Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 8
KÖRFUKNATTLEIKUR
8 B ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.icelandair.is
Komdu með SÝN og Icelandair á
Verð aðeins
52.800 kr.*
Síðustu söludagar.
Tryggðu þér sæti!
Minnesota
Timberwolves
og Utah Jazz
15. - 18. mars
Pantaðu í síma:
50 50 700 * Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og þjónustugjöld, miði á leikinn og rúta til og frá flugvelli.
KR-ingar hófu leikinn á Sauðár-króki með glæsilegri flugelda-
sýningu, þriggja stig skota, því að á
fyrstu tveim mínút-
unum höfðu þeir
skorað tólf stig í fjór-
um sóknum, og
höfðu ekki fyrir því
að reyna að komast inn í teig heima-
manna og voru þarna á ferðinni Jón
Arnór með tvær, Arnar með eina og
Helgi Már með eina.
Heimamenn létu þetta þó ekki slá
sig út af laginu og létu boltann ganga
vel á milli sín og léku sterka vörn og
smám saman söxuðu þeir niður for-
skot gestanna og eftir níu mínútur
höfðu þeir jafnað og þannig var stað-
an eftir fyrsta leikhluta, 22:22.
Í öðrum hlutanum tóku heima-
menn forystuna, leikurinn var mjög
hraður og mikil barátta en sjaldan
var nema tvö til fjögur stig sem
skildu á milli. Þegar fjórar mínútur
voru til leikhlés komust KR-ingar yf-
ir með fallegri þriggja stig körfu frá
Herberti Arnarsyni, og síðan bættu
þeir í sóknina og náðu sex stiga for-
ystu, en Tindastólsmenn náðu með
harðfylgi að jafna og aftur var jafnt,
41:41 í leikhléi.
Í síðari hálfleik komu Tindastóls-
menn ákveðnir til leiks, og tóku strax
frumkvæðið í sínar hendur, léku fast
og vörnin var sterk með Antropov
sem besta mann bæði í sókn og vörn,
og náðu heimamenn að skapa sér níu
stiga forskot, en nú voru það gest-
irnir sem bitu í skjaldarrendur og á
síðustu sekúndu leikhlutans náðu
þeir að komast yfir 60:62.
Ljóst var að í síðasta leikhluta yrði
allt lagt undir, enda fór það svo að
allt var á suðupunkti.
Helgi Freyr kom heimamönnum
yfir strax í upphafi leikhlutans með
þriggja stig körfu en gestirnir voru
ekki á því að gefa neitt eftir og allan
leikhlutann skiptust liðin á að hafa
frumkvæðið.
Þegar fjörutíu og ein sekúnda var
eftir var staðan 72:74, og Tindastóls-
menn í sókn, misskilningur var á
milli Antropovs og Spillers og gest-
irnir náðu að verja skotið, og náðu
boltanum og brunuðu í sóknina og
leituðu mjög að Jóni sem greinilega
átti að ljúka leiknum.
Heimamenn brutu á honum, en
bæði vítaskot Jóns geiguðu. Hins
vegar náðu gestirnir frákastinu og
aftur var brotið á Jóni og nú rataði
annað skotið rétta leið og sekúnd-
urnar runnu út án þess að heima-
menn fengju rönd við reist.
Í liði heimamanna áttu þeir Antro-
pov, Spillers og Pomonis allir ágæt-
an dag, þó sérstaklega hinn fyrst-
nefndi sem skoraði grimmt en var
einnig firnasterkur í vörninni. Helgi
Freyr og Lárus Dagur börðust einn-
ig vel og áttu góðar innkomur. Hins
vegar fann Kristinn Friðriksson sig
alls ekki í þessum leik og munar
Tindastólsmenn um minna.
Í liði KR var Jón Arnór yfirburða-
maður en einnig áttu Herbert og
Helgi Már ágætan dag.
Létt hjá Keflavík
Það var ekki mikil spenna í leikKeflvíkinga og Skallagríms í
Keflavík á sunnudagskvöldið, get-
umunur liðanna var
of mikill til þess. Svo
virtist sem Skalla-
grímur hefði fyrir-
fram ákveðið að leik-
urinn myndi tapast og lítil leikgleði
var sjáanleg á leikmönnum liðsins.
Keflavík sigraði örugglega, 128:92,
og hafði 30 stiga forystu í hálfleik
73:43. Heimamenn tóku fljótlega öll
völd í leiknum og voru komnir strax
á upphafsmínútum í 18 stiga forskot
er gestirnir skoruðu aðeins tvö stig.
Eftir fyrsta leikhluta var augljóst að
Keflavík myndi sigra og það með
miklum mun svo það verður að telj-
ast virðingarvert fyrir þá 150 áhorf-
endur sem horfðu á leikinn að hafa
hreinlega afborið að horfa á það sem
eftir var af leiknum, nema þá aðeins
til að sjá leik kattarins að músinni.
Lið Skallagríms var heillum horfið
í leiknum og það getur þakkað Hlyni
Bæringssyni að munurinn varð ekki
enn meiri. Hlynur skoraði 34 stig,
meira en helmingi meira en sá leik-
maður sem næstur honum kom. Allir
tíu leikmenn Keflvíkinga léku í leikn-
um og öllum tókst að skora en Dam-
on Johnson þó mest, 28 stig.
Stórsigur Njarðvíkinga
Haukar sóttu ekki sigur í greiparNjarðvíkinga er liðin mættust
á sunnudagskvöldið í Njarðvík.
Heimamenn sigruðu
110:75 og voru yfir í
leikhléi 54:40. Njarð-
vík getur enn náð
öðru sæti deildarinn-
ar en Haukar þurfa að vinna ÍR í
lokaleik sínum til að komast í úrslita-
keppnina.
Jafnræði var með liðunum fyrstu
mínúturnar og skiptust liðin á að
hafa forustuna. Fljótlega tóku
heimamenn þó völdin í sínar hendur
og héldu forystunni allan leikinn.
Haukarnir sem léku án Guðmundar
Bragasonar eru þó þekktir baráttu-
jaxlar og gáfust ekki upp áreynslu-
laust og áttu góða spretti en Njarð-
víkingar voru sprækari og uppskáru
eftir því. Undir lok leiksins leyfði
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð-
víkinga, varamönnum liðsins að
spreyta sig og þeir sýndu góð tilþrif
og létu Haukana ekkert slá sig út af
laginu og juku forskot Njarðvíkinga
enn frekar. Besti maður vallarins
var Brenton Birmingham sem var
stigahæstur leikmanna með 27 stig
en auk hans var Njarðvíkingurinn
Páll Kristinsson atkvæðamikill skor-
aði 13 stig tók 15 fráköst. Kim Lewis
var stigahæstur Hauka með 17 stig
en Jón Arnar Ingvarsson kom næst-
ur honum með 14 stig.
Breiðablik í úrslitakeppnina
Breiðablik er á mikilli siglingu umþessar mundir, en á sunnu-
dagskvöldið vann liðið heldur óvænt
stóran sigur á Hamri
í Hveragerði, 77:95.
Eru Blikar nú
öruggir í úrslita-
keppnina, en það er í
fyrsta sinn sem liðið kemst svo langt.
Þeir eru nú í 6. sæti deildarinnar og
höfðu sætaskipti við Hamarsmenn.
„Þetta fór að snúast hjá okkur eft-
ir Tindastólsleikinn eftir áramótin.
Við töpuðum með 21 stigi en þá fór
fram ákveðin naflaskoðun og við at-
huguðum hvað við gætum gert bet-
ur. Eftir að við unnum ÍR fór boltinn
að rúlla og hann er ekki stoppaður
enn,“ sagði Eggert Garðarson, þjálf-
ari Breiðabliks, eftir leikinn.
„Þá vorum við búnir að fara yfir
leik Hamars og vissum að þeir eru
nokkuð villtir í sínum leik og taka
fyrsta opna skot sem býðst. Við vild-
um láta þá spila boltanum meira og
brjóta síðan leik þeirra niður,“ sagði
Eggert.
Hamarsmenn áttu lítið svar við
leik Breiðabliks í fjórða og síðasta
leikhlutanum á sunnudagskvöldið.
Leikurinn hafði fram að honum verið
nokkuð jafn, en gestirnir þó alltat
leitt. Eftir þriðja leikhluta var stað-
an 57:65 og heimamenn enn fyllilega
inn í leiknum. Í síðasta leikhlutanum
spiluðu Blikar mjög yfirvegað á með-
an Hamarsmenn voru oft á tíðum að
taka mjög ótímabær þriggja stiga
skot. Gestirnir bættu hægt og rólega
í og spiluðu oft á tíðum frábærlega
vel.
Í liði gestanna var Kenneth Rich-
ards besti maður en hann átti góðan
dag í sókn ásamt því að vera hrika-
legur undir körfunni. Pálmi F. Sig-
urgeirsson var heimamönnum óþæg-
ur ljár í þúfu og lét mikið til sín taka.
Hjá heimamönnum voru menn mis-
góðir en Skarphéðinn Ingason barð-
ist vel, sem og Svavar Birgisson. Þó
lentu lykilmenn í villuvandræðum og
gátu ekki látið til sín taka.
„Betra liðið vann, þeir komu til-
búnir í þetta en við ekki. Við hittum
illa og þeir spiluðu svæðisvörn, ef við
hittum ekki þá virkar svæðisvörnin,“
sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari
Hamars. „Við höfum ekkert að gera í
úrslitakeppni ef við vinnum ekki
næsta leik, gegn Stjörnunni, en við
höfum hins vegar nægjanlegt svig-
rúm til að bæta okkur,“ sagði Pétur.
ÍR-ingar sloppnir við fall
ÍR-ingar forðuðu sér endanlega fráfalli með 73:70 sigri á Þór frá Ak-
ureyri í 1. deild karla í körfuknatt-
leik, en leikur lið-
anna fór fram í
íþróttahúsi Selja-
skóla á sunnudags-
kvöld. Tapið batt aft-
ur á móti enda á vonir Þórsara um að
komast í úrslitakeppnina og þeir
verða að gæta sín í lokaumferðinni
því með óhagstæðum úrslitum þar
geta þeir fallið úr deildinni.
Það var ljóst allt frá byrjun að
leikurinn var afar þýðingarmikill
fyrir bæði lið. Heimamenn í ÍR byrj-
uðu af miklum krafti og náðu 11 stiga
forystu, 15:4 en norðanmenn gáfu
ekkert eftir og áttu frábæran leik-
kafla undir lok fyrsta leikhluta, skor-
uðu 12 stig í röð og komust yfir
15:16. Lokamínútan í leiknum var
æsispennandi. Þegar 49 sekúndur
voru til leiksloka höfðu Þórsarar yfir
69:70, höfðu boltann og gátu sama
sem tryggt sér sigurinn ef þeir hefðu
skorað. ÍR-ingar stálu af þeim bolt-
anum en skot Eiríks Önundarsonar
geigaði, enn fengu Þórsarar boltann
og aftur náðu ÍR-ingar að stela bolt-
anum af Þórsurum sem brugðu á það
ráð að brjóta á Eiríki Önundarsyni.
Sjálfsagt ekki besti maður til að
brjóta á undir þessum kringumstæð-
um og Eiríkur brást ekki félögum
sínum í ÍR, skoraði úr báðum víta-
skotunum þegar 10 sekúndur voru til
leiksloka og breytti stöðunni í 71:70.
Tíu sekúndur er langur tími í körfu-
knattleik en ÍR-ingar voru hreint
ótrúlega grimmir í vörninni og enn
og aftur náðu þeir að stela boltanum,
brotið var á Ólafi J. Sigurðssyni sem
skoraði úr báðum vítaskotum sínum
og tryggði ÍR-mikilvægan sigur.
Eiríkur Önundarson var besti
maður ÍR í þessum leik ásamt Sig-
urði Þorvaldssyni en hjá Þór var
Steve Johnson allt í öllu. Hann skor-
aði 30 stig og hirti 15 fráköst, 13 í
vörn og 2 í sókn, sannarlega frábær
leikmaður. Þá átti þjálfari Þórs
Hjörtur Harðarson einnig góðan
leik, sem og Óðinn Ásgeirsson.
Auðvelt hjá Grindavík
Það var áhugaleysi hjá heima-mönnum sem öðru fremur ein-
kenndi leik þeirra þegar gestirnir úr
Garðabænum komu í
heimsókn. Leiknum
lauk með sigri
heimamanna sem
skoruðu 109 stig
gegn 89 stigum Stjörnunnar.
Stjörnumenn voru inni í leiknum
fram í þriðja leikhluta, þá tóku
heimamenn við sér og sigu hægt og
örugglega fram úr. Leikurinn var
ekkert fyrir augað og ljóst að heima-
menn voru hér mættir til að taka tvö
stig en gestirnir sýndu enga tilburði
til að ná í þau tvö stig sem í boði voru.
Greinilegt var á leik gestanna að þá
vantar mann til að taka boltann upp
enda segja 24 tapaðir boltar alla sög-
una. Þá myndi ekki skemma fyrir ef
erlendi leikmaðurinn í liði gestanna
væri sterkari. Í liði gestanna voru
tveir ljósir punktar en það var ágæt-
ur leikur Eyjólfs Jónssonar sem spil-
aði mjög vel og þá átti Jón Ólafur
Jónsson frábæran leik. Jón Ólafur
spilaði rétt rúmlega hálfan leikinn og
setti 21 stig auk þess að spila fína
vörn. Hjá heimamönnum var erfitt
greinilega að ná upp einbeitingu
enda veikir andstæðingar á ferðinni.
Helgi Jónas Guðfinnsson og Tyson
Patterson voru bestir í liði þeirra.
KR-ingar
sterkari á loka-
sekúndunum
Morgunblaðið/Jim Samrt
Sigurður A. Þorvaldsson lék mjög vel með ÍR-liðinu gegn Þór
frá Akureyri og skoraði 17 stig í leiknum.
„VIÐ þurftum á þessum stigum að halda og ég er býsna ánægður
með strákana. Þeir héldu höfði allan tímann og létu það ekki á sig fá
þó að við værum undir í síðasta leikhluta. Það var mikil pressa á
strákunum, en þrátt fyrir að við klúðruðum fimm vítaskotum á loka-
mínútunum, vorum við einfaldlega sterkari – með Jón Arnór í lyk-
ilhlutverki,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, eftir sætan
sigur KR-inga á leikmönnum Tindastóls á Sauðárkróki í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, 75:72.
Björn
Björnsson
skrifar
Kristján
Jóhannsson
skrifar
Kristján
Jóhannsson
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Garðar Páll
Vignisson
skrifar