Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 2

Morgunblaðið - 03.12.2002, Side 2
Atli Hilmarsson ákvað í vor að söðla um eftir að hafa þjálfað KA í fimm ár. Hann tók tilboði þýska 2. deildar- liðsins TSG Friesen- heim í Ludwigshafen um að gerast þjálfari þess. Atli er því mættur í slaginn sem þjálfari fimmtán ár- um eftir að hann var leikmaður í þýska handknattleiknum. Ívar Benediktsson sló á þráðinn til Atla og forvitnaðist um félagið og hvernig það væri að geta einbeitt sér að þjálfun. Atli kvaddi KA-menn á viðeig-andi hátt, stýrði liðinu til sig- urs á Íslandsmótinu eftir fimm leikja spennandi einvígi við Val á vormánuðum og var það fyrsti Ís- landsmeistaratitill hans sem þjálf- ari. Þá þótti honum tilhlýðilegt að skipta um umhverfi, róa á önnur mið. „Ég hafði lengi átt mér þann draum að komast til Þýskalands og spreyta mig við þjálfun þar þannig að ég stóðst ekki freist- inguna þegar tilboð barst frá Friesenheim,“ sagði Atli í upphafi spjalls. Friesenheim lék ekkert um helgina, leik við Gelnhausen var frestað vegna þess að einn leik- manna liðsins, Grænlendingurinn Hans Motzfeldt og fyrrverandi leikmaður FH, var í æfingabúðum með grænlenska landsliðinu sem nú býr sig undir heimsmeistara- mótið í Portúgal á næsta ári. „Nú gafst tækifæri til að safna kröft- um, framundan er erfitt pró- gramm. Við eigum fimm leiki eftir fram að áramótum, þar af eru þrír á heimavelli. Þá verðum við að vinna alla til þess að vera í barátt- unni um sæti í efstu deild á næstu leiktíð,“ segir Atli sem líkar lífið vel í Ludwigshafen ásamt fjöl- skyldu sinni. Vantaði eitt stig í vor Annarri deildinni í Þýskalandi er skipt upp í tvo riðla, norður- og suðurdeild, og eru átján félög í hvorum riðli. TSG Friesenheim er í suðurhlutanum og hefur verið þar undanfarin sex ár. Sl. tvö ár hefur það hafnað í þriðja sæti en efstu lið hvorrar deildar vinna sig upp í 1. deild en félögin í öðru sæti í riðlunum taka þátt í umspili um sæti í efstu deild. Þriðja sætið gef- ur því engin tækifæri. Nú hefur stefnan verið sett á að fara upp í vor, gera betur en á síðustu leiktíð þegar aðeins vantaði eitt stig upp á að Friesenheim næði öðru sæti. Þegar tólf leikir eru að baki hjá Atla og lærisveinum er liðið á kunnuglegum slóðum, í þriðja sæti á eftir Kronau/Östringen og HSG Düsseldorf . „Við höfum tapað sjö stigum til þessa og það er á móti efstu liðunum og einnig gegn Sol- ingen og Melsungen sem koma næst á eftir okkur. Stigunum höf- um við tapað á útivelli þannig að ég vongóður um að geta unnið muninn upp þegar við mætum þessum liðum á heimavelli, en auð- vitað getur maður ekki verið viss því keppnin í deildinni er afar jöfn, sjaldan verið harðari en nú, er mér sagt. Sem dæmi má nefna að við unnum neðsta lið deildarinnar að- eins með einu marki á útivelli á dögunum, þannig að ekki hægt að bóka neitt fyrirfram,“ segir Atli og bætir því við að mikill metnaður ríki innan félagsins og menn stefni hiklaust að því að fara upp. Eigi það jafnt við stjórnendur sem leik- menn. „Ég finn fyrir mikill pressu, sem er jákvætt, en mér var sagt þegar ég tók við að ég fengi tíma til þess að byggja upp sterkara lið enda væri ég nýliði í deildinni sem þyrfti að fá tíma til þess að kynn- ast aðstæðum hér. TSG Friesenheim er í bænum Ludwigshafen sem er skammt frá Mannheim og skilur Rín á milli bæjarins og borgarinnar. Í Lud- wigshafen búa um 200.000 manns. Segir Atli áhuga fyrir handknatt- leik allnokkurn, en vissulega togi knattspyrna og íshokkí í Mann- heim til sín margfalt fleiri áhorf- endur og meiri athygli. „Hand- knattleikurinn er það sem stendur upp úr Ludwigshafen. Árangurinn skiptir auðvitað mestu máli varð- andi áhuga almennings á hand- knattleiknum. Við verðum að vera í efsta sæti til að fólk komi á leiki. Hér er margt í boði fyrir fólk og það fyllir ekki íþróttahúsið hjá okkur nema þegar við erum í efsta sæti eða þá þegar hingað koma okkar helstu andstæðingar úr ná- grenninu,“ segir Atli. „Auðvitað viljum við fá sem flesta áhorfendur á leiki, en fjárhagur félagsins stendur hins vegar ekki eða fellur með því heldur er aðalmálið að hafa sterka bakhjarla og þá höfum við, þannig að fjárhagsstaða fé- lagsins er nokkuð sterk, ekki síst eftir að við fengum stærsta fyr- irtækið hér í Ludwigshafen, BASF, til liðs við okkur í haust.“ Fámennur hópur leikmanna Atli tók Halldór Jóhann Sigfús- son, leikstjórnanda Íslandsmeist- araliðs KA, með sér til Friesen- heim. Halldór er einn sex útlendinga sem leika með liðinu en þeir eru allir atvinnumenn. Út- lendingarnir eru einu leikmenn liðsins sem eru atvinnumenn í íþróttinni, aðrir leikmenn eru ann- aðhvort háskólanemar eða þá menn sem hafa annað lifibrauði en handknattleik. Liðið er því skipað blöndu af atvinnumönnum og hálf- atvinnumönnum. Segir Atli það skapa helst þau vandamál að oft sé heldur fámennt á morgunæfingum liðsins sem eru tvisvar í viku. „Við skerum okkur úr með því að vera með svo marga útlendinga og hvern úr sinni áttinni, einn Dana, einn Svía, þá er Pólverji og Rússi og einn Frakki auk Hall- dórs. Það gengur hins vegar ótrú- lega vel að hrista þennan hóp sam- an þótt menn komi hver úr sinni áttinni. Auk þeirra eru nokkur hópur Þjóðverja, en því miður hef ég ekki yfir stórum hópi leik- manna að ráða, er aðeins með þrettán leikmenn þannig að við megum ekki við afföllum,“ segir Atli og bætir því við að það hafi komið nokkuð niður á liðinu að Svíinn, Andreas Agerborn, meidd- ist illa á öxl í haust og verður frá keppni fram í febrúar hið skemmsta. Agerborn sé sterk rétt- hent skytta auk þess að hafa verið besti varnarmaður deildarinnar undanfarin ár. „Eftir stendur að ég er aðeins með tólf leikmenn og það er alls ekki nógu gott því það hefur komið fyrir að ég hef aðeins getað notað tíu eða ellefu leikmenn í sumum leikjum því það er alltaf eitthvað um minniháttar meiðsli.“ Atli segir að það sé vissulega söknuðu að hafa ekki blómlega yngri flokka til taks eins og hjá KA þar sem hann var með 18 til 20 manns á æfingum og átti alltaf efnilega til taks í 2. flokki. Hjá Friesenheim er ekkert unglinga- starf í handknattleik fremur en hjá svo mörgum handknattleiksliðum í Þýskalandi og því er lítil endurnýj- un eða þá að hægt sé að „kippa“ inn yngri mönnum þegar þeir eldri meiðast. „Yngsti maðurinn í mínu liði er 24 ára gamall. Það eru engir yngri flokkar og það er mjög slæmt. Reyndar erum við með svo- kallað Friesenheim lið tvö, en í því eru eldri leikmenn eða þá menn sem ekki hafa tíma né aðstöðu til þess að spila með aðalliðinu. Í þessu liði er heldur enginn sem bankar á dyr aðalliðsins eða veitir einhverja samkeppni um stöður í aðalliðinu. Það er því ekki í nein hús að vernda ef mikið er um meiðsli. Mér finnst það því vera lyk- ilatriði fyrir félagið í framtíðina að fara af stað með yngri flokka starf sem getur með tímanum skilað leikmönnum upp í aðalliðið, þótt ekki væri nema til þess að æfa með okkur svo mögulegt sé að stilla upp í tvö lið á æfingum.“ Atli segir það vera mikla breyt- ingu að vera eingöngu þjálfari, geta einbeitt sér að því algjörlega og hafa ekkert annað starf með- fram. Það hafi vissulega sína kosti en einnig galla. „Stundum þegar illa gengur og eftir tapleiki þá hef- ur maður óskað þess að geta farið í Sparisjóðinn, skipt um umhverfi og hitt annað fólk, gleymt síðasta leik um stund, í stað þess að velta sér upp úr því endalaust hvað mið- ur og hvað sé til ráða,“ segir Atli og hlær við en hann var hjá Spari- sjóði Norðurlands á Akureyri sam- hliða þjálfun KA-liðsins. „Kostirnir eru hins vegar þeir að það gefst mikið betri tími til æf- inga, búa sig undir leiki og æfing- ar, fylgjast með leikjum andstæð- inganna. Mér finnst mjög skemmtilegt að geta einbeitt mér alfarið að þjálfun, þetta er nokkuð sem mig hefur lengi dreymt um, það er að helga mig alfarið þjálf- un.“ Halldóri hefur gengið vel Atli segir að Halldóri hafi geng- ið vel aðlaga sig nýjum aðstæðum hjá öðru félagi eftir að hafa leikið með KA frá barnsaldri. „Auðvitað var þetta talsvert átak fyrir hann sem leikstjórnanda að kom skyndi- lega hingað út og fara að stjórna leik liðsins á þýsku. Honum hefur hins vegar gengið vel, er nú kom- inn vel inn málið og farinn að stjórna eins og herforingi á miðj- unni. Hann er að vísu að keppa um stöðuna við leikmann sem hefur verið burðarás í liðinu árum sam- an, Peter de Hooge. Þeir hafa því skipt hlutverkinu nokkuð jafnt á milli sín enda gjörólíkir leikmenn. Það er gott að hafa tvo ólíka leik- stjórnendur því þannig er mögu- legt að brjóta aðeins upp leik liðs- ins, bjóða upp á fleiri kosti. Halldór er afar metnaðargjarn og æfir vel. Því reikna ég ekki með öðru en hann eigi eftir að spjara sig mjög vel hérna í Þýskalandi þegar fram líða stundir.“ Samanburður erfiður Atli segir erfitt að bera saman handknattleik í þýsku 2. deildinni við þau sem leika hér heima á Ís- landsmótinu. Það hafi komið sér nokkuð á óvart hversu mörg sterk lið eru í deildinni og því sé ekki mögulegt að bóka sigur gegn neinu þeirra, einkum á útivelli þar sem heimavellirnir skipta oft miklu máli og dómgæslan oft hlið- holl heimamönnum. „Metnaðurinn er mikill hjá flestum félögunum og talsvert lagt í sölurnar til þess að ná árangri og komast upp í fyrstu- deild. Ég á svolítið erfitt með að bera saman deildina hér og heima. Þýska 1. deildin er hins vegar geysilega sterk þar sem valinn maður er í hverju rúmi hjá öllum Atli Hilmarsson fór frá Akureyri til að þjálfa þýska handknattleiksliðið TSG Friesenheim Atli Hilmarsson stýrði KA að Íslandsmeistaratitli áður en hann hélt til Þýskalands til að þjálfa. Sakna á stundum Spari- sjóðsins Morgunblaðið/Kristján HANDKNATTLEIKUR 2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.