Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 1
2002  LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÞJÁLFARI ROMA SEGIR ARSENAL BESTA LIÐ EVRÓPU / B4 ALÞJÓÐAÓLYMPÍUNEFNDIN, IOC, hefur ákveðið að setja á stofn sjóð sem á að þjóna því hlutverki að vera varsjóður IOC ef ske kynni að Ólympíuleikum yrði frestað eða hætt vegna hryðjuverka. Sjóðurinn er um 4,5 milljarðar ísl. kr. og segir Jacques Rogge, forseti IOC, að breyttir tímar í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjum hinn 11. september sl. geri það að verkum að IOC þurfi að gera ráðstafanir í þessum efn- um, en IOC fundar þessa dagana í Mexíkó. Ör- yggismál fyrir leikana í Aþenu á Grikklandi árið 2004 eru mikið rædd og verður miklu til kostað á þeim vettvangi. Fjárhagur IOC er hins vegar með ágætum en þar á bæ eru til varasjóðir sem nema um 11 milljörðum ísl. kr. IOC stofnar sjóð vegna „hryðjuverka“ FORRÁÐAMENN norska úrvals- deildarliðss Sogndal voru á leik varaliðs Arsenal gegn Watford sl. mánudag og samkvæmt frétt vef- miðilsins firda.no var það íslenski ungmennaliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason sem var ástæða þess að þeir gerðu sér ferð til Englands. Trond Fylling og Jan Halvor Halvorsen, þjálfarar liðsins, segja að þeir hafi verið að skoða marga leikmenn en að hægri bakvörður Arsenal hafi verið ástæðan fyrir heimsókna þeirra. Ólafur Ingi var seldur frá Fylki til Arsenal í lok leiktíðarinnar á Ís- landi árið 2001, gerði þá samning til þriggja ára og hefur verið að leika með vara- og unglingaliðum félagsins. Halvorsen er aðstoðar- þjálfari liðsins en hann var áður þjálfari Start í Kristiansand en fékk að taka poka sinn sl. sumar. Guðjón Þórðarson tók við liðinu sem þá var í mikilli fallhættu og náði ekki að snúa við blaðinu í kjöl- farið. Sogndal er lítið félag á norskum mælikvarða á vestur- strönd Noregs og hefur flakkað á milli efstu og 1. deildar á und- anförnum árum. Liðið endaði í fjórða neðsta sæti deildarinnar á þessu ári, en fyrir neðan voru Brann, Moss og Start. Sogndal hefur áhuga á Ólafi Inga LEIKMENN í ensku 1. deildinni í knattspyrnu, eru samkvæmt rannsókn sem gerð var þar í landi, með að meðaltali þrisvar sinnum hærri laun en þeir tekju- hæstu atvinnumenn í öðrum hópíþróttum sem stundaðar eru á enskri grund. Fjölmargir íslenskir landsliðsmenn leika í ensku 1. deildinni og samkvæmt niðurstöðum rannsókn- arinnar sem gerð var fyrir ári síðan eru meðalaun leik- manna í 1. deild 22 milljónir ísl. kr., eða rétt rúm 1.800 þúsund á mánuði. Leikmenn í ruðningsliði í efstu deild á Englandi fá til samanburðar um 6,3 millj- ónir í árslaun eða um 530 þúsund á mánuði og í þjóð- aríþrótt Englendinga, krik- kett, fá leikmenn að með- altali um 5,1 milljón á ári, eða um 425 þúsund á mán- uði. Meðallaun í ensku at- vinnulífi eru hinsvegar 2,7 milljónir kr., eða um 225 þúsund á mánuði. Þess má geta að nokkur félög í 1. deild eiga í miklum fjárhagserfiðleikum, meðal þeirra er Bradford sem get- ur ekki gert upp að fullu við leikmenn sína nú um mán- aðamótin. Ágæt laun í ensku 1. deildinni Dallas náði „aðeins“ 14 leikjum íröð og kemst því ekki í sögu- bækurnar á þessum vettvangi. Liðið er þó í öðru sæti ásamt Boston á þessu sviði en grænklædda liðið náði 14 leikjum í röð í upphafi tímabilsins árið 1957. „Dallas er með besta liðið í NBA- deildinni á þessari stundu en við lék- um okkar besta leik til þessa í vetur, og slíkt þarf til gegn slíku liði,“ sagði hinn margreyndi Isiah Thomas þjálf- ari Indiana en liðið hefur komið gríð- arlega á óvart það sem af er og er í efsta sæti austurdeildarinnar. Don Nelson þjálfari Dallas sagði að liðið hefði viljað skrá nafn sitt í sögu- bækurnar en NBA-deildin væri óút- reiknanleg. Við lékum tvo leiki í röð og satt best að segja áttum við ekki nóg eldsneyti í síðari leikinn, gegn In- diana,“ sagði Nelson og sagði 38% skotnýtingu liðsins gegn 54% nýtingu Indiana skýra allt sem skýra þyrfti. Nelson-feðgarnir, Don og Donnie sonur hans og aðstoðarþjálfari liðs- ins, hafa snúið hlutunum við hægt og bítandi í olíuborginni í Texas með dyggri aðstoð Cubans en hann hefur eytt gríðarlegum fjármunum í liðið sl. tvö ár. Dallas var slakasta liðið Það er ekki nema áratugur síðan liðið var án alls vafa slakasta liðið sem hafði leikið í NBA-deildinni í mörg herrans ár. Tímabilið 1992–1993 vann Dallas aðeins 11 leiki á allri leiktíðinni og tapaði alls 71 leik. Tímabilið 1993– 1994, gekk örlítið betur og liðið bætti tveimur sigurleikjum í sarpinn, 13 sigrar og 69 töp og Dallas varð að at- hlægi um víða veröld. Dallas var sett á laggirnar árið 1980 og hefur í gegn- um tíðina ekki haft á að skipa „stjörnuleikmönnum“ sem hafa prýtt veggi og hurðir aðdáenda NBA- deildarinnar í gegnum tíðina. Aðeins tveir keppnisbúningar hafa verið hífðir upp í rjáfur til heiðurs þeim Brad Davis (15) og Rolando Black- man (22), en aðeins harðir aðdáendur NBA-boltans vita hverjir þeir eru. Don Nelson þykir hins vegar hafa farið óhefðbundnar leiðir að því marki sínu að gera Dallas-liðið sam- keppnishæft í gríðarlega harðri keppni á vesturströndinni. „Skorum bara meira en hinir“ Nelson hefur í gegnum tíðina farið langt á hugmyndafræði sinni, „við þurfum aðeins að skora fleiri stig en mótherjar okkar,“ enda hefur sókn- arleikur Dallas verið skemmtilegur á að horfa en vörnin verið líkt og svissneskur ostur, gloppótt. Undan- farin tvö ár hefur varnarleikur liðsins batnaði mikið og árangurinn hefur verið betri. Michael Finley er enn aðalmaður- inn í liðinu, en að sama skapi er liðs- heild og hlutverkaskipting leiðarljós liðsins. Nelson eldri er með krabba- mein í blöðruhálskirtli og margir héldu að lyfjameðferð sem hann fór árið 1998 hefði skert dómgreind hans, er hann valdi lítt þekktan Þjóð- verja að nafni Dirk Nowitzki í nýliða- valinu. Flestir vildu nú hafa Nowitzki í röðum sínum og að auki hefur Kan- adamaðurinn Steve Nash blásið á all- ar gagnrýnisraddir og stýrir leik liðs- ins af festu og skorar auk þess drjúgt í hverjum leik. AP Með tunguna úti og einbeittur á svip stekkur Þjóðverjinn Dirk Nowitzki yfir gömlu kempuna Reggie Miller í Indianapolis. Dallas fór útaf sporinu HINN litríki og umdeildi eigandi NBA-liðsins Dallas Mavericks, Mark Cuban, beit í neðri vörina á sér og var vonsvikinn í leikslok í fyrsta sinn á leiktíðinni er hann sá lið sitt tapa, 110:98, á útivelli fyrir In- diana Pacers aðfaranótt föstudags. Cuban hafði vonast til þess að Dallas myndi jafna met Washington Capitols frá árinun 1948 og Houston Rockets frá árinu 1993 en liðin unnu á þeim tíma 15 fyrstu leiki tímabilsins.                                                 ! "# $ $#$        % #  &'#  (# )   * + ) + #     $ $#$  % &  # + ,- . +/ 0# # 1 2 +3 4# +3 4#   # / +3 4# '  /,2-5#/ +3 4#   # / +3 4#   # / +3 4# 1" # #2 '  /,2-5#/ +3 4# 1" # #2 +3 4# 1  # #2 '  /,2-5#/ +3 4#                   6#7         0# # ,4#  

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.