Morgunblaðið - 27.11.2002, Qupperneq 2
BRESKA sendiráðið hefur keypt nýjan Range
Rover fyrir sendiherrann, John Culver, og fékk
bílinn afhentan í gær. Almenna reglan sé sú að
bresku sendiráðin hafi yfir bílum að ráða en þar
sem sendiráðið á Íslandi er lítið hefur það yfir
einum bíl að ráða. „Vinnureglan er sú um allan
heim að við eigum bílana í þrjú til fimm ár eftir
aðstæðum í hverju landi fyrir sig. Síðan er þeim
skipt út fyrir nýja. Nú er komið að því að skipta
okkar bíl út fyrir nýjan,“ segir Culver.
Bílstjóri Culvers er Óskar Sigurðsson. Hann
segir að gamli Range Rover-inn sé ekinn 34
þúsund km á fjórum árum.
„Það þarf að reikna út hvenær bíllinn fer að
verða of dýr í viðhaldi og þess vegna skiptum
við út á þessum fresti. Stefna okkar er að hafa
bestu bílana hverju sinni miðað við aðstæður en
við erum ekki bundnir af framleiðanda. Ég held
að það verði vart dregið í efa að Range Rover er
einhver besti bíllinn miðað við aðstæður á Ís-
landi. Ef ég fæ einhverju ráðið höldum við
áfram að nota þann bíl. Reyndar höfðum við áð-
ur Land Rover Discovery en þetta verður ann-
ar Range Rover-inn,“ segir sendiherrann.
Skynsamlegt að kaupa bílinn hér
Culver minnir á að hann sé sendiherra fyrir
allt landið, ekki einvörðungu Reykjavík, og þess
vegna ferðist hann mikið. „Við vorum á Akur-
eyri í síðustu viku og það er hluti af starfinu að
fara víða. Mér finnst Range Rover kjörinn bíll
til aksturs jafnt í borginni sem úti á landi að
vetri eða sumri.“
Culver segir að ástæðan fyrir því að ákveðið
var að kaupa bílinn hér á Íslandi í stað þess að
flytja hann inn frá Englandi hafi með þá stað-
reynd að gera að hér á landi býðst góð þjónusta
fyrir bílinn. „Þjónustan frá umboðinu er góð og
það er skynsamlegra að kaupa hann hér en
flytja hann inn frá Englandi. Auk þess er þetta
spurning um flutningskostnað og fleira því
tengt og segja má að við höfum fengið gott til-
boð.“
Vegirnir eins og annað í lífinu
Culver hefur sjálfur ekið mikið en meira hef-
ur hann þó ferðast um landið sem farþegi hjá
Óskari bílstjóra. „Við höfum farið vítt og breitt
um landið að Vestfjörðunum undanskildum.
Vegirnir hérna eru eins og svo margt annað í líf-
inu; þeir batna með árunum. Ég get ímyndað
mér að fyrir 20 árum eða svo hafi vegakerfið
verið svipað hér og í Bólivíu, þar sem ég starfaði
fyrir 20 árum. En mín reynsla er sú að vegirnir
eru sífellt að batna hérlendis. Það hefur líka
komið mér ánægjulega á óvart hve vel tekst til
að halda vegunum opnum á veturna. Það hlýtur
að vera mikil vinna, fagleg og kostnaðarsöm.
Þess vegna borgið þið líklega svo háa skatta - en
það er hverrar krónu virði,“ segir Culver og
kímir.
Breskur bílaiðnaður hefur gengið í gegnum
miklar lægðir undanfarin ár en Culver lítur
ekki sömu augum á málið. „Það er rétt að eign-
araðild að öllum bílaframleiðslufyrirtækjum á
Bretlandi er í höndum útlendinga. Við lítum þó
ekki á þetta sem vandamál. Það er ennþá mjög
blómlegur bílaiðnaður í landinu. Við framleið-
um mikið magn bíla af margvíslegum gerðum
fyrir mörg fyrirtæki um allan heim. Ég tel til að
mynda víst að stór hluti þeirra japönsku bíla
sem eru á götunum hér á Íslandi séu smíðaðir í
Bretlandi. Þeir koma því fram í útflutningstöl-
um okkar. Range Rover er gott dæmi. Við bjóð-
um erlenda fjárfesta hjartanlega velkomna til
Bretlands. Ford á Land Rover, Jaguar og
Aston Martin. Ford hefur lagt fram um 350–400
milljónir sterlingspunda í formi fjárfestinga í
Bretlandi til að byggja m.a. upp verksmiðjuna í
Sollihull þar sem Range Rover og Discovery
eru framleiddir. Þetta er hið besta mál. Þarna
vinna 11.000 manns við að framleiða Land Rov-
er út um allan heim. 35 þúsund bílar eru fram-
leiddir í Sollihull. Margir líta á það að Jaguar til
dæmis er ekki lengur í eigu bresku þjóðarinnar.
En hönnunin, verkfræðin og framleiðslan er
ennþá í höndum Breta að miklu leyti. Það er
auðvitað ekki hægt að láta sem við séum jafn-
umfangsmiklir bílaframleiðendur og við vorum
fyrir 30 árum á hátindi breska heimsveldisins.
En við höfum ennþá mjög ríka framleiðsluhefð í
landinu og breska þjóðin er mjög stolt af því.“
Culver er ánægður með vistina hér á landi.
„Hugarfar fólks hér og afstaða þess til lífsins og
þær staðreyndir að þjóðirnar eiga svo margt
sameiginlegt gera það að verkum að hér er
mjög gott að vera,“ segir Culver.
Sendiherrann
velur breskt
John Culver, sendiherra hennar hátignar Bretadrottningar á Ís-
landi, ræðir við Guðjón Guðmundsson um Range Rover, breskan
bílaiðnað og íslenska vegi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bresku sendiherrahjónin John og Margret Culver taka við nýja Range Rovernum.
Bíllinn er óneitanlega glæsilegur að innan.
2 C MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
PORSCHE hefur síðustu dagana kynnt
fyrir blaðamönnum hvaðanæva úr heim-
inum nýjan Cayenne-jeppa fyrirtækisins
í Jerez de la Frontera á Suður-Spáni.
Jeppinn, sem er að koma á markað í
Evrópu, er sá fyrsti sem Porsche fram-
leiðir og þriðji bíllinn í framleiðslulínu
fyrirtækisins, sem er þekkt um allan
heim fyrir smíði á aflmiklum sportbíl-
um. Bíllinn var prófaður í torfærubraut
og á þjóðvegum á Suður-Spáni í tveim-
ur gerðum, þ.e. Cayenne S og Turbo.
Hann er með 4,5 lítra, V8 vélum, 340
og 450 hestafla. Sagt verður nánar frá
þessum magnaða bíl á næstunni. Mynd-
in á forsíðu er af Cayenne í torfæru-
braut í Jerez og myndin hér að ofan
sýnir hvernig bíllinn var útleikinn eftir
torfærubrautina. Við bílinn stendur
Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar
Benna, umboðsaðila Porsche á Íslandi.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Benedikt Eyjólfsson við forugan Cayenne. Bíllinn er væntanlegur til Íslands í janúar.
Porsche kynntur á Spáni
Vél: Slagrými vélar 4,4 lítrar, 8 v-laga
strokkar, 268 hestöfl.
Drif: Sídrif, afldreifing 62 til fram-
hjóla, 38 til afturhjóla, spólvörn með
DSC, (þróuð gerð af gripstýringu sem
getur jafnt dregið úr afli til hjóla sem
og bætt við það).
Verð: 10,9 milljónir
Aukabúnaður: Raddstýrður GSM-
símbúnaður 300.000 kr.
Staðalbúnaður: Leðursæti, rafmagn
í sætum með minni, upphituð sæti að
framan og aftan, leðurklætt aðgerð-
arstýri með hraðastillingu, upphituð
framrúða, hljómkerfi með diska-
geymslu, tvöföld xenon framljós,
sjálfdekkjandi baksýnisspegill, aðfell-
anlegir útispeglar, sólskyggni fyrir
hliðarrúður, sex loftpúðar, bakkvörn,
(lætur vita þegar fyrirstaða er þegar
bakkað er), 18 tommu álfelgur, sérrí-
harðviður, hæðarstillanleg loftpúða-
fjöðrun, aksturstölva, regnskynjari,
sóllúga, sjálfvirk loftkæling, upphitað
stýri.
Range Rover
Culvers
gugu@mbl.is
LÍTILL bíll í Golf-stærðarflokknum er á leiðinni frá Saab. Þetta
verður þriðja framleiðslulína Saab en fyrir eru stærri bílarnir
9-3 og 9-5.
Litli bíllinn
verður hlað-
bakur og deil-
ir tækni með
öðrum bílum
innan General
Motors. Bob
Lutz, sem er
einn af æðstu mönnum GM, segir að Saab 9-2 verði gæðabíll
með mikla aksturseiginleika.
Saab framleiðir nú um 125.000 bíla á ári og GM vill auka
framleiðsluna og söluna. Þess vegna vill fyrirtækið fara út í
framleiðslu á litlum bíl þar sem salan er hvað mest. Ráðgert er
að bíllinn komi á markað 2006.
TIL AÐ mæta sívaxandi eftirspurn eftir dísilvélum hefur PSA-
samsteypan, sem framleiðir Peugeot-Citroën, tvöfaldað fram-
leiðslu á nýjustu kynslóð dísilvéla frá fyrirtækinu. Þessar vélar
voru fyrst kynntar í Citroën C3 og eru nú í boði í Ford Fiesta
og Peugeot 206. Vélin er hönnuð og framleidd í samvinnu við
Ford Motor Company. Þessi nýja kynslóð dísilvéla byggist á
samrásarinnsprautun (common-rail). Markmið með samvinnu
Ford og PSA er að framleiða litla og létta vél sem þó skilar
miklu afli eða allt að 90 hestöflum. Daglega eru framleiddar
5.000 vélar. Verksmiðja PSA Peugeot-Citroën í Trémery í
Frakklandi er stærsta dísilvélaverksmiðja í heimi.
Brimborg getur nú þegar boðið bæði Ford Fiesta og Citroën
C3 með hinni nýju vél.
Tvöfalda framleiðslu
á dísilvélum
PSA, Peugeot-Citroën
Saab þróar 9-2
í sama stærðar-
flokk og Golf