Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 1
2002  FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ATLI EÐVALDSSON STYÐUR LANDSLIÐSÞJÁLFARA SKOTA / C4 Árni Gautur sá tekjuhæsti SKATTYFIRVÖLD í Noregi birtu í gær lista yfir tekjur og opinber gjöld á árinu 2001. Þar kemur fram að landsliðsmarkvörðurinn Árni Gautur Arason úr liði Rosenborg var með um 18,4 milljónir ísl. kr. í tekjur á því ári og er tekjuhæstur íslenskra íþrótta- manna í Noregi. Jóhann Birnir Guðmunds- son, knattspyrnumaður hjá Lyn, er sagður vera með 12 millj. kr. í laun á ári. Marel Jó- hann Baldvinsson, Stabæk, er með 9 millj. kr. og Helgi Sigurðsson, Lyn, er með 4,3 millj. kr. Þjálfarinn Teitur Þórðarson hjá Brann er með um eina milljón ísl. kr. á mánuði eða 12,4 millj. kr. á ári. Ekki náðist í upplýsingar um aðra leik- menn sem léku í efstu deild í Noregi árið 2001. AUÐUN Helgason og forráða- menn belgíska liðsins Lokeren hafa náð samkomulagi um að Auðun fái frjálsa sölu frá félag- inu en hann hefur átt erfitt upp- dráttar hjá því á síðasta tíma- bili og lítið sem ekkert fengið að reyna sig. „Ég er fyrst og fremst ánægður með að þessu máli sé lokið, sérstaklega í ljósi þess hvernig forseti liðsins hefur komið fram við mig síðustu mánuðina,“ sagði Auðun í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Það voru tveir möguleikar í stöðunni. Annaðhvort að fara í mál við Lokeren vegna launa sem þeir skulda mér frá 1. júlí í ár eða að segja upp samningum og losna þannig frá félaginu. Lögfræðingur minn sagði að við myndum vinna málið, en hann treysti sér ekki til að segja til um hvenær það myndi gerast. Hann taldi að það gæti tekið þrjá mánuði eða þrjú ár. Lögfræðingnum tókst síðan að fá það í gegn að ég fengi rift samningnum við félagið. Hvað framtíðina varðar þá hefur umboðsmaður minn verið í viðræðum við tvö félög og það ætti að skýrast á næstunni hvort eitthvað kemur út úr því. Það eina sem ég hugsa um núna er að byrja að spila fót- bolta sem fyrst og vinna aftur sæti mitt í landsliðinu. Ég hef upplifað ýmislegt hér hjá Lokeren sem ég hélt að væri ekki til í knattspyrnuheimin- um. En þetta á eftir að gera mig að sterkari einstaklingi og leikmanni,“ sagði Auðun. VEGNA rigninga urðu leikmenn landsliðsins og ungmennaliðsins, sem mætir Skotum í Ólympíuleik á Kaplakrikavellinum í dag kl. 15.30, að leita skjóls innanhúss í gær- morgun. Liðin æfðu í Fífunni í Kópavogi. Hér má sjá Hermann Hreiðarsson, leikmann Ipswich, á æfingunni. Þetta var í fyrsta skipti sem landslið Íslands æfðu innan- húss fyrir stórviðureignir. Leikur ungmennaliðsins í dag er Evrópu- leikur, sem er jafnframt leikur í undankeppni ÓL í Aþenu 2002. Morgunblaðið/Kristinn Æft innanhúss í Fífunni Brotthvarf Cotterills bar brátt aðog Gunnar Gíslason, stjórnar- formaður Stoke, sagði við Morgun- blaðið í gær að aðdragandinn hefði verið enginn. „Ég lá uppi í rúmi í gærkvöld (fyrrakvöld) og las Harry Potter fyrir drengina mína þegar Cotterill hringdi og tilkynnti mér að hann væri hættur hjá okkur og bú- inn að ráða sig til Sunderland. Við því var í raun ekkert hægt að segja, þetta var greinilega búið mál og til- gangslaust að þrátta um það. Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu en það er jafnframt ljóst að Cotterill hafði vitað af þessu í einhvern tíma. Hann gaf leikmönnunum vikufrí eft- ir leikinn á laugardaginn og var því greinilega kominn með hugann við Sunderland. Cotterill stóð sig vel og við höfðum ekkert út á hans störf að setja. Liðið hefur í haust spilað betri fótbolta en áður og við erum nokkuð sáttir við stöðu þess í 1. deildinni,“ sagði Gunnar. Hann sagði að stjórn Stoke myndi ekki fara á taugum við að leita að eft- irmanni Cotterills. „Við erum í góðri æfingu síðan við skiptum um stjóra í sumar og vitum að það borgar sig ekki að flýta sér um of. Við viljum frekar gefa okkur tíma til að finna rétta manninn, heldur en að ráða einhvern í flýti. Liðið er í góðum höndum hjá þjálfaranum David Kev- an, sem sér um það þar til nýr maður er ráðinn. Við munum reyna að vinna hratt og fumlaust,“ sagði Gunnar. Reid nefndur til sögunnar Hann vildi ekki gefa neitt út á þá sem nefndir hafa verið til sögunnar sem mögulegur arftaki Cotterills. „Það væri ekki rétt að úttala sig um neinn fyrr en hann hefur verið ráð- inn til starfa.“ Enskir fjölmiðlar orð- uðu Peter Reid við stöðuna hjá Stoke í gær en það var einmitt hann sem fékk reisupassann hjá Sunderland – sem leiddi til brotthvarfs Cotterills. Þá voru fyrrum leikmenn og stjórar hjá Stoke, Adrian Heath, Denis Smith og Lou Macari, nefndir til sög- unnar. Afsökunarbeiðni frá Cotterill Cotterill bað stuðningsmenn Stoke afsökunar í gær í viðtali við netútgáfu The Sentinel. „Ég gat ekki hafnað þessu boði og vona að stuðn- ingsmenn félagsins skilji það. Þeir reyndust mér frábærir á allan hátt. Ég skil við liðið í þægilegri stöðu í miðri deild og hef fylgt leikmönnun- um í gegnum erfiðasta hluta tíma- bilsins,“ sagði Cotterill. Knattspyrnustjórinn yfirgaf Íslendingaliðið Stoke og fór til Sunderland „Leitum hratt og fum- laust að nýjum manni“ STEVE Cotterill, knattspyrnustjóri Stoke City, sagði starfi sínu lausu seint í fyrrakvöld eftir að hafa gegnt því í aðeins fimm mán- uði. Uppsögnin kom mjög á óvart en í ljós kom að honum hafði verið boðið að gerast aðstoðarstjóri hjá úrvalsdeildarfélaginu Sunder- land. Þar var Howard Wilkinson kynntur í gær sem nýr knatt- spyrnustjóri félagsins og Cotterill sem hans hægri hönd. Cotterill tók við af Guðjóni Þórðarsyni í maí en Guðjóni var þá sagt upp störf- um nokkrum dögum eftir að hann stýrði liði Stoke upp í ensku 1. deildina. Þar er félagið nú í 15. sæti og hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum sínum. Auðun laus frá Lokeren

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.