Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 5
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 B 5 Íslenska liðið mætti ákveðið tilleiks, staðráðið í að láta engin óhöpp henda. Svissneska liðið var strax tekið sann- kölluðum heljatök- um sem ekkert var slakað á fyrr en flautað var af. Vörn- in var 6-0 hjá íslenska liðinu eins og oft áður en eigi að síður voru varnarmennirnir á tánum, komu framarlega á völlinn einn af öðrum og lokuðu fyrir svissnesku skytt- urnar, hindruðu leikstjórnanda þeirra í að stilla upp kerfum sínum. Fyrsti stundarfjórðungurinn var hreint út sagt stórgóður, einhver sá besti sem íslenska landsliðið hef- ur sýnt í háa herrans tíð. Eftir 15 mínútur var staðan 11:5 og áfram var haldið og í hálfleik skildu sex mörk á milli, 15:9. Snemma í síðari hálfleik var munurinn orðinn níu mörk og eftir það leit íslenska liðið aldrei aftur, aðeins lék vafi á um hversu stór sigurinn yrði, niðurstaðan var 11 mörk. Það er með ólíkindum að sjá þær breytingar sem hafa orðið á ís- lenska liðinu frá því að Guðmundur Guðmundsson tók við því í fyrra- vor. Þær eru á öllum sviðum, varn- arleikurinn er skipulagður og ag- aður, hreinlega frábær á að horfa á stundum, hraðaupphlaupin í föstum skorðum, hröð og markviss, og sóknarleikurinn kerfisbundinn þar sem fjölbreytileikinn, en e.t.v. um leið einfaldleikinn, ræður för, sam- setning sem kom andstæðingum ís- lenska liðsins í opna skjöldu í leikj- unum þremur í Skövde. Leikskipulaginu hefur verið bylt og upp er kominn sveit manna sem er þess albúin að vaða eld og brennistein til þess fara að fyr- irmælum. Það er alveg sama hver hinna fjórtán leikmanna er settur inn á leikvöllinn hverju sinni, allir þekkja sitt hlutverk fullkomlega, allt hefur verið vandlega undirbúið, handbragð þjálfarans sést hvar sem litið er. Ekkert fum og fát lengur. Fyrir vikið er skemmtilegt að sjá íslenska liðið leika og leik- mennirnir skemmta sér sjálfir við leikinn sem aldrei fyrr. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Fyrir vikið verður til blanda sem þjóðin hrífst af. Íslendingar eru á ný að verða þjóð meðal þjóða á handknattleik- vellinum. Hugmyndabankinn hefur verið reistur úr öskustónni, er ekki lengur gjaldþrota. Hann hefur eignast nýtt hlutafé og vex nú og dafnar sem aldrei fyrr undir stjórn nýs bankastjóra. Nú tekur við keppni við heims- meistara Frakka, Þjóðverja og Júgóslavíu, allt mjög sterkar þjóðir á handknattleiksvellinum, við tvær þeirra hefur íslenska liðið leikið ný- lega og haft í fullu tré og gott bet- ur á tíðum. Þau úrslit hjálpa ekki þegar á hólminn verður komið í Västerås, heldur gefa hugmynd, hugsanlega einhver fyrirheit. Þarna verður komið í alvöruna en víst er að haldi íslenska liðið sínu striki þá getur allt gerst. Leikmenn Þjóðverja þekkja íslensku leik- mennirnir og þjálfarinn vel. Er það eflaust gagnkvæmt. Við Frakka eiga menn að vera vel kunnugir, þar eru á ferðinni sjálfir heims- meistararnir. Júgóslavara hafa ver- ið brokkgengir í leik sínum á EM, en víst er að þar verður ekki á vís- an róið. Þetta eru í raun allt þjóðir sem íslenska liðið getur unnið, en einnig tapað fyrir öllum. Skemmst er minnast taps Íslendinga gegn Júgóslövum á HM í fyrra, í leik þar sem Júgóslavar voru með töglin og hagldirnar allan tímann. Síðan hef- ur íslenska liðið gengið í gegnum allsherjar klössun. Þrátt fyrir það skal varað við að reisa skýjaborgir, lítið má út af bera í handknattleik, ekki síst á stórmótum þar sem þétt er leikið og allar viðureignir eru í raun sem úrslitaleikur. Stutt er á milli hláturs og gráts. Það þekkja íslenskir íþróttaáhugamenn og eru ekki einir um. Rétt að njóta stund- arinnar, en gæta þess um leið að ganga hægt um gleðinnar dyr.  () +,           ' -  .     +) / 0 ) '   1  %1    '   2   2 ,+ %  3 4   $            )'% 5+ ' 60&5 #+04+77  % +/ 20+ 8+9+:& ; +   <  +:&  = / +  /, !+>0, 3& +  ' 34+ ? 0&+ +   /4+   +2 +  %&+@& / 3+=  % !"#    !"#  Morgunblaðið/Janne Andersson Ólafur Stefánsson skorar eitt af ellefu mörkum sínum gegn Sviss. Einstefna til Västerås ÍSLENDINGAR tryggðu sér sæti í milliriðlum EM með stórsigri á Sviss í Skövde á sunnudag, í sannkallaðri sýnikennslu í handknatt- leik, lokatölur 33:22. Frábær leikur Íslands, bæði í vörn og sókn, lagði grunninn að stærsta sigri þess í lokakeppni Evrópumóts. And- stæðingnum var aldrei gefinn kostur á að vera með, um einstefnu var að ræða, einstefnu til Västerås, þar sem leikir milliriðlanna fara fram. Mætt var til leiks með ákveðna hernaðaráætlun, skipulagða af „herforingja“ sveitarinnar, Guðmundi Guðmundssyni landsliðs- þjálfara. Og „hermenn“ hans voru fullkomlega einbeittir og fóru í einu og öllu að því sem fyrir þá var lagt. Uppskeran var stórsigur, á andstæðingi sem oft hefur reynst óþægur ljár í þúfu. Nú var raunin önnur og leikmenn liðsins vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið, stóðu þeir eftir ráðalausir, var nauðugur sá kostur að pakka saman og halda heim á leið. Þetta var leikurinn sem Arno Ehret, þjálfari Sviss, gerði sér fyrir fram vonir um að vinna, vonin breyttist í martröð. Ívar Benediktsson skrifar frá Skövde              7    " 7 "   "     A #    !  " 7 " $ % '            Svíar einir með fullt hús á EM EVRÓPUMEISTARAR Svía eru eina þjóðin af þeim tólf sem komust í milliriðla sem hefur þar keppni með fullt hús stiga. Svíar unnu allar viðureignir sínar í riðlakeppninni og mæta með fjögur stig til leiks í næstu umferð. Íslendingar, Spánverj- ar, Þjóðverjar, Frakkar, Rússar og Danir eru með þrjú stig. Það reynir mjög á sænska liðið í fyrstu umferð milliriðlanna í dag því þá leikur það við Rússa í Gautaborg, en að margra mati eru þetta tvö bestu lið keppninnar og væntanlegir kandíd- atar í úrslitaleiknum í Globen-höllinni í Stokkhólmi á sunnu- dag. Auk þess eru Svíar og Rússar þeir einu sem unnið hafa til gullverðlauna á EM frá því keppnin var fyrst haldin í Portúgal fyrir átta árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.