Morgunblaðið - 27.11.2002, Page 6
BÍLAR
6 C MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ tíðkast meðal jeppamanna
að minnka loftþrýsting í dekkj-
um til að auka drifgetu þeirra.
Það sem ávinnst er aukinn grip-
flötur dekkja við jörðu og þar
með flothæfni. Því stærri sem
dekkin eru þeim mun meira
verður flot þeirra og grip við úr-
hleypingu.
Minnkun lofts í dekkjum er
nauðsynleg við akstur í snjó en
einnig mjög freistandi þegar ek-
ið er á grófum malarvegum á
sumrin. Við það verður akst-
urinn mýkri og þægilegri og far-
þegar njóta ferðarinnar betur. Þó
ber að hafa í huga að engin dekk
eru sérstaklega gerð fyrir lágan
loftþrýsting. Því er nauðsynlegt að
pumpa í dekkin aftur eins fljótt og
auðið er þegar aka skal hratt á
auðum vegi. Einnig skal forðast
hvassa steina því þeir geta auð-
veldlega eyðilagt dekk. Á sumrin
geta þær aðstæður komið upp að
hleypa þurfi verulega miklu lofti úr
dekkjum til að komast fyrir hindr-
un án þess að skemma undirlag.
Við akstur í snjó með lágum
loftþrýstingi í dekkjunum þarf að
gæta þess að þau hitni ekki.
Reynslan er sú að þegar ekið er á
mjög gljúpum snjó, sem krefst loft-
þrýstings allt niður í þrjú pund til
að drífa bílinn áfram, er ferðin
vanalega svo lítil að snjórinn nær
að kæla dekkið nægilega til að
varna skemmdum. Ef snjórinn er
harður eykst hraðagetan og hætt-
an á dekkjaskemmdum. Því er
nauðsynlegt að fylgjast ætíð vel
með loftþrýstingi í dekkjunum.
Þeir sem aka í snjó upp jökla
og fjöll þurfa stöðugt að fylgj-
ast með loftþrýstingi í dekkjum,
m.a. vegna þess að aukin hæð
yfir sjávarmáli hefur þau áhrif
að þrýstingur í dekkjum eykst.
Þetta hefur veruleg áhrif á drif-
getu jeppans. Á sama hátt þarf
að fygljast með og bæta tím-
anlega lofti í dekkin þegar farið
er niður aftur. Auk hæðar yfir
sjávarmáli hafa hitastig, hæðir
og lægðir áhrif á loftþrýsting í
dekkjum.
Að minnka loft í dekkjum
& )-,
( * ) ((
!"#!
$
!
%
&
!
'!
"
"
(
$
(
")
!
**
'
"+
+'
( !
( ).
' * '
Jeppahornið
Úr Jeppabók Arctic Trucks.
ur meðal annars unnið mikið fyrir
norska herinn. Um síðustu áramót
afhenti það t.a.m. sextán Mercedes-
Benz G-jeppa sem búið var að setja
í nýja gorma og samsláttarpúða.
Auk þess útbjó Arctic Trucks bíl-
ana með dynex-ofurtóg frá Hamp-
iðjunni og 24 volta loftdælu. Bílarn-
ir fóru síðan allir í hernaðinn í
Afganistan.
Þá fékk fyrirtækið það verkefni
að gera þrjá Toyota Land Cruiser
100 brynvarða en þeir voru síðan
sendir til Kosovo. Í bílana voru
settar 38 mm þykkar rúður og auk
þess var fjöðrun þeirra breytt.
Ekki má heldur gleyma því að
Arctic Trucks, sem hefur lítið verið
í breytingum fyrir 38 tommu dekk
EINS og greint hefur verið frá hef-
ur Arctic Trucks, dótturfyrirtæki P.
Samúelssonar, umboðsaðila Toyota
og Lexus á Íslandi, haslað sér völl
með jeppabreytingar í Noregi. Fyr-
irtækið hefur breytt mörgum
Toyota-bílum og hefur nú einnig
hafið breytingar á Suzuki Grand
Vitara XL-7. Suzuki Grand Vitara
XL-7 er mjög frambærilegur jeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með
sítengdu fjórhjóladrifi. Aksturseig-
inleikarnir eru góðir og bíllinn hef-
ur fengið góðar viðtökur hjá bíla-
blaðamönnum. En þetta dugar ekki
Suzuki sem nú hefur hafið samstarf
við Arctic Trucks í Noregi.
Örn Thomsen, framkvæmdastjóri
Arctic Trucks í Noregi, segir að
forsaga málsins hafi verið sú að
símafyrirtækið norska Netcom hafi
keypt þrjá svona bíla en fjöðrun
þeirra hafi ekki hentað að fullu þar
sem bílarnir eru notaður mjög mik-
ið hlaðnir. Arctic Trucks var fengið
til að breyta fjöðruninni; settir voru
prógressívir gormar allan hringinn
og líkaði fyrirtækinu breytingin svo
vel að það ákvað að kaupa 37 XL-7
til viðbótar og nú hefur Arctic
Trucks breytt fjöðrun þeirra allra.
Breytingarnar byggjast að hluta
til á útfluttu hugviti frá Íslandi því
Suzuki-umboðið á Íslandi lét breyta
fyrsta bílnum hér heima og það
gerði Árni Brynjólfsson. Arctic
Trucks í Noregi hafa síðan byggt á
þeirri vinnu og þróað hana enn
frekar. Þá eru brettakantanir smíði
Snorra í Samtaki.
Unnið fyrir norska herinn
Fyrirtækið hefur getið sér mjög
góðs orðs í Noregi og er þar þekkt
fyrir mikla sérhæfingu í undirvögn-
um og fjöðrun bíla. Fyrirtækið hef-
eða þaðan af stærri, hefur engu að
síður breytt þremur Land Cruiser
fyrir 38 tommu sem norsku land-
mælingarnar keyptu og sendu til
Svalbarða.
Sportpakki
Ódýrustu breytinguna kalla Arc-
tic Trucks-menn sportpakka, sem
felur í sér stífari og „prógressívari“
gormafjöðrun auk þess sem settir
eru nýir höggdeyfar að aftan. „Pró-
gressívir“ gormar hafa þéttari vafn-
inga í öðrum endanum og stífna því
meira eftir því sem hleðslan eykst.
Þetta gefur bílnum meiri stöðug-
leika í akstri og jafnframt betri
aksturseiginleika hlöðnum. Í Nor-
egi kostar sportpakkinn 12.000 kr.
norskar.
Fjallaslóðapakki
Fjallaslóðapakki felur í sér sömu
breytingar og fylgja sportpakkan-
um en að auki er bíllinn hækkaður
lítillega á yfirbyggingu.
Bíllinn er settur á 31 tommu
dekk. Kostnaður er 41.000 kr.
norskar.
Í þriðja og síðasta lagi bjóða Arc-
tic Trucks-menn upp á jeppapakka
sem felur í sér að hjólhafið er aukið
um fimm cm og bíllinn settur á 33
tommu dekk sem gerir að verkum
að veghæðin eykst um 5 cm. Hraða-
mælirinn er endurstilltur og drifið
er lækkað. Kostnaður í Noregi er
114.000 kr. Þá er bíllinn einnig af-
hentur með ýmsum sérbúnaði, eins
og aukaljósum, grind að framan og
fleiru.
Í Noregi kostar fullbúinn XL-7
virðisaukabíll með jeppapakkanum,
þ.e. þegar tekin hafa verið úr hon-
um aftursætin og afturrýmið
stækkað í samræmi við reglugerðir,
396.900 kr., eða rúmlega fjórar
milljónir ÍSK.
Heimasíða Arctic Trucks í Nor-
egi er www.arctictrucks.no.
Hjólhafið er aukið um 5 cm og bíllinn settur á 33 tommu dekk sem hækkar
hann um 5 cm.
Breyta Suzuki XL-7 í Noregi
Arctic Trucks í Noregi hefur
getið sér gott orð í tengslum
við breytingar á jeppum. Fyr-
irtækið hefur m.a. unnið mikið
að breytingum fyrir norska
herinn.
gugu@mbl.is
Arctic Trucks hefur breytt 40 XL-7 fyrir Netcom í Noregi.