Morgunblaðið - 27.04.2002, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 C 3
SIGURÐUR Bjarnason skoraði 5
mörk fyrir Wetzlar í gærkvöld þegar
lið hans sigraði Hameln, 26:23, í
þýsku 1. deildinni í handknattleik.
Með úrslitunum féll Hameln endan-
lega úr deildinni en félagið þarf að
fara alla leið niður í áhugamanna-
deild vegna fjárhagsörðugleika.
ERLA Hendriksdóttir skoraði
fyrsta markið fyrir FV Köbenhavn
þegar lið hennar vann góðan sigur á
OB, 3:1, í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Guðlaug Jónsdóttir
var ekki á meðal markaskorara
Bröndby sem vann botnliðið Hille-
röd, 6:0. Bröndby er í öðru sæti með
42 stig, tveimur stigum á eftir topp-
liðinu Fortuna, en FV Köbenhavn er
í fimmta sæti með 25 stig.
DAMON Johnson, körfuknatt-
leiksmaðurinn snjalli frá Bandaríkj-
unum, leikur áfram með úrvalsdeild-
arliði Keflavíkur á næsta tímabili.
Þetta var haft eftir Hrannari Hólm,
formanni körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur, á vef Víkurfrétta í gær.
JOHNSON sneri aftur til Kefla-
víkur fyrir nýlokið tímabil eftir
tveggja ára fjarveru. Áður hafði
hann spilað með liðinu í tvö ár og eitt
ár þar á milli með Skagamönnum.
VIKTOR Kristmannsson stóð sig
best af yngri keppendum Íslands á
Evrópumótinu í fimleikum í Grikk-
landi. Hann varð í 37. sæti af 133
keppendum í fjölþraut með 43,874
stig en hann var sá eini sem keppti á
öllum áhöldum.
DEIGLAN, nýja knattspyrnu-
félagið í Reykjavík sem sendir lið í 3.
deildina í fyrsta skipti í sumar, fékk
mikinn liðsstyrk í gær. Alexander
Högnason, fyrrum fyrirliði ÍA, sem
lék með Fylki í fyrra, er genginn til
liðs við Deigluna ásamt Sævari Pét-
urssyni, fyrrum leikmanni Breiða-
bliks, Fram og Vals.
DEIGLAN hafði áður fengið
Bjarka Gunnlaugsson, fyrrum
landsliðs- og atvinnumann, í sínar
raðir þannig að útlit er fyrir að liðið
mæti sterkt til leiks í sumar.
GORAN Lukic, knattspyrnumað-
ur frá Júgóslavíu, sem hefur leikið
með Grindavík tvö undanfarin ár, er
hættur með Suðurnesjaliðinu. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa Haukar, Njarðvík og Fjölnir öll
sett sig í samband við Lukic, sem
hefur spilað alla leiki Grindavíkur í
úrvalsdeildinni tvö undanfarin ár.
GRINDVÍKINGAR hafa tekið í
notkun nýtt grassvæði við Ísólfs-
skála, sjö kílómetra austan við bæ-
inn. Þeir léku þar við Stjörnuna í
fyrradag og mæta ÍBV þar í dag.
SKAGAMENN komust ekki til
Færeyja til leiks gegn B36 í gær þar
sem ekki var flugfært, en liðin áttu
að leika í dag í meistarakeppni Ís-
lands og Færeyja. Leiknum hefur
verið frestað til morguns.
BJARNI Guðjónsson hefur jafnað
sig af meiðslum og getur leikið með
Stoke gegn Cardiff á morgun en lið-
in leika þá fyrri undanúrslitaleik
sinn í keppninni um sæti í ensku 1.
deildinni. Peter Hoekstra leikur
ekki með Stoke vegna meiðsla og
Arnar Gunnlaugsson tekur út síð-
asta leikinn í þriggja leikja banni.
BRENTFORD, lið Ívars Ingimars-
sonar og Ólafs Gottskálkssonar,
leikur við Huddersfield á útivelli í
sömu úrslitakeppni á morgun.
FÓLK
Geir sagðist hafa brýnt það mjögfyrir sínum mönnum fyrir leik-
inn að varnarleikurinn skipti höfuð-
máli, það lið sem léki
betri vörn ynni. „Við
náðum að halda af
aftur af sóknarmönn-
um Aftureldingar og
niðurstaðan var sú að þeir skoruðu
23 mörk á 70 mínútum. Hitt atriðið er
það að kunna að hafa forystu, halda
frumkvæði, það er eitthvað sem
drengirnir eiga eftir að læra, en við
megum ekki gleyma því að meðalald-
ur sóknarmanna minna er í kringum
tuttugu ár, þannig að það er ekki
nema aðlilegt að þeir eigi enn sitt-
hvað eftir ólært. Þeir hafa staðið sig
frábærlega til þessa og ég vona svo
sannarlega að þeir haldi því áfram.“
Geir sagði að enginn ótti hefði gert
vart við sig í sínu brjósti þegar Aftur-
elding náði fjögurra marka forskoti í
fyrri hluta síðari hálfleiks.
„Þegar fimmtán mínútur eru eftir
þá er fjögurra marka forskot ekki
svo mikið ef rétt er haldið á spöð-
unum og hafi menn vilja til þess að
koma sér inn í leikinn á ný. Ég hélt
áfram að minna menn á að nægur
tími væri til stefnu, málið væri að
halda einbeitingu og það tókst. Þetta
var bara spurning um hugarfar.“
Geir sagðist hlakka til úrslita-
keppninnar við KA. Þarna yrði um að
ræða harðar rimmur tveggja liða
sem væru nær eingöngu skipuð ung-
um leikmönnum. „Síðan er ég
skyndilega kominn með heimaleikja-
rétt sem er jákvætt ef rétt er haldið á
spöðunum. Hins vegar hefur það
komið í ljós í úrslitakeppninni að
heimaleikjarétturinn er ef til vill ekki
eins sterkt vopn og áður.
KA-liðið er virkilega skemmtileg-
ur andstæðingur sem mjög skemmti-
legt verður að fást við.“
Má kannski segja að sú staðreynd
að Valur og KA mætast í úrslitum sé
sigur æskunnar?
„Ef ég er undanskilimn þá má ef til
vill segja það. Við erum að minnsta
kosti komnir svo langt sem raun ber
vitni um á vilja og leikgleði.
Nú mætast tvö ung lið sem eiga
eftir að heyja skemmtilegt einvígi
um Íslandsmeistaratitilinn. Við erum
ósigraðir til þessa í úrslitakeppninni
og förum í næstu leiki til að vinna,“
sagði Geir Sveinsson.
Fórum illa að ráði okkar
„Það er ljóst að þegar við vorum
fjórum mörkum yfir, 18:14, þá fórum
við afar illa að ráði okkar, vorum
manni fleiri á vellinum í tvígang og
létum þá „stela“ af okkur knettinum,
áður en við vissum af var staðan orð-
in jöfn. Þarna áttum við möguleika á
að auka forskotið í stað þess að missa
það niður,“ sagði Bjarki Sigurðsson,
þjálfari og leikmaður Aftureldingar,
en sem fyrr var það hann ásamt
Reyni Þór Reynissyni markverði
sem dró vagninn eins langt og hann
komst hjá Mosfellingum.
„Það sem einnig brást var að þeg-
ar Valsmenn breyttu vörninni á þess-
um fyrrgreinda kafla, og tóku mig úr
umferð, þá lánaðist okkur ekki að
leysa úr stöðunni sem upp kom á
þann hátt sem talað var um. Það
hafði rækilega verið farið yfir þá
stöðu fyrir leik hvað gera skyldi ef
Valsmenn breyttu vörninni á þennan
hátt. Skotin voru slök og oft ekki úr
góðum færum, því fór sem fór.
Við sýndum góðan leik á köflum í
leiknum en á síðustu fimm mínútun-
um þá létum við taka okkur algjör-
lega í bólinu, þá færðum við Vals-
mönnum sigurinn á silfurfati og slíkt
tækifæri létu þeir sér ekki úr greip-
um ganga,“ sagði Bjarki.
Sigurvilji
sveif yfir
vötnum
„ÞEGAR við fórum inn í klefa fyrir framlenginguna þurfti ég ekki
margt að segja við strákana, ég skynjaði hvernig andrúmsloftið var.
Það sveif sigurvilji yfir vötnum,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals,
eftir sigurinn á Aftureldingu á Varmá í gærkvöldi. „Ég nefndi aðeins
það helsta og síðan biðum við þess að flautað væri til leiks á ný,
menn hungraði í sigur. Þess vegna komu úrslitin mér ekki á óvart.“
Eftir
Ívar
Benediktsson
Eins og áður segir urðu kaflaskil íleiknum í síðari hálfleik fram-
lengingarinnar en staðan eftir fyrri
hálfleikinn var jöfn,
22:21, en eftir venju-
legan leiktíma,
21:21. Snorri Steinn
Guðjónsson, fyrirliði
Valsmanna, kom Val í 23:22 eftir
hálfrar mínútu leik í síðari hálfleik
framlengingarinnar. Mosfellingar
misnotuðu sína fyrstu sókn og í kjöl-
farið fékk Páll Þórólfsson tveggja
mínútna brottvísun og reyndist hún
heimamönnum mjög afdrifarík því
Valsmenn skoruðu fimm mörk í röð
og þar með voru úrslitin ráðin.
Valur var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik sem einkenndist af góðum
varnarleik og snjöllum tilþrifum
markvarðanna. Valsvörnin var þó
öllu betri með Geir Sveinsson, Sigfús
Sigurðsson og Markús Mána í lyk-
ilstöðum. Mosfellingum gekk afar
illa að finna smugur á varnarmúrn-
um og það var ekki fyrr en Bjarki
Sigurðsson, leikmaður og þjálfari
Aftureldingar, skipti sér inn á eftir
13 mínútna leik sem Mosfellingar
náðu betri tökum á sóknarleik sín-
um. Valsmenn virtust á tíma vera að
stinga af. Þeir komust í 10:5 en
Bjarki náði að halda lífi í sínum
mönnum. Hann skoraði fimm mörk
Mosfellinga í röð og Afturelding náði
ágætum lokakafla í fyrri hálfleik
þegar liðinu tókst að minnka muninn
í tvö mörk rétt fyrir leikhlé.
Afturelding breytti vörn sinni í
seinni hálfleik. Í fyrri hálfleik léku
Mosfellingar lengst af 6:0 vörn en í
síðari hálfleik kom Þorkell Guð-
brandsson inn í vörnina og Páll Þór-
ólfsson klippti á Snorra líkt og liðið
gerði með góðum árangri undir lok
fyrri leiksins á Hlíðarenda. Mikill
kraftur hljóp í liðsmenn Afturelding-
ar með breytingunni. Vörnin var
mjög hreyfanleg og Valsmenn áttu í
stökustu vandræðum í sókninni.Val-
ur skoraði fyrsta markið í síðari hálf-
leik en þá kom frábær leikkafli Aft-
ureldingar sem skoraði 5 mörk í röð
og þegar munurinn var orðinn fjögur
mörk, 18:14, og 14 mín. eftir tóku
Valsmenn leikhlé og réðu ráðum sín-
um- enda aðeins búnir að skora þrjú
mörk á 17 mínútum í þrettán upp-
hlaupum. Þeir tóku til bragðs að
setja mann til höfuðs Bjarka og það
var eins og við manninn mælt. Sókn-
arleikur Mosfellinga fór úr skorðum
og Valsmenn gengu á lagið. Þeir
jöfnuðu metin í 18:18 og þær tíu mín.
sem eftir lifði voru æsispennandi.
Afturelding virtist á góðri leið með
að knýja fram sigur en liðið náði
tveggja marka forskoti, 21:19, 5 mín.
fyrir leikslok en með seiglu tókst Val
að jafna og var þar að verki Markús
Máni með tveimur mörkum.
Minnstu munaði að Valur tryggði sér
sigur. Einum manni fleiri, eftir að
Hirti Arnarsyni var sýnt rauða
spjaldið fyrir brot, léku Valsmenn
yfirvegað og fáeinum sekúndum fyr-
ir leikslok stakk Snorri Steinn sér
inn á milli tveggja varnamanna en úr
góðu færi brást honum bogalistin og
framlenging því staðreynd.
Aðeins tvö mörk voru skoruð í
fyrri hálfleik framlengingarinnar,
Daði Hafþórsson kom Aftureldingu
yfir en Sigfús jafnaði metin. Síðari
hálfleiknum hefur þegar verið lýst.
Valsmenn hreinlega gengu yfir gesti
sína sem játu sig sigraða löngu áður
en leikurinn var úti enda staða
þeirra vonlaus.
Valsmenn sýndu í leikjunum við
Aftureldingu að þeirra sterkustu
vopn er vörn og markvarsla og ef
þessir hlutir eru í lagi er efitt að
leggja þá að velli. Markús Máni átti
stórgóðan leik, bæði í vörn og sókn
og þrumuskot hans átti Reynir Þór
Reynisson erfitt með að ráða við.
Sigfús Sigurðsson og Bjarki Sig-
urðsson léku vel, Sigfús átti þó lengi
vel erfitt uppdráttar á móti Reyni en
hann var feikiduglegur og lykilmað-
ur í vörninni ásamt Geir Sveinssyni
sem átti sömuleiðis góða innkomu í
sóknina. Roland Eradze var eins og
oft áður snjall á milli stanganna og
Snorri Steinn var drjúgur sínum
mönnum í síðari hálfleik framleng-
ingarinnar með því að skora fjögur
mörk.
Bjarki Sigurðsson og Páll Þórólfs-
son báru sóknarleik Aftureldingar
uppi og á löngum köflum voru þeir
þeir einu í liði Mosfellinga sem komu
skotum á markið. Daði Hafþórsson
var mjög mistækur og ragur og
Sverrir Björnsson náði sér ekki á
strik en þeir tveir síðastnefndu ollu
vonbrigðum á leiktíðinni. Reynir Þór
Reynisson var ásamt Bjarka besti
leikmaður Mosfellinga og með
frammistöðu sinni á tímabilinu hlýt-
ur hann að hafa bankað hressilega á
dyr landsliðsins.
Morgunblaðið/Ómar
Freyr Brynjarsson brýst af harðfylgi í gegnum vörn Aftureld-
ingar og skorar annað tveggja marka sinna í leiknum á Varmá.
Magnaður enda-
sprettur Valsara
VALSMENN hrósuðu sigri á Aftureldingu í Mosfellsbæ þar sem
framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit. Í síðari hálfleik hennar
sprungu Mosfellingar gjörsamlega á limminu. Þeir skoruðu aðeins
eitt mark á móti sjö Valsmanna og Hlíðarendaliðið innbyrti öruggan
sigur, 29:23, og um leið farseðilinn í úrslitin þar sem það mætir
gömlum erkifjendum – KA frá Akureyri.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
%
%%
%
&
!
"!
!
#
&
#'
(
ÍÞRÓTTIR
Vormót LEK í Þorlákshöfn sunnudaginn 28. apríl.
Karlar 55 ára og eldri - Konur 50 ára og eldri.
Punktakeppni með forgjöf.
Skráning í síma 483 3913 og 864 6951
LEK mót
í Þorlákshöfn
-
-
-
-
,
-
í
i
1
i
ð
-
m
-
í