Morgunblaðið - 31.10.2002, Qupperneq 4
FÓLK
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
knattspyrnumaður skrifaði í fyrra-
kvöld undir tveggja ára samning við
KR. Sigurður sem lék áður með
yngri flokkum KR kom aftur til fé-
lagsins í vor eftir langa útivist. Sig-
urður varð þriðji markhæsti leik-
maður efstu deildar karla á nýliðinni
leiktíð, skoraði 11 mörk.
ESPEN Johnsen, varamarkvörður
Rosenborg, gæti verið á leið til
Bröndby, en danska félagið hefur
áhuga á að leigja markvörðinn unga
sem stendur í skugga Árna Gauts
Arasonar. Vitað er að Johnsen er
óánægður með hlutskipti sitt hjá
norsku meisturunum. „Ég held að
það sé upplagt fyrir Johnsen af fara
til Bröndby og leika þar næstu mán-
uðina,“ sagði Åge Hareide, þjálfari
Rosenborg, í gær.
HRVOJE Braovic, þjálfara Lyn,
var í gær sagt upp starfi sínu, en hon-
um hefur ekki tekist að lynda við eig-
anda félagsins og nokkra leikmenn.
Tveir Íslendingar eru á mála hjá
Óslóar-félaginu, Helgi Sigurðsson og
Jóhann B. Guðmundsson. Þrír menn
hafa þegar verið nefndir til sögunnar
sem eftirmaður Braovic, þar á meðal
er Teitur Þórðarson, þjálfari Brann,
einnig Benny Lennartsson hjá Vik-
ing og Englendingurinn Stuart Baxt-
er.
HERMT er að Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester Unit-
ed, ætli sér að krækja í senegalska
miðvallarleikmanninn Pape Bouba
Diop þegar opnað verður fyrir leik-
mannamarkaðinn í Evrópu í upphafi
næsta árs.
AGANEFND ítalska knattspyrnu-
sambandsins komst að þeirri niður-
stöðu í gær að Paolo Maldini yrði í
leikbanni í næstu umferð deildarinn-
ar vegna atviks sem átti sér stað í leik
AC Milan gegn Chiveo um sl. helgi. Á
sjónvarpsupptökum frá leik liðanna
má sjá varnarmanninn reynda, Mald-
ini, sparka í fyrrum félaga sinn hjá
Milan, Oliver Bierhoff, sem nú leikur
með Chiveo. Dómari leiksins sá ekki
atvikið en aganefndin byggði úrskurð
sinn á sjónvarpsupptöku frá leiknum,
og leikur Maldini ekki með Milan
gegn Reggiana í næstu umferð.
FRANCO Sensi, eigandi Róma, var
einnig úrskurðaður í bann af aga-
nefndinni í dag en hann lét hvöss orð
fall í garð knattspyrnudómara í land-
inu í sjónvarpssviðtali og má ekki
koma á leiki Róma fyrr en eftir 4.
nóvember nk.
JOHN Hartson vill gjarnan komast
á ný til Lundúna þar sem hann lék
með nokkrum félögum um árabil, en
hann er nú á mála hjá Celtic í Skot-
landi. Hermt er að Fulham hafi í
hyggju að kaupa hann frá Celtic þeg-
ar leikmannamarkaðurinn á Bret-
landseyjum verður opnaður á nýjan
leik í byrjun næsta árs.
ÞAÐ á ekki af Patrik Andersson,
leikmanni Barcelona og sænska
landsliðsins að ganga. Hann var
fjarri góðu gamni nær því alla síðustu
leiktíð vegna meiðsla en undir sumar
var hann á batavegi og var reiknað
með að hann gæti leikið með Svíum á
HM. Af því varð ekki. Nú þarf And-
erson að fara á ný í aðgerð vegna
meiðsla og þykir víst að hann leiki
ekki knattspyrnu næstu tíu mánuð-
ina.
AÐEINS 849 áhorfendur greiddu
aðgangseyri á Selhurst Park í fyrra-
kvöld þegar Wimbledon tók á móti
Rotherham í ensku 1. deildinni, en
völlurinn tekur rúmlega 26.000
áhorfendur. Af þessum 849 áhorfend-
um voru 227 úr hópi stuðningsmanna
Rotherham. Aldrei hafa færri áhorf-
endur mætt á heimaleik Wimbledon,
en stuðningsmenn liðsins eru nær því
hættir að mæta á leik liðsins. Með þvi
vilja þeir mótmæla væntanlegum
flutningi heimaleikja liðsins frá Sel-
hurst Park yfir á Milton Keynes.
MIKIÐ mun ganga á í leikjum
norska knattspyrnuliðsins Brann
og Sandefjord um laust sæti í úr-
valsdeildinni á næstu leiktíð en
Brann endaði í þriðja neðsta sæti
deildarinnar en Sandefjord í þriðja
sæti 1. deildar.
Fyrri leikur liðanna fer fram á
laugardaginn í Bergen á heima-
velli Teits Þórðarsonar og læri-
sveina hans í Brann en Ármann
Smári Björnsson mun að öllum lík-
indum leika með liðinu í leikjunum
tveimur, en óvíst var hvort hann
yrði með vegna prófa sem hann á
að taka á sama tíma á Íslandi.
Teitur segir í viðtali við Verdens
Gang að honum hafi þótt vænt um
hlý orð í garð liðsins frá stjórn-
endum meistaraliðs Rosenborg, en
Brann tapaði 4:0 í síðustu umferð
deildarkeppninnar á útivelli gegn
Rosenborg í Þrándheimi.
Nils Arne Eggen, þjálfari Rosen-
borg, sagði að það væri mikilvæg-
ara fyrir framtíð norskrar knatt-
spyrnu að Brann héldi sæti sínu í
deildinni, í stað þess að Sandefjord
færi upp. „Það er gríðarlegur
knattspyrnuáhugi í Bergen þrátt
fyrir að liðið hafi ekki fagnað titli í
39 ár, en ég trúi því að Brann vinni
báða leikina um laust sæti í úrvals-
deild. Liðið er í hringiðu sem það
hefur ekki náð að krafla sig út úr,
en ég vona knattpspyrnunnar
vegna að Brann verði á meðal
þeirra bestu á næstu leiktíð,“ sagði
Eggen við VG.
Teitur sagði sjálfur að það væri
gott fyrir sjálfstraust leikmanna að
heyra slíkt frá þjálfara liðs sem
hefði fagnað meistaratitli sl. ellefu
ár. „Það er ekkert leyndarmál að
við höfum undirbúið okkur fyrir
umspil að undanförnu og höfum
séð ýmis lið í 1. deild að und-
anförnu í undirbúningi okkar. Hins
vegar hef ég sent þakkarskeyti til
Stabæk sem lagði Moss 7:2 í loka-
umferðinni, þar gáfu leikmenn Sta-
bæk ekkert eftir og sýndu keppn-
isanda sem er mér að skapi,“ sagði
Teitur en með sigri hefði Moss
haldið sæti sínu í deildinni.
Brann hefur aðeins leikið um
fall þrisvar sinnum í sögu liðsins.
Fyrst árið 1981 og aftur tveimur
árum síðar. Í báðum tilvikum féll
liðið. Árið 1991 gekk betur í rimmu
liðsins gegn Strindheim og Bryne
þar sem Brann sigraði í báðum við-
ureignum sínum.
Teitur segist sjá eftir því að hafa
ekki fengið danska knattspyrnu-
manninn Brian Steen-Nielsen til
Brann í sumar, en Daninn vildi
gjarnan koma til félagsins. Hann
þótti hins vegar of gamall og dýr,
en Nielsen er 33 ára. „Við gátum
fengið Nielsen en gerðum þau mis-
tök að hafna honum,“ segir Teitur.
Í stað Danans notaði Brann pen-
inga sína til kaupa á Alonso Solis
og Cato Guntveit. Hinn síðast-
nefndi hefur verið meiddur alla
leiktíðina og Solis aðeins verið
svipur hjá sjón. „Eftir á að hyggja
tel ég að reynsla Nielsen hefði
reynst okkur dýmæt,“ segir Teitur.
Eggen styður Brann
Leikur Arsenal og Dortmund íA-riðlinum var bráðfjörugur
og áður en Thierry Henry kom
Arsenal yfir með marki beint úr
aukaspyrnu á 18. mínútu áttu leik-
menn Dortmund tvö stangarskot.
Dortmund jafnaði metin á 38. mín-
útu þegar Gilberto Silva varð fyrir
því óláni að skora í eigið mark og
Tékkinn Tomas Rasicky tryggði
heimamönnum sigurinn með marki
úr vítaspyrnu sem dæmd var á
David Seaman, markvörð Arsenal.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
gantaðist með það eftir leikinn að
hans menn hefðu slegið enn eitt
metið á leiktíðinni.
„Það er engin taugaveiklun í
okkar herbúðum. Mér fannst liðið
að mörgu leyti leika vel og ég sá
margt jákvætt við leik minna
manna. Ég er alveg sannfærður
um við eigum eftir að komast á
rétta braut á ný,“ sagði Arsene
Wenger, stjóri Arsenal.
Auxerre átti möguleika á komast
áfram en sá draumur varð að engu
í Eindhoven þar sem heimamenn í
PSV unnu öruggan sigur, 3:0.
Tveimur liðsmönnum Auxerre var
vikið af velli,Philippe Mexes á 26.
mínútu og Olivier Narcisse Kapo
Obou á 51. mínútu.
Liverpool og Basel
mætast í úrslitaleik
Aðeins einn leikur var spilaður í
B-riðlinum þar sem leik Spörtu
Moskvu og Basel var frestað vegna
harmleiksins í leikhúsinu í Moskvu
í síðustu viku. Liverpool og Spán-
armeistarar Valencia mættust á
Anfield og fögnuðu Spánverjarnir
sigri, 1:0, með marki Francisco
Rufete á 34. mínútu. Með sigrinum
tryggði Valencia sér farseðilinn í
aðra umferð en Liverpool á í höggi
við Basel um annað sætið í riðl-
inum. Liverpool hefur 7 stig en
Basel 5. Svisslendingarnir mæta
Spörtu í næstu viku og í loka-
umferðinni verður um hreinan úr-
slitaleik að ræða þegar Basel tekur
á móti Liverpool.
Spánarmeistararnir voru allan
tímann sterkari aðilinn og unnu
verðskuldaðan sigur en þetta var
fyrsti ósigur Liverpool á heima-
velli í rúmt ár.
„Valencia hefur í tvígang komist
í úrslit Meistaradeildarinnar á síð-
ustu árum og það kom vel í ljós í
báðum leikjum okkar við Spánverj-
ana að þeir eru aðeins betri en við.
Nú bíður okkar erfiður leikur við
Basel en við vissum alltaf að við
yrðum að ná fram góðum úrslitum
þar til að komast lengra í keppn-
inni,“ sagði Stephen Gerrard, leik-
maður Liverpool, eftir leikinn.
Totti afgreiddi
meistarana
Það sló þögn á 65.000 áhorf-
endur á Santiago Bernabeu vell-
inum í Madrid á 27. mínútu þegar
Francesco Totti skoraði framhjá
Iker Casillas og reyndist það sig-
urmark leiksins. Madridingar
tefldu fram öllum sínum skærustu
stjörnum og í fyrsta sinn léku þeir
saman í byrjunarliðinu þeir Zined-
ine Zidane, Ronaldo, Roberto
Carlos, Luis Figo og Raul.
Roma og Real Madrid eru jöfn í
C-riðlinum með 8 stig fyrir loka-
umferðina en AEK, sem gerði 1:1,
jafntefli við Genk í Aþenu hefur 5
stig og á enn möguleika á að kom-
ast áfram á kostnað Rómverja.
Búið spil hjá Rosenborg
D-riðillinn er galopinn eftir en
þrjú lið berjast hart um tvö efstu
sætin. Árni Gautur Arason og fé-
lagar hans í Rosenborg töpuðu fyr-
ir Inter í Mílanó, 3:0 og á sama
tíma vann Ajax góðan útisigur á
Lyon, 2:0. Rosenborg er þar með
úr leik í Meistaradeildinni og
kemst heldur ekki í UEFA-keppn-
ina þar sem liðið hafnar í neðsta
sætinu. Inter og Ajax deila efsta
sætinu og mætast í lokaumferðinni
í Hollandi á sama tíma og Lyon
sækir Rosenborg heim. Árni Gaut-
ur gat lítið við mörkunum gert.
Alvaro Recoba skoraði fyrsta beint
úr aukaspyrnu, annað markið var
sjálfsmark og það þriðja skoraði
Argentínumaðurinn Hernan
Crespo af stuttu færi.
Reuters
Argentínumaðurinn Hernan Crespo er hér að skora þriðja mark Inter framhjá Árna Gauti Arasyni,
markverði Rosenborg, í Mílanó. Rosenborg tapaði, 3:0, og er þar með úr leik í Evrópukeppninni.
ENGLANDSMEISTARAR Arsen-
al máttu sætta sig við fjórða
tapleikinn í röð þegar þeir
lágu fyrir Dortmund í Meist-
aradeildinni á Westfalen leik-
vangnum í Dortmund, 2:1. Þar
sem PSV vann sigur á Aux-
erre, 3:0, kom ósigurinn ekki
að sök hjá Arsenal því bæði
Dortmund og Arsenal eru búin
að tryggja sér sæti í næstu
umferð keppninnar. Óvænt
tíðindi urðu í Madrid þar sem
Evrópumeistarar Real Madrid
biðu 1:0 ósigur á móti Roma
og sömu úrslit urðu á Anfield
þegar Liverpool tapaði fyrir
Valencia.
Dýr ósig-
ur hjá
Liverpool