Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 4
 GUÐFINNUR Kristmannsson skoraði eitt mark fyrir Wasaiterna sem steinlá fyrir Lugi, 33:23, í sænsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í fyrrakvöld. Wasaiterna er í 10. sæti af tólf liðum með 8 stig.  KNATTSPYRNUMAÐURINN Dennis Wise hefur farið fram á að fá lögreglufylgd þar til 16. nóvember er lið hans Millwall mætir Leicester í ensku 1. deildinni, en Wise hefur fengið hótunarbréf frá stuðnings- mönnum Leicester að undanförnu. Í haust var Wise sagt upp störfum hjá Leicester eftir að hann hafði ráðist á félaga sinn, Callum Davidson, í æf- ingaferð liðsins með þeim afleiðing- um að Davidson kinnbeinsbrotnaði.  WISE hefur hinsvegar farið í skaðabótamál gegn Leicester og krafist þess að fá rúmlega 260 millj. ísl. kr frá liðinu. Nú hafa stuðnings- menn Leicester tekið til sinna ráða og sent Wise fjölmörg bréf þar sem honum er hótað að eitthvað slæmt muni henda hann í nánustu framtíð láti hann ekki málið gegn Leicester niður falla. Lögreglan mun því verða í næsta nágrenni við Wise á næstu dögum.  STIG Töfting segist ekki fara frá Bolton fyrr en samningur hans renn- ur út næsta sumar, en félagið stytti samninginn á dögunum eftir að hann var dæmdur í fjögurra mánaða fang- elsi fyrir að ganga í skrokk á tveimur mönnum á veitingastað í Kaup- mannahöfn í sumar. Eftir að samn- ingurinn var styttur hefur verið þrá- látur orðrómur um að Töfting gangi til liðs við Árósa AGF þegar opnað verður fyrir félagsskiptagluggann í byrjun næsta árs.  CHRIS Turner var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Sheffield Wedn- esday. Hann var áður við stjórnvöl- inn hjá þriðju deildar liðinu Hartle- pool. Turner segir það verða sitt fyrsta verk að tryggja liðinu áfram- haldandi veru í 1. deild. Þegar það verður tryggt verður stefnan sett á úrvalsdeildina á nýjan leik.  BORTOLO Mutti var í gær vikið úr starfi þjálfara hjá ítalska 1. deild- arliðinu Reggina. 3:0 tap á móti Laz- io í fyrrakvöld var kornið sem fyllti mælinn hjá stjórnendum liðsins sem er með 5 stig eftir átta leiki og situr í fjórða neðsta sæti deildarinnar. Við þjálfun Reggina tekur Luigi de Can- io sem m.a. hefur stýrt Napoli.  JOE Royle, knattspyrnustjóri Ips- wich, segist vonast til þess að sigur liðsins á Middlesbrough í deildabik- arnum í fyrrakvöld verði til þess að auka sjálfstraust leikmanna, ekki veiti af þar sem Ipswich hefur ekki vegnað sem best á leiktíðinni og er um þessar mundir í 20. sæti af 24 lið- um í 1. deild.  ALLNOKKRIR stuðningsmenn Leeds eiga yfir höfði sér sektir og jafnvel bann frá kappleikjum eftir að þeir rifu upp sæti á leikvangi Shef- field United og hentu inn á völlinn eftir að lið þeirra tapaði 2:1 fyrir Sheffield í deildabikarnum í fyrra- kvöld. Enska knattspyrnusamband- ið hefur málið til rannsóknar en myndir náðust af óeirðaseggjunum.  ENSKA knattspyrnusambandið hefur ákveðið að herða mjög öryggi með David Beckham þegar hann er í verkefnum á vegum landsliðsins. Þetta er gert í framhaldi af því að upp komst um síðustu helgi að tveir menn höfðu á prjónunum að ræna eiginkonu Beckhams og tveimur sonum þeirra.  FABIO Capello, þjálfari Roma á Ítalíu, staðfesti í gær að hann hefði mikinn áhuga á að fá Englendinginn Steve McManaman til liðs við sig en honum hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá Evrópumeisturunum frá því hann gekk í raðir liðsins frá Liv- erpool fyrir þremur árum. FÓLK Eins og fram hefur komið í frétt-um er ástandið hjá Brann ekki burðugt og óvíst er hvað Teitur ger- ir. „Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri. Það næsta hjá mér er að fara í frí og síðan verðum við bara að sjá til hvað gerist. Ég hef sagt að ég eigi tvö ár eftir af samningi mínum og á meðan ekkert annað gerist er ég þjálfari hér. Það er hins vegar alveg ljóst að það verður að gera eitthvað og það verður að styrkja liðið því það er alveg vonlaust að ná einhverjum árangri í deildinni með þann mann- skap sem ég er með núna. Ég er bú- inn að segja forráðamönnum Brann að ætli þeir að gera eitthvað af viti á næstu leiktíð verði að kaupa í það minnsta þrjá sterka leikmenn frá efstu liðunum hér. Það er gjörsam- lega vonlaust að halda inn í nýtt tímabil við þær aðstæður sem verið hafa hjá félaginu – með hnífinn að hálsinum allt tímabilið. Ég veit ekki hvað stjórnin gerir en á næstu vikum mun hún fara yfir það sem hefur gerst í ár hjá okkur og hvað kemur út úr því veit maður aldrei. Peningamálin eru auðvitað mest aðkallandi því félagið er gjör- samlega á hausnum – það er ekkert flóknara en það. Það er verið að tala um eitthvað sem hugsanlega geti gerst til að bæta stöðuna á næstu mánuðum, en hvað það er og hvort það er rétt veit ég ekki þannig að ástandið er í raun allt í lausu lofti,“ segir Teitur. Nú er óvenjulegt að þrátt fyrir gengi liðsins er þjálfaranum ekki kennt um eins og oft vill verða. „Já, það er nú oftast þannig og við það verða menn að lifa séu þeir þjálf- arar. Ég er hins vegar ánægður að menn sjá að þetta var ekki hægt. Raunar hafa forráðamennirnir sagt að þetta væri ekki hægt nema með því að kaupa menn, en þess í stað er- um við búnir að selja heilt lið síðan ég kom hingað fyrir þremur árum.“ Hann sagði að nokkur félög hefðu haft samband við sig á tímabilinu en hann hafi jafnan svarað því til að hann væri samningsbundinn Brann. Hvað gerist á næstu mánuðum treysti Teitur sér ekki til að spá fyrir um, en sagði ljóst að breytingar væru nauðsynlegar, breytingar til hins betra. Leikurinn í Tallinn verður ekki auðveldur fyrir Íslendinga Ísland leikur landsleik í Eistlandi 20. nóvember. Þú þekkir vel til þar í landi enda varstu landsliðsþjálfari Eista áður en þú tókst vð Brann fyrir þremur árum. Áttu von á að þetta geti orðið skemmtilegur leikur? „Já, ég gæti best trúað því. Eist- neska landsliðið er á hraðri uppleið og það hafa orðið miklar framfarir hjá liðinu. Liðið leikur nú orðið mjög skipulega og agað þannig að það er liðin tíð að leikir við Eista séu eitt- hvað auðveldir. Ég fylgist enn vel með liðinu, enda eru strákarnir sem ég var með þegar ég var þjálfari enn í landsliðinu og ég hef gaman af að fylgjast vel með og fæ upplýsingar um hvernig liðinu er stillt upp og annað sem viðkemur liðinu. Liðinu hefur gengið nokkuð vel og það er alveg ljóst að þetta verður ekki léttur leikur fyrir Ísland. Ég var í Tallinn í fyrrasumar og sá landsleik við Hollendinga, sem þeir unnu nú reyndar á endanum, 3:2. Eistar voru lengi vel 2:1 yfir og voru Hollendingar heppnir að tapa hon- um ekki,“ sagði Teitur. Spurður um hvort hann yrði heið- ursgestur á leiknum, sagði Teitur: „Nei, heiðursgestur verð ég nú ekki en það er búið að hafa samband við mig og spyrja hvort ég vilji ekki koma og sjá leikinn. Ég ætla að sjá til, við erum á leiðinni í frí og ég veit ekki hvar ég verð þegar leikurinn verður.“ Með hverjum myndir þú halda ef þú yrðir á vellinum? „Ætli ég yrði ekki að halda með báðum og að dómarinn væri norsk- ur!? Nei, auðvitað myndi ég halda með Íslandi,“ sagði Teitur. Það var erilsamt og erfitt síðasta tímabil hjá Teiti Þórðarsyni, þjálfara Brann, en nú ætl- ar hann að taka sér gott frí áður en hann ákveður hvert framhaldið verður hjá sér Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, hafði ríka ástæðu til að fagna eftir sigurinn á Sandefjord og að erfiðu keppnistímabili loknu. Breytinga er þörf „ÞÚ GETUR nú rétt ímyndað þér hvort það er ekki þungu fargi af manni létt eftir að hafa sloppið við að falla,“ sagði Teitur Þórðarson, þjálfari norska liðsins Brann, kampakátur í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Teitur náði að tryggja sæti liðs síns í deildinni á síðustu stundu með því að vinna síðari leikinn í aukakeppni um laust sæti í deildinni. Naumara gat það vart verið. Á heimsmeistarakeppni kvenna- landsliða í knattspyrnu sem fram fer í Kína næsta haust verður gerð tilraun með að nota fimm dómara í hverjum leik. Að venju verður einn dómari og tveir aðstoðardómarar á hliðarlín- unum en að auki verða dómarar fyrir aftan mörkin. Markmiðið með dómurunum sem staðsettir verða fyrir aftan mörkin er í fyrsta lagi að fylgjast með leikmönnum sem láta sig falla í vítateignum og í öðru lagi að fylgjast með því þegar leik- menn halda í keppnistreyjur hvor annars í föstum leikatriðum á borð við hornspyrnur. Nefnd á vegum Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, FIFA, vonast til þess að breytingin verði jákvæð og verði sú viðbót sem til þurfi þar sem knattspyrnan sé mun hraðari í dag en áður. FIFA vill hinsvegar ekki að farið verði að dæma eftir myndbandsupptökum líkt og gert er í fjölmörgum atvinnumanna- íþróttum í Bandaríkjunum. Fimm dómarar á HM í Kína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.