Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 4

Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 4
Sampras og Agassi úr leik á Wimbledon BANDARÍSKU stjörnurnar féllu hver af annarri úr keppni á Wimbledon-mótinu í tennis í gær en Andre Aggasi tapaði í þremur lotum, 6:4, 7:6 og 6:2, gegn Paradorn Srichaphan frá Taílandi sem er í 67. sæti á styrkleikalista mótsins. Sjöfaldur Wimbledon- meistari, Pete Sampras, er einnig fallinn úr keppninni en hann tap- aði fyrir George Bastl frá Sviss í fimm lotu viðureign. Rússinn Mar- at Safin, sem var talinn annar sterkasti leikmaður mótsins, er einn- ig úr leik. FÓLK  ANTONIO Oliveira, landsliðsþjálf- ara Portúgals í knattspyrnu, var sagt upp stöfum í gær í vegna slaks árang- urs liðsins á heimsmeistaramótinu. Undir stjórn Oliveiras vann portú- galska liðið Pólland en tapaði fyrir Suður-Kóreu og Bandaríkjunum og komst þar með ekki í 16 liða úrslit. Ekki er ljóst hver eftirmaður hans verður en hann verður ráðinn þegar búið verður að mynda nýja stjórn knattspyrnusambandsins.  GERHARD Aigner, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Evr- ópu, telur að prófa eigi að að nota tvo dómara í knattspyrnuleikjum. Hann lét þessi orð falla í kjölfar umræðunn- ar um dómgæsluna á heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu, en fjölmargir hafa gagnrýnt hana síðustu daga. „Þetta hlýtur að vera til hagsbóta. Dómarinn yrði ekki eins fljótt þreytt- ur, hann gæti fylgst betur með og væri í betri aðstöðu til þess að meta ýmis vafaatriði,“ sagði Aigner í viðtali á heimasíðu knattspyrnusambands- ins, uefa.com.  ENSKA dagblaðið Daily Mail greinir frá því að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vilji festa kaup á tyrkneska landsliðsmarkverð- inum Rüstü Recber. Markvörðurinn hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á heimsmeistara- mótinu í knattspyrnu, nú síðast gegn Brasilíu í undanúrslitum. Recber er nú á mála hjá tyrkneska liðinu Fen- erbahce og er talið að Arsenal þurfi að greiða a.m.k. fjórar milljónir punda, um 520 milljónir króna, fyrir leikmanninn sem er ætlað að taka við af David Seaman sem hyggst leggja skóna á hilluna í sumar eða næsta vor.  ÍRSKI sóknarmaðurinn Niall Quinn, sem hætti nýverið að leika með írska landsliðinu í knattspyrnu, hefur nú verið tekinn inn í þjálfara- teymi liðs síns, enska úrvalsdeildar- liðsins Sunderland. Hann mun því bæði þjálfa og leika með liðinu á næstu leiktíð. Hann tekur stöðu Adr- ians Heaths sem er orðinn aðstoðar- maður Peters Reids, knattspyrnu- stjóra félagsins.  SPÁNVERJINN Fernando Mor- ientes þykir vera kynþokkafyllsti leikmaðurinn á HM ef marka má skoðanakönnun sem ástralska sjón- varpsstöðin Canal 9 lét framkvæma. Morientes hlaut 42% atkvæðanna, Roque Santa Cruz frá Paragvæ varð annar með 30% og Bandaríkjamað- urinn Landon Donovan þriðji með 12%.  MICHAEL Ballack hetja Þjóðverja í leikjunum við Bandaríkjamenn og S-Kóreumenn viðurkennir að hafa grátið inni í búningsklefanum eftir leikinn við S-Kóreu þegar hann áttaði sig á að hann yrði í leikbanni í úrslita- leiknum á HM. „Það er erfitt að sætta sig við að missa af úrslitaleiknum og ég man að ég fann mikið til með Frakkanum Laurent Blanc á HM fyr- ir fjórum en hann var þá í banni í úr- slitaleiknum við Brasilíu,“ segir Ball- ack sem skoraði þrjú mörk á HM og lagði upp fjögur mörk.  AIME Anthuenis, þjálfari Ander- lecht, þykir líklegastur til að taka við þjálfun belgíska landsliðsins af Ro- bert Waseige sem hefur verið ráðinn þjálfari Standard Liege í þriðja skipti á þjálfaraferli sínum. Hugo Broos, þjálfari Mouskroen, var talinn líkleg- ur arftaki Waseige en hann er samn- ingsbundinn liðinu til ársins 2005 og forráðamenn félagsins vilja ekki rifta þeim samningi.  KOSTARÍKA hefur boðið lands- liðsþjálfaranum Alexandre Guimar- aes nýjan samning sem gildir til árs- ins 2006 en samningur hans við knattspyrnusamband Kostaríka rann út eftir að þátttöku liðsins lauk á HM. Í nýja samningum á Guimaraes að fá í laun 13.000 pund á mánuði sem samsvarar um 17 milljónum króna. Leikurinn var ekki nema níu mín-útna gamall þegar Adolf Sveins- son stakk sér í gengum vörn FH-inga og kom heimamönn- um yfir. Þetta var nánast í eina skiptið í fyrri hálfleik sem Keflvíkingar ógnuðu marki FH-inga. Leikaðferð Keflvík- inga byggðist á að draga lið sitt aftur á völlinn og verjast á sínum vallar- helmingi og eftir markið bar enn þess enn sterkari merki. FH-ingar voru með knöttinn meira og minna í fyrri hálfleiknum inni á vallarhelmingi Keflvíkinga en náðu sjaldan að kom- ast í gegnum þéttan varnarmúr Suð- urnesjamanna. Jóhann Möller fékk þó gullið færi á að jafna metin á 32. mínútu en skallaði framhjá úr opnu færi eftir góðan undirbúning Hilm- ars Björnssonar. FH-ingar gerðu breytingu á liði sínu í leikhléinu. Guðmundur Sæv- arsson tók stöðu Litháans Valdas Trakys í framlínunni og innkoma hans hleypti nýju blóði í leik FH- inga. FH-ingar jöfnuðu metin á 56. mínútu og var þar á ferðinni um- ræddur Guðmundur. FH-ingar héldu áfram að sækja talsvert eftir markið en með innkomu Guðmundar Stein- arssonar og síðan Hauks Inga Guðnasonar í framlínu Keflvíkinga færðist mikið líf í leik Suðurnesja- manna. Síðustu 20 mínúturnar voru fjörugasti kaflinn í leiknum þar sem liðin sóttu á víxl. Keflvíkingar voru nær því að tryggja sér sigurinn, fyrst komst Haukur Ingi í gott færi einn gegn markverðinum en Daði Lárus- son lokaði vel á Hauk og náði að hirða knöttinn af tám hans. Fimm mínút- um fyrir leikslok átti svo Adolf Sveinsson skalla í þverslána eftir hornspyrnu Guðmundar Steinars- sonar en í millitíðinni varði Ómar Jóhansson, markvörður Keflvíkinga, naumlega þrumuskot Jóns Þ. Stef- ánssonar. Niðurstaðan því jafntefli og bæði lið með 9 stig eins og KA og Fram. „Þetta voru tvö töpuð stig. Mér fannst við eiga skilið að vinna en heppnin var ekki með okkur eins og til mynda þegar ég skallaði slána undir lokin. Okkar leikaðferð gengur út á að liggja aðeins til baka og sækja hratt þegar færi gefst. Við náðum fáum sóknum í fyrri hálfleik en í þeim síðari gekk það betur og vildum svo sannarlega taka stigin þrjú sem í boði voru. Við fengum færin en ef við ætl- um að vinna leikina verðum við að skora úr svona færum. Enn eftir tvo tapleiki í röð var gott að ná þó í stig og vonandi er það upphafið af ein- hverju meira,“ sagði Adolf Sveins- son, framherji Keflvíkinga, sem var mjög sprækur í leiknum. Vörnin var traust með Zoran Ljubicic og Harald Guðmundsson öfluga í hjarta hennar og ungur nýliði, Brynjar Guðmunds- son, komst vel frá sínum leik í stöðu vinstri bakvarðar. Kristján Jóhanns- son og Þórarinn Kristjánsson voru duglegir á miðjunni en það var ekki fyrr en Keflvíkingar tóku þá ákvörð- un að brjótast út úr varnarskelinni sem einhver broddur kom í sóknar- leikinn. Fram að því byggðist leikur heimamanna mest upp á kýlingum, öflugum varnarleik og og mikilli bar- áttu. FH-ingar höfðu frumkvæðið megnið af leiknum en einhvern neista skorti í liðið og meira hugmyndaflug í sóknarleikinn. Varnarlína FH lá mjög aftarlega, einkum í fyrri hálf- leik, og heldur einkennilegt þar sem Keflvíkingar voru aðeins með einn mann frammi og láu í vörn. Heimir Guðjónsson og Hilmar Björnsson komust einna best frá leik FH-inga, Heimir mjög áberandi á miðsvæðinu og Hilmar ávallt að byggja upp sókn- ir. Jón Þorgrímur átti góðar rispur á kantinum og Guðmundur Sævarsson hleypti lífi í leik sinna manna í síðari hálfleiknum. FH-ingar eru ekki sátt- ir við uppskeruna eftir sjö umferðir og verða að herða róðurinn ætli þeir að blanda sér í toppbaráttuna. „Við hefðum auðvitað viljað fá öll stigin eins og leikurinn spilaðist en það má kannski segja að Keflvíking- ar hefðu með smáheppni getað stolið sigrinum undir lokin. Það vantaði áberandi neista í liðið í fyrri hálfleik en mér leikur okkar batna til mun í þeim síðari og meiri vilji hjá strákun- um. En það vantaði herslumuninn og því var uppskeran aðeins eitt stig. Þetta er tvö töpuð stig en það má heldur ekki gleyma því að hvert stig er mjög mikilvægt þessa dagana,“ sagði Guðlaugur Baldursson, aðstoð- arþjálfari FH-inga, eftir leikinn. Bæði liðin ósátt Morgunblaðið/Páll Ketilsson Guðmundur Steinarsson, framherji Keflvíkinga, á hér í höggi við FH-ingana Benedikt Árnason og Baldur Bett og Heimir Guðjónsson er greinilega við öllu viðbúinn. SPORIN voru frekar þung hjá leikmönnum Keflvíkinga og FH- inga þegar þeir gengu út af vell- inum í Keflavík í gær eftir 1:1- jafntefli liðanna lokaleik 7. um- ferðar úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Bæði lið töldu sig bera skarðan hlut frá borði en þegar á heildina er litið voru úr- slitin sanngjörn. Guðmundur Hilmarsson skrifar                                      !              !  "      !      #!!  $                            !    " #    ! $   % &'         $     (%      )*'+ %, '  - . "/ (      0)'+   " " 6  9 0:;:< = %,     >   ?         /      ! ' &   (      ;@'+ &  A   A  ' %,  %      ( !   BC'+        ( " 3    BC'+ D     ? "  6/ ?  " E B'   A?"  %  &' ( &))&    9 *   ! + ,   -&  .!!   #,   9 /0'  1  2  + 0     9 3   4  2 !  5  "   "9  6/ 9   9 : : : <C <C ) F  " " 6  9 0:0:* 6 ! 2 +  !  7-89  : !  +  78/9  :  !  ;( +  !  70'9  :   !  4 +  !  7/<9  :  6   69 3 <9C 7<9 <9< 78'9 (0+ F F (F+

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.