Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 B 3 Fyrirliðinn úr KR í Leiftra og síðan aftur í KR ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði Íslandsmeistara KR í knattspyrnu, tilkynnti í gær félagsskipti yfir í Leiftra, íþróttafélag lögreglu- manna. Þormóður ætlar sér að leika með Leiftra í 4. deild Íslands- mótsins í innanhússknattspyrnu sem fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg á morgun. Eftir því sem næst verður komist hefur Þor- móður ekki snúið baki við félögum sínum í KR því hann hyggst skipta aftur yfir í þeirra raðir í næstu viku. Það verður því stuttur stans hjá Þormóði í Leiftra en með því félagi leikur hann í D-riðli 4. deildar þar sem leika Þróttur Vatnsleysuströnd, Eyfellingur og Ólafur Pái auk Leiftra. KA-menn unnu stórsigur á Selfyssingum áSelfossi í gærkvöldií 1. deildarkeppni karla ndknattleik, 23:38. Með sigrinum fóru KA- menn í 3. sætið með 19 stig, en Þórsarar eru þó skammt undan með 18 stig og leik til góða á KA. Haukar lúra í 5. sætinu með 17 stig, en þeir eiga hinsvegar tvo til góða á KA-menn. Selfyssingar sitja enn fastast á botninum með ekkert stig. eikurinn var einstefna frá upphafi til enda en menn mættu einbeittir til leiks á Selfossi og u heimamönnum engin grið. eikmenn KA höfðu lítið fyrir sigrinum en all- eikmenn liðsins fengu að koma við sögu í num. Liðið spilaði hratt á heimamenn, sem u auðvel bráð og fengu lítið ráðið við hraða manna. 100% skotnýting estur gestanna var án efa Stelmokas en hann raði 10 mörk og var með 100% skotnýtingu í num. Þá átti Jónatan Þór Magnússon ágæta etti í leikstjórnandahlutverki KA manna. Í Selfyssinga var Hannes Jónsson að klóra í kann en liðið átti í heildina slæman leik. Mikalonis tekinn úr umferð elfyssingar byrjuðu á 3-2-1 vörn en hún gekk upp og því skiptu þeir yfir í 6-0 vörn sem k aðeins betur. KA menn tóku Ramúnas alonis úr umferð allan tímann, en greinilegt að Selfyssingar söknuðu hans í sóknarleikn- erg r Ég held að þessi niðurstaða hafiverið sanngjörn þegar upp er staðið,“ sagði Guðríður Guðjónsdótt- ir, þjálfari Vals, í leikslok. „Sjálfsagt get ég þó verið ánægð með að halda í annað stigið miðað við lokamínútur leiksins en án þess að ég ætli að afsaka neitt þá hafa veik- indi verið að hrjá okkur undanfarið sem hafa tekið sinn toll af mínum stúlkum.“ Valur byrjaði þennan leik af mikl- um krafti, liðið skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og Berglind Hansdótt- ir, markvörður Vals, var í miklum ham í upphafi leiks. En Víkingsstúlk- ur fundu fjölina sína smátt og smátt og um miðjan hálfleikinn jöfnuðu þær leikinn og höfðu tveggja marka for- skot í leikhléi, 10:12. Guðríður hefur brýnt leikmenn sína í leikhléi því Valsstúlkur byrjuðu seinni hálfleikinn af sama krafti og þann fyrri. Þær jöfnuðu leikinn fljót- lega og náðu tveggja marka forystu á tíma. En Víkingar, með nöfnurnar Helgu Brynjólfsdóttur og Torfadótt- ur í fararbroddi, voru ekki á því að gefa neitt eftir og þegar rúmar 4 mín- útur voru til leiksloka komust þær yf- ir í fyrsta og eina skiptið í seinni hálf- leiknum, 18:19. Leikmönnum beggja liða voru heldur mislagðar hendur á lokamínútunum. Valsstúlkur fengu til að mynda fjórar góðar skottilraunir í einni af lokasóknum sínum en Helga Torfadóttir lokaði markinu í tveimur skotum, vörnin varði það þriðja og í fjórðu tilraun skutu Valsstúlkur framhjá. Víkingar hefðu á þessum tímapunkti getað tryggt sér sigurinn en þær töpuðu boltanum í sókninni, Valsstúlkur gerðu það sama í næstu sókn sinni en eftir að Berglind Hans- dóttir hafði varið frá Víkingum brunuðu Valsmenn í sókn og Kolbrún Franklín tryggði þeim annað stigið með marki með gegnumbroti. Baráttan var í fyrirrúmi í þessum leik, sem var á köflum afbragðsvel leikinn bæði í vörn og sókn hjá báðum liðum. Díana Guðjónsdóttir var markahæst í liði Vals með 6 mörk en Drífa Skúladóttir lék best Vals- stúlkna. Hjá Víkingum skoraði Helga Birna Brynjólfsdóttir mest en Helga Torfadóttir á mestan heiður skilinn í liði þeirra. Morgunblaðið/Golli Víkingurinn Gerður Beta Jóhannsdóttir freistar þess að komast framhjá Eygló Jónsdóttur, Vals- manni, sem er föst fyrir og ekki tilbúin að hleypa fyrrverandi samherja í Val framhjá sér. „Sanngjörn niðurstaða“ ÞAÐ varð ekkert úr uppgjöri Reykjavíkurliðanna í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi þegar Valur tók á móti Víkingi að Hlíð- arenda. Með sigri hefðu Víkingar, sem hafa verið í talsverðri sókn að undanförnu, getað skotist upp að hlið Vals en tvö lið skildu liðin að fyrir leikinn. Eftir jafnan og spennandi leik þar sem liðin skiptust á um að hafa forystuna varð jafntefli, 19:19, niðurstaðan. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar ÍÞRÓTTIR KA gaf engin grið  JÓN N. Hafsteinsson, varnarjaxl- inn úr Keflavík, var fjarri góðu gamni þegar félagar hans unnu KR í gærkvöldi. Hann var meiddur.  SIGURÐUR Einarsson úr Njarð- vík staldraði stutt við í leiknum við Skallagrím í gærkvöldi. Hann var inná í fimm mínútur og nældi sér í fimm villur.  TEITUR Örlygsson var ekki með félögum sínum í Njarðvík gegn Borgfirðingum í gærkvöldi. Hann var að sögn Njarðvíkinga í fríi í Bandaríkjunum.  ALAN Shearer, leikmaður New- castle, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja keppnisbann í Meist- aradeild Evrópu af Knattspyrnu- sambandi Evrópu, UEFA. Ástæðan er sú að Shearer gaf Fabio Cannav- aro, leikmanni Inter Mílanó, oln- bogaskot í leik Newcastle og Inter á miðvikudagskvöldið.  SHEARAR hefur frest fram á mánudag til að áfrýja niðurstöðunni en taki hún engum breytingum þá missir hann af leiknum við Barce- lona 10. desember ogvið Bayer Lev- erkusen í Þýskalandi 18. febrúar.  MARTIN Edwards, fyrrverandi stjórnarformaður Manchester Unit- ed, hefur sagt sig úr framkvæmda- stjórn félagsins og hættir í stjórn þess þegar keppnistímabilinu lýkur í vor. Talið er að Edwards hafi tekið þessa ákvörðun í framhaldi af frétt- um í enskum dagblöðum um að hann hafi keypt sér á kostnað félagsins þjónustu portkvenna í Genf á dög- unum eftir að dregið var í aðra um- ferð Meistaradeildar Evrópu.  HOLLENSKA knattspyrnuliðið Feyenoord var í gær sýknað af ákæru þess efnis að forsvarsmenn liðsins með forsetann Jorien van den Herik fremstan í flokki hefðu stung- ið undan fé undanfarin 4 ár. Sak- sóknari í Rotterdam sótti málið og vildi meina að fé vegna sölu leik- manna að upphæð um 100 milljónir ísl. kr. hafi ekki verið gefið upp til skatts.  FEYENOORD sigraði í UEFA- keppninni sl. vor er liðið lagði þýska liðið Borussia Dortmund, 3:2, en til- viljun ein réð því að leikurinn fór fram á heimavelli hollenska liðsins, De Kuip Stadium.  HINN litríki bandaríski atvinnu- kylfingur John Daly var dæmdur úr leik að loknum öðrum keppnisdegi á opna ástralska meistaramótinu í golfi en Daly skrifaði ekki undir skorkort sitt og slíkt er ávísun á brottvísun úr móti. Daly lék afar illa eða á níu höggum yfir pari vallar, kvittaði ekki undir skorkortið og tal- aði ekki við mótshaldara eða frétta- menn áður en hann flaug til Banda- ríkjanna á ný. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.