Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA
4 B ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ARNAR Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Leicester sem tapaði
enn einum leiknum í ensku úrvals-
deildinni. Leicester tapaði fyrir
Tottenham og virðist á hraðri leið
niður í 1. deild.
ÞÓRÐUR Guðjónsson lék sinn
fyrsta alvöruleik frá því í maí á síð-
asta ári. Þórður lék sinn fyrsta leik
fyrir Preston sem tapaði fyrir topp-
liði Manchester City í 1. deildinni.
Þórði var skipt inná á 71. mínútu.
LÁRUS Orri Sigurðsson var
traustur í vörn WBA sem sigraði
Norwich á heimavelli, 1:0. Lárus lék
allan tímann og hann kom í veg fyrir
að Norwich skoraði þegar hann
bjargaði ævintýralega af línunni.
HEIÐAR Helguson tók út leik-
bann í liði Watford sem lagði
Grimsby að velli, 2:0.
HELGI Valur Daníelsson sat á
varamannabekk Peterborough allan
tímann í 2:2 jafnteflisleik á móti
Blackpool í 2. deildinni.
ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Man.Utd., hefur látið í veðri
vaka að hann vilji fá Steve Mc-
Claren, stjóra Middlesbrough, til að
starfa við hlið sér á ný en Ferguson
hefur ákveðið að halda starfi sínu
áfram á Old Trafford næstu 3 árin.
FABIEN Barthez var ekki í leik-
mannahópi United í leiknum við
Charlton á sunnudaginn. Roy Caroll
tók stöðu Frakkans en hvorki hann
né forráðamenn United sögðu
ástæðu þess að Barthez fékk frí væri
sú að Barthez var sektaður á dög-
unum fyrir að hanga á öldurhúsi
langt fram á nótt tveimur dögum fyr-
ir leik sinna manna.
SVÍINN Henrik Larsson skoraði
enn eina þrennuna í skosku úrvals-
deildinni þegar Celtic burstaði Dun-
fermline, 5:0. Larsson skoraði
þrennuna í fyrri hálfleik en Celtic
hafði yfirhöndina í hálfleik, 4:0.
JÓHANNES Harðarson var ekki í
leikmannahópi Groningen sem tap-
aði 1:0 á heimavelli fyrir Feyenoord í
hollensku úrvalsdeildinni.
HANNES Þ. Sigurðsson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir norska liðið
Viking. Hannes, sem gekk í raðir
Vikings frá FH í haust, skoraði fyrra
mark sinna manna í 2:2 jafnteflisleik
á móti Vidar.
KAMERÚN varð Afríkumeistari í
knattspyrnu í fjórða sinn þegar liðið
sigraði Senegal í úrslitaleik keppn-
innar. Staðan eftir venjulegan leik-
tíma og framlengingu var jöfn, 0:0,
en Kamerúnar voru betri af víta-
punktinum og unnu í vítaspyrnu-
keppninni, 3:2.
JUAN Sebastian Veron, argent-
ínski miðjumaðurinn í liði Manchest-
er United, vísar þeim fréttum á bug
þess efnis að hann ætli að yfirgefa
herbúðir United og ganga í raðir
Lazio á nýjan leik. „Ég er á samningi
hjá United og það hefur aldrei staðið
til að rifta honum. Ég var staddur í
Róm á dögunum til að láta líta á hnéð
og ég heimsótti félaga mína og landa
í liði Lazio í leiðinni,“ segir Veron.
ROMA og Juventus skildu jöfn í
frekar tilþrifalitlum leik í toppslag
ítölsku knattspyrnunnar um helgina.
Rómverjar halda efsta sætinu þar
sem Inter tapaði óvænt fyrir Bol-
ogna, 2:1. Clarence Seedorf skoraði
mark Inter á lokamínútum leiksins.
JUVENTUS varð fyrir áfalli í fyrri
hálfleik þegar varnarmanninum
Mark Iuliano var vikið af leikvelli.
Þar með lögðust liðsmenn Juventus í
vörn og náðu að hanga á jafnteflinu.
AC Milan er í sjötta sæti, 11 stig-
um á eftir toppliði Roma, en Milan
varð að láta sér lynda jafntefli á
heimavelli á móti Perugia. Serginho
skoraði mark AC Milan úr víti.
PÓLVERJAR sigruðu Færeyinga,
2:1, í vináttulandsleik sem fram fór á
Kýpur um helgina. Pólverjar tefldu
fram varaliði sínu en engu að síður
stóðu Færeyingar sig vel en þeir eru
sem kunnugt er með Íslendingum í
riðli í undankeppni EM.
FÓLK
„ÉG varð fyrir gífurlegum von-
brigðum með leik liðsins því við
vorum að leika illa frá fyrstu mín-
útu til hinnar síðustu. Engum finnst
gaman að tapa svona grannaslag,
hvorki leikmönnum, þjálfurum né
stuðningsmönnum,“ sagði Guðjón
Þórðarson, knattspyrnustjóri
Stoke, eftir ósigur sinna manna á
móti Port Vale í ensku 2. deildinni
en rúmlega 24.000 áhorfendur
fylgdust með grannaslagnum á
Britannia-leikvanginum. Stoke
heldur samt þriðja sætinu. Liðið er
með 57 stig, Brighton er í öðru með
58 stig en hefur leikið tveimur leikj-
um færra en Reading trónir á
toppnum með 65 stig.
„Ég get vel skilið gremju stuðn-
ingsmanna okkar því leikurinn við
Port Vale er einn lélagsti leikur
liðsins á tímabilinu. En strákarnir
þurfa á stuðningi að halda og ég
vona að stuðningsmenn okkar snúi
ekki baki við liðinu,“ sagði Guðjón
ennfremur.
Bjarni Guðjónsson lék allan leik-
inn, Stefán Þór Þórðarson kom
inná fyrir Ríkharð Daðason á 61.
mínútu en hvorki Brynjar Björn
Gunnarsson né Pétur Marteinsson
gátu verið með vegna meiðsla.
Guðjón vonsvikinn
Við erum mjög ánægðir með sig-urinn og ekki síst að hafa haldið
marki okkar hreinu. Þetta var erf-
iður leikur því þeir voru með marga
menn inni í teignum og spiluðu mikið
með löngum sendingum sem setti
okkur oft undir pressu í síðari hálf-
leik. Það er ekki spurning að sú
ákvörðun Fergusons að vera áfram
við stjórnvölinn gaf okkur byr undir
báða vængi og þetta á eftir að hjálpa
liðinu mikið á lokasprettinum,“ sagði
Ole Gunnar Solskjær, framherji
Manchester United, sem skoraði
bæði mörk sinna manna í 2:0 sigri
liðsins á móti Charlton og skaut þeim
á toppinn að nýju en sólarhringnum
áður hafði Liverpool og Newcastle
tekist að komast upp fyrir meistar-
anna.
Solskjær skoraði fyrra markið 12
mínútum fyrir leikhlé með góðu skoti
eftir frábæra sendingu Roy Keane
og Norðmaðurinn innsiglaði svo sig-
ur sinna manna þegar hann skoraði
12. mark sitt í deildinni stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok þegar hann skor-
aði af stuttu fær. Sigur United var sá
11. í síðustu tólf leikjum.
Flugeldasýning hjá Liverpool
Liverpool gaf það sterklega til
kynna að það ætlar að berjast til
þrautar um titilinn. Liverpool sótti
Ipswich heim á Portman Road og
óhætt er að segja að það hafi verið
leikur kattarins að músinni. Liver-
pool setti á svið mikla flugeldasýn-
ingu og áður en yfir lauk hafði „Rauði
herinn“ skorað sex mörk gegn engu
heimamanna. Michael Owen og
Emile Heskey skoruðu tvö mörk
hvor og hin tvö mörkin skoruðu varn-
armennirnir Sami Hyypia og Abel
Xavier en hann var að leika sinn
fyrsta leik fyrir Liverpool. Fjórir
sigrar í röð hjá Liverpool og 10:0 í
síðustu tveimur leikjunum hafa kætt
Phil Thompson, aðstoðarstjóra Liv-
erpool, og hann var ánægður með
leik sinna manna.
„Þetta er besti leikur liðsins undir
minni stjórn og langt síðan ég hef séð
strákana spila eins vel. Þeir sýndu
stórkostleg tilþrif. Afgreiðslan á
mörkunum var til fyrirmyndar og þá
hungraði mikið í að vinna leikinn,“
sagði Thompson.
„Við megum bara þakka fyrir að
hafa ekki fengið verri útreið. Liver-
pool óð í færum allan tímann og það
var engu líkara en að menn væru að
kljást við drengi inni á vellinum. Við
vorum í hlutverki drengjanna og
leikmenn Liverpool hreinlega völt-
uðu yfir okkur,“ sagði George Burl-
ey, stjóri Ipswich, en fyrir leikinn
höfðu hans menn unnið sjö af átta
leikjum sínum. Hermann Hreiðars-
son lék allan tímann í liði Ipswich en
náði sér ekki á strik frekar en aðrir
liðsmenn „Traktoranna“.
Heppnismark hjá Wiltord
Frakkinn Sylvain Wiltord var
hetja Arsenal á Goodison Park en
hann skoraði eina mark leiksins um
miðjan síðari hálfleik. Heppnisstimp-
ill var á marki Frakkans. Hann hitti
knöttinn illa en engu að síður skrúf-
aðist boltinn yfir markvörð Everton
og í netið fór hann. Arsenal er því
enn eina liðið í úrvalsdeildinni sem
ekki hefur tapað útileik á leiktíðinni.
„Þetta var geysilega mikilvægur
sigur. Við máttum alls ekki við því að
tapa stigum eftir úrslitin hjá hinum
toppleikjunum. Þetta var kannski
ekki besti leikurinn sem við höfum
spilað í vetur en það var jákvætt að
halda markinu,“ sagði varnarjaxlinn
Lee Dixon, sem kom inn í vörn Ars-
enal snemma leiks í stað Matthews
Upsons, og var kjörinn maður leiks-
ins á Sky-sjónvarpsstöðinni.
2 stig í fimm leikjum hjá Leeds
Leeds er hægt og bítandi að gefa
eftir í toppbaráttunni og eftir 2:2
jafntefli á móti Middlesbrough verð-
ur að telja harla ólíklegt að læri-
sveinar Davids O’Learys nái að landa
titlinum en Leeds hefur aðeins inn-
byrt 2 stig í síðustu fimm leikjum.
„Við köstuðum frá okkur sigri því
enn og aftur fengum við á okkur
mark úr föstu leikatriði. Við lékum
vel fyrsta hálftímann en eftir það
hleyptum við Boro inn í leikinn og
lékum illa það sem eftir lifði leiks. Ég
held að við komumst varla neðar,“
sagði O’Leary.
Chelsea missti af tveimur mikil-
vægum stigum þegar liðið gerði 1:1
jafntefli á móti Aston Villa á Villa
Park. Eiður Smári Guðjohnsen var í
byrjunarliði Chelsea og fékk besta
færi liðsins í fyrri hálfleik en honum
brást bogalistin. Eiði var skipt útaf á
63. mínútu fyrir Finnann Mikael
Forsell en Frank Lampard skoraði
eina mark Lundúnaliðsins. Leikur
liðanna þótt mjög slakur og ekki
bætti úr skák að völlurinn var mjög
erfiður viðureignar.
„Mér fannst við eiga sigurinn skil-
inn en því miður náðum við ekki að
nýta nokkur góð færi sem við sköp-
uðum okkur,“ sagði Claudio Ranieri,
knattspyrnustjóri Chelsea.
Langþráður sigur hjá Guðna
Guðni Bergsson og félagar hans í
Bolton fögnuðu langþráðum sigri en í
fyrsta skipti í 13 leikjum tókst þeim
að krækja í þrjú stig. Bolton bar sig-
urorð af West Ham og skoraði Ric-
ardo Gardner eina mark leiksins.
Guðni lék allan tímann í hjarta varn-
arinnar og átti mjög góðan leik.
Strákarnir hans Bobby Robsons í
Newcastle eru greinilega tilbúnir að
berjast í toppbaráttunni til þrautar
en þeir röndóttu lögðu Southampton,
3:1, þar sem Alan Shearer skoraði
tvívegis og hann er því kominn með
19 mörk á leiktíðinni.
„Við skoruðum þrjú mörk í fyrri
hálfleik en samt sem áður fannst mér
við ekki vera að leika neitt sérstak-
lega vel. Í þeim síðari sýndi liðið frá-
bær tilþrif og ég efast stórlega um að
við getum leikið betur en það eina
sem vantaði til að fullkomna frammi-
stöðuna voru mörkin,“ sagði Bobby
Robson eftir sigur sinna manna.
AP
Ole Gunnar Solskjær skorar sitt annað mark gegn Charlton, án þess að Chris Powell komi vörnum við.
Liverpool með sýn-
ingu á Portman Road
TOPPLIÐIN í ensku úrvalsdeildinni áttu góðu gengi að fagna um
helgina. Manchester United, Liverpool, Arsenal og Newcastle náðu
öll í þrjú dýrmæt stig og slagurinn um titilinn virðist því ætla að
standa á milli þessara fjögurra liða. United hefur tveggja stiga for-
skot Liverpool og Newcastle og stigi þar á eftir er Arsenal. Leeds og
Chelsea urðu að láta sér lynda jafntefli og þar með dvínuðu mjög
möguleikar þeirra á að blanda sér í toppbaráttuna.