Morgunblaðið - 27.06.2002, Qupperneq 3
efur unnið þrjá leiki og fjórum sinnum hefur
ð jafntefli. Hvort félag hefur skorað 12 mörk.
viðureignum liðanna á KR-velli er líka jafn-
i. Hvort lið hefur unnið einn leik en þrisvar
ur orðið jafntefli. Í fyrra gerðu liðin 0:0 jafntefli
sturbænum.
Grindavík – Þór
rindavíkurvöllur, 27. júní kl. 19.15.
etta er fyrsta viðureign félaganna í efstu deild
þau hafa aðeins einu sinni áður leikið í sömu
d. Það var í næstefstu deild árið 1991.
vann Þór í Grindavík, 2:1, en Grindavík vann á
reyri, 1:0.
ÍA – ÍBV
kranesvöllur 27. júní kl. 19.15.
A og ÍBV hafa mæst í 52 leikjum í efstu deild
fyrstu viðureign þeirra árið 1969. ÍA hefur
ið 26 leiki, ÍBV 19, en sjö hafa endað með jafn-
. ÍA hefur skorað 97 mörk en ÍBV 76.
BV hefur hinsvegar haft betur undanfarin ár
ÍA hefur aðeins náð einum sigri í síðustu 11
reignum liðanna. Það var 1:0 sigur á Akranesi
8 þar sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson, nú
ingur, skoraði sigurmarkið.
iðin hafa skilið jöfn í fjórum af síðustu sex
um sínum, þar af þrisvar í röð á Akranesi.
m að því höfðu þau aðeins gert þrjú jafntefli í
eikjum sín á milli.
ómas Ingi Tómasson skoraði tvö mörk fyrir
V og Hlynur Stefánsson eitt í 4:3 sigri Eyja-
na á Akranesi fyrir tólf árum. Þeir eru enn í
u fjöri með ÍBV.
völdsins
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 B 3
Opna GR verður haldið á Grafarholtsvelli dagana 29. og 30. júní. Leiknar verða 36 holur.
Tveir saman í liði. Leikin verður punktakeppni, betri bolti.
Full forgjöf að hámarki 18, eða einn punktur á holu.
1. Evrópuferð með Icelandair 2. Evrópuferð með Icelandair
3. Evrópuferð með Icelandair 4. Flug innanlands fyrir 2 með Flugfélagi Íslands
5.- 8. Flug innanlands fyrir 1 með Flugfélagi Íslands
9. Ping pútter frá Íslensk-Ameríska 10-11. Út að borða á Café Óperu kr. 10.000
12.-16. Vöruúttekt í Nevada Bob kr. 10.000
17. Vöruúttekt í Hole in One kr. 10.000
18.-19. Út að borða á Si Senior kr. 10.000 20. Gjafakarfa frá Íslensk-Ameríska
Nándarverðlaun:
2. braut: Út að borða á Si Senior kr. 20.000 6. braut: Trek reiðhjól frá Erninum 11. braut: Gisting fyrir 2 á Hótel Eddu
17. braut: Jólahlaðborð fyrir 2 hjá JT veitingum, Hótel Loftleiðum 18. braut: TAL frelsi og gsm sími frá TAL
Þátttökugjald kr. 5.000 pr. mann.
Skráning er í síma 585 0210
VALKYRJUMÓT - OPIÐ KVENNAMÓT!
verður haldið á Svarfhólsvelli laugardaginn 29. júní.
Leikform: Punktakeppni með fullri forgjöf.
Rástímar frá kl. 10.00 til 12.30.
Glæsileg verðlaun að vanda.
OPNA PLASTIÐJUMÓTIÐ!
verður haldið á Svarfhólsvelli sunnudaginn 30. júní.
Leikform: TEXAS - SCRAMBLE. Tveir leika saman.
Glæsileg verðlaun frá Golfbúðinni.
Rástímar frá kl. 8.00 til 10.30 og 13.30 til 15.00.
Velkomin á mót á Selfoss.
Svarfhólsvöllur hefur aldrei verið betri og skartar sínu fegursta.
Uppl. og skráning í síma 482 3335 og á golf.is
Brasilíumenn voru betri aðilinn,sýndu oft skemmtilega sóknar-
tilburði og voru nær því að skora
fleiri mörk en Tyrkir að svara fyrir
sig. En Tyrkir áttu sín færi, gáfust
aldrei upp, og geta verið stoltir af
sinni frammistöðu í keppninni.
Þeirra tilþrif voru á köflum ekki síðri
en Brassanna, sérstaklega framan af
leiknum.
Snilldartilþrif Ronaldos skildu lið-
in að þegar upp var staðið. Hann lék
inn í vítateig Tyrkja í byrjun síðari
hálfleiks og skoraði með lúmsku
skoti, skaut með tánni, og kom Rüstü
Recber, frábærum markverði
Tyrkja, í opna skjöldu. Ronaldo til-
einkaði markið Romario, landa sín-
um sem sat heima með sárt ennið
þegar HM-hópurinn var valinn. „Ég
skoraði með tánni eins og Romario
gerir svo oft,“ sagði Ronaldo.
Hann fagnaði hóflega eftir leikinn.
„Við höfum ekkert unnið ennþá,“
sagði Ronaldo, minnugur úrslita-
leiksins frá 1998 þegar Brasilíumenn
steinlágu fyrir Frökkum, 3:0. „Við
munum aldrei gleyma þeim leik fyrr
en við verðum heimsmeistarar. Það
þýðir ekkert að byrja að fagna strax.
Úrslitaleikurinn verður alls ekki
auðveldur og við megum ekki vera of
öruggir með okkur.“
Ronaldo sagði að Tyrkir hefðu
verið afar erfiðir andstæðingar.
„Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega
erfiður. Tyrknesku varnarmennirnir
voru ávallt mjög vel staðsettir og
gáfu okkur engin tækifæri til að
sleppa í gegn,“ sagði þessi snjalli
sóknarmaður.
Brasilía og Þýskaland
mætast í fyrsta sinn á HM
Þetta verður þriðji úrslitaleikur
Brasilíu í röð en liðið varð heims-
meistari 1994, sigraði þá Ítalíu í víta-
spyrnukeppni eftir markalausan úr-
slitaleik. Þótt ótrúlegt megi virðast
verður þetta í fyrsta skipti sem
Brasilía og Þýskaland mætast í loka-
keppni HM.
Senol Günes, þjálfari Tyrkja,
sagði að markmiðið hefði verið að
þreyta Brasilíumenn og sigra þá á
marki seint í leiknum. En þó það
hefði farið úrskeiðis var hann mjög
sáttur við sitt lið.
„Við komum hingað til að láta að
okkur kveða og náðum settu marki.
Það er frábært að komast í undan-
úrslit en við vildum ná alla leið. Mínir
menn voru stórkostlegir en okkur
þykir miður að hafa ekki gefið tyrk-
nesku þjóðinni nokkra hamingju-
daga í viðbót. En framtíð tyrkneskr-
ar knattspyrnu er björt, svo mikið er
víst.“
Gunes spáir Brasilíumönnum
heimsmeistaratitlinum. „Þeir hafa
unnið alla leiki sína í keppninni og ég
tel að úrslitaleikurinn gegn Þýska-
landi verði þeim tiltölulega auðveld-
ur,“ sagði tyrkneski þjálfarinn.
AP
onaldo fagnar sigurmarkinu gegn
yrkjum í gær. Hann hefur skorað sex
örk á HM og alls tíu mörk í heims-
eistarakeppni. Ronaldo skoraði fjög-
ur mörk á HM í Frakklandi 1998.
Táin á Ronaldo
felldi Tyrkina
ÞEIR voru ekki margir sem töldu Brasilíumenn líklega til afreka
þegar heimsmeistarakeppnin hófst fyrir tæpum mánuði síðan.
Þessi sigursælasta knattspyrnuþjóð allra tíma þurfti að hafa mikið
fyrir því að komast í hóp þeirra 32 sem háðu lokarimmuna um tit-
ilinn í Japan og Suður-Kóreu, og allt frá því 16 liða úrslitin hófust
hafa margir orðið til að spá þeim falli við hverja hindrun. En
„Sambastrákarnir“ hafa hrundið öllum hrakspám og eru á verð-
skuldaðan hátt komnir í sjálfan úrslitaleikinn næsta sunnudag eftir
sigur á Tyrkjum, 1:0, í gær. Þar mæta þeir Þjóðverjum í miklu upp-
gjöri og freista þess að vinna heimsbikarinn í fimmta skipti, fyrstir
allra, en Þjóðverjar reyna að jafna við þá metin með því að hreppa
hann í fjórða sinn.