Morgunblaðið - 22.01.2002, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LEIFUR Sigfinnur Garðarsson
körfuknattleiksdómari hefur
verið önnum kafinn við dóm-
gæslu á Evrópumótunum í
körfuknattleik í vetur og ekkert
lát virðist vera á þeim verk-
efnum sem honum er úthlutað. Í
sl. viku kom Leifur heim frá
Spáni þar sem hann dæmdi tvo
leiki í Evrópukeppni bikarhafa
og fyrir helgi fékk hann svo boð
um að dæma tvo leiki á Ítalíu í
byrjun næsta mánaðar. Fyrst
dæmir hann leik ítalska liðsins
Siena og Sarthe Basket frá
Frakklandi í Evrópukeppni bik-
arhafa hinn 5. febrúar. Daginn
eftir fer Leifur til Parma þar
sem hann dæmir leik Parma og
franska liðsins Valencennes í
meistaradeild kvenna en þetta
er tvö efstu liðin í riðlinum og
því um hörkuleik að ræða. Þeg-
ar Leifur hefur lokið við að
dæma leikina tvo á Ítalíu hefur
hann dæmt hvorki fleiri né færri
12 leiki á Evrópumótunum á
þessum vetri í sex löndum –
Belgíu, Írlandi, Frakklandi,
Þýskalandi, Spáni og á Ítalíu.
Leifur hefur fengið mikið lof
fyrir frammistöðu sína hjá eft-
irlitsmönnum FIBA og aldrei að
vita nema að hann eigi eftir að
fá fleiri verkefni áður en leik-
tíðin rennur út.
MEÐ FLAUTUNA UM EVRÓPU
JOHN Arne Riise, leikmaður með
Liverpool, var um helgina út-
nefndur „Leikmaður leikmann-
anna“ í kjöri norska blaðsins Ver-
dens Gang um besta
knattspyrnumann Noregs 2001.
Annar í kjörinu var Clayton
Zane, sóknarleikmaður hjá Lille-
ström, og þriðji Árni Gautur Ara-
son, landsliðsmarkvörður Íslands
og leikmaður með Rosenborg.
Sex þúsund lesendur Verdens
Gang kusu um 396 knatt-
spyrnumenn í Noregi og norskir
leikmenn í útlöndum tóku þátt í
kjörinu. Riise, sem fékk 30% at-
kvæða, segir að útnefningin sé
mikill heiður fyrir sig, en hann
hefur ekki leikið undanfarin ár í
Noregi – fór 17 ára til franska
liðsins Mónakó, 1998 og eftir að
hafa verið hjá liðinu í þrjú ár var
hann keyptur til Liverpool.
„Það er heiður fyrir mig að
vera fyrir ofan leikmann eins og
Ole-Gunnar Solskjær hjá Man-
chester United,“ sagði Riise sem
mætir einmitt landa sínum á Old
Trafford í kvöld þegar United
tekur á móti Liverpool.
BESTU KNATTSPYRNUMENN NOREGS
SILJA Úlfasdóttir, hlaupakona úr
FH, hefur þátttöku sína á banda-
rískum háskólamótum af krafti,
en Silja stundar nám við Clemson
háskólann í N-Karólínuríki. Um
helgina keppti hún á móti í
Blacksburg í Virginíu og hljóp
talsvert undir Íslandsmetinu í 200
m hlaupi innanhúss. Silja kom í
mark á 24,62 sek., sem er 18/100
úr sekúndu betri tími en Íslands-
met Sunnu Gestsdóttur, Tinda-
stóli, sem hún setti í febrúar í
fyrra. Ósennilegt verður að teljast
að Silja fái metið viðurkennt því
hún fór ekki í lyfjapróf eftir
hlaupið, eftir því sem fram kemur
á heimsíðu hennar á Netinu. Að
sögn Egils Eiðssonar, fram-
kvæmdastjóra Frjálsíþrótta-
sambandsins, eru Íslandsmet
karla og kvenna innanhúss og ut-
an ekki viðurkennd nema íþrótta-
maðurinn fari í lyfjapróf. „Þetta
er því miður vandamál víða í
Bandaríkjunum, á stundum er
ekki hægt að komast í lyfjapróf á
háskólamótunum eða þá að þær
rannsóknarstofur sem fyrir hendi
eru hafa ekki viðurkenningu al-
þjóðasambands eða Ólympíu-
hreyfingarinnar til þess að taka
próf og rannsaka,“ sagði Egill.
„Auk þess hafa menn mjög
skamman tíma til þess að fara í
próf eftir að hafa sett met. Það
hefur þó verið heimilað að taka
það gilt fari íþróttamaður í lyfja-
próf fyrsta virka dag eftir mót
þar sem met er sett,“ sagði Egill
ennfremur. Silja keppti einnig í
400 m hlaupi á mótinu og kom í
mark í 7. sæti á 55,63 sekúndum
og þá hljóp hún á 7,81 sek. í 60 m
hlaupi. Silja varð einnig í 7. sæti í
umræddu 200 m hlaupi.
Methlaup
Silju senni-
lega ekki
viðurkennt
Silja Úlfarsdóttir
Það var vegna þess að Keflavík-urliðið var í vandræðum með
leikmenn um jólin, nokkrir leikmenn
voru meiddir, aðrir voru í útlöndum
og framundan var erfiður leikur gegn
KR. Þegar staðan var þannig gat ég
ekki skorast undan þegar til mín var
leitað,“ sagði Anna María. „Ég var
ekki alveg æfingalaus því ég hafði
leikið með b-liðinu og það gekk ágæt-
lega. Ég vissi að ég væri tilbúin í
slaginn. Auðvitað vantar mig ennþá
nokkuð uppá úthaldið – en hugsunin
og skotstyrkur eru enn til staðar og
það telur talsvert í þessari íþrótt.“
Keflavík hefur sterka hefð
„Liðið hefur tekið nokkrum breyt-
ingum frá því þú lékst með því síðast?
„Já, það er rétt. Liðið hefur yngst
mikið, en það eru þó gamlir jaxlar
enn á ferðinni eins og Kristín Blön-
dal, Erla Þorsteinsdóttir og Birna
Valgarðsdóttir. Flestir leikmennirnir
eru ungar stelpur sem hafa verið að
ganga upp í gegnum yngri flokkana –
eru nú að banka á dyrnar hjá meist-
araflokknum. Það er mikil pressa á
þessum stelpum. Keflavík hefur
sterka hefð á bak við sig, liðið er allt-
af í toppbaráttu og það eru gerðar
kröfur um það að svo verði áfram. En
við þurfum að vera þolinmóð, það er
verið að byggja upp og endurnýja og
með þessar stelpur innanborðs á liðið
eftir að halda áfram að vera í far-
arbroddi.“
Endurkoma Önnu Maríu í lið
Keflavíkur hefur styrkt liðið mikið
enda er hún fyrrverandi fyrirliði liðs-
ins og mikill leiðtogi innan vallar,
sem og utan, en eru engar óánægju-
raddir í hennar garð meðal leik-
manna fyrir það að vera að taka sæti í
liðinu af þeim leikmönnum sem hafa
verið að æfa í allan vetur?
„Nei, ég held ekki. Að minnsta
kosti hef ég ekki haft neinar spurnir
af því. Ef einhver er ekki sátt við það
að ég sé að taka hennar sæti þá er
það bara gott. Ég veit að ef ég væri
sextán ára og það kæmi einhver 32
ára og tæki mitt sæti í liðinu, væri ég
ekki ánægð með það. Ég myndi gera
allt sem ég gæti til þess að ná mínu
sæti aftur. En ég vona að endurkoma
mín verði stelpunum hvatning til
þess að gera betur og bæta sig sem
körfuknattleikskonur.
Annars hefur mér stundum fundist
að það sé ekki nægilegur metnaður
meðal stelpnanna í körfuboltanum.
Það er náttúrlega ekki gott þegar
leikmenn treysta sér ekki til þess að
taka þátt í verkefnum með landslið-
inu vegna vinnu eða vegna þess að
þær þurfa að fara til útlanda með vin-
konum sínum. Þegar ég var valin í
landsliðið fyrst þá hefði ég fórnað öllu
til þess að ná sem lengst. Jafnvel þótt
leikmenn séu ekki valdir eftir fyrsta
úrtak þá eiga þeir að vera búnir að
stimpla sig þannig inn hjá þjálfaran-
um að hann muni eftir þeim fyrir
dugnað, vilja og fórnfýsi næst þegar
landsliðshópur er valinn. Þetta metn-
aðarleysi – sem mér finnst vera alltof
víða í boltanum – er dragbítur á
framfarir og það þarf að vinna í því að
breyta þessu.“
KR þurfti ekki
erlendan leikmann
Hvernig líst þér á toppbaráttuna í
deildinni núna?
„Það voru fjögur lið í toppbarátt-
Anna María Sveinsdóttir, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, hefur
Metnaðarleysi drag-
bítur á framfarir
Anna María Sveinsdóttir er óumdeilanlega
ein besta körfuknattleikskona Íslands fram
til þessa. Hún tók þá ákvörðun fyrir
skömmu að leggja skóna á hilluna og snúa
sér að öðrum hugðarefnum. En um áramót-
in bárust þær fréttir að Anna María myndi
leika með Keflavíkurliðinu á ný og hún hef-
ur nú tekið þátt í þremur leikjum með fé-
lögum sínum í Keflavík. Ingibjörg
Hinriksdóttir átti spjall við Önnu Maríu og
lék forvitni á að vita hvers vegna hún hefði
dregið skóna fram að nýju.
!
"
# $
%
! # $ &
'
(
%
!"#$%! !"#$%! !"#$%! &'(#$%! &'(#$%! &'(#$%! &'(#$%!
)
*
+,
- ,.)
*
/0
/ ,
*
*
*
*
1
1 2 3 4 1 2
!"#$%!
’ Keflavík hefursterka hefð á bak
við sig, liðið er
alltaf í toppbar-
áttu og það eru
gerðar kröfur um
að svo verði
áfram. En við
þurfum að vera
þolinmóð, það er
verið að byggja
upp og endurnýja
og með þessar
stelpur innan-
borðs á liðið eftir
að halda áfram að
vera í farar-
broddi. ‘
Morgunblaðið/Ásdís
Árni Gautur Arason
Árni Gautur
valinn þriðji besti
Leifur Sigfinnur er
á ferð og flugi
KEFLAVÍK