Vísir - 26.11.1979, Page 1
iþróttii helgarinnar
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur og vih unnum 3:0 sigur á
Utrecht”sagði Pétur Pétursson
knattspyrnumaður hjá
Feyenoord er viö ræddum við
hann um helgina. Pétur var hress
með sigur Feyenoord og ekki
siður með sinn þátt i leiknum, en
hann skoraði tvö mörk.
Þar með hefur hann skorað alls
14 mörk i 13 leikjum Feyenoord i
deildarkeppninni og er nií 12. sæti
yfir mestu markaskorara i
Evrópu á keppnistimabilinu.
Ajax heldur enn forustunni i
Hollandi eftir 2:0 sigur á Utivelli
gegn Maastricht, en staða efstu
liða er þessi:
Ajax........ 14 10 2 3 30:15 22
Feyenoord ... 13 7 6 0 26:9 20
Alkmaar..... 14 9 2 3 28:14 20
PSV
Eindhoven ... 14 7 4 3 28:17 18
Þess má geta aö Feyenoord
hefur nií leikið alls 39 leiki i röð
án þess að biða ósigur, en á miö-
vikudaginn fá leikmenn liðsins
erfitt verkefni. Þá mæta þeir
Eintracht Frankfurt i
UEFA-keppninni og fer leikurinn
fram i Þýskalandi. Pétur sagðist
hafa séð þýska liðið i sjónvarpinu
i gær og væri þarna á ferðinni
mjög harðskeytt lið sem yrði
örugglega erfitt viðureignar.
gk-.
Lokaren eitt
í efsta sæti
Frá Kristjáni Bernburg
fréttaritara Visis í Belgíu:
— Það blæs ekki byrlega hjá
liöinu La Louviere, liðinu þeirra
Þorsteins Bjarnasonar og Karls
Þórðarsonar, i Belgiu þessa dag-
ana. Það tapar hverjum leiknum
á fætur öðrum og er nú komiö 1
neðsta sætið i 2. deildinni.
Um helgina tapaði þaö á
heimavelli, og var þar allt á móti
þvi. Þorsteinn hefur litið fengið
að vera meö en Karl er aftur á
móti aöalmaöur liðsins og ber þar
af öörum i flestum leikjum.
Þaö gengur aftur á móti betur
hjá Arnóri Guðjohnsen og liöinu
hans Lokeren i 1. deildinni. Lok-
eren er nú eitt I efsta sæti — sigr-
aði Cercle Brugge 4:2 á útivelli i
gær — en á sama tima tapaði
Brugge fyrir Beveren 2:1.
Arnór lék meö allan leikinn i
gær — kom inn fyrir Pólverjann
Lubanski, sem var meiddur — og
átti hann þátt i fyrsta markinu
sem Lokeren skoraöi. Asgeir Sig-
urvinsson skoraði eina mark
Standard Liege, sem tapaði fyrir
Lirse 3:1.
Skoraöi hann markið úr vita-
spyrnu, en hann er vitaspymusér-
fræðingur Standard, sem eftir
þetta tap er i 4. til 5. sæti i deild-
inni.... —klp
KR-ingar höfðu oft fulla ástæðu til
að fórna höndum I örvæntingu I
leiknum gegn FH i gær, enda
vægast sagt æði daprir. Hér er
það Jóhannes Stefánsson sem
fórnar höndum, og er sýnilega
ekki ánægður meö einhvern úr-
skurð hjá Birni millirikjadómara
Kristjánssyni.... Visismynd Friö-
þjófur.
Geir fékk varla að
koma vlð knölllnn
- en saml slgraðl FH næsla auðveldlega I vlðureigninnl við kr 24:22
Félur með
tvö mörk
um helgina
- og Feyenoord vann öruggan slgur
STAÐAN
Staöan i i.deildtslandsmótsins i
handknattleik er nú þessi:
HK—-Valur............15:27
KR—FH ....................20:24
Vikingur.........3 3 0 0 73:59 6
FH...............3 3 0 0 68:54 6
Valur...........320 1 63:52 4
Haukar...........3 1 1 1 59:64 3
1R...............3 1 0 2 54:57 2
KR ..............3 1 0 2 61:67 2
Fram.............3 0 1 2 56:62 1
HK .............3 0 0 3 46:65 0
Næsti leikur fer fram I Laugar-
dalshöll á miðvikudag og leika þá
Vikingur og Valur.
KR-ingar náðu ekki aö standa
við að loforö sitt að taka FH-inga i
karphúsið og sigra þá er liðin
mættust i 1. deildinni 1 handknatt-
leik karla i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi.
Þeir stóðu aftur á móti við það
aö hafa góðar gætur á „gamla
manninum” Geir Hallsteinssyni i
leiknum. Haukur Ottesen elti
hann út um allt allan leikinn og
fékk Geir varla að taka á knettin-
um fyrir honum. Aðeins einu
sinni, lét hann sig hafa það aö
stinga Hauk af, og var þá ekki að
sökum að spyrja — knötturinn lá i
netinu nokkrum sekúndum siöar.
FH-ingar hafa sýnilega alveg
reiknað með þvi að Geir yrði tek-
inn úr umferð i leikjunum i vetur
og hafa þvi æft leikkerfi með það i
huga. Þaö gekk lika oft vel upp i
þessum leik — vörn KR vissi oft
ekki hvað á sig stóö veðrið þegar
menn svifu inn úr hornunum eöa
höfðu hálfan teiginn til að leika
sér á og skora þegar allt gekk
upp.
KR-ingar voru ekki nærri eins
ákveönir i þessum leik og gegn
Vikingi og 1R. Sóknir þeirra voru
mjög tilbreytingalitlar og oft
mesta furöa hvernig þeir gátu og
fengu að skora á sama hátt aftur
og aftur.
Þeir urðu fyrir þvi áfalli að
missa Simon Unndórsson útaf i
fyrsta upphlaupinu illa meiddan á
fæti og siöan Þorvarð Höskulds-
son slasaðan á hendi. Þar fyrir
utan er Konráð Jónsson ekki bú-
inn að ná sér eftir meiösli og Olaf-
ur Lárusson, sem hefur verið einn
aðalmarkaskorari liösins, skor-
aði nú ekki eitt einasta mark.
Munar um minna i ekki sterkara
liöi en KR er.
Þaö voru frændurnir Björn
Pétursson og Haukur Ottesen
sem héldu KR-ingum á floti meö
mörkum sinum. Hjá FH sáu aftur
á móti fleiri um þá hlið enda
skyttur þar fleiri og betri.
Pétur in gólfsson átti stórleik
með FH i slðari hálfleiknum.
Skoraöi þá hvert markið á fætur
öðru og lagöi önnur upp. Þá var
Kristján Arnason góður svo og
Guðmundur Dadú fyrirliði.
FH haföi yfir f mörkum allan
tfmann. KR-ingar náðu aö jafna
7:7 um miðjan fyrri hálfleik og
siðan 12:12 i upphafi þess siöara.
Eftir það var munurinn mestur 3
mörk FH i vil og rétt fyrir lokin
var hann oröin 5 mörk 24:19. KR-
ingar skoruðu þrjú siöustu mörk-
in i leiknum — þar af það siðasta
frá miðju — en þá var Magnús
„sjónvarpsstjarna” ólafsson,
sem stóð i markinu síðustu 24
sekúndurnar búinn aö verja eitt
vitaskot og annað stórskot af lfnu.
FH-ingar sigruöu þvi 24:22 og
var það sanngjarn sigur, þvi þeir
voru i heildina betri en þeir
„röndóttu úr vesturbænum”.
Gerðu FH-ingar færri mistök en
KR-ingarnir en mikið var um þau
á báða bóga, og voru dómararnir
Jón Hermannsson og Björn
Kristjánsson þar á sama báti og
leikmennirnir i þetta sinn...
— klp