Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Undankeppni Ólympíuleikanna í Aþenu
2004 og EM ungmennaliða, U21:
Kaplakriki: Ísland - Skotland...............15.30
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Esso-deild:
Austurberg: ÍR - Þór A..............................20
Selfoss: Selfoss - Fram ..............................20
Hlíðarendi: Valur - Víkingur .....................20
Vestmannaeyjar: ÍBV - HK ......................20
1. deild kvenna, Esso-deild:
Framhús: Fram - KA/Þór .........................20
Kaplakriki: FH - Stjarnan.........................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intertoto-deildin:
Hveragerði: Hamar - KR .....................19.15
Njarðvík: UMFN - Keflavík.................19.15
Seljaskóli: ÍR - Skallagrímur ...............19.15
Í DAG
KÖRFUKNATTLEIKUR
Valur - Grindavík 60:110
Hlíðarendi, Reykjavík, úrvalsdeild karla,
Intersport-deildin, fimmtudaginn 10.
október 2002.
Gangur leiksins: 0:10, 14:30, 16:35,18:45,
23:65, 27:72, 33:86, 46:94, 56:101, 65:110.
Stig Vals: Laverne Smith 22, Bjarki
Gústafsson 9, Ólafur Ægisson 9, Ægir
Hrafn Jónsson 6, Ragnar Steinsson 4,
Hinrik Gunnarsson 4, Guðbjörn Sigurðs-
son 2, Baldvin Johnsen 2, Gylfi Már
Geirsson 2.
Fráköst: 6í vörn - 14 í sókn.
Stig Grindavíkur: Darrel K. Lewis 30,
Páll Axel Vilbergsson 23, Helgi Jónas
Guðfinnsson 13, Guðmundur Bragason
10, Ármann Vilbergsson 12, Guðlaugur
Eyjólfsson 8, Bjarni Magnússon 5, Pétur
Guðmundsson 4, Jóhann Þór Ólafsson 2,
Davíð Páll Hermansson 2.
Fráköst: 38 í vörn - 7 í sókn.
Villur: Valur 24 - Grindavík 24.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Erling-
ur Erlingsson, fínir.
Áhorfendur: Um 100.
Haukar - Breiðablik 91:79
Ásvellir:
Gangur leiksins: 2:0, 4:5, 7:7, 12:9, 21:15,
23:23, 25:23, 27:25, 29:29, 37:31, 44:33,
48:38, 54:40, 54:42, 59:44, 65:52, 70:54,
77:56, 79:62, 83:65, 89:71, 91:79.
Stig Hauka: Stevie Johnson 40, Ingvar
Guðjónsson 16. Predrag Bojovic 16, Mar-
el Guðlaugsson 6, Lúðvík Bjarnason 6,
Sævar Haraldsson 4, Þórður Gunnþórs-
son 3.
Fráköst: 20 í vörn - 22 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kenny Tate 35, Pálmi
Sigurgeirsson 17, Þórólfur Þorsteinsson
8, Eyjólfur Jónsson 6, Valdimar Helga-
son 6, Þórarinn Andrésson 3, Friðrik
Hreinsson 2, Jón Arnar Ingvarsson 2.
Fráköst: 15 í vörn - 15 í sókn.
Villur: Haukar 22 - Breiðablik 28.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og
Einar Skarphéðinsson, voru smámuna-
samir og virkuðu hálf ryðgaðir.
Áhorfendur: Um 200.
Snæfell - Tindastóll 84:86
Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi:
Gangur leiksins: 10:14, 20:20, 25:38,
36:48, 45:53, 51:62, 65:64, 73:77, 73:82,
84:86.
Stig Snæfells: Clifton Bush 28, Jón Ólaf-
ur Jónsson 19, Helgi Reynir Guðmunds-
son 14, Sigurbjörn Þórðarson 8, Lýður
Vignisson 7, Andrés Heiðarsson 6, Daði
H. Sigurþórsson 2
Fráköst: 22 í vörn - 10 í sókn.
Stig Tindastóls: Kristinn Friðriksson 19,
Clifton Cook 18, Maurice Carter 18,
Michail Antropov 16, Óli Barðdal 9, Axel
Kárason 6.
Fráköst: 19 í vörn - 11 í sókn.
Villur: Haukar 23 - Breiðablik 21.
Dómarar: Einar Einarsson og Bjarni G.,
komust ágætlega frá leiknum.
Áhorfendur: 230.
Keflavík - Grindavík
Íþróttahúsið í Keflavík, 1. deild kvenna,
fimmtudaginn 10. október 2002.
Stig Keflavíkur: Anna María Sveinsdótt-
ir 23, Birna Valgarðsdóttir 19, María A.
Guðmundsdóttir 11, Kristín Blöndal 9,
Rannveig Randversdóttir 9, Lára Gunn-
arsdóttir 3, Svava Ósk Stefánsdóttir 2.
Stig Grindavíkur: Denise Shelton 50,
Sólveig H. Gunnlaugsdóttir 6, María A.
Guðmundsdóttir 5, Sandra Guðlaugsdótt-
ir 3, Guðrún Guðmundsdóttir 2, Sigríður
Ólafsdóttir 2.
ÍS - Haukar 49:54
Íþróttahús Kennaraháskólans:
Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 14, Þórunn
Bjarnadóttir 10, Steinunn D. Jónsdóttir
8, Cecilia Larsson 6, Kristín Kjartans-
dóttir 4, Svandís Sigurðardóttir 4, Jó-
fríður Halldórsdóttir 3.
Stig Hauka: Egedia Raueaite 14, Stef-
anía S. Jónsdóttir 13, Helena Sverris-
dóttir 8, Birna Eiríksdóttir 7, Hafdís
Hafberg 6, Pálína Gunnlaugsdóttir 4,
Ösp Jóhannsdóttir 2.
ÚRSLIT
Það var greinilegt frá fyrstumínútu í leik Vals og Grinda-
víkur að allar aðgerðir gestanna
voru mun lengra á
veg komnar, í vörn
sem sókn. Valsmenn
eru með lið sem á
pappírnum fræga
lítur ágætlega út, þar má finna
reynda leikmenn, en eitthvað hafa
þeir slakað á við æfingarnar í sum-
ar því Grindvíkingar voru á allt öðr-
um hraða frá upphafi til enda.
Bæði lið eru með bandaríska leik-
menn sem eru að leika í fyrsta sinn
hér á landi og var Valsmaðurinn
Laverne Smith ekki öfundsverður í
sínum fyrsta leik. Hann sýndi ágæt
tilþrif af og til og er varla er hægt
að dæma hann af þessum eina leik.
Öðru gildir um Darrell K. Lewis í
liði Grindavíkur, sem fór á kostum í
vörn sem sókn. Lewis er grannvax-
inn, afar lipur með knöttinn og hör-
kuvarnarmaður. Oft á tíðum minnti
hann ískyggilega mikið á fyrrver-
andi NBA-leikmanninn Michael
Cooper.
Liðsheildin var afar sterk hjá
Grindvíkingum sem gerði út um
leikinn með rispum í fyrri hálfleik
þar sem liðið skoraði í þrígang tíu
stig gegn engu, og einu sinni settu
þeir þrettán stig í röð án þess að
Valsmenn gætu svarað.
Eins og gefur að skilja var fátt
um fína drætti hjá Val og uppgjöfin
algjör í fyrri hálfleik. „Kjúklingarn-
ir“ hjá Grindavík fengu að spreyta
sig mikið og vöktu fjórar þriggja
stiga körfur frá Ármanni Vilbergs-
syni athygli, en hann tók aðeins
fjögur skot. Auk hans áttu þeir
Davíð P. Hermansson og Jóhann
Þór Ólafsson fína spretti.
Helgi Jónas Guðfinnsson lék að-
eins í fyrri hálfleik og er greinilega
í fínu standi eftir tuðrusparkið í
sumar. Guðmundur Bragason var
traustur, ásamt Páli A. Vilbergs-
syni en þeir Bjarni Magnússon og
Pétur Guðmundsson eru greinilega
langt á eftir í undirbúningi sínum
fyrir deildina. Valsmenn eru ekki
líklegir til þess að bíta mikið frá sér
í vetur en Grindvíkingar ætla sér
greinileg ekkert annað en að vera á
toppnum og verða líkast til á þeim
slóðum í vetur.
Johnson fór á kostum
Haukar með BandaríkjamanninnStevie Johnson í broddi fylk-
ingar hófu tímabilið með sannfær-
andi sigri á Breiða-
bliki, 91:79, á
heimavelli sínum á
Ásvöllum. Fyrri
hálfleikur bauð upp
á skemmtileg tilþrif og sýningu
Bandaríkjamannanna í liðunum
tveimur og þá einkum og sér í lagi
hjá Haukamanninum Stevie John-
son. Johnson fór algjörlega á kost-
um í fyrri hálfleiknum og réðu Blik-
arnir ekkert við hann. Hann setti
niður 31 stig og sýndi mögnuð til-
þrif. Blikinn Kenny Tate átti einnig
mjög skemmtilegar rispur en hann
skoraði 22 stig í fyrri hálfleik og
hélt Blikunum á floti. Jafnræði var
með liðunum í fyrsta leikhluta og
fram í annan en þá tóku Haukar
virkilega vel við sér. Þeir hristu
Blikana af sér og þar fór Johnson
fyrir liði Hauka. Hann raðaði niður
hverri körfunni á fætur annarri og
Haukar leiddu með 14 stigum þegar
fyrri hálfleikurinn var allur.
Heldur dró úr hraðanum í síðari
hálfleiknum. Haukarnir efldu mjög
varnarleik sinn og áttu leikmenn
Blika oft í basli með hreyfanlega
vörn Haukanna. Þá færðist meiri ró
í sóknarleik Haukanna og Johnson
hugsaði meira um að spila félaga
sína uppi en að skjóta. Blikarnir
virtust ekki hafa trú á því sem þeir
voru að gera og þeir gáfust snemma
upp. Haukarnir höfðu leikinn al-
gjörlega í sínum höndum og spiluðu
af mikilli yfirvegun allt til leiksloka.
„Það er alltaf gott að ná sigri í
fyrsta leik. Spennan var mikil í
mannskapnum fyrir leikinn en ég
var ánægður með hvernig liðið lék.
Strákarnir lögðu sig vel fram, það
var stemning í þeim og þeir höfðu
gaman af því sem þeir voru að
gera,“ sagði Reynir Kristjánsson,
þjálfari Hauka, við Morgunblaðið
eftir leikinn.
Johnson var eins og áður segir sá
leikmaður í Haukaliðinu sem skar-
aði fram úr en auk þess að skora 40
stig tók kappinn 15 fráköst. Ingvar
Guðjónsson átti skínandi leik og var
óragur að brjóta sér leið að körfu
Blikanna og Predrag Bojovic var
drjúgur fyrir sína menn. Liðsheild-
in var annars mjög sterk hjá Hauk-
unum sem virka með frískasta móti.
Blikarnir byrjuðu vel og virtust
til alls líklegir. Mótlætið fór hins
vegar illa í þá og í stað þess að
spýta í lófana gáfust þeir nánast
upp. Tate stóð upp úr í þeirra liði
og Pálmi Sigurgeirsson átti þokka-
lega spretti en gamli Haukamað-
urinn, Jón Arnar Ingvarsson, spil-
andi þjálfari Breiðabliks, náði sér
ekki á strik og munar um minna.
Tindastóll marði Snæfell
Tindastóll sigraði Snæfell íStykkishólmi í gærkveldi 86:84
í fyrsta leik Snæfels í úrvalsdeild-
inni í þrjú ár.
Snæfell sem lék
án Hlyns Bærings-
sonar, sem var í
leikbanni, hafði
frumkvæðið á upphafsmínútunum,
en eftir það náði Tindastóll undir-
tökunum og hélt þeim fram í byrjun
fjórða leikhluta er Snæfell náði eitt
augnablik að komast yfir 65:64.
Í lokin var mikil spenna þar sem
Tindastóll var þó alltaf skrefinu á
undan. Heimamenn fengu þó tæki-
færi á að jafna en brenndu af fimm
vítum af sex á síðustu mínútu leiks-
ins og áttu að auki misheppnaðar
sendingar.
Varnarleikur gestanna var mun
betri og ákafari enn heimamanna,
sérstaklega var þetta áberandi í
þriðja leikhluta. Var sóknarleikur
Snæfells því oft og tíðum ráðleys-
islegur og greinilegt að liðið sakn-
aði Hlyns Bæringssonar mikið.
Helsti veikleiki Snæfells í leiknum
var ónákvæmar sendingar, og voru
ófáir boltarnir sem þannig töpuð-
ust. Lið Tindastóls mætti einungis
með níu leikmenn og var nánast
leikið á sex mönnum, svo breiddin
er ekki mikil en dugði í þetta sinn.
Hjá norðanmönnum fór Clifton
Cook á kostum í fyrri hálfleik en lét
minna á sér bera í þeim síðari.
Kristinn Friðriksson skilaði sínu í
sóknarleiknum en ansi var varnar-
leikurinn þungur. Michail Antropov
var drjúgur, með hæð sinni var
hann sífelld ógn við heimamenn
bæði í vörn og sókn. Þá skilaði
þriðji útlendingurinn í liðinu, Maur-
ice Carter, sínu hlutverki vel í
leiknum. Þeir Axel Kárason og Óli
Barðdal stóðu sig vel í vörninni.
Hjá heimamönnum stóðu þeir
upp úr Jón Ólafur Jónsson og Clift-
on Bush, báðir mikilvægir hlekkir í
liðinu. Helgi Reynir Guðmundsson
skilaði sínu hlutverki þokkalega.
Þeir Lýður Vignisson, Andrés
Heiðarsson, Sigurbjörn Þórðarson
og Baldur Þorleifsson áttu ágæta
spretti, sérstaklega í vörninni.
Darrell K. Lewis, leikmaður Grindvíkinga, á fullri ferð, en Bjarki Gú
„STRÁKAR, við erum að hefja vinnu okkar í kvöld, þetta verður
ferðalag fram á vor en við verðum að hafa viljann til þess að vinna,
hvernig sem staðan er,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkur, áður en leikurinn gegn nýliðunum úr Val hófst í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, Intersportdeildinni, í gærkvöldi á Hlíð-
arenda. Þegar upp var staðið sáust stórar tölur á stigatöflunni – Val-
ur 60, Grindavík 110. Tveir aðrir leikir voru leiknir á fyrsta
leikkvöldinu. Tindastóll fagnaði sigri á Snæfelli í spennuleik í Stykk-
ishólmi, 86:84. Í Hafnarfirði unnu Haukar lið Breiðabliks, 91:79.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Ferðalagið
hófst með
stórsigri
E
t
t
h
u
u
s
e
la
s
á
s
æ
h
le
þ
v
le
s
h
HAUKASTÚLKUR byrjuðu vel í 1.
deild kvenna í körfunni, lögðu ÍS
54:49 í Kennaraháskólanum í gær-
kvöldi. Á sama tíma vann Keflavík
lið Grindvíkinga 74:68, en Grindavík
hafði lagt Keflavík tvívegis í
Reykjanesmótinu. Sætur sigur hjá
Keflvíkingum sem léku vel og voru
yfir lengst af þó svo gestirnir kæm-
ust einu stigi yfir um tíma í síðasta
leikhluta. Leikreynsla heimaliðsins
nýttist vel á lokakaflanum. Denise
Shelton var allt í öllu í sókn Grinda-
víkur og gerði 50 stig, en vörnin var
ekki nægilega sterk að þessu sinni.
Egedina Raueaite var atkvæða-
mest hjá Haukum sem létu spá-
dóma sem vind um eyru þjóta og
lögðu ÍS 54:49. Haukaliðið er í mik-
illi framför en liðið tapaði öllum
leikjum sínum í Reykjanesmótinu.
En byrjunin hjá Haukastúlkum lof-
ar góðu og mega þær vel við una í
sínum fyrsta leik í efstu deild
kvanna í áratug.
Haukar
byrja vel