Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 2
Arnar Grétarsson
ARNAR Grétarsson tryggði
Lokeren sigurinn gegn Lommel í
belgísku 1. deildinni í knatt-
spyrnu um helgina. Lokeren sigr-
aði Lommel, 1:0, og skoraði Arn-
ar sigurmarkið úr vítaspyrnu
skömmu fyrir leikslok. Arnar
fékk tækifæri á að bæta öðru
marki við skömmu síðar þegar
Lokeren fékk dæmda vítaspyrnu
en markvörður Lommel sá við
Arnari og varði skot hans.
Arnar Þór Viðarsson og Auðun
Helgason þóttu leika best í liði
Lokeren en þeir léku allan leik-
inn sem og Rúnar Kristinsson og
Arnar Grétarsson.
Arnar
tryggði
Lokeren
sigur
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ég valdi að heimsækja GriffinPark, gamalgróinn leikvang í
suðvesturhluta London, aðþrengdan
af íbúðabyggð; svo
mjög að garðar
húsanna aftan við að-
alstúkuna eru í góðu
skjóli frá henni. Þar
fylgdist ég með Brentford taka á
móti Bournemouth í 2. deild. Því mið-
ur fékk ég aðeins að sjá helminginn af
Íslendingunum sem leika með því
ágæta félagi; Ólafur Gottskálksson
stóð ekki í markinu vegna meiðsla.
Hann var í staðinn leiðsögumaður
minn á vellinum og við horfðum á Ív-
ar Ingimarsson standa vel fyrir sínu í
vörn Brentford sem vann mikilvæg-
an sigur, 1:0. Ólafur var í nýju hlut-
verki, í fyrsta skipti frá því hann kom
til Brentford sumarið 2000 var hann á
meðal áhorfenda á heimaleik, og eftir
flakk okkar um svæðið, fyrir leik, í
hálfleik og eftir leik, var hann margs
vísari um starfsemina hjá sínu félagi.
Ólafur er í tvísýnni stöðu hjá
Brentford þessa dagana. Hann er
einn launahæsti leikmaður félagsins
og eigandinn, sem er í miklum nið-
urskurðarhugleiðingum, vill losna við
hann af launaskránni. Ólafur samdi
við hann í síðustu viku um að fá
frjálsa sölu frá Brentford en gæti þó
hæglega dvalið þar áfram út samn-
ingstímann, til vorsins 2003. Og mið-
að við viðbrögðin á Griffin Park yrðu
margir ánægðir ef markvörðurinn
sterklegi frá Keflavík yrði um kyrrt.
Hann átti erfitt með að komast um
áhorfendasvæðin, alls staðar voru
stuðningsmenn Brentford að kalla í
hann, koma og taka í höndina á hon-
um, spyrja hann hvað væri eiginlega
að gerast, og láta í ljósi einlægar ósk-
ir um að fá að njóta áfram krafta
hans.
Vinsældir Ólafs hjá félaginu eru
augljósar en hvort þær nægja til að
halda honum þar er önnur saga.
Ívar sinnti sínu vanalega hlutverki
í vörn Brentford. Þar var hann sterk-
ur og öruggur enda hefur hann verið
lykilmaður í liðinu í vetur, spilað
hverja einustu mínútu í hverjum ein-
asta leik og átt drjúgan þátt í nokkuð
óvæntri velgengni þess. Brentford,
sem hefur aðeins leikið eitt tímabil í
næstefstu deild á undanförnum 48 ár-
um, tímabilið 1992-93, á enn mögu-
leika á að komast þangað en á í harðri
keppni við Íslendinganýlenduna í
Stoke, ásamt Reading, Brighton,
Bristol City, Huddersfield og fleiri
ágætum liðum. Meginhlutinn af sjö
þúsund áhorfendum fagnaði sigrin-
um vel og innilega, nokkur hundruð
þeirra voru reyndar á bandi Bourne-
mouth og voru háværir og vel með á
nótunum, allt þar til Lloyd nokkur
Owusu skoraði sigurmark Brentford
7 mínútum fyrir leikslok. Þá var Ólaf-
ur flúinn úr stúkunni vegna kulda, og
niður í klúbbherbergi ársmiðahafa,
eftir að hafa uppgötvað í hálfleik að
hægt var að sjá leikinn þar í innan-
hússsjónvarpskerfi! Við Hrefna, unn-
usta Ívars, þraukuðum meðal hinna
óbreyttu og sáum sigurmarkið og
leikinn til enda. Allir höguðu sér vel,
engin ólæti meðal áhorfenda, enda
segja þeir Ólafur og Ívar að slíkt sé
afar fátítt hjá Brentford, en geti fylgt
einstaka aðkomuliði sem þangað
komi í heimsókn.
„Þetta var ekki okkar besti leikur
en sigurinn er kærkominn og við er-
um áfram í baráttunni,“ sagði Steve
Coppell, fyrrverandi dýrlingur hjá
Manchester United og enskur lands-
liðsmaður, sem nú stýrir liði Brent-
ford styrkri hendi, þegar Morgun-
blaðið spjallaði við hann eftir leikinn.
Coppell hrósaði mjög þeim Íslend-
ingum sem hann hefur haft afskipti
af. „Ég fékk Hermann Hreiðarsson
til Crystal Palace á sínum tíma og
hann reyndist mér frábærlega.
Sterkur persónuleiki, heilsteyptur og
áreiðanlegur piltur. Ég trúi því ekki
að hann hafi verið í vörn Ipswich
gegn Liverpool í dag! Landar hans
tveir, Ólafur og Ívar, hafa ekki reynst
mér síður, og eins og Hermann hafa
þeir lagað sig geysilega vel að ensku
knattspyrnunni og þeirri menningu
sem henni fylgir. Ég myndi glaður
taka við fleiri slíkum leikmönnum frá
Íslandi,“ sagði þessi geðþekki knatt-
spyrnustjóri sem hefur unnið vel úr
málum hjá Brentford í vetur, og gjör-
breytt öllum vinnubrögðum við þjálf-
un og uppbyggingu liðsins.
Í heimsókn hjá enska
knattspyrnufélaginu Brentford
Steve Coppell, knattspyrnustjóri Brentford,
er afar ánægður með frammistöðu Íslending-
anna hjá félaginu. Ívar Ingimarsson, til vinstri,
og Ólafur Gottskálksson, til hægri, hafa verið
lykilmenn í liði hans.
ÉG var á réttum stað í London á laugardaginn. Sem betur fór ákvað ég að sleppa því
að heimsækja Hermann Hreiðarsson til Ipswich. Þá hefði ég þurft að horfa á hann
þola mikinn skell gegn Liverpool. Ég fór ekki heldur til að fylgjast með Eiði Smára
Guðjohnsen með Chelsea í barningsjafntefli gegn Aston Villa í Birmingham-borg,
enda hafði ég séð til hans í sigurleik gegn West Ham í vikunni. Ekki freistaði mín að
fara á White Hart Lane og fylgjast með botnliði Leicester tapa fyrir Tottenham, enda
vissi ég að Arnar Gunnlaugsson myndi ekki taka þátt í þeim slag.
„Tæki glaður
við fleiri Ís-
lendingum“
Víðir
Sigurðsson
skrifar frá
London
RÚSSNESKA stangastökkskonan
Svetlana Feofanova setti á sunnu-
daginn heimsmet í greininni þegar
hún vippaði sér yfir 4,73 metra á
frjálsíþróttamóti sem fram fer í inn-
anhússhöll í Gent í Belgíu. Bætti hún
eigið heimsmet um einn sentímetra.
Þetta er í þriðja sinn á átta dögum
sem Feofanova bætir metið en hin
21 árs gamla Feofanova setti einnig
met 3. febrúar í Stuttgart og bætti
um betur í Globen í Svíþjóð nokkr-
um dögum síðar. Fyrir vikið fékk
Feofanova 4,5 mill. ísl. kr. í sinn
hlut. Stacy Dragila, sem er heims
-og ólympíumeistari í greininni frá
Bandaríkjunum, varð að hætta
keppni vegna veikinda.
Á sama móti náði Mark Bett frá
Kenýa besta tíma sögunnar í 10.000
metra hlaupi er hann kom í mark á
27.50,29 mínútum og bætti hann
gamla metið um 21 sek. Metið fæst
ekki viðurkennt sem opinbert
heimsmet þar sem hætt var að skrá
met í greininni árið 1987 þar sem
svo sjaldan er keppt í innandyra í
10.000 metra hlaupi. Belginn Emiel
Puttemans átti gamla metið sem sett
var fyrir 27 árum.
Reuters
Svetlana Feofanova fagnar
heimsmeti sínu.
NÁLGAST FIMM METRANA
Þriðja heimsmet-
ið hjá Feofanovu
FRAMARAR hafa sagt upp samn-
ingi sínum við handknattleiks-
manninn Israel Duranona frá Kúbu
og það án þess að hann hafi nokkru
sinni leikið fyrir félagið. Að sögn
Heimis Ríkharðssonar, þjálfara
Fram, stóð Duranona ekki undir
væntingum þegar til átti að taka.
Hann kom til Fram í haust og var
þá ekki í mikilli æfingu. Eigi að síð-
ur var ákveðið að gera samning við
Duranona í von um að með tím-
anum myndi rætast úr enda vantaði
og vantar enn Fram mjög sárlega
rétthenta skyttu. Duranona hafði
ekki leikið handknattleik í á annað
ár og vonir stóðu til þess að þegar
hann kæmist í æfingu yrði að hon-
um liðsstyrkur. Af því varð ekki og
því var ákveðið að lifa ekki í von-
inni lengur heldur segja upp samn-
ingnum við hann enda þótti full-
reynt að hann næði sér á strik.
Hvað tekur við hjá Duranona er
óákveðið, en hann er sem kunnugt
er yngri bróðir Róbert Julians
Duranona, landsliðsmanns og leik-
manns Nettelstedt í Þýskalandi.
VAR EKKI Í ÆFINGU
Duranona
er hættur
FYLKISMENN höfnuðu um
helgina öðru tilboði frá norska
úrvalsdeildarliðinu Molde í Ólaf
Stígsson. „Við fengum í hend-
urnar nýtt tilboð í Ólaf um
helgina en og eins og í fyrra
skiptið var því hafnað. Þetta til-
boð var örlítið betra en það fyrra
en samt sem áður finnst okkur
Norðmennirnir ekki tilbúnir að
greiða sanngjarnt verð fyrir leik-
manninn. Á meðan svo er þá er-
um við ekki tilbúnir að láta hann
fara frá okkur,“ sagði Kjartan
Daníelsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Fylkis, við Morg-
unblaðið í gær.
Fylkismenn fengu nýjan liðs-
mann í sínar raðir fyrir helgina.
Jakob Hallgeirsson skipti úr
Skallagrími í Fylki. Hann er 27
ára gamall varnarmaður sem
leikið hefur með Borgnesingum
lengst af, en einnig með ÍR, og á
að baki 14 leiki í efstu deild – með
Skallagrími árið 1997.
Fylkir hafn-
aði Molde
öðru sinni
EGGERT Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
sagði í setningarræðu sinni á 56.
árþingi Knattspyrnusambands Ís-
lands, að Íslendingar hefðu lent í
draumariðli í undankeppni Evr-
ópukeppni landsliða, sem fer fram
í Portúgal 2004. Ísland leikur í
riðli með Þýskalandi, Skotlandi,
Litháen og Færeyingum.
„Þetta kemst nálægt því að
vera draumariðill fyrir okkur frá
öllum sjónarhornum. Ég tel að nú
þegar sé ljóst að við verðum í
miklum vandræðum í heimaleikj-
unum á móti bæði Þýskalandi og
Skotlandi, þar sem mun færri fá
miða en vilja. Þessi staðreynd
mun setja enn meiri pressu á KSÍ,
borgaryfirvöld og ríkið, að finna
lausn á að fullbyggja Laugardals-
völlinn þannig að þar verði pláss
fyrir tólf til fimmtán þúsund
áhorfendur í sæti,“ sagði Eggert.
Laugardalsvöllurinn tekur nú
rúmlega 7 þús. áhorfendur. Þjóð-
verjar hafa tvisvar komið hingað
með sitt sterkasta landslið og þá
voru ekki komnar reglur um að
aðeins er hægt að selja í sæti á
kappleikjum. Þegar Þjóðverjar
léku hér 1960, komu 11 þús. áhorf-
endur til að sjá Uwe Seeler og
samherja leika listir sínar, 5:0.
8.280 sáu Þjóðverja leggja Íslend-
inga á Laugardalsvellinum 1979.
Vilja fullbyggja
Laugardalsvöllinn