Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 B 3  STEFAN Lövgren skoraði í fyrsta sinn 12 mörk í landsleik fyrir Svía þegar hann fór á kostum gegn Úkr- aínu í fyrsta leik Evrópumeistaranna í Gautaborg á föstudaginn, en Svíar unnu, 27:21. Lövgren hefur fjórum sinnum skorað 11 mörk í landsleik og í fjórgang gert tíu mörk í leik. Hann er nú markahæsti leikmaður Svía í stórmótum, komst á föstudaginn upp fyrir Magnus Wislander.  LÖVGREN komst í hóp þeirra sænskra handknattleiksmanna sem leikið hafa 200 landsleiki þegar Svíar unnu Tékka, 31:22, á laugardaginn.  BJARNI Frostason, markvörður, var sá eini af fjórtán leikmönnum ís- lenska liðsins sem ekki fékk að spreyta sig gegn Spánverjum á föstudaginn. Guðmundur Þ. Guð- mundsson, landsliðsþjálfari, notaði hina þrettán leikmennina sem hann var með á leikskýrslu.  SIGURÐUR Bjarnason og Ragnar Óskarsson voru ekki á leikskýrslu í fyrsta leik Íslands á EM, á móti Spáni.  GUNNAR Andrésson, handknatt- leiksmaður hjá Amicitia frá Zurich, kom til Skövde á fimmtudaginn og fylgdist með leikjum íslenska liðsins í riðlakeppninni og einnig viðureign- um svissneska landsliðsins. Gunnar var í hópi tæplega 200 manna sem komu frá Sviss til þess að horfa á leiki á EM. Þá kom Guðfinnur Krist- mannsson frá Gautaborg til þess að fylgjast með íslenska liðinu en þar býr hann og leikur með Wasaiterna.  STEFÁN Eggertsson, faðir Ólafs Stefánssonar, mætti til leiks í Skövde á föstudaginn til þess að fylgjast með syni sínum og félögum hans í íslenska liðinu. Kristján Ara- son, fyrrverandi landsliðsmaður, kom einnig til Svíþjóðar til að sjá ís- lenska liðið leika.  RAGNAR Óskarsson kom inn í ís- lenska liðið gegn Slóveníu þegar í ljós kom að meiðsl Gústafs Bjarnasonar voru svo alvarlega að hann gat ekki tekið þátt í leiknum. Ragnar kom ekkert inn á í leiknum og það sama var hlutskipti Bjarna Frostasonar.  GÚSTAF Bjarnason tognaði á kálfa undir lok leiksins við Spán og lék ekki með gegn Slóvenum og Sviss. Meiðsl Gústafs eru af svipuð- um toga og meiðsl þau sem herjað hafa á Sigurð Bjarnason.  RÚNAR Sigtryggsson skoraði tvö mörk gegn Slóvenum, bæði úr hraða- upphlaupum. Þá fékk hann þriðja tækifærið í hraðaupphlaupi en þá var brotið á honum og dæmt vítakast sem Ólafur Stefánsson skoraði úr.  SLÓVENÍA og Sviss hafa sótt um að halda EM árið 2004 en ákvörðun verður tekin á þingi EHF í Salzburg í júní hvar mótið verður haldið eftir tvö ár. Reiknað er jafnvel með að fleiri þjóðir bætist í hóp umsækjanda áður en ákvörðun um hver verður gest- gjafi EM 2004 verður ákveðin.  NOKKUÐ hundruð manns söfnuð- ust saman fyrir framan keppnishöll- ina í Helsingborg á laugardaginn og mótmæltu stefnu Ísraelsmanna gagnvart Palestínumönnum, en ísr- aelska landsliðið lék þar. Ekki virtist það hafa mikil áhrif til hins verra á ísraelska landsliðið því það lék sinn besta leik í keppninni gegn Rússum og tapaði aðeins með einu marki, 27:26, eftir stórtap í fyrsta leik gegn Portúgal, 26:15.  MARTIN Setlik var hetja Tékka þegar þeir lögðu Pólverja, 25:24, á föstudag í A-riðli. Setlik skoraði sig- urmarkið úr vítakasti sem dæmt var í þann mund sem leiktíminn rann út. Þar með tryggði hann Tékkum sæti í milliriðlum EM á kostnað Pólverja sem töpuðu öllum þremur leikjum sínum.  MATS Olsson, fyrrverandi lands- liðsmarkvörður Svía, er aðstoðar- þjálfari portúgalska landsliðsins á EM. Sem fyrr er Spánverjinn, Javier Carcia Cuesta, við stjórnvölinn hjá Portúgölum. FÓLK NORSKA úrvalsdeildarliðið Lyn er á höttunum eftir Heiðari Helgusyni sem leikur með Watford. Erik Soler umboðsmaður Heiðars staðfestir í samtali við norska fjölmiðla í gær að fyrirspurn hafi komið um Heiðar frá Lyn en samningur Heiðars við Watford rennur út í haust. Heiðari, sem keyptur var til Wat- ford frá Lilleström í Noregi fyrir tveimur árum, hefur gengið illa að festa sig í liði Watford á leiktíðinni. Hann hefur verið í byrjunarliði Watford í aðeins 9 leikjum og hefur samtals leikið 15 leiki af 29 sem lið- ið hefur leikið í deildinni. Tveir Ís- lendingar eru fyrir hjá Lyn – Helgi Sigurðsson og Jóhann B. Guð- mundsson. AFTUR TIL NOREGS? Lyn vill fá Heiðar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Heiðar Helguson STÓRSIGUR Íslendinga á Sviss, 33:22, gerði að verkum að vonir Slóvena um að komast í milliriðla lifnuðu, svo lengi sem þeir töpuðu ekki með meira en sjö marka mun fyrir Spánverjum í síðasta leik C- riðils. Lengi vel í leiknum á móti Spáni leit úr fyrir að Slóvenar væru á leiðinni heim því um miðjan síðari hálfleik voru þeir átta og níu mörk- um undir. En leikmenn slóvenska liðsins bitu í skjaldarrendur á lokakafl- anum, minnkuðu muninn í fimm mörk og sluppu með 25:20-tap. Stigu leikmenn slóvenska liðsins stríðsdans í leikslok líkt og þeir hefðu unnið mótið sjálft. Þar með komust þeir áfram með ellefu mörk í mínus, á kostnað Svisslendinga, sem var með tveimur mörkum fleira í mínus. Króatar heim Fjögur landslið fóru heim frá Sví- þjóð á mánudagsmorguninn eftir að hafa rekið lestina í sínum riðl- um. Pólverjar fóru heim úr A-riðli, Ísrael úr riðli B, Sviss úr riðli Ís- lands sem kenndur var við bókstaf- inn C. Króatía, gestgjafar EM árið 2000, pakkaði niður eftir að hafa tapað öllum leikjum sínum í D-riðli. Sviss var eina liðið af þessu fjórum sem krækti sér í eitt stig í riðla- keppninni, hin voru stigalaus. FJÓRAR ÞJÓÐIR HEIM Íslendingar björguðu Slóvenum vanda til verka eins og kostur er á. Einn liðurinn var sá að leika gegn sterkum liðum á undirbúningstíman- um, fá virkilega prófraun á liðið og sjá hver staða þess var. Það hefur sýnt sig að sú ákvörðun var rétt. Hún skil- ar sér í leik liðsins hér á EM eins og raun hefur orðið á og gerir það örugg- lega áfram í næstu leikjum, enda er keppnin ekki ennþá hálfnuð.“ Áætlunin var metnaðarfull og kost- ar sitt, því er ekki að leyna þótt fjár- hagur HSÍ sé ekki góður. En þrátt fyrir metnað og kostnað þá hefur einnig verið reynt að sníða sér stakk eftir vexti og sýna ábyrgð. Þrátt fyrir að vel hafi gengið á vellinum hefur lið- ið orðið fyrir áföllum. Fyrst voru það meiðsli mikilvægs manns í vörninni, Sigurðar Bjarnasonar, þá meiddist Gústaf Bjarnason einnig og síðast en ekki síst uppákomurnar undir lok leiksins við Spánverja sem kostuðu dýrmætt stig. Hafðir þú ekki áhyggj- ur á föstudagskvöldið? „Ég hafði að sjálfsögðu gríðarlegar áhyggjur af liðinu á föstudagskvöldið því að þetta var mikið áfall fyrir það allt. Gegn Spáni urðum við fyrir órétt- læti sem kostaði okkur dýrmætt stig í milliriðlunum. Þegar við vorum komnir inn á hótel eftir leikinn var sest yfir stöðuna. Ég og Einar feng- um Jóhann Inga í lið með okkur. Strax var haldinn fundur með leik- mönnum þar sem farið var vel yfir málið. Þar held ég að okkur hafi í sameiningu tekist að leysa málið eins vel og kostur var á og einnig á þeim stutta tíma sem við höfðum úr að spila. Leikmenn hafa síðan lagt sitt lóð á vogarskálina á leikvellinum til þess að vinna sig út úr erfiðri stöðu, fyrir það vil ég hrósa þeim öllum sam- an.“ Hvernig verður dæmið lagt upp fyrir leikina í Västerås? „Með svipuðu sniði og hingað til, það hefur gefist vel. Taka einn leik fyrir í einu og ekki vera með há- stemmdar yfirlýsingar, við erum með báða fætur á jörðinni. Leikmenn gera sér grein fyrir hvaða verkefni bíður þeirra í Västerås og ég hef enga ástæðu til að ætla annað. Metnaðarinn er fyrir hendi, allir hafa ríkan vilja til þess að standa sig hér eftir sem hingað til. Við erum ekkert orðnir saddir þótt vel hafi bor- ið í veiði. Okkar verkefni í milliriðl- unum er ekki bara það að vera með, slíkt er ekki inni í myndinni. Við ætl- um að standa okkur, hvaða árangri sem það skilar þegar dæmið veður gert upp á fimmtudaginn, það verður að bíða þess tíma. Okkar markmið um að leika góðan handknattleik og vinna leiki hefur ekkert breyst,“ sagði Guð- mundur Þ. Guðmundsson landsliðs- þjálfari. Morgunblaðið/Janne Andersson Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari stjórnar liði sínu í leik gegn Slóveníu. Á bekknum eru þeir Patrekur Jóhannesson, Halldór Ingólfsson, Rúnar Sigtryggsson og Róbert Sighvatsson. Morgunblaðið/Janne Andersson Leikmenn íslenska landsliðsins hafa fengið góðan stuðning frá áhorfendum á Evrópumótinu í Svíþjóð. HSÍ sendi erindi til EHF vegna Spán- arleiksins FORRÁÐAMENN HSÍ funduðu á laugardag með forsvarsmönnum tækni- mála Evrópumótsins í handknattleik vegna þeirra mistaka sem áttu sér stað á tímavarðaborð- inu undir lok leiks Íslend- inga og Spánverja á föstu- daginn. Á fundinum kynnti HSÍ bréf sem sent var til stjórnar Evrópska handknattleiksins, EHF. Í bréfinu er komið inn á þau atriði sem fóru í handaskolum á tíma- varðaborðinu undir lok leiksins, m.a. var leik- klukkan ekki sett af stað í níu sekúndur eftir að Ís- lendingar hófu leik eftir 23. mark Spánar, 15 sek- úndum fyrir leikslok. Að sögn Jóhanns Inga Gunn- arssonar, formanns lands- liðsnefndar HSÍ, er ekki um formlegt kvört- unarbréf að ræða heldur er í því farið yfir þau at- riði sem betur hefðu mátt fara. „Við viljum að menn fari yfir þessi mistök og læri af þeim þannig að at- vik sem þessi endurtaki sig ekki á stórmótum.“ ð sé markmiðið að leika góðan handknattleik og vinna leiki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.