Morgunblaðið - 07.02.2002, Side 2
HANDKNATTLEIKUR
2 C FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
England
Bikarkeppnin
West Ham – Chelsea.............................2:3
Jermain Defoe 38., 50. – Jimmy Floyd
Hasselbaink 43., Mikael Forssell 65.,
John Terry 90.– 27.272.
1. deild:
Coventry – Rotherham .........................2:0
Watford – Burnley ................................1:2
Heiðar Helguson var í leikbanni.
2. deild:
Stoke – Cambridge...............................5:0
Andrew Cooke, Bjarni Guðjónsson, Stef-
án Þórðarson, sjálfsm., Marc Goodfellow
Staða efstu liða: Reading 62, Brighton
58, Stoke 57, Bristol 55.
Vináttulandsleikir
Iran – Slóvakía ......................................2:3
Sadí-Arabía – Brasilía...........................0:1
Frakkland
Rennes – Lyon ..................................... 2:2
Auxerre – Lens......................................1:0
Lille – Sedan..........................................1:1
Lorient – Montpellier ...........................1:0
Marseille – Guingamp...........................2:1
Metz – Nantes .......................................2:0
Mónakó – Bastia....................................1:1
Sochaux – Troyes ..................................2:2
Þýskaland
St. Pauli – Bayern München ...............2:1
Thomas Meggle 30., Nico Patschinski 33.
– Willy Sagnol 87. – 20.735.
Kaiserslautern – Hamburger ..............2:2
Mario Basler 4., Miroslav Klose 76. –
Bernardo Romeo 10., Marek Heinz 80. –
36.000.
Leverkusen – Schalke ..........................0:1
Jorg Bohme 53.
Dortmund – Hansa Rostock ................2:0
Henrique Ewerthon 66., Marcio Amor-
oso 81.– 62.000.
Holland
Feyenoord – Fortuna S. .......................1:0
Roda – Utrecht ......................................1:0
Breda – Sparta ......................................2:2
Belgía
Bikarkeppnin
Moeskroen – St. Truiden......................3:0
Club Brugge – Lokeren........................3:0
Spánn
Athletic Bilbao – Malaga ......................3:2
Alaves – Valencia ..................................1:2
Valladolid – Real Madrid......................2:1
Villareal – Mallorca...............................2:1
Barcelona – Real Sociedad ...................2:0
Rivaldo og Saviola skoruðu mörk
Börsunga.
Zaragoza – Tenerife ..............................1:1
Sevilla – Osasuna...................................0:0
Rayo Vallecano – Espanyol ..................2:2
Las Palmas – Real Betis ..................... 0:0
Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í
leikmannahópi Real Betis.
Skotland
Bikarkeppni:
Dundee – Partick Thistle .....................1:2
Deildabikarkeppnin:
Hibernian – Ayr ....................................0:1
Ayr leikur til úrslita við Rangers.
Ítalía
Bikarkeppnin:
Juventus – Milan...................................1:1
Zambrotta 61. – Jose Mari 27.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Washington – Toronto.......................99:94
Charlotte – Boston ............................79:82
Detroit – Philadelphia.......................86:82
Atlanta – Miami .................................76:73
Cleveland – Orlando ........................98:106
Seattle – Golden State ....................113:87
New York – LA Clippers..............110:112
Indiana – Dallas.............................140:141
Í tvíframlengdum leik.
Memphis – Utah ................................86:79
KEILA
Eftir leiki vikunnar í 1. deild karla og
kvenna eru Lærlingar og Flakkarar á
toppi deildanna. Stórleikur 16. umferðar
1. deildar karla var leikur KR–a og PLS
en leikið var í Keiluhöllinni Öskjuhlíð.
Leikmenn PLS unnu fyrsta leikinn,
KR–a tók næstu tvo og heildina og sigr-
aði 6:2. Þessi úrslit þýða að Lærlingar,
sem unnu Keilugarpa 8:0, sitja einir á
toppnum, 6 stigum á undan PLS.
Önnur úrslit urðu þannig:
ÍR–KLS – Keflavík ...............................8:0
Stormsveitin – KR–b.............................6:2
Keiluvinir – ÍR–a...................................0:8
Staðan er þessi: Lærlingar 106, PLS
100, ÍR–KLS 88, KR–a 80, ÍR–a 74, Kei-
lugarpar 55, KR–b 54, Stormsveitin 52,
Keflavík 47, Þröstur 44, ÍA 38, Keiluvin-
ir 22.
1. deild kvenna:
Flakkarar – KR .....................................8:0
Fellurnar – Skutlurnar .........................8:0
ÍR-TT – Afturgöngur............................0:8
Staðan er þessi: Flakkarar 92, Aftur-
göngurnar 82, Valkyrjur 76, ÍR-TT 36,
KR 32, Fellurnar 26, Skutlurnar16.
MIKIÐ handknattleiksæði greipum sig hjá íslensku þjóðinni á
dögunum og magnaðist jafnt og þétt.
Ballið byrjaði í Skövde í Svíþjóð, þar
sem „strákarnir okkar“ stigu fram í
sviðsljósið í Evrópukeppni landsliða.
Fyrsti dansinn var stiginn við Spán-
verja, sem voru heppnir að ná jöfnu,
24:24. Dansinn barst til Íslands og fór
um allt þjóðfélagið eins og eldur í sinu.
Sigrum á Slóvenum og Svisslending-
um var fagnað.
Þó svo að þessir þrír „dansleikir“
hafi verið stignir um helgi, var ballið
rétt að byrja. Strákarnir færðu sig um
set í Svíþjóð og komu sér fyrir í
Västerås – léku þar fyrstu tvo leiki
sína klukkan 15 að íslenskum tíma. Ís-
lendingar létu það ekki á sig fá – at-
vinnulífið „lamaðist“ og kennsla lagð-
ist niður í skólum um allt land.
Kvikmyndahús voru opin til að menn
gætu skotist inn til að horfa á leiki á
stóru tjaldi. Já, börn á dagheimilum
og í leikskólum tóku þátt í æðinu á
sama tíma og þeim var kynntur þorra-
matur. Handknattleikur og hákarl var
á boðstólum samtímis.
Heimsmeistarar Frakka voru
heppnir að tryggja sér jafntefli gegn
Íslendingum með þremur síðustu
mörkum leiksins, 26:26. Þeir fengu
mikla aðstoð frá svissneskum dómur-
um á lokasprettinum. Framganga
þeirra varð þó ekki til þess að slá
strákana út af laginu, þeir unnu Júgó-
slava örugglega 34:26 og Þjóðverja
29:24.
Andrúmsloftið á Íslandi var eins og
oft áður þegar vel hefur gengið hjá
handknattleikslandsliðinu – miklar
væntingar og menn ræddu um Evr-
ópumeistaratitilinn.
Áður en strákarnir náðu að stíga
lokadansinn var byrjað að færa Hand-
knattleikssambandi Íslands gjafir og í
útvarpi fór fram áskorunarsöfnun.
Kvikmyndatökumenn voru mættir á
svæðið til að gera þátt, eða þætti, um
afrek strákanna. Já, aukin pressa og
spenna var sett á þá áður en þeir áttu
eftir að stíga dansinn við Svía og Dani
eða Þjóðverja í lokavalsinum.
Meiðsli, spenna og þreyta tóku sinn
toll í dansinum við Svía og síðan Dani
– strákarnir okkar urðu að játa sig
sigraða. Þeir þurftu þó ekkert að
skammast sín, því að þeir stóðu sig
frábærlega og náðu fjórða sæti í ein-
hverri hörðustu handknattleikskeppni
heims, þar sem þeir léku átta leiki á
aðeins tíu dögum. Við komum nánar
að árangri landsliðsins síðar – áður
skulum við renna yfir nokkur stórmót,
sem Ísland hefur tekið þátt í.
Væntingar,
spenna og hrun
Íslenska landsliðið náði sjötta sæti
á HM í V-Þýskalandi 1961 og vann
frækilegan sigur á Svíum á HM í
Tékkóslóvakíu 1964.
Miklar væntingar voru gerðar fyrir
HM í Frakklandi 1970. Þar náði lands-
liðið sér ekki á strik og eftir keppnina
var mönnum ljóst að nauðsynlegt væri
að gjörbreyta þjálfun íslenskra hand-
knattleiksmanna.
Þegar Ísland tryggði sér farseðilinn
á HM í Austur-Þýskalandi 1974, voru
Frakkar lagðir að velli á eftirminni-
legan hátt í Laugardalshöllinni, 28:15.
Axel Axelsson skoraði 13 mörk og
Geir Hallsteinsson 10.
Stemmningin var geysileg fyrir
HM og var tónninn gefinn með því að
gefa út hljómplötu, þar sem landsliðs-
menn sungu lagið „Áfram Ísland“ eft-
ir Ómar Ragnarsson, sem var for-
söngvari.
1987 og 31 landsleik síðustu sjö mán-
uðina fyrir ÓL í Seoul, sem fóru fram í
september 1988.
Forráðamenn Handknattleikssam-
bands Íslands byggðu upp geysilega
spennu í kringum landsliðið, hömruðu
á að það væri það leikreyndasta í
heimi og bent var á að Ísland væri í
fjórða sæti á styrkleikalista IHF, al-
þjóðahandknattleikssambandsins.
Það var í mörg horn að líta hjá lands-
liðsmönnum, því að fyrir utan að æfa
mikið og leika, söfnuðu þeir auglýs-
ingum, léku í auglýsingum, heimsóttu
styrktarfyrirtæki og Bogdan af-
greiddi bensín. Álagið var mikið og
boginn spenntur hátt.
Væntingarnar urðu enn meiri þeg-
ar geysisterkt lið Sovétmanna var lagt
að velli í Laugardalshöll mánuði fyrir
ÓL, 23:21
Yfir hundrað stuðningsmenn lands-
liðsins ákváðu að fara til Seoul og fyrir
ÓL sungu leikmenn inn á plötu lag
Valgeirs Guðjónssonar, „Við gerum
okkar besta…“
Þetta lag var sungið á Lækjartorgi
áður en Ólympíufararnir lögðu frá
Reykjavík – á leið til Seoul, þar sem
landsliðsmenn vöknuðu upp við mikla
þreytu í „fangabúðum“.
Spennufallið var mikið – enn einu
sinni eftir tap fyrir Svíum, 20:14. Rog-
er Carlsson, þjálfari Svía, sagði við
sænska blaðamenn rétt fyrir leikinn
gegn Íslandi, að hann væri ekki
hræddur við Íslendinga. „Það hefur
oft sýnt sig að Íslendingar þola ekki
spennuna þegar þeir mæta okkur. Við
mætum því óhræddir til leiks.“
Carlsson hitti naglann á höfuðið.
Nær allur vindur var úr íslenska lið-
inu þegar það tapaði fyrir Sovétmönn-
um með þrettán marka mun, 19:32. Ís-
land náði ekki að tryggja sér sæti á
HM í Tékkóslóvakíu, þar sem íslenska
liðið tapaði fyrir A-Þjóðverjum 3:1 í
vítakastskeppni eftir jafnteflisleik,
28:28.
Bogdan fór á taugum
Þegar Alfreð Gíslason var eitt sinn
spurður um hvað hefði gerst á ÓL,
sagði hann: „Það er aðeins til eitt svar
við þessari spurningu – Bogdan fór
hreinlega á taugum. Við vorum búnir
að æfa eins og villimenn – allt of mikið,
en þegar allt virtist vera á góðri leið,
komu mistökin. Það var þegar við
lögðum Sovétmenn að velli í Laugar-
dalshöllinni. Bogdan fór þá einfald-
lega á taugum – hann óttaðist að við
værum komnir á toppinn á röngum
tíma. Eftir leikinn byrjaði hann að láta
okkur æfa þrek og aftur þrek, til að slá
á mannskapinn – þannig að hann
kæmi síðan aftur upp í Seoul. Bogdan
gerði það svo hressilega, að leikmenn
komu ekki upp aftur. Hann kláraði
gjörsamlega viljastyrk leikmanna. Ég
fann það í Seoul að leikmenn voru
andlega búnir, þannig að þeir voru
hugmyndasnauðir. Þá urðu menn
pirraðir og mikið bar á smámeiðslum.
Öll umgjörðin í kringum Ólympíu-
farseðilinn á ÓL þar sem Sovétríkin,
Tékkóslóvakía, A-Þýskaland, Pólland
og Ungverjaland ákváðu að senda
ekki íþróttamenn til Los Angeles.
Ísland, undir stjórn Bogdans Kow-
alczyk, náði sjötta sætinu á ÓL og
tryggði sér þar með farseðil á HM í
Sviss 1986.
„Það er allt að
verða vitlaust“
Það má með sanni segja að hið
raunverulega handknattleiksæði hafi
fyrst gripið um sig á Íslandi fyrir
heimsmeistarakeppnina í Sviss 1986.
Fjölmiðlar kepptust við að taka viðtöl
við leikmenn og þjálfara. Leikmenn
komu fram í auglýsingum og sungu
inn á hljómplötu lagið „Það er allt að
verða vitlaust…“ Já, það er óhætt að
segja að allt hafi verið að verða vit-
laust á Íslandi fyrir HM. Sjónvarpað
var í fyrsta skipti öllum leikjum frá
stórmóti og vel yfir 200 stuðnings-
menn fóru með landsliðinu og fjöl-
margir Íslendingar víða að úr Evrópu
bættust í hópinn í Sviss, þar sem
dæmið gekk upp – Íslendingar náðu
sjötta sæti og tryggðu sér þar með
farseðilinn á Ólympíuleikana í Seoul
1988.
Ísland tapaði óvænt fyrir Suður-
Kóreu í fyrsta leiknum, 21:30. Síðan
kom sigur á Tékkum, 19:18. Geysileg-
ur áhugi var á Íslandi og þegar leikið
var gegn Rúmeníu föstudaginn 18.
febrúar 1986 kl. 18, var varla mann að
sjá á götum Reykjavíkur. Sigur
vannst og var það Guðmundur Þórður
Guðmundsson, núverandi landsliðs-
þjálfari, sem kórónaði sigurinn, 25:23.
Efnt var til geysilegrar sigurhátíðar í
Reykjavík og út um allt land, þar sem
Ísland var komið í milliriðil.
Sjónvarpið opnað
Ísland vann stórsigur á Dönum,
26:16. Þegar leikið var gegn Svíum
var áhuginn orðinn svo mikill á Ís-
landi, að ákveðið var að opna sjón-
varpið á fimmtu-
dagskvöldi, til að
sjónvarpa leiknum
gegn Svíum beint. Á
þessum árum var
ekki sjónvarpað á
fimmtudögum.
Ísland varð þá að
vinna Svía með fimm
mörkum til að leika
um þriðja sætið, en
varð að sætta sig við tap, 27:23. Spánn
vann Ísland síðan í leik um fimmta
sætið, 24:22.
Geysilegt álag,
væntingar og vonbrigði
Þegar landsliðið hóf að leika á ný
eftir sumarfrí 1986, þá átti liðið eftir
að leika 88 landsleiki á 24 mánuðum
undir stjórn Bogdans fyrir ÓL í Seoul,
sem samsvarar nær einum landsleik á
viku.
Álagið var mikið á leikmönnum
landsliðsins, sem léku 41 landsleik
Þá mættu Ungverjar í heimsókn og
jafntefli varð í fyrri leiknum, en Ísland
fagnaði sigri í þeim síðari, 22:20. Verk-
fall var skollið á þegar landsliðið átti
að fara og var gefin undanþága fyrir
afgreiðslu á flugvél þeirri, sem flutti
landsliðið og þrjá blaðamenn til Nor-
egs.
Leikið var gegn Norðmönnum í
Ósló áður en haldið var til A-Þýska-
lands. Íslenska liðið fór á kostum, lék
frábærlega og vann stórsigur, 21:16,
eftir að hafa verið tíu mörk yfir.
Leikur íslenska liðsins var svo góð-
ur, að Norðmenn stóðu agndofa og
rætt var um mikil afrek Íslendinga á
HM. Talið var að þeir myndu vinna
Tékka og Dani örugglega í riðla-
keppninni, en lenda í kröppum dansi
við Þjóðverja.
Ekki var byrjað að sjónvarpa leikj-
um beint til Íslands þá, og það var eins
gott. Áður en keppnin byrjaði voru
tveir leikmenn íslenska liðsins lagstir í
rúmið með 40 stiga hita og aðrir
komnir með hitavelgju. Flensa stakk
sér niður á óheppilegum tíma og von-
brigðin urðu mikil – liðið varð að engu
vegna flensunnar. Leikirnir þrír töp-
uðust.
Tveir spáðu
heimsmeistaratitli
Það gætti mikillar bjartsýni í her-
búðum landsliðsins þegar haldið var á
HM 1978 í Danmörku og spáðu tveir
leikmenn liðsins Íslandi heimsmeist-
aratitlinum. Landsliðið varð fyrir
áfalli í Noregi fyrir HM, þar sem Ólaf-
ur Einarsson, ein öflugasta skytta
liðsins, handarbrotnaði en áður hafði
Ólafur Benediktsson, markvörður,
forfallast. Allt gekk á afturfótunum á
HM, en þátttaka Íslands var kölluð
„Fjórir svartir dagar í Danmörku“.
Ísland tapaði fyrir Sovétríkjunum
22:18, Danmörku 21:14 og Spáni
25:22.
Eftir HM var mjög deilt á HSÍ og
sagt var að landsliðið hefði verið þjálf-
að í gegnum bréfa-
skóla frá Póllandi – af
Janusi Czerwinsky,
þjálfara landsliðsins,
sem gat ekki tekið
þátt í lokaundirbún-
ingi liðsins.
„Rútuferðin mikla“
var B-keppnin í
Frakklandi 1981 köll-
uð, en þar hrundi leik-
ur íslenska liðsins eftir tap fyrir Sví-
um í Grenoble, 16:15 – í leik sem
Ísland átti að vinna. Allt var lagt undir
fyrir leikinn gegn Svíum og urðu von-
brigðin því sár og spennufallið mikið.
Á eftir komu töp fyrir Frökkum, Pól-
verjum og síðan Ísraelsmönnum um 7.
sætið. Ísland komst ekki á HM í
Þýskalandi 1982.
Aftur urðu vonbrigði í B-keppni í
Hollandi 1993, þegar Ísland náði ekki
að keppa um farseðil á Ólympíuleik-
ana í Los Angeles 1984. Síðan kom þó
óvæntur glaðningur er Ísland fékk
Af litlum
neista …
Landsliðið sem mætti Dönum í St
Guðmundur Þórður Guðmundsson hefur
komið landsliðinu í handknattleik á ný á
þann stall þar sem það á heima – í hóp bestu
landsliða heims. Sigmundur Ó. Steinarsson
rifjar upp gleði og vonbrigði landsliðsins,
sem hefur í gegnum árin sungið þrjú lög
inn á hljómplötur – fyrir stórmót.
„Það var langt á æfing-
ar, það var langt í leiki
– og það var langt í
þann árangur sem við
vonuðumst eftir. And-
rúmsloftið var raf-
magnað og lamandi.“