Morgunblaðið - 27.04.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Möskvamótið
Opið golfmót í Grindavík
sunnudaginn 28. apríl kl. 8.00.
Punktakeppni 3/4 forgjöf.
Skráning í síma 426 8720
á daginn og 426 7972 á kvöldin.
Glæsileg verðlaun.
Nándarverðlaun.
Þátttökugjald kr. 2.000.
Golfklúbbur Grindavíkur
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Úrslitakeppni kvenna, Esso-deildin,
fjórði leikur í úrslitum:
Ásgarður: Stjarnan - Haukar ..........16.15
Staðan er 2:1 fyrir Stjörnuna, sem
nægir sigur til að verða Íslandsmeistari.
Ef til fimmta leiks, oddaleiks, kemur,
verður hann á Ásvöllum á mánudag kl.
20.15.
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Deildabikarkeppni karla, neðri deild:
Garðskagavöllur: HK - Víðir.................14
Hvolsvöllur: Selfoss - KFS ...................14
Ásvellir: Reynir S. - Afturelding14
Deildabikarkeppni kvenna:
Laugardalur: Þróttur R. - Valur ..........12
Laugardalur: Stjarnan - ÍBV ...............14
Laugardalur: Grindavík - KR...............16
Kópav.höll: Þór/KA/KS - Breiðabl .......16
Sunnudagur:
Deildabikarkeppni karla, neðri deild:
Siglufjörður: KS - Tindastóll ................14
Neskaups.: Fjarðabyggð - Leiknir F...14
Ásvellir: Fjölnir - Sindri .......................16
Ásvellir: Njarðvík - Skallagrímur ........18
Deildabikarkeppni kvenna:
Ásvellir: ÍBV - RKV ..............................12
Ásvellir: Haukar - Þór/KA/KS .............14
Mánudagur:
Reykjavíkurmót karla:
Laugardalur: Léttir - Valur .............18.30
Laugardalur: Leiknir R. - Fylkir ....20.30
Egilshöll: Víkingur - ÍR ........................19
Egilshöll: KR - Fram ............................21
GLÍMA
Íslandsglíman fer fram í dag, laugardag,
í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn-
arfirði kl. 13:30. Freyjuglíman hefst
strax að lokinni Íslandsglímu eða um kl.
14:30.
KRAFTLYFTINGAR
Íslandsmótið í kraftlyftingum verður
haldið í sýningarsal Bifreiða- og land-
búnaðarvéla hf. að Grjóthálsi 1 í dag kl.
14.
ÍÞRÓTTAÞING
66. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í
íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum í
Hafnarfirði í dag og á morgun. Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, setur þingið kl. 10 í
dag.
BLAK
Sunnudagur:
Bikarúrslitaleikur karla:
Austurberg: ÍS - Þróttur R. .................15
UM HELGINA
HANDKNATTLEIKUR
KA – Haukar
KA-heimilið, Akureyri, undanúrslit Ís-
landsmóts karla, annar leikur, föstudaginn
26. apríl 2002.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 8:7, 8:10, 11:13,
14:13, 14:14, 18:14, 18:17, 22:19, 22:21,
25:22, 27:24, 27:26.
Mörk KA: Halldór Sigfússon 7/5, Andrius
Stelmokas 5, Heimir Örn Árnason 5, Jó-
hann G. Jóhannsson 4, Heiðmar Felixson 2,
Jónatan Magnússon 3, Einar Logi Frið-
jónsson 1.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Hauka: Rúnar Sigtryggsson 7, Hall-
dór Ingólfsson 6/4, Einar Örn Jónsson 4,
Aron Kristjánsson 4, Jón Karl Björnsson
3/1, Vignir Svavarsson 1, Aliaksandr Sham-
kuts 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifs-
son. Bærilegir í heild.
Áhorfendur: Hátt í 1.000.
KA sigraði, 2:0.
Afturelding – Valur 23:29
Varmá, Mosfellsbæ:
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 3:6, 5:10, 7:10,
9:11, 10:12, 10:13, 15:13, 18:14, 18:18, 21:19,
21:21, 22:21, 22:22, 22:28, 23:28, 23:29.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson
9/3, Páll Þórólfsson 6, Daði Hafþórsson 3,
Magnús Már Þórðarson 2, Valgarð Thor-
oddsen 1, Hjörtur Arnarson 1, Níels Reyn-
isson 1, Haukur Sigurvinsson 1.
Utan vallar: 8 mínútur (Hjörtur Arnarson
rautt fyrir brot á lokamínútum venjulegs
leiktíma).
Mörk Vals: Markús Máni Michaelsson 10/2,
Snorri Steinn Guðjónsson 6, Sigfús Sig-
urðsson 6, Bjarki Sigurðsson 4, Freyr
Brynjarsson 2, Ásbjörn Stefánsson 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson, stóðu vaktina með prýði.
Áhorfendur: Um 700.
Valur sigraði, 2:0.
Þýskaland
Wetzlar – Hameln ................................ 26:23
Hameln er fallið í 2. deild.
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni KSÍ
NEÐRI DEILD KARLA, A-RIÐILL:
ÍR – Leiknir R. ......................................... 0:0
ÍR tryggði sér sæti í undanúrslitum
keppninnar. Þetta var fyrsti mótsleikurinn
í hinni nýju Egilshöll í Grafarvogi.
Staðan:
ÍR 5 4 1 0 16:2 13
Leiknir R. 5 3 2 0 16:2 11
HK 4 2 1 1 8:5 7
Víðir 4 1 0 3 3:9 3
Leiknir F. 4 1 0 3 8:21 3
Fjarðabyggð 4 0 0 4 5:17 0
NEÐRI DEILD KARLA, C-RIÐILL:
Haukar – Léttir........................................ 1:2
Birgir Rafn Birgisson – Þórir Örn Ingólfs-
son 2.
Afturelding er komin í undanúrslit með
þessum úrslitum, ásamt ÍR. Í dag geta
Njarðvík og Tindastóll náð hinum tveimur
sætunum; ef öðru mistekst að sigra fer
Leiknir R. áfram ásamt hinu.
Staðan:
Afturelding 4 4 0 0 16:5 12
Haukar 5 3 0 2 14:6 9
Léttir 5 3 0 2 15:13 9
Reynir S. 4 1 1 2 15:12 4
Selfoss 4 1 1 2 7:10 4
KFS 4 0 0 4 6:27 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild:
Boston – Philadelphia ...........................93:85
Boston er yfir 2:0.
Vesturdeild:
LA Lakers – Portland.........................103:96
LA Lakers er yfir 2:0.
Reynir Þór Reynisson, Aftureld-
ingu, 17, (þar af 9 skot, sem knött-
urinn fór aftur til mótherja). 8 (3)
langskot, 5 (4) af línu, 2 (1) úr horni, 2
(1) hraðaupphlaup.
Roland Eradze, Val, 21, (þar af 10
skot, sem knötturinn fór aftur til
mótherja). 11 (5) langskot, 3 (3) af
línu, 3 (0) úr horni, 1 (1) eftir gegn-
umbrot, 3 (1) hraðaupphlaup.
Egidijus Petkevicius, KA, 15/1 (7
þar sem boltinn hrökk aftur til mót-
herja); 6 (2) langskot, 4 (3) eftir
gegnumbrot, 2 (1) úr hraðaupp-
hlaupi, 1 úr horni, 1 (1) af línu, 1 víti.
Bjarni Frostason, Haukum, 12 (6
til mótherja); 6 (1) langskot, 1 (1) eft-
ir gegnumbrot, 1 (1) úr hraðaupp-
hlaupi, 1 úr horni, 3 (3) af línu.
Magnús Sigmundsson, Haukum, 4
(2 til mótherja); 3 (1) langskot, 1 (1)
eftir gegnumbrot.
Þannig vörðu þeir
Aðeins eitt mark skildi liðin að ílokin en segja má að KA hafi
lagt grunn að sigrinum með góðum
leikkafla í upphafi
síðari hálfleiks. Þá
náðu þeir fjögurra
marka forystu sem
Haukunum tókst
aldrei að vinna upp. Fjórum sinnum
minnkuðu Íslandsmeistararnir mun-
inn í eitt mark og á lokasekúndunum
fengu þeir færi til að jafna en Egid-
ius Petkevicius markvörður KA kom
í veg fyrir það. Liðið sem allir spáðu
að myndi verja titil sinn var úr leik
og KA-strákarnir sem töpuðu ein-
mitt í úrslitunum í fyrra náðu fram
hefndum með einstakri baráttu og
dugnaði. Þeir leika við Val í úrslitum
þetta árið og rifjar það upp góða
stemmningu frá 1995 og 1996 en
sömu lið áttust einmitt við þau ár og
hafði Valur betur í bæði skiptin.
Hvort langræknir KA-menn ná fram
hefndum nú verður að koma í ljós en
víst er að í þeirri rimmu verður ekk-
ert gefið eftir.
Leikur KA og Hauka byrjaði ein-
staklega vel og bæði lið buðu upp á
glimrandi handbolta. Sóknir voru
hraðar og vel útfærðar. KA-menn
höfðu frumkvæðið á þessum kafla og
héldu því fram í miðjan hálfleikinn.
Haukar komust þá í tveggja marka
forystu 8:10 og virtust ætla að sigla
lengra fram úr. Þétt 6-0 vörn þeirra
olli heimamönnum vandræðum og
Bjarni Frostason varði nokkur skot.
KA-mönnum tókst að laga hjá sér
sóknarleikinn og með harðfylgi jöfn-
uðu þeir 11:11. Upp fá því tók við
æsilegur kafli og ævintýralegur fyrir
heimamenn sem léku manni færri
sex mínútur í röð. Haukarnir nýttu
sér það og náðu tveggja marka for-
ystu á ný, 11:13. Manni færri gerðu
KA-menn hið ómögulega og skoruðu
þrjú næstu mörk. Haukarnir skor-
uðu síðasta mark hálfleiksins og
staðan jöfn 14:14.
Á fimm mínútna kafla í byrjun síð-
ari hálfleiks skoruðu KA-menn fjög-
ur mörk gegn engu. Staðan orðin
18:14 en þá hrukku Haukar aftur í
gang. Þeir minnkuðu muninn strax í
eitt mark en komust ekki nær. KA
svaraði með tveimur mörkum og
næstu mínútur voru Haukum erfið-
ar. KA náði þriggja marka forystu á
ný með tveimur mörkum frá Jónatan
Magnússyni. Aron og Rúnar svöruðu
fyrir Haukana og þeir áttu svo mögu-
leika á að jafna leikinn en Ásgeir Örn
Hallgrímsson þrumaði boltanum í
stöngina er þeir reyndu sirkusmark.
KA refsaði Haukunum með marki og
í næstu sókn Hafnfirðinga skaut Jón
Karl Björnsson yfir úr vítakasti. KA
átti síðan skot sem Magnús Sig-
mundsson varði en Jóhann Gunnar
Jóhannsson hirti boltann umkringd-
ur Haukamönnum og hnoðaði honum
í markið af miklu harðfylgi. Staðan
24:21 og níu mínútur eftir. Liðin
skiptust nú á að skora. Staða KA var
mjög vænleg 27:24 og rúmar þrjár
mínútur eftir. Þeir misstu annan
mann útaf og Haukarnir minnkuðu
muninn í eitt mark. Fyrst skoraði
Aron eftir glæsilegt gegnumbrot og
Einar Örn skoraði svo auðvelt mark
úr horninu. Staðan var nú 27:26, KA-
menn manni færri og tæpar tvær
mínútur eftir. Haukar fengu boltann
hálfri mínútu fyrir leikslok en vörn
KA hélt velli. Haukar fengu auka-
kast þegar fimm sekúndur lifðu. Þeir
settu upp kerfi sem endaði með góðu
skoti frá Aroni. Því miður fyrir hann
þá varði Petkevicius og þakið hrein-
lega rifnaði af KA-heimilinu.
Það var einstök barátta og trú
norðanpiltanna sem skilaði þeim
þessum sigri. Þeir léku góðan varn-
arleik, voru mjög hreyfanlegir og
fóru illa með Shamkutsk inni á lín-
unni. Sóknarleikurinn var hraður og
þrátt fyrir stöku mistök bar hann
ágætis árangur. Hornamennirnir
sáust lítið enda sótti KA mest inn á
miðja Haukavörnina. Heimir Örn
var öflugur og skoraði glæsileg
mörk. Stelmokas var í mjög strangri
gæslu allan tímann en þegar hann
fékk boltann var ekki að sökum að
spyrja. Aðrir voru minna áberandi
en skiluðu sínu.
Haukarnir voru alltaf líklegir til að
komast yfir en herslumuninn vant-
aði. Bjarni og Magnús í markinu
vörðu ágætlega og vörnin var sterk á
köflum. Aron var mest áberandi í
sókninni og Rúnar skilaði sínum
mörkum. Hinn frábæri línumaður
Shamkuts átti erfitt uppdráttar enda
nánast í gjörgæslu hjá KA-vörninni.
Aðrir hafa oft átt betri dag en stund-
um er sagt að enginn spili betur en
andstæðingurinn leyfi og það átti svo
sannarlega við í þessum leik.
KA felldi
meistarana
á Akureyri
KA-menn eru komnir í úrslit Íslandsmótsins í handknattleik karla
annað árið í röð. Þeim tókst hið óvænta í gærkvöldi; að leggja sjálfa
Íslands- og bikarmeistara Haukanna að velli á Akureyri, 27:26, í leik
sem var í senn bráðfjörugur og hörkuspennandi. KA vann þar með
einvígið, 2:0, og tveggja ára einveldi Haukanna í íslenskum hand-
knattleik er þar með lokið. Nú verða það Valur og KA sem leika til
úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í ár, rétt eins og árin 1995 og
1996.
!
"!
#
$#
Einar
Sigtryggsson
skrifar
Undanúrslit í
Egilshöll
BÁÐIR undanúrslitaleikirnir í
deildabikarkeppni karla í
knattspyrnu verða leiknir í
hinni nýju Egilshöll í Graf-
arvogi. FH og Breiðablik leika
þar fimmtudagskvöldið 2. maí
og ÍA og Fylkir mætast þar
föstudagskvöldið 3. maí. Þá
hefur úrslitaleikur keppn-
innar verið settur á í Egilshöll
þriðjudagskvöldið 7. maí.
JÖRUNDUR Áki Sveinsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur val-
ið 16 manna hóp fyrir vináttulandsleik
gegn Svíum sem fram fer í Gautaborg 4.
maí. Flestir leikmanna liðsins koma úr
KR, sjö talsins, en einn nýliði er í hópn-
um, Elín Anna Steinarsdóttir úr Breiða-
bliki. Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Þóra Björg Helgadóttir,
KR (17), María B. Ágústsdóttir, Stjörn-
unni (1).
Aðrir leikmenn: Elín Anna Stein-
arsdóttir, Breiðabliki (0), Eva Sóley Guð-
björnsdóttir, Breiðabliki (3), Margrét
Ólafsdóttir, Breiðabliki (46), Guðlaug
Jónsdóttir, Bröndby (35), Erla Hendriks-
dóttir, FV Köbenhavn (29), Katrín Jóns-
dóttir, Kolbotn (42), Ásdís Þorgilsdóttir,
KR (8), Ásthildur Helgadóttir, KR (44),
Edda Garðarsdóttir, KR (14), Elín Jóna
Þorsteinsdóttir, KR (2), Guðrún S. Gunn-
arsdóttir, KR (9), Olga Færseth, KR (30),
Ásgerður H. Ingibergsdóttir, Val (26),
Rósa Júlía Steinþórsdóttir, Val (17).
Sjö KR-ingar
til Svíþjóðar
RÚNAR Alexandersson komst í gær í úr
slit á Evrópumótinu í fimleikum sem nú
stendur yfir í Patras í Grikklandi, bæði í
fjölþraut og á bogahesti. Rúnar varð í
13. sæti í fjölþraut með samtals 52,036
stig og er því í hópi 24 bestu sem keppa
til úrslita í henni í dag. Efstur í þrautinn
varð Dan Potra frá Rúmeníu með 56,261
stig. Rúnar varð í sjötta sæti á bogahesti
með 9,550 stig og er því einn af átta sem
keppa til úrslita í þeirri grein á morgun.
Efstur varð Busnari Alberto frá Ítalíu
með 9,675 stig.
Rúnar í úrslit
BIRGIR Leifur Hafþórsson og Björgvin
Sigurbergsson komust báðir áfram eftir
tvo keppnisdaga á Tessali Open del Sud-
áskorendamótinu í golfi sem nú stendur
yfir á Suður-Ítalíu. Þeir hafa báðir leikið
á samtals einu höggi yfir pari, 143 högg-
um, á tveimur fyrstu dögunum og eru í
31.–44. sæti af 155 keppendum. Alls
komust 59 kylfingar áfram, eða þeir sem
léku á tveimur höggum yfir pari eða bet-
ur. Birgir Leifur lék á einu höggi undir í
gær en Björgvin hins vegar á tveimur
höggum yfir pari.
Birgir og Björg-
vin báðir áfram