlutir eins og sést í
fimmta flokki – að menn ákveða til
dæmis allt í einu að skjóta. Hraða-
upphlaup geta líka stundum verið
fram og til baka fjórum sinnum. Það
vantar að menn rói þetta niður og
stilli upp eins og gert er heima.
Hérna eru menn á fullu allan tím-
ann. Það er alveg sama hvernig
mörk eru skoruð, mark er bara
mark.“
Hvernig er heimavöllurinn ykk-
ar?
„Við leikum í höll sem tekur fimm
þúsund áhorfendur. Það koma hátt í
þrjú þúsund áhorfendur á stærri
leikina, en sjö hundruð til þúsund að
meðaltali á leik. Við fáum um þrjátíu
bullur frá fótboltanum lánaðar á
heimaleiki okkar. Þær standa og
halda uppi stemmningunni og það er
rosa gaman að því þótt ekki séu ekki
fleiri sem stjórna stemmningunni.“
Þjálfarinn hefur tröllatrú á þér, er
það ekki, lætur þig t.d. taka víta-
köstin?
„Jú, hann er frá Júgóslavíu og
örugglega vanur að horfa á góðan
handbolta þar sem menn reyna að
spila, en ekki svona stál í stál eins og
franski handboltinn er. Aftur á móti
vill hann að ég fari meira í snertingu
og skjóti meira. Hann er í raun að
spila eftir franska kerfinu en vill að
menn noti augun og horfi í kringum
sig.“
Hvernig hentar þessi handbolti
þér?
„Það spila eiginlega öll liðin hér
þrjá-tvo-einn-vörn sem hentar mér í
raun fremur illa. Ég spila hins vegar
spila með góðum mönnum svo þeir
opna fyrir mig. Ég gef líka mikið af
línusendingum en þjálfarinn er
reyndar alltaf að tuða um að ég
skjóti ekki nóg. Það er ágætt að fá
skotleyfi. Ég hef spilað á Íslandi
með rússneskan þjálfara þar sem
skotleyfi er takmarkað. Nú vill þjálf-
arinn að ég taki tólf til fimmtán skot
í leik og ég verð bara að fara að gera
það.“
Hvert er markmið liðsins á þessu
tímabili?
„Markmiðið er að vera eitt af
þremur efstu liðunum. Liðið hafnaði
í fjórða sæti í fyrra og komst í úrslit
í bikarnum en tapaði á móti Mont-
pellier. Ef við náum að halda dampi
eigum við möguleika á að keppa
jafnvel um fyrsta sætið. Þetta hefur
allt verið mjög jákvætt hingað til.
Svo veit maður ekki hvernig menn
hegða sér þegar fer að ganga illa.“
Hvað eru margir landsliðsmenn í
liðinu?
„Olivier Girault, vinstri horna-
maðurinn, hefur leikið yfir hundrað
landsleiki fyrir Frakkland. Síðan
hefur línumaðurinn leikið um fimm-
tíu leiki auk þess sem örvhenti
hornamaðurinn er í einhverjum B-
landsliðshópi. Miðjumaðurinn er
einnig búinn að leika nokkra lands-
leiki með Júgóslavíu. Ég held að við
eigum mikið inni því það komu fjórir
nýir inn í liðið og þjálfarinn er að
reyna að púsla þessu saman. Það er
nokkuð erfitt þar sem ég til dæmis
tala enga frönsku,“ sagði Gunnar
sem hóf þó einkanám í frönsku á
mánudag, en hann og Dagný Skúla-
dóttir, unnusta hans, munu leggja
stund á námið í sameiningu.
Dagný, sem einnig er landsliðs-
kona í handknattleik, ætlaði að leika
í Frakklandi í vetur en keppnisleyfi
hennar barst of seint og því ákvað
hún að leika heima.
„Hún ætlar að spila með ÍBV af
og til og vera hjá mér að einhverju
leyti. Við erum í raun saman hér í
Frakklandi, en svo kemst ég von-
andi í landsliðið og þá verð ég á Ís-
landi í janúar. Dagný spilar svo hér
úti á næsta ári.“
Hvernig er lífið í Frakklandi?
„Ég var á hóteli fyrstu tvo mán-
uðina og það var frekar erfitt. Þetta
hverfi er það flottasta í París og þar
af leiðandi er mjög erfitt að fá íbúð,
auk þess sem þær eru þær dýrustu
hér,“ sagði Gunnar sem átti að fá
íbúð daginn eftir spjallið við Morg-
unblaðið.
Lendirðu mikið í tungumálaörð-
ugleikum?
„Ég er reyndar heppinn því þeir
eru rosalega seigir hér margir í lið-
inu. Um helmingurinn af strákunum
talar ágætis ensku og svo eru tveir
sem tala mjög góða ensku. Þeir þýða
fyrir mig ef vandamál koma upp. Ég
er tiltölulega sáttur, í augnablikinu
að minnsta kosti, við að skilja ekki
þjálfarann vegna þess að hann er
stundum svolítið þungur í skapinu.
Það er fínt fyrir mig að kynnast
strákunum fyrst og fá útskýringarn-
ar frá þeim áður en þjálfarinn fer að
taka mig í gegn. Ég sé á sumum í
liðinu að þeir eru svolítið hræddir
við að gera mistök þegar þeir spila.
Þeir vita að ef þeir gera mistök
verður þjálfarinn á bakinu á þeim.“
Hvernig lýst þér á lífið í Frakk-
landi í vetur?
„Mér lýst hörkuvel á veturinn.
Það sem fer þó mest í taugarnar á
mér er að Frakkar eru svo lengi að
hlutunum. Það tekur t.d. tvær vikur
að fá þvottavél og aðrar tvær að fá
sófa og allt eftir því. Maður er vanur
að redda sér sjálfur heima því það er
svo stutt að fara. Hérna eru vega-
lengdirnar meiri og maður skokkar
ekkert út í IKEA til að kaupa sér
sófa. Verðlagið hér er bara svipað og
heima, svo maður þarf svolítið að
passa sig,“ sagði Gunnar Berg Vikt-
orsson, sem á örugglega eftir að
gera góða hluti með PSG í vetur.
Gunnar Berg Viktorsson kominn á ferðina í Frakklandi
Feginn
að skilja
ekki þjálf-
arann
Morgunblaðið/Íris Björk Eysteinsdóttir
Gunnar Berg Viktorsson í búningi Parísarliðsins.
Landsliðsmaðurinn Gunnar Berg Viktors-
son skrifaði í sumar undir sinn fyrsta at-
vinnumannasamning í handknattleik er
hann samdi við franska liðið Paris Saint-
Germain til tveggja ára. Tveir mánuðir eru
síðan Gunnar kom til Frakklands og því er
hann farinn að kynnast lífinu og handbolt-
anum að nokkru leyti. Íris Björk Eysteins-
dóttir hitti Gunnar í Frakklandi og spjallaði
við hann um handbolta, tungumálaörð-
ugleika, seinagang Frakka og fleira.
mart
n