Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 4
Þjóðverjar eru mjög ósáttir við aðmarkið skuli ekki hafa fengið að
standa, segja það hafa verið löglegt.
Jafnvel Svíar sjálfir
telja mikinn vafa
leika á hvort sigur
þeirra hafi verið
sanngjarn þar sem
líklegt verði að telja að mark Þjóð-
verjanna undir lok venjulegs leik-
tíma hafi verið gott og gilt. „EM-gull
með súrbragð í munni.“ Eitthvað á
þessa leið skrifar eitt útbreiddasta
blað Svíþjóðar, Aftonbladet á mánu-
daginn. Þýskir fjölmiðlar, þar á með-
al Bild Zeitung tala um þjófnað, „Við
vorum rændir gullinu.“
„Ég hef átt mörg samtöl út af
þessu atriði,“ sagði Kjartan K. Stein-
back, formaður dómaranefndar Al-
þjóða handknattleikssambandsins, í
samtali við Morgunblaðið en hann
var viðstaddur úrslitaleikinn í Glob-
en-höllinni í Stokkhólmi á sunnudag-
inn.
„Ég heyrði aldrei dómarana flauta
leikinn á að nýju eftir jöfnunarmark
Svía, 26:26,“ segir Kjartan. „Hafi
þeir ekki flautað leikinn á að nýju
eftir mark Svía, þá er mark Þjóð-
verja ekki gilt. Það slæma við þetta
allt saman er hins vegar að annar
dómarinn réttir upp höndina. Ég
veit ekki hvað skal segja,“ segir
Kjartan og vildi lítið tjá sig um málið
að öðru leyti.
Hafi annar dómarinn rétt upp
höndina þá er sennilegt að hann hafi
flautað og því hafi mark Þjóðverja
verið gott og gilt og sigurinn þar með
þeirra. Hvað sem því líður er ljóst að
Svíar fögnuðu sigri en Þjóðverjar
ekki, gullið verður ekki af sænska
liðinu tekið héðan af.
Til þess að bjarga sér út úr vand-
anum sem skapaðist á síðustu sek-
úndunum ráku dómarar leiksins,
sem komu frá Makedóníu, Johann
Petterson af leikvelli, sögðu hann
hafa reynt að hindra Þjóðverja við að
hefja leik að nýju. Það breytir ekki
þeirri staðreynd að Aftonbladet
heldur því fram að annar dómarinn
hafi verið búinn að flauta leikinn á og
Þjóðverjum því heimilt að nýta þau
andartök sem eftir voru til þess að
kasta knettinum frá eigin vallar-
helmingi og í tóma mark Svía.
Greinilegt er að brot Pettersons
undir lokin hefur borgað sig, a.m.k.
gefið dómurunum ástæðu til þess að
dæma ekki mark. „Það er ævinlega
slæmt þegar leikbrot borga sig,“
segir Aftonbladet ennfremur. Bengt
Johansson, landsliðsþjálfari Svía,
segir í samtali við blaðið að þeir sem
vinni háttvísisverðlaunin vinni ekki
gullverðlaun um leið. Hefur hann
þar í huga úrslitaleikinn á HM í fyrra
þegar Svíar „leyfðu“ Gergory Anq-
uetil að fara inn úr horninu skömmu
fyrir leikslok og innsigla sigurmark
Frakka og heimsmeistaratitilinn, í
stað þessa að brjóta á honum og
koma í veg fyrir markið.
Terje Anthonsen, formaður
norska dómarasambandsins, segir
dómarana ekki hafa staðið sig í
stykkinu, þeir hafi leyst illa úr þeirri
stöðu sem komið hafi upp á lokasek-
úndunum.
„Þjóðverjar eru aðeins að velta sér
upp úr þessu og þykir mörgum sárt
að vita til þess hvernig fór. En flestir
eru að jafna sig og telja að þótt gullið
hefði verið frábært þá væru silfur-
verðlaunin mjög jákvæð fyrir íþrótt-
ina. Að vinna til verðlauna á stórmóti
er mjög jákvætt fyrir íþróttina í
Þýskalandi,“ sagði Patrekur Jó-
hannesson, landsliðsmaður og leik-
maður með Essen í Þýskalandi.
„Hér líta flestir á jákvæðu hliðarnar,
líkt og heima þá hefðu menn ekkert
haft á móti því að vera ofar.“
Gull með súr-
bragð í munni
EINAR Karl Hjartarson, Íslands-
methafi í hástökki, stökk 2,16 m og
varð í 3. sæti á háskólamóti í Fayette-
ville í Arkansas um helgina. Þetta er
besti árangur Einars það sem af er
keppnistíð bandarísku háskólamót-
anna sem hófst um miðjan janúar.
DAVÍÐ Þór Viðarsson, knatt-
spyrnumaður úr FH, verður við æf-
ingar og keppni með norska knatt-
spyrnuliðinu Viking á La Manga á
Spáni 16. febrúar til 2. mars. Davíð
Þór er 18 ára gamall og hefur verið
undir smásjánni hjá Viking og fleiri
erlendum liðum um nokkurt skeið.
BENNY Lennhartsson, þjálfari
Viking, segir í viðtalið við norska
blaðið Aftenbladet í gær að hann vilji
skoða Davíð í ferðinni á La Manga og
meta hvort hann sé leikmaður sem
Viking hafi áhuga á að fá í sínar raðir.
Fyrir hjá liðinu er Hannes Þ. Sig-
urðsson sem félagið keypti frá FH-
ingum í vetur.
SÆVARI Guðjónssyni, varnar-
manni í úrvalsdeildarliði Fram í
knattspyrnu, hefur snúist hugur og
ætlar leikmaðurinn að vera með Safa-
mýrarliðinu í sumar. Sævar hafði
tekið ákvörðun um að hætta en hann
er 30 ára gamall og lék alla leiki Fram
í fyrra.
ÞRÓTTUR Reykjavík mun ekki
senda lið til keppni í efstu deild
kvenna í sumar en Þróttarkonur
unnu sér keppnisréttinn í efstu deild
síðastliðið haust.
Í bréfi sem Þróttur sendi KSÍ í gær
kemur fram meðal annars: „Stjórn
Þróttar telur það ekki tímabært að
tefla fram liði félagsins í keppni með-
al hinna sterkustu. Leikmannahópur-
inn er ekki nægilega stór til að takast
á við verkefnið. Þróttur hefur ekki
fjárhagslega burði til að leita út fyrir
landsteinana eftir leikmönnum og illa
hefur gengið að fá til liðs við Þrótt eða
að láni leikmenn úr öðrum félögum.“
TÓMAS Holton, körfuknattleiks-
maður, varð í gær deildarmeistari
með norska liðinu Osló Kings. Tómas
og félagar standa því vel að vígi fyrir
úrslitakeppnina en liðið hefur titil að
verja. Tómas hefur leikið í um 10
mínútur í leik og skorað að meðaltali
um fjögur stig í leik.
ARNAR Grétarsson fékk að líta
rauða spjaldið í fyrri undanúrslitaleik
Lokeren og Club Brügge í belgísku
bikarkeppninni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Arnar fékk reisupassann á 43.
mínútu og Lokeren tapaði, 3:0.
JURGEN Ruber var í gær vikið úr
starfi þjálfara hjá þýska úrvalsdeild-
arliðinu Herthu Berlin, liði Eyjólfs
Sverrissonar. Ruber átti að hætta í
vor og var þegar búið að ganga frá
ráðningu Huub Stevens, þjálfara
Schalke, í starfið. Herthu hefur
gengið illa upp á síðkastið og tapleik-
urinn á móti Cottbus í fyrrakvöld
varð til þess að forráðamenn Herthu
ákváðu að láta Ruber fara.
DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Leeds, segist fagna þeim tíð-
indum að Alex Ferguson ætli að
halda áfram sem knattspyrnustjóri
Manchester United. „Ég tel það frá-
bært fyrir knattspyrnuna. Fólki líkar
vel við menn á borð við Ferguson og
Bobby Robson og ég átti alltaf erfitt
með að skilja hvers vegna Ferguson
vildi hætta því góða starfi sem hann
hefur gert á Old Trafford.
RIVALDO og Saviola tryggðu
Börsungum sigurinn á móti Real Soc-
iedad í spænsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gær. Barcelona sigraði, 2:0,
og komu bæði mörkin í síðari hálfleik.
NORSKI landsliðsmiðherjinn John
Carew skoraði fyrsta mark sitt á leik-
tíðinni fyrir Valencia þegar liðið sigr-
aði Alaves, 2:1. Valencia skaust á
toppinn þar sem Real Madrid tapaði
óvænt fyrir Valladolid. Valencia er
með 42 stig en Deportivo, Celta, Real
Madrid og Barcelona hafa öll 40 stig.
FÓLK
ÞÝSKI netmiðillinn sport1 hef-
ur valið sitt úrvalslið leik-
manna frá Evrópukeppninni í
handknattleik. Þar er Sigfús
Sigurðsson talinn vera línu-
maður mótsins og er tekinn
fram yfir Svíann, Magnus Wis-
landers, sem kjörinn var línu-
maður mótsins mótslok sl.
sunnudag. Íslendingar eiga tvo
leikmann í úrvalsliðið Þjóðverj-
anna. Lið sport1, hinn er eins í
fimm atriðum af sjö eins og það
lið sem valið var í lok keppn-
innar þ.e. Ólafur, Stefan Löw-
gren, Svíþjóð, Lars Christian-
sen, Danmörku, Daniel
Stephan, Þýskalandi og Peter
Gentzel frá Svíþjóð eru í liðinu.
Auk Wislanders fær Rússinn
Denis Krivoshlykov ekki náð
fyir augum blaðamanna sport1
sem telja að Svíinn Johann
Petterson hafi verið betri í
stöðu hægri hornamanns.
Sigfús
í stað
Wis-
landers
Læknar segja mér að í bestafalli verði ég þrjár vikur að
jafna mig á ný en í versta falli
gæti það tekið sex vikur,“ segir
Patrekur sem fékk högg á hnéð í
síðasta leik milliriðlanna gegn
Þjóðverjum.
„Ég fann ekkert fyrir þessu í
leiknum sjálfum, en fljótlega að
honum loknum varð ég var við að
ekki var allt með felldu. Með réttu
hefði ég aldrei átt að taka þátt í
leiknum við Svía í undanúrslitun-
um, en það skrifast á reikning
minn og Brynjólfs Jónssonar
læknis. Ég vildi gjarnan spila enda
við komnir í góða stöðu á mótinu.
En eftir á að hyggja hefði mátt
skoða þetta betur, það er bara
eitthvað sem við lærum af fyrir
framtíðina þegar meiðsli af þess-
um toga koma upp. Það er auðvelt
að vera vitur eftir á,“ sagði Pat-
rekur sem var einn allra besti leik-
maður íslenska landsliðsins á EM í
Svíþjóð.
Meiðsli Patreks eru áfall fyrir
Essen-liðið sem er í 4. sæti þýsku
deildarinnar og í harðri baráttu
um þýska meistaratitilinn og sæti í
Evrópukeppninni á næstu leiktíð.
Patrekur hefur verið jafnbesti og
jafnframt næstmarkahæsti leik-
maður liðsins á leiktíðinni. „Það
þýðir ekkert að velta sér of mikið
upp úr þessu öllu saman. Meiðsli
sem þessi geta tekið sig upp hve-
nær og hvar sem er,“ sagði Pat-
rekur og vonar hið besta. Sökum
meiðslanna er einnig óvíst hvort
Patrekur getur leikið með íslenska
landsliðinu á fjögurra landa móti í
Danmörku um miðjan næsta mán-
uð.
Morgunblaðið/Janne Andersson
Patrekur Jóhannesson í leik gegn Sviss á EM.
Patrekur
frá í þrjár til
sex vikur
PATREKUR Jóhannesson, landsliðsmaður í handknattleik, verður
frá keppni í þrjár til sex vikur eftir að í ljós kom að liðband á inn-
anverðu hægra hné er rifið. Þetta var staðfest í skoðun sem Patrek-
ur fór í hjá læknum þýska hadknattleiksliðsins Essen strax við
heimkomuna frá Evrópukeppninni í Svíþjóð á þriðjudag. „Þetta er
auðvitað áfall og menn hér hjá félaginu eru ekkert mjög hressir, en
við því er ekkert að gera,“ sagði Patrekur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
MIKLAR umræður hafa átt sér stað innan raða handknattleiks-
áhugamanna og annarra vegna marks sem Þjóðverjar skoruðu á
síðustu sekúndu venjulegs leiktíma í úrslitaleiknum við Svía á Evr-
ópumeistaramótinu um síðustu helgi. Staffan Olsson hafði þá jafn-
að metin, 26:26, þegar sjö sekúndur voru eftir af leiknum. Þjóð-
verjar hófu leikinn strax og Florian Kehrman skaut frá eigin
vallarhelmingi og í autt mark Svía, þar sem Peter Gentzel var kom-
inn af leikvelli í skiptum fyrir útileikmann. Mark Kehrmans var ekki
tekið með í reikninginn og leikurinn framlengdur og í henni sigruðu
Svíar örugglega, 33:31.
Eftir
Ívar
Benediktsson