Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍSLENDINGAR Í ÚRSLITALEIKJUM EVRÓPUMÓTANNA / C4
FRAKKINN Joel Abati og Þjóðverjinn Steffan
Stiebler, fyrirliði handknattleiksliðs Magde-
burg, áttu báðir afmæli á fimmtudaginn, sum-
ardaginn fyrsta, sem Þjóðverjar halda raunar
ekki hátíðlegan enda sumarið löngu komið þar
á bæ. Abati varð 32 ára og fyrirliðinn 31 árs. Til
siðs er að afmælisbörnin komi með bjórkassa á
æfingu á afmælisdaginn sinn og á því varð eng-
in breyting á fimmtudaginn, en Abati, sem
smakkar ekki áfenga drykki, sagðist ekki hafa
viljað breyta út af venjunni og fékk sér einn
sopa. „Það var alveg nóg fyrir mig, síðan borð-
aði ég góðan mat með vinum mínum á heimili
mínu um kvöldið,“ sagði Abati. Hann og Stiebl-
er voru sammála um að halda sameiginlega upp
á daginn í Börderlandhallen í dag, með meira
en þriggja marka sigri á Fotex Veszprém og
þar með Evrópumeistaratitilinum.
Afmælisveisla
í Magdeburg
Við erum alls ekki hættir fyrstvið erum komnir þetta langt
og nú er bara að vinna úrslitaleik-
ina. Annað kemur
ekki til greina,“
sagði hinn sigursæli
þjálfari KA. Hann
var einstaklega
ánægður með strákana sína í þess-
um leik. „Við vorum í þeirri stöðu
að við urðum að vinna þennan leik.
Haukar eru ekki vanir að láta taka
sig í bólinu tvisvar í röð á heima-
velli og því var ekki um annað að
ræða en taka á öllu núna. Ég er
sérlega stoltur af strákunum fyrir
það að hafa aldrei bilað á taugum.
Þeir voru alltaf jafn yfirvegaðir,
hvort sem þeir voru tveimur mörk-
um undir eða fjórum mörkum yfir.
Það gildir að halda haus í leikjum
sem þessum og þeir notuðu kollinn
svo sannarlega,“ sagði Atli og
hrósaði liðsheildinni og baráttunni
í liðinu frá upphafi til enda.
Veturinn
nánast ónýtur
Einar Örn Jónsson, hornamað-
urinn snjalli í liði Hauka, sagði að
tapið hefði verið gríðarlegt áfall
fyrir liðið. „Já, veturinn er nánast
ónýtur. Við lögðum náttúrulega
upp með það að vinna heimaleikina
okkar og það má segja að seinni
hálfleikur í leiknum á miðvikudag-
inn hafi gert útslagið. Á þeim 30
mínútum eyðilögðum við fyrir okk-
ur alla 30 leikina í vetur.“ Hann
sagði að þótt Haukar hefðu sigrað
örugglega í deildinni hefði sá titill
aðeins verið áfangi því Íslands-
meistaratitillinn hefði verið mark-
miðið og um hann hefði öll vinnan
snúist. Einar Örn sagði að Haukar
myndu nú örugglega fara vel yfir
það sem hefði farið úrskeiðis.
„KA-menn eru vel að sigrinum
komnir. Þeir léku mjög vel í seinni
hálfleik á Ásvöllum og svo í þess-
um leik.
Þótt það sé sárt að tapa verðum
við að taka því eins og íþrótta-
menn og óska KA-mönnum til
hamingju með að vera komnir í úr-
slit,“ sagði Einar Örn Jónsson.
„Við erum alls ekki hættir“
KA gerði sér lítið fyrir og sló Íslands- og bikarmeistara Hauka út í
undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöld. KA
vann þá annan leik liðanna, 27:26, og einvígið því 2:0. Fráfarandi
þjálfari KA, Atli Hilmarsson, var í skýjunum í leikslok, umvafinn
glaðbeittum stuðningsmönnum. Hann jánkaði því að úr því KA-liðið
væri komið alla leið í úrslit kæmi ekki annað til greina en að hætta
með reisn og skila titli í hús.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Mikill fögnuður braust út í KA-heimilinu í leikslok í gærkvöld þegar í ljós kom að heimamenn
höfðu slegið Íslands- og bikarmeistara Hauka út og voru komnir í úrslit Íslandsmótsins.
Spurður um hvað lið hans þyrftihelst að gera til að ná að sigra,
sagði hann: „Við þurfum að stöðva
[Ólaf] Stefánsson og
Perunicic. Þeir
fengu allt of mikinn
frið í leiknum í Ung-
verjalandi. Raunar
var farið mun meira
út á móti Stefánssyni en hann er
gríðarlega útsjónarsamur og
skemmtilegur leikmaður, sem sá við
öllu sem við gerðum. Þó svo hann
hafi gert sex af níu mörkum sínum
af vítalínunni ber að hafa í huga að
flest vítaköstin komu eftir st́rbrotn-
ar línusendingar hans.
Ef okkur tekst að þétta vörnina
hjá okkur og fá um leið fleiri hraða-
upphlaup tel ég möguleika okkar á
að sigra í keppninni nokkra, svona
helmingslíkur,“ sagði Zovko.
Skrekkurinn úr mönnum
Zlatko Saracevic, hin fertuga
skytta ungverska liðsins, var nokk-
uð bjartsýnn á leikinn. „Fyrri leik-
urinn var fyrsti „stóri“ leikurinn hjá
mörgum í okkar liði og það sást –
menn voru mjög taugaveiklaðir. Nú
er það búið þannig að menn ættu að
geta leikið eðlilega hér í Magdeburg.
Skrekkurinn er úr mönnum og ég
er eiginlega sannfærður um að við
töpum ekki með þriggja marka mun.
Ef það tekst verðum við Evrópu-
meistarar og það er markmiðið með
ferð okkar hingað,“ sagði Saracevic,
fyrrverandi landsliðsmaður Króatíu
og Júgóslavíu, sem hefur oft verið
Íslendingum mjög erfiður.
Það eru margir sem muna eftir er
hann notaði „júgóslavneska bragð-
ið“ á Guðmund Þ. Guðmundsson
landsliðsþjálfara í landsleik í Laug-
ardalshöllinni um árið – tók um
ökkla Guðmundar er hann fór inn úr
horni, þannig að hann missti jafn-
vægið í loftinu og féll harkalega inn í
vítateig.
„Það er auðvitað mjög mikilvægt
fyrir félagið og einnig borgina að
sigra í Evrópukeppninni. Það vekur
aukinn áhuga bæði á íþróttinni sem
slíkri og eins á Magdeburg,“ sagði
Bernard Klebig, í almannatengsla-
deild Magdeburgarliðsins. „Ég held
að strákarnir eigi góða möguleika á
að vinna upp þennan tveggja marka
mun frá því í Ungverjalandi, ég vona
það í það minnsta,“ sagði Klebig.
Hann sagði að búið væri að skipu-
leggja mikil hátíðarhöld ef liðið næði
meistaratitlinum. „Þá verður tekið á
móti liðinu framan við Ráðhúsið. Þar
vorum við með fögnuð í fyrra þegar
liðið varð Þýskalandsmeistari.“
Verðum að
stöðva
Stefánsson
ZDRAVKO Zovko, hinn króatíski þjálfari Fotex Veszprém, sagði
skömmu fyrir æfingu í gær að úrslitaleikurinn við Magdeburg í
Meistaradeild Evrópu, sem fer fram í Magdeburg í dag, legðist
ágætlega í sig og sína menn. „Við spiluðum ekkert sérstaklega vel í
fyrri leiknum og teljum okkur eiga þó nokkuð inni fyrir síðari leik-
inn. Leikur okkar heima var einhverra hluta vegna mun hægari en
venjulega og í sókninni skorti allt hugmyndaflug. Mér þykir líklegt
að ég noti Jozef Eles, en ég notaði hann ekkert í fyrri leiknum. Hann
er klókur leikmaður, en því miður ekki mikill varnarmaður frekar en
Saracevic og ég vildi helst ekki skipta of mörgum leikmönnum á
milli sóknar og varnar,“ sagði Zovko við Morgunblaðið.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
Magdeburg
Þjálfari ungverska liðsins Veszprém
Stefán
Sæmundsson
skrifar
2002 LAUGARDAGUR 27. APRÍL BLAÐ C