Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 2

Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 2
KNATTSPYRNA 2 C FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Það er með ólíkindum að sigra hér3:0 eftir stórt tap í fyrri leikn- um en við erum sterkir karakterar, ætlum okkur að sigra og gerum það,“ sagði Olga Færseth, sem stóð sig vel í framlínunni og lét spænsku varnarmennina hafa fyrir sér. „Við ætluðum að láta þær ráða ferðinni en vera fastar fyrir aftar á vellinum og beita síðan skyndisóknum auk þess að brjóta á þeim og angra. Það fer í skapið á Spánverjum og við lögðum líka upp með það. Það skipti ekki máli hvernig staðan var – við vorum alltaf yfirvegaðar og ætli það sé ekki einmitt það sem fleytti okkar áfram. Við sýndum góða einbeitingu og misstum hana aldrei eins og topp- íþróttamenn eiga að gera, enda tel ég að við höfum sýnt að við séum það,“ bætti Olga við og kveið ekki framhaldinu. „Við höfum nú lagt Spánverja að velli og nægir stig á Ítalíu. Við förum því út með eitt stig og það verður að koma í ljós hvort við komum með það – eða fleiri og það er ekkert því til fyrirstöðu að gera það.“ „Við héldum ró okkar með yfir- vegun og þetta var ekki erfiður leik- ur því það var svo gaman,“ sagði Guðlaug Jónsdóttir, sem átti mjög góðan leik í gærkvöld. „Við vorum skynsamar, létum boltann ganga og vorum eflaust að spila einn af okkar bestu leikjum enda þarf að gera það á móti svona góðu liði og þetta gekk eins og við ætluðum okkur – að vinna. Stemningin fyrir leikinn var mjög góð. Við gáfum tóninn í Rúss- landsferðinni og vorum ákveðnar að ná upp sömu einbeitingu. Við töluð- um um í leikhléi að skerpa á föstum leikatriðum, við erum með leikmenn, sem eru miklu hærri en þær spænsku og það gekk upp. Okkur dugir nú jafntefli á Ítalíu en getum varla náð Rússunum nema með því að vinna stórt en miðað leikina tvo við Spán getur allt gerst.“ „Við ætluðum að reynda halda boltanum eins lengi og við gátum og vera ekkert að stressa okkur yfir því en sækja síðan hratt,“ sagði Edda Garðarsdóttir, sem stóð í ströngu í vörninni. „Svo ætluðum við að nýta okkur föstu leikatriðin því þær spænsku voru allar frekar lægri en við. Þær eru fljótar en við spiluðum aftarlega svo að þær komust ekki í gegn enda fór það í taugarnar á þeim – þetta eru Spánverjar. Við vorum vel stemmdar fyrir leikinn og það kom ekkert annað en sigur til greina. Í fyrri leiknum vorum við yfir- spenntar og það gekk ekkert upp hjá okkur, vorum grútlélegar. Við vor- um í neðsta sætinu fyrir þennan leik svo það var annaðhvort að vinna eða vera í neðsta sæti og jafnvel falla um styrkleikaflokk. Það var því margt sem hvatti okkur áfram.“ Vorum vel stemmdar Greinilegt var í byrjun að varn-armenn Íslands myndu ekki tefla í neina tvísýnu, fimm leikmenn stóðu þar vaktina og fjórir rétt fyrir fram- an. Það sýndi hin- vegar skynsemi því snöggir Spánverjar fundu enga glufu í þeim vegg auk þess að hann var of aftarlega til að hægt væri að komast á bak við hann. Sóknarleikurinn sat samt ekki á hak- anum því miðjumennirnir fjórir voru fljótir að fylgja markadrottningunni Olgu Færseth eftir þegar færi gafst og skapaði það enn meiri usla en gestunum frá Spáni tókst að skapa. Á 15. mínútu kom fyrsta færið eftir fyrirgjöf Guðlaugar Jónsdóttur frá hægri kanti en stöllur hennar voru aðeins of lengi að athafna sig inni í teignum. Nokkru síðar var skallað yfir eftir hornspyrnu og tvær stungusendingar nýttust ekki sem skyldi. Spánverjar fengu líka færi, tvö eftir miðjan hálfleik þegar Þóra Helgadóttir varði auðveldlega auka- spyrnu rétt utan teigs og skömmu síðar er hún varði í horn eftir ágæta sókn gestanna. Ef þær spænsku hafa náð yfirhöndinni varð þeim fljótlega gert ljóst að svo var ekki því áður en blásið var til leikhlés áttu þær í vök að verjast eftir nokkrar skeleggar atlögur íslensku valkyrjanna. Aðeins voru liðnar tvær mínútur af síðari hálfleik þegar fyrsta markið kom og síðan rak hvert annað, skot Olgu var varið í horn og eftir tvær hornspyrnur á 60. mínútu kom ann- að mark. Áhöld voru um hvaða leik- maður ætti heiður af síðustu snert- ingunum – Olga, Guðlaug eða Ásthildur í fyrra markinu og Guð- laug eða Margrét Ólafsdóttir úr næsta, en dómari leiksins var viss í sinni sök og skráði bæði tvö sem sjálfsmörk. Það sló þó ekkert á fögn- uð leikmanna, en Spánverjar vökn- uðu við vondan draum og tóku að berjast meira á miðjunni og ná ein- staka sókn en sem fyrr gaf íslenska vörnin sig hvergi. Aftur á móti bauð það hættunni heim að færa sig fram- ar á völlinn því Katrín Jónsdóttir skallaði naumlega yfir spænsku þverslána áður en Ásthildur innsigl- aði 3:0-sigur Íslands með glæsileg- um skallabolta eftir sendingu Rósu Júlíu Steinþórsdóttur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ásthildur Helgadóttir er hér að innsigla sigur íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu á Spánverjum í gær með fallegu skalla- marki. Erla Hendriksdóttir gerir sig líklega til að skalla boltann og lengst til vinstri fylgist Guðlaug Jónsdóttir spennt með. SKYNSEMIN uppmáluð varð til þess að íslenska kvennalandsliðið steig varla feilspor svo að Spánverjar sáu aldrei til sólar, þegar liðin mættust í Laugardalnum í undankeppni Heimsmeistaramótsins í Laugardalnum í gærkvöld. Íslenska vörnin var sem ókleifur veggur og vel á verði gegn snöggum framherjum gestanna og þegar mót- spyrnan tók á þeim toll var ekki að sökum að spyrja – Ísland skaust fram í sókn og uppskar þrjú mörk. Fyrir vikið á Ísland enn mögu- leika á að komast á úrslitakeppnina í Kína, en þarf að vinna Ítalíu eftir viku og síðan tvo leiki um aukasæti. Úr því verður ekki skorið fyrr en í haust. Stefán Stefánsson skrifar Skynsemi skilaði sigri                           !    " #         $  %   &             $       #    '( )  "   * #     +, !      "- &  #       " !    #                                !"   #  $%&  ' # '# ( ) ' *   +  ) , '#     - . + /0 1  ) 02 $%&      3  45  #  6 7  $%& 8  -9 : # 0! #    ;   <"   ./0//0 =#5# ,! *12    *         0  003/ 1> 4 $* $ =## > 5 6%  4-   )  2 >   ?  + "#    @ %  A : B      B C7  D  D -  E D7 = F   G  = - D -  3  -  G  +   = D7 F -F 6F ' C     C  H  '>7 =I =I 4   - J@&     + ' < - 4   -  F  67  +7I B&    1F 1>  F )< K F   %:& +'7*  8219      %  *:  8;<9*  ! '  !" +#  !"  @ 83=9 B @ 8>/9 : @ 8;/9 Edda í leikbann VARNARJAXLINN Edda Garðarsdóttir verður fjarri góðu gamni þegar Ísland mætir Ítalíu ytra í næstu viku. Hún fékk gult spjald á lokamínútunum gegn Spánverjum í gærkvöld og þar sem hún var áður búin að líta gula spjaldið fær hún eins leiks bann. Tveir nýliðar fengu að spreyta sig gegn Spán- verjum í gærkvöld, Björg Ásta Þórðardóttir úr Breiðabliki og Dóra Stef- ánsdóttir úr Val.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.