Morgunblaðið - 31.10.2002, Page 1
2002 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÁRNI GAUTUR ÚR LEIK Í MEISTARADEILDINNI / B4
HEIÐAR Helguson hélt uppteknum hætti með
Watford í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi þegar liðið sigraði Stoke, 2:1, á úti-
velli. Heiðar, sem hefur verið sérlega heitur
upp við mark andstæðinanna í undanförnum
leikjum, skoraði fyrra mark sinna manna með
skalla, sitt fimmta mark í sjö leikjum. Sigurinn
færði Watford upp í fjórða sæti deildarinnar
en sigið hefur á ógæfuhliðina hjá Stoke. Liðið
hefur ekki unnið leik síðan 22. september og
er í fjórða neðsta sæti, aðeins tveimur stigum
frá fallsæti. Heiðar lék allan leikinn fyrir Wat-
ford, Brynjar Björn Gunnarsson gerði það
sömuleiðis fyrir Stoke, Bjarni Guðjónsson lék
síðasta hálftímann og lagði upp eina markið en
Pétur Marteinsson var sem fyrr ekki í hópn-
um.
Heiðar með
enn eitt mark
SIGLFIRSKI sóknarmaðurinn Jó-
hann G. Möller skrifaði í gærkvöldi
undir tveggja ára samning við Vals-
menn en samningur Jóhanns við
FH-inga var útrunninn.
Jóhann, sem er 23 ára gamall, hef-
ur lengst af sínum ferli leikið með
KS á Siglufirði. Frá KS fór hann í
ÍBV og lék þar tvö keppnistímabil
áður en hann fór í FH þar sem hann
hefur leikið undanfarin tvö sumur.
Hann hefur leikið samtals 66 leiki í
efstu deild og skorað 7 mörk.
Hilmar Björnsson og Benedikt
Egill Árnason hafa yfirgefið herbúð-
ir FH og fleiri leikmenn gætu verið á
förum frá félaginu. Sóknarmaðurinn
Atli Viðar Björnsson liggur undir
feldi en samningur hans við FH er að
renna út. FH-ingar hafa lýst því yfir
að þeir vilji gera við hann nýjan
samning en önnur lið úr úrvalsdeild-
inni, þar á meðal Fylkir og KA, hafa
sett sig í samband við Dalvíkinginn
knáa sem skoraði fimm mörk í 9
leikjum FH í úrvalsdeildinni í sumar.
Jóhann kominn í Val
STUÐNINGSMENN norska úr-
valsdeildarliðsins Brann, lið Teits
Þórðarsonar, eru greinilega þeirrar
skoðunar að félagið eigi að kaupa
Hornfirðinginn Ármann Smára
Björnsson frá Val ef marka má skoð-
anakönnun sem fram fer á heimasíðu
Brann þessa dagana. 77% þeirra sem
tekið hafa þátt í könnuninni segja að
Brann eigi að kaupa Ármann Smára,
15% segja nei og 8% hafa ekki skoð-
un á því.
Þorlákur Árnason, þjálfari Vals,
segist vel gera sér grein fyrir því að
Ármann Smári eigi upp á pallborðið
hjá stuðningsmönnum Brann enda
hafi hann staðið sig feikilega vel með
liðinu síðan Valsmenn leigðu hann
síðla sumars.
„Við vitum að Brann hefur mikinn
áhuga á að kaupa hann frá okkur.
Við höfum ekki fengið tilboð enn sem
komið er en ég reikna fastlega með
því að það komi,“ sagði Þorlákur.
Vilja að Ár-
mann verði
keyptur
TEITUR Þórðarson, þjálfari
Brann, er nú nefndur sem einn
þeirra sem koma til greina í starf
þjálfara Óslóarliðsins Lyn. Króat-
anum Hrvoje Braovic sem stýrði
Lyn á nýliðinni leiktíði til bronsætis
í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, var sagt upp í gærkvöldi –
lynti lítt við eiganda Lyn og nokkra
leikmenn liðsins. Því var ákveðið að
hann tæki poka sinn.
Auk Teits eru Benny Lennarts-
son, þjálfari Viking í Stafangri, og
Englendingurinn Stuart Baxter
nefndir til sögunnar.
Tveir Íslendingar eru í herbúðum
Lyn, Helgi Sigurðsson og Jóhann
B. Guðmundsson. Teitur þjálfaði
Lyn eitt keppnistímabil, 1991–1992,
en á þeim tíma lék bróðir hans,
Ólafur, með liðinu.
Teitur orð-
aður við Lyn
ÍSLENDINGALIÐIÐ Stoke City
kynnir á blaðamannafundi fyrir há-
degi í dag nýjan knattspyrnustjóra
félagsins og samkvæmt öruggum
heimildum Morgunblaðsins verður
það Skotinn George Burley sem tek-
ur við liðinu, en hann horfði á Stoke
tapa fyrir Watford á Britannia í
gærkvöldi, 2:1. Stoke hefur verið
stjóralaust í nokkrar vikur eða eftir
að Steve Cotterill sagði upp og
ákvað að gerast aðstoðarmaður
Howard Wilkisons hjá Sunderland.
Gengið var frá samkomulagi við
Burley í gær fyrir leik liðsins á móti
Watford og verður formlega til-
kynnt um ráðningu hans á blaða-
mannafundinum. Gunnar Þór Gísla-
son, stjórnarformaður Stoke, vildi í
gærkvöldi ekki staðfesta í samtali
við Morgunblaðið að Burley yrði
næsti knattspyrnustjóri liðsins en
hann vonaðist til að geta kynnt „nýj-
an mann í brúna“ í dag. Gunnar
flaug gagngert til Englands í gær til
að ganga frá málum við Burley
ásamt kollegum sínum í stjórn fé-
lagsins og sat Burley við hlið Gunn-
arsog fylgdist með verðandi læri-
sveinum sínum í leiknum við
Watford.
Burley var sagt upp störfum hjá
Ipswich fyrir skömmu eftir farsælan
feril hjá félaginu. Hann lék með Ips-
wich í 14 ár og tók síðan við stjóra-
starfinu þar sem hann var í 7 ár.
George Burley tekur við Stoke
Ég er ánægður með minn leik íkvöld enda mátti hann svo sann-
arlega batna því það var ekki gæfu-
legt í gær á móti Rússum. Ég er feg-
inn að fá það á hreint að ég get þetta
ennþá, en það er langt síðan ég hef
spilað alvöru leik og ég var mjög
ákveðinn í að standa mig í kvöld, en
það var verst að það skyldi ekki
nægja til að vinna.
Frammistaða mín á móti Rússum
var áhyggjuefni en ég er feginn að ég
komst í gang,“ sagði Guðmundur
Hrafnkelsson markvörður íslenska
liðsins sem var án nokkurs vafa besti
maður íslenska liðsins gegn Þýska-
landi á heimsbikarmótinu í Svíþjóð.
Það dugði þó ekki til sigurs, þar sem
Þjóðverjar voru sterkari og unnu,
27:20.
„Vörnin var góð hjá okkur í kvöld
en því miður tókst okkur ekki að nýta
það í sókninni. Við gerðum allt of mik-
ið af mistökum í sókninni og þegar
leikið er á svona sterku móti er manni
refsað fyrir það á stundinni. Þetta var
samt miklu betra hjá okkur í dag en á
móti Rússum, baráttan var fín í vörn-
inni en það vantar svolítið í sóknina og
það er vont að missa Dag. Við verðum
bara að reyna að vinna úr þessu, til
þess er jú leikurinn gerður að komast
að því hvar við stöndum gegn sterk-
ustu liðunum,“ sagði Guðmundur,
sem varði 22 skot í leiknum.
„Leikur okkar var lengi vel í góðu
lagi en svo kom kafli í síðari hálfleik
þar sem ekkert gekk upp og þeir
keyrðu hreinlega yfir okkur í hraða-
upphlaupum.“
Nú eru Rússar og Þjóðverjar taldir
líklegir til afreka á HM eftir áramót-
in, hvorir finnst þér með skemmti-
legra lið?
„Það hentar okkur betur að leika á
móti Þjóverjum og það hefur oft hent
okkur að tapa stórt fyrir Rússum
enda eru þeir stórir og stæðilegir.
Mér finnst Þjóðverjar með skemmti-
legra lið, þeir eru með fleiri góða leik-
menn á meðan Rússar byggja mikið á
tveimur til þremur mönnum sem
verða að standa sig eigi þeir að ná
langt,“ sagði Guðmundur.
Morgunblaðið/Mikael Forslund
Ólafur Stefánsson tekur hér
aukakast fyrir Íslendinga en fyr-
ir framan hann eru hávaxnir
Þjóðverjar, Mark Dragunski, Jan
Olaf Immel og Klaus Dieter Pet-
ersen, til varnar í Ludvika, þar
sem Þjóðverjar unnu, 27:20.
Ólafur var í strangri gæslu í
leiknum en skoraði 5 mörk.
Guðmundur varði
22 skot Þjóðverja