Morgunblaðið - 11.10.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.10.2002, Qupperneq 4
 ÍSLENDINGALIÐIÐ Haslum hélt sigurgöngu sinni áfram í norsku 1. deildinni í handknattleik í fyrra- kvöld. Haslum, sem Kristján Hall- dórsson þjálfar, vann stórsigur á Elverum, 30:17, og hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína í deildinni.  HEIMIR Örn Arnarson lék sinn besta fyrir Haslum til þessa og var markahæstur leikmanna liðsins með 6 mörk, Daníel Ragnarsson skoraði 5 og Theodór Valsson 1. Haslum er með 8 stig eftir fjóra leiki, Hauge- sund hefur 8 stig eftir fimm leiki og Elverum hefur 8 stig eftir 7 leiki.  BJARTUR Máni Sigurðsson skor- aði 3 mörk fyrir lið sitt TV Endingen er það tapaði 32:24 fyrir Wacker Thun í svissnesku úrvalsdeildinni í handknattleik.  GÚSTAF Bjarnason, landsliðs- maður í handknattleik, var með tvö mörk þegar lið hans GWD Minden tapaði 28:27 fyrir TuS N-Lübbecke á heimvelli í annarri umferð þýsku bik- arkeppninnar í handknattleik í fyrrakvöld.  RÓBERT Sighvatsson landsliðs- maður var með tvö mörk fyrir Wetzl- ar þegar liðið tapaði 23:19 fyrir Göppingen í þýksu bikarkeppninni. Félagi Róberts í landsliðinu, Sigurð- ur Bjarnason, lék ekki með Wetzlar í leiknum vegna meiðsla.  EINAR Örn Jónsson, enn einn landsliðsmaðurinn í handknattleik, skoraði 3/1 fyrir Wallau Massenheim er liðið vann Kronau/Östringen, 23:21, í þýsku bikarkeppninni.  GUÐMUNDUR Stephensen, Ís- landsmeistari í borðtennis, lék í fyrrakvöld sinn fyrsta leik með norska félagsliðinu B-72 í norsku úr- valsdeildinni. B-72 vann leik sinn við Modum, 9:1, og lék Guðmundur tvær viðureignir í einliðaleik og vann þær báðar. Þá vann hann einnig örugg- lega í tvíliðaleik ásamt kínverskum samherja sínum.  GRÍSKU meistararnir í Olympiak- os ráku í gær þjálfara sinn, Takis Lemonis, úr starfi og réðu í hans stað Yiannis Kollias, þjálfara U-21 árs landsliðs Grikkja, sem stýra á liðinu að minnsta kosti til bráðabirgða. Olympiakos er í efsta sæti í grísku 1. deildinni en slæmur skellur í meist- aradeildinni, 4:0 á móti Manchester United, varð Lemonis að falli.  STJÓRN enska 1. deildarliðsins Leicester hefur óskað eftir því við leikmenn sína að þeir taki á sig allt að 20% launalækkun til að hægt verði að bæta fjárhagsstöðu félags- ins, sem varð af miklum tekjum þeg- ar það féll úr úrvalsdeildinni í vor.  KÍNVERSKI landsliðsmaðurinn í körfuknattleik Yao Ming hefur kom- ist að munnlegu samkomulagi við NBA-liðið Houston Rockets um inni- hald samnings hans við félagið. Ming var valinn fyrstur allra í háskólaval- inu sl. vor en kínversk yfirvöld hafa enn ekki gefið grænt ljós á samning hans við Houston. Talið er að allt að helmingur launa Mings verði eftir hjá kínverskum yfirvöldum í fram- tíðinni. Hinn 2,26 metra hái miðherji fær a.m.k. 340 milljónir ísl. kr. á ári næstu þrjú árin frá Houston en hann fær rúmlega 900 milljónir á síðasta ári sínu semji hann til fjögurra ára í staða þriggja.  SPÆNSKIR fjölmiðlar fjalla mikið um Ronaldo, leikmann Real Madrid, sem keyptur var frá Inter Milanó fyrir skemmstu. Nú berast fregnir af því að brasilíski landsliðsmaðurinn hafi neitað að stíga á vigtina frá því að hann kom til liðsins en margir telja að markakóngurinn frá því á HM í sumar sé of þungur. „Ég get leikið af um 80% getu í dag en ég er ekki of þungur, ég á mikið inni vegna meiðsla,“ segir Ronaldo, sem vegur um 82 kg er allt er með felldu, segir í dagblaðinu El Pais. FÓLK ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu, sagði í samtali við breska blaðið Guardian í gær að Berti Vogts ætti eftir að skila góðum árangri með skoska lands- liðið ef hann fengi frið til að byggja það upp. „Þegar ég lék í Þýskalandi var Vogts mjög öflugur sem þjálfari yngri liða. Hann náði frábærum árangri þar, og hélt síðan áfram og stýrði þýska landsliðinu til sig- urs í Evrópukeppninni 1996. Það gefur falska mynd af stöðu skoska landsliðsins að það skuli vera sem stendur í 63. sæti heimslistans. Vogts hefur verið að prófa sig áfram í vináttulandsleikjum og tapað þeim, og eflaust hefði það sama getað gerst hjá íslenska landsliðinu ef það hefði spilað eins marga leiki og verið með tilrauna- starfsemi í þeim eins og Vogts,“ sagði Atli við breska blaðið. Atli styður Berti Vogts AP Berti Vogts, landsliðsþjálfari Skotlands, var ekki ber að baki á æfingu skoska landsliðsins í Dumbarton í gær, þegar hann lét leikmenn sína æfa aukaspyrnur. Berti Vogts, landsliðsþjálfariSkota, stillir að öllum líkindum upp leikaðferðinni 3-5-2. Robert Douglas frá Celtic verður í markinu og varnarmennirnir þrír verða að öll- um líkindum þeir Christian Dailly frá West Ham, Steven Pressley frá Hearts og Lee Wilkie frá Dundee. Gary Naysmith frá Everton verður væntanlega tengiliður vinstramegin og Jackie McNamara frá Celtic hægra megin. Á miðjunni verða þeir Ferguson og Paul Lambert frá Celtic, en óvíst er hver verður þriðji maður með þeim. Scot Gemmill frá Everton þykir líklegur, en einnig gæti McNamara farið í þá stöðu og Paul Devlin frá Birmingham komið á hægri vænginn í staðinn. Sóknarmenn verða að öllum líkindum þeir Stephen Craw- ford frá Dunfermline og Steven Thompson frá Dundee United. Vogts hefur mikla trú á Crawford Steve Crawford er lítt þekktur sóknarmaður í skoska landsliðinu en hann er sá framherji sem Vogts virð- ist hafa mesta trú á. Crawford hefur skorað 8 mörk í 12 leikjum fyrir skoska úrvalsdeildarfélagið Dun- fermline á þessu tímabili, og þar af eina þrennu. Hann er næstmarka- hæstur í úrvalsdeildinni, á eftir Hen- rik Larsson hjá Celtic, sem hefur gert 11 mörk. Crawford, sem er 28 ára gamall, kom inn á sem varamaður í byrjun síðari hálfleiks gegn Færeyingum í fyrsta leiknum í undankeppninni og þótti standa sig mjög vel. „Hann hefur staðið sig virkilega vel, skoraði gott mark í æfingaleik með okkur á miðvikudag og ég bind miklar vonir við að hann skori gegn Íslandi á laugardaginn,“ sagði Berti Vogts í samtali við netmiðilinn Sportinglife í gær. Crawford hefur aðeins leikið fjóra landsleiki fyrir Skotland. Sá fyrsti var fyrir sjö árum, undir stjórn Craigs Browns, en síðan liðu fimm ár þar til Brown hóaði í hann á ný. Síðan hefur Crawford leikið tvívegis undir stjórn Vogts. Ferguson tilbúinn í slaginn FLEST bendir til þess að Barry Ferguson, fyrirliði Glasgow Rangers og lykilmaður skoska landsliðsins, geti leikið með því gegn Íslandi á morgun. Fergu- son er meiddur í mjöðm en hef- ur getað tekið þátt í æfingum skoska liðsins og verður án efa í lykilhlutverki á miðjunni á Laug- ardalsvellinum. Wenger sendir Skotum kaldar kveðjur ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sendi skoskum knattspyrnumönnum kaldar kveðjur í gær. Enskir fjölmiðlar höfðu eftir honum að hann hefði aldrei keypt skoskan leik- mann til Arsenal vegna þess að þeir væru ekki nógu góðir. „Útsendarar okkar hafa nokkrum sinnum bent okkur á áhugaverða leikmenn í Skotlandi, en við nánari skoðun kom ávallt í ljós að þeir væru ekki nothæfir. Mér finnst þetta einkennilegt því þegar ég var strákur voru allir bestu leikmennirnir í ensku liðunum frá Skotlandi og ég dáðist að þeim. Núna er staðan í skoskri knattspyrnu þannig að þar eru aðeins tvö stór félög, Celtic og Rangers, og 80 prósent af leikmönnum þeirra eru útlendingar. Það getur varla þýtt annað en að Skotar eigi ekki lengur neina leikmenn í hæsta gæða- flokki,“ segir Wenger. Mér finnst vera voðamikill væll íSkotunum en kannski er þetta hluti af þeirra sálfræði. Í skoska lið- inu eru margir frambærilegir leik- menn og þó svo að Skotar hafi ekki talist til sterkustu knattspyrnuþjóða í Evrópu þá hafa þeir hingað til ekki farið með því hugarfari í leik við Ís- lendinga að reyna að skrapa jafn- tefli,“ sagði Arnar í samtali við Morgunblaðið. „Í mínum huga eru Skotar sigur- stranglegri aðilinn en heimavöllur- inn hefur oft reynst Íslendingum vel og vonandi verður það uppi á ten- ingnum á laugardaginn. Skotar hafa gengið í gegnum töluverða krísu að undanförnu og ég veit að sjálfs- traustið í þeirra herbúðum er ekki mikið. Það gæti komið Íslendingum til góða en það má heldur ekki gleyma því að íslenska landsliðið hef- ur ekki verið að gera neinar rósir upp á síðkastið.“ Arnar segir að árangur skosku lið- anna í Evrópukeppninni í ár hafi ekki verið til að auka bjartsýni hjá skoskum almenningi. „Ég held að fólk meti stöðuna í dag á þann veg að Skotar tefli fram slakasta liði sínu í langan tíma en all- ir sem þekkja til skosku knattspyrn- unnar vita að baráttan er alltaf til staðar hjá leikmönnum og eftir úr- slitin í Færeyjum, sem ég lít svo á að hafi verið slys hjá Skotunum, þá mæta þeir á Laugardalsvöllin eins og grenjandi ljón. Ég held að það hafi aldrei verið eins góður möguleiki á að vinna Skotana en þar með er ekki sagt að íslensku leikmennirnir geti mætt afslappaðir til leiks. Ég vonast innilega eftir íslenskum sigri en ein- hvern veginn hef ég það á tilfinning- unni að úrslitin verði 1:1 jafntefli. Þriggja manna vörn Í sjálfu sér yrðu það alls ekki slæm úrslit fyrir okkur sérstaklega þar sem Skotarnir náðu ekki nema einu stigi í Færeyjum.“ Arnar segir að Skotar muni örugglega leika með þriggja manna vörn og spili leikkerfið 3:5:2. „Ég held að það kerfi henti Skotunum miklu betur heldur en 4-4-2.“ Skotar sigur- stranglegri ARNAR Gunnlaugsson, eini Íslendingurinn sem leikur í Skotlandi, segir að sér komi töluvert á óvart hversu svartsýnir Skotar séu fyrir leikinn við Íslendinga. Arnar, sem er á mála hjá skoska úrvalsdeild- arliðinu Dundee United, reiknar sjálfur með hörkuleik. Hann segir lið Skota vera sýnda veiði en ekki gefna en engu að síður sé gott lag að leggja Skotana að velli í fyrsta sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.